Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 53
Helgi Áss valinn skákmaður Norðurlanda
SKAK
Skákmiðstööin
Faxafcni 12:
SKÁKÞING ÍSLANDS
ÁSKORENDA- OG
OPINN PLOKKUR
8.-17. apríl
HELGI Áss Grétarsson var val-
inn skákmaður Norðurlanda
1994—95 á fundi Skáksambands
Norðurlanda í Reykja-
vík um helgina. Jón
G. Briem, forseti sam-
bandsins, tilkynnti um
valið í lokahófí Norður-
landamótsins. Valinn
er skákmaður sem náð
hefur framúrskarandi
árangri og að auki ver-
ið skákhreyfíngunni til
sóma með íþrótta-
mannslegri fram-
göngu.
Það er að sjálfsögðu
heimsmeistaratitill
Helga Áss í flokki 20
ára og yngri sem vó
þyngst við valið. Þetta
er { jj'órða sinn sem
skákmaður Norður-
landa er valinn. Áður hafa þeir Jó-
hann Hjartarson, Ulf Andersson og
Simen Ágdestein hlotið þessa nafn-
bót.
Helgi Áss
Grétarsson
Skákþing íslands
um páskana
Keppni í áskorenda- og opnum
flokki á Skákþingi íslands 1995
hefst laugardaginn 8. apríl kl. 14
1 Skákmiðstöðinni Faxafeni 12.
Keppendur í áskorendaflokki eru tíu
talsins og er þar keppt um sæti í
landsliðsflokki í haust auk þess sem
veitt eru verðlaun.
Með því að keppendum í áskor-
endaflokknum hefur verið fækkað
eins mikið og raun ber vitni, eykst
vægi opna flokksins.
Hann er öllum opinn
og þar er teflt um tvö
sæti í áskorendaflokki
næsta ár.
Auk þess eru þar
veitt tíu þúsund króna
peningaverðlaun fyrir
efsta sætið.
Það verður fróðlegt
að sjá hvernig skák-
menn taka þessari ný-
breytni.
Mótinu lýkur mánu-
daginn 17. apríl, sem
er annar í páskum. Á
frídögum verður teflt
frá kl. 14—20, en á
vinnudögum hefst tafl-
ið kl. 18 og geta skák-
ir staðið til kl. 24.
Skráning í opna flokkinn hefst á
mótsstað á laugardaginn kl. 13,
klukkustundu áður en taflið hefst.
Skákþing Akureyrar 1995
Þórleifur Karl Karlsson varð
skákmeistari Akureyrar 1995, eftir
að hafa sigrað Smára Rafn Teitsson
í einvígi um titilinn með tveimur
og hálfum vinningi gegn hálfum.
Röð efstu manna í hinum ýmsu
flokkum varð þessi:
Opni flokkurinn
1-2. Þórleifur Karl Karlsson og Smári
Rafn Teitsson 8 v. af 9 mögulegum.
3. Þór Valtýsson 7 v.
4. Guðmundur Daðason 6V2 v.
5. JónBjörgvinsson 4‘/2 v.
6—7. Ari Friðfinnsson og Loftur Bald-
vinsson 3 v.
Unglingaflokkur
1. Loftur Baldvinsson 4 v. af 6
2. Halldór Ingi Kárason 3 'h v.
3. Björn Finnbogason 3 v. o.s.frv.
Kvennaflokkur
1— 2. Anna Kristín Þórhallsdóttir og
Inga Kristín Jónsdóttir 4 v.
3— 4. Stella Christensen og Lilja Sig-
urðardóttir 3 v.
í einvígi um titilinn sigraði Anna
Kristín Þórhallsdóttir og er kvenna-
meistari Akureyrar 1995.
Drengjaflokkur
1. Sverrir Arnarsson 6 v. af 7
2— 3. Egill Örn Jónsson og Páll
Óskar Kristjánsson 5‘/2 v.
4— 5. Jón Ingi Halldórsson og Sigfús
Arason 4 v.
Hraðskákmót Akureyrar
1. Gunnar Björnsson 16 v. af 17
2. Ólafur Kristjánsson 15'/2 v.
3. Jón Björgvinsson 13 v.
4—5.Rúnar Sigurpálsson og Siguijón
Sigurbjömsson 12 'h v.
6. Gylfi Þórhallssonll1/! v.
7. Ríkharður Sveinsson 11 v.
8. Smári Ólafsson IOV2 v. o.s.frv.
Gunnar Bjömsson, formaður
Taflfélagsins Hellis og Ríkharður
Sveinsson, báðir alþjóðlegir skák-
dómarar, héldu dómaranámskeið á
Akureyri sömu helgi og hraðskák-
mótið fór fram. Þeir skelltu sér í
mótið með óvæntum og glæsilegum
árangri þess fyrmefnda.
Hraðskákmót unglinga og
drengja
1. Björn Finnbogason 13 v. af 14
2—3. Loftur Baldvinsson og Sverrir
Amarsson I2V2 v.
4. Egill Örn Jónsson 11 v.
5. Páll Óskar Kristjánsson 10 v.
6. Anna Kristín Þórhallsdóttir 9 v.
o.s.frv.
Smári Rafn Teitsson vann fyrstu
sjö skákir sínar á Skákþingi Ákur-
eyrar og virtist kominn með aðra
hendina á bikarinn, en þá tókst
Þórleifí að stöðva hann.
Margeir Pétursson
ISLENSKI LIFEYRISS JÓÐURINN
Hefur þú sýnt fyrirhyggju
í lífeyrismálum og
tryggt þér nægar tekjur
á eftirlaunaárunum?
I
„ LANDSBRÉF HF.
Löggilt verðbréfafyrirtæki.
Aðili að Verðbréfaþingi islands.
SUÐURLANÐSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK,SÍMI 588 9200, BRÉFASIMI 588 8598
RAÐA UGL YSINGAR
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1,
Selfossi, þriðjudaginn 11. aprfl 1995, kl. 10.00, á eftirfarandi eignum:
Bjarkarbraut 18 í landi Minni-Borgar, Grímsn., þingl. eig. Ásbjörn
Helgason, gerðarbeiðandi Grímsneshreppur.
Gíslabraut 7 úr landi Vatnsholts, Grímsn., þingl. eig. Vigdís Braga-
dóttir, gerðarbeiðandi Rafgeymir hf.
Hveramörk 8, Hveragerði, þingl. eig. Kristján S. Wiium, gerðarbeið-
endur Lífeyrissj. starfsm. ríkisins, Byggingarsjóður ríkisins og Lands-
banki íslands.
Jörðin Lækur, Hraungerðishr., þingl. eig. Jarðeignasjóður rikisins,
Þorbjörg Guðjónsdóttir og Heimir Ólafsson, gerðarbeiðendur Stofn-
lánadeild landbúnaðarins, Búland hf. og sýslumaðurinn á Selfossi.
Lóð nr. 78 úr landi Hraunkots, Grímsn., talin eign Páls Garðarsson-
ar, gerðarbeiðandi Ekran hf.
Mörk, lóð úr landi Skálmholts, Vill., þingl. eig. Jónína G. Færseth,
gerðarbeiðandi Sparisjóðurinn í Keflavík.
Túngata 52, Eyrarbakka, þingl. eig. Agnes Karlsdóttir, gerðarbeið-
endur Islandsbanki hf. 0586 og Búnaðarbanki (slands.
Eignin Víðigerði, Bisk., þingl. eig. Ólafur Ásbjörnsson og Ásrún Björg-
vinsdóttir, gerðarbeiðendur Stofnlánadeild landbúnaðarins og sýslu-
maðurinn á Selfossi.
Jörðin Votmúli, Sandvíkurhr., þingl. eig. Albert Jónsson og Freyja
Hilmarsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki (slands.
Skipið Þórey GK-623, skipaskrárnr. 7007, þingl. eig. Kristinn Kristins-
son, gerðarbeiðandi Júníus Pálsson.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
6. apríl 1995.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Aðalgötu 7, Stykkis-
hólmi, þriðjudaginn 11. apríl 1995 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Akrar, Snæfellsbæ, þingl. eig. Elín G. Gunnlaugsdóttir, Þorvarður
Gunnlaugsson, c/o KG, Kristján Gunnlaugsson og Ólína Gunnlaugs-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Bjarnarfoss, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sigurður Vigfússon og Sigríður
Gísladóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Grundargata 80, Grundarfirði, þingl. eig. Jóhanna E. Ólafsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Hamrahlíð 9, Grundarfirði, þingl. eig. Hallgrímur Magnússon, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóöur ríkisins, innheimtumaður rikissjóðs, Líf-
eyrissjóður sjómanna og Vátryggingafélag Islands hf.
Hellisbraut 21, Snæfellsbæ, þingl. eig. Harpa Björk Viðarsdóttir,
gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Snæfellsbær.
Hellisbraut 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sigurður Þ. Sigurðsson og
Bryndís Snorradóttir, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs.
Hraunás 18, Snæfellsbæ, þingl. eig. Katla Bjarndóttir, gerðarbeið-
andi Snæfellsbær.
Keflavíkurgata 5, Snæfellsbæ, þingl. eig. Georg Gr. Georgsson og
Ragnheiður Ragnarsdóttir, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkis-
sjóös.
Lágholt 13, Stykkishólmi, þingl. eig. Guðmundur Kristinsson, gerðar-
beiðandi Ríkisútvarpið.
Munaðarhóll 21, Snæfellsbæ, þingl, eig. Sigurður V. Sigurþórsson,
gerðarbeiðandi Snæfellsbær.
Skólabraut 4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sölvi Guðmundsson og Aðal-
heiður Másdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands.
Vísir SH-343, þingl. eig. Hjálmur hf., gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
sjómanna, Sparisjóður Önundarfjarðar og Ólafsvíkurkaupstaður.
Ólafsbraut 24, 25,2%, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ólína G. Elísdóttir,
gerðarbeiðandi innheimtumaður rtkissjóðs.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi,
6. apríl 1995.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hafnarstræti 1, 3.
hæð, þriðjudaginn 11. apríl 1995 kl. 14.00, á eftirfarandi eignum:
Drafnargata 7, Flateyri, þingl. eig. Flateyrarhreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 34A, Þingeyri, þingl. eig. Guðbjörg Þóra Snorradóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rfkisins.
Fjarðarstræti 32, austurendi, ísafirði, þingl. eig. Snorri Örn Rafns-
son, Heiðrún Rafnsdóttir, Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir og Ásmund-
ur Björnsson, geðarbeiðendur Vátryggingafélag íslands hf. og (s-
landsbanki hf., (safirði.
Fjarðarstræti 55, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðar, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Hafraholt 44, ísafirði, þingl. eig. Agnar Ebenesersson og Sigríður
Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Hliðarvegur 7, 0101, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðinefnd (safjarðar,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Mánagata 1, (safirði, þingl. eig. Frábær hf. c/o Jakob Ólason, gerðar-
beiðandi Bæjarsjóður (safjarðar.
Smárateigur 6, (safirði, þingl. eig. Trausti M. Ágústsson, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
Uppboð
Framhald uppboðs fer fram í skrifstofu embættisins, Hafnar-
stræti 1, 3. hæð, ísafirfti á
mb. Tjaldanesi (S-522, sknr. 127 þingl. eig. Fiskiðja Sauðárkróks hf.
og Hólmgrímur Sigvaldason, gerðarbeiðendur Hraðfrystihús Eski-
fjarðár hf., Landsbanki íslands, lögfræðingadeild, Lífeyrissjóður sjó-
manna, Netasalan hf., Olíusamlag Keflavíkur og nágrennis, Sam-
ábyrgð (slands á fiskiskipum og Þróunarsjóður sjávarútvegsins,
atvinnutryggingardeild, 10. aprfl 1995 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
6. april 1995.
SHIQ auglýsmgor
FÉLAGSÚF
I.O.O.F. 1 = 176478'Á =9.0
I.O.O.F. 12 = 17647872 = Sp.
m VEGURINN
v Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Samkoma kl. 20.30 í kvöld.
Bob Weiner predikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ingótfsstraeti 22
Áskriftarsími
Ganglera er
989-62070
Föstudagur
7. aprfl1995
( kvöld kl. 21 flytur sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson erindi í húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá kl.
15-17 með fræðslu og umræöum
í umsjá Ævars Jóhannessonar.
Á þriðjudögum kl. 20 er les- og
íhugunarhópur starfandi. A
fimmtudögum kl. 16-18er bóka-
þjónusta félagsins opin með
mikið úrval andlegra bók-
mennta.
í Guðspekifélaginu er fjallað for-
dómalaust um andleg mál á
breiðum grundvelli.
Starf félagsins er ókeypis og
öllum opið.
Fimirfætur
Dansæfing verður í kvöld, föstu-
daginn 7. apríl, kl. 22.00 i Templ-
arahöllinni, Eiriksgötu. Hljóm-
sveit. Upplýsingar í síma 42738.
Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
S ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Laugard. 8. apríl kl. 12.30:
Námskeið í
snjóhúsagerð
Mæting á eigin farartækjum við
Ferðafélagshúsið í Mörkinni 6
kl. 12.30 og ekið í Bláfjöll. Þar
verður leiðbeint i gerð snjóhúsa.
Gagnlegt námskeið fyrir allt úti-
verufólk. Mætið hlýlega klædd
með nesti og skóflu.
Verð kr. 1.000 fyrir fullorðna,
frfttf. börn. Heimkoma kl. 18.00.
Fjölbreyttar páskaferðir
Ferðafélagsins:
1. Landmannalaugar - Þórs-
mörk, skíðagönguferð
12. -17. apríl.
2. Landmannalaugar - Hrafn-
tinnusker, skiðagönguferð
13. -17. april.
3. Snæfellsnes - Snæfellsjökull
13.-15. apríl.
4. Mývatnssveit 13.-17. apríl,
skíða- og gönguferð.
5. Hveravellir - Hagavatn -
Geysir á gönguskíðum
12.-17. april.
6. Þórsmörk - Langidalur
15.-17. apríl, gönguferðir.
Frábær gisting í Skagfjörðs-
skála. Upplýs. og farm. á skrifst.
Mörkinni 6. Pantið tímanlega.
Sunnudagsferðir 9. aprfl:
1. Kl. 10.30 Skíðaganga:
Bláfjöll - Kleifarvatn.
2. Kl. 13.00 Skíðaganga austan
Kleifarvatns og gönguferðin:
Geitahlíð - Eldborg. Tilboðs-
verð 1.000 kr.
Sjá nánar f ferðablaði Mbl. í
dag.
Ferðafélag íslands.