Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tvær ferðaglaðar ungar stúlkur frá Neskaupstað í átta mánaða heimsreisu
Geta vart beðið eftir
því að ferðast meira
Ætli ’ann vilji banana?
HARPA Grímsdóttir reynir að gefa brasilískum páfagauki ban-
ana en svo virðist sem hann sé ekkert yfir sig hrifinn. Myndin
er tekin á Amazon-svæðinu í Brasilíu.
TVÆR UNGAR stúlkur frá Nes-
kaupstað, Kristín Ágústsdóttir og
Harpa Grímsdóttir, lögðu upp í
heimsreisu í september í fyrra og
segja sjálfar að þær hafi ekki
haft hugmynd um hvað þær væru
að fara út í. „Við ferðuðumst um
Evrópu sumarið 1993 en það var
einhvem veginn ekki fullnægj-
andi fyrir okkur,“ sögðu þær eft-
ir heimkomuna til íslands í vik-
unni. „Við létum okkur dreyma
um lengri ferð, um sannkallaða
ævintýraferð. Það kom einfald-
lega ekki annað til greina en að
láta drauminn rætast.“
ífiskitilað
fjármagaa ferðina
Stöllurnar unnu stíft í fiski og
á bænum á Norðfirði í heilt ár til
að fjármagna ferðina. „Ég fór af
stað með 400 þúsund krónur og
allir hlógu að mér,“ sagði Kristín.
„í ljós kom að sú upphæð entist
hér um bil alla ferðina. Það þarf
ekki nærri því eins mikinn pening
í heimsreisur eins og fólk held-
ur,“ sagði hún og Harpa skaut
því að að ferðakostnaður réðist
allt eftir því hvert ferðast væri.
Ferðalagið var alls ekki skipu-
lagt í þaula. Stúlkurnar létu oft
tilviljun ráða ferðaleið sinni og
ferðamáta. Þær ferðuðust ýmist
með lestum, bátum, rútum eða
fílum og settu sér fljótt það mark-
mið að heimsækja færri staði en
fleiri og vera lengur á hveijum
stað. Þær reyndu að forðast hefð-
bundnar ferðaslóðir „túrista" og
lögðu sig jafnframt fram við að
kynnast menningu og siðum inn-
fæddra í hveiju landi.
Samt sem áður var það fernt
sem stöllurnar ætluðu að fram-
kvæma. Það var að heimsækja
Kína, vera í Nýja-Sjálandi um jól-
in, taka þátt í kjötkveðjuhátíð í
Brasilíu og koma heim í tæka tíð
til að mæta í sumarvinnuna nú í
vor. Þær munu eflaust þurfa á
sumarhýrunni að halda því þær
hyggjast hefja nám í landafræði
næsta haust í Háskólanum.
Fjörið hófst í Kina
Kristín og Harpa hófu ferðina
í Kaupmannahöfn og flugu rak-
leiðis til Bangkok í Thailandi.
„ Við dvóldumst þar í nokkrar vik-
ur, riðum um frumskóga á fílum,
sváfum í bambuskofum og röltum
um hrísgijónaakra," sögðu þær.
Fjörið hófst þó fyrir alvöru í Kína.
„ Við þvældumst um landið í lest-
um og rútum. Okkur var sagt að
það væri ekki hægt að ferðast á
eigin vegum í landinu en við
reyndum að afsanna það. Við
skoðuðum Maó „í eigin persónu"
í grafhýsi sínu í Peking, gengum
um Kínamúrinn og furðuðum
okkur á kínverskum mannasiðum.
Á mörgum stöðum hafði fólk aldr-
ei séð hvítt fólk áður. Okkur tókst
loks að heimsækja gamla blak-
þjálfarann okkar úr Þrótti, Nes-
kaupstað," sagði Harpa.
Jól en enginn snjór
Kristín hafði sérstaka ástæðu
til að heimsækja Nýja-Sjáland.
Þar hafði hún dvalist á sveitabæ
nærri Auckland fyrir fáeinum
misserum sem skiptinemi. Þær
l'Mwtawpstaður .
J sept.
... og heiniír~>-<^Kaupmannahöfn
& L-ÍA;
ATLANTS- /5rrK v. ,
ffc- HAF ' " v W *
■- .^-•••- ;
1 ' INDLANDS-
UPaT^ % xrÆí? HAf
'Sa6 Pauk) •
c ' Wj’ kykkA-
\ ChangMai
HAF
BrisbaneV
i / feb.ogmaí-95 t ..v
yfmei995Aires Heimsreisa Hörpu og Krístínar íóÍis®?1
.yflr Kyrrahaf
Veiði dagsins
KRISTÍN Ágústsdóttir heldur
á veiði dagsins, „ósköp elsku-
legum" krókódíl eins og
Kristín kaus að kalla hann.
Myndin er tekin á fenjasvæði
í Pantanal í Brasilíu.
ákváðu að halda jólin hátíðleg þar
en þeim þótti þó miður að enginn
var þar snjórinn. Á suðurhveli
jarðar er sumar í blóma um jóla-
leytið.
Eftir þetta ákváðu þær stöllur
að „skreppa" yfir til Suður-Amer-
íku og heimsóttu þær jafnt stór-
borgir sem smáþorp. Þær komu
við í Buenos Aires í Argentínu,
Sao Paolo í Brasilíu og La Paz í
Bólivíu.
Dansað allan daginn
Ævintýralegust var aftur á
móti dvöl þeirra í Natal í N-Brasil-
íu og ferðalag um Amazon-svæð-
ið. Þær komu í tæka tíð til að
taka þátt í hinni frægu kjöt-
kveðjuhátíð í febrúar. „Þeir sem
best þekkja til fullyrða að þeim
mun norðar sem menn eru í Bras-
ilíu þeim mun betri sé kjötkveðju-
hátíðin," sagði Kristín. „Þessa
daga var stanslaust fjör og fólk
dansaði allan daginn. Það var
mikill kostur að við vorum þátt-
takendur í hátíðinni en ekki
áhorfendur líkt og i Ríó.“
Vinkonurnar segjast að mörgu
leyti vera fegnar að koma aftur
heim en þær hafi svo sannarlega
haft úthald til að ferðast a.m.k. í
eitt ár í viðbót. Þær segjast ekki
geta beðið eftir því að komast út
aftur og ferðast meira. „Við höf-
um fundið svo marga staði sem
við viljum skoða betur,“ sögðu
þær einumTómi. „Viltu koma
með?“
Morgunblaðið/Kristinn
VERKFALLSVERÐIR stöðvuðu I gær ökumann rútu sem ók
með leikskólabörn úr Reykjavík í Grímsnesið, en Sleipnir taldi
að ökumaðurinn væri að fremja verkfallsbrot. Þegar hann hafði
komið börnunum á áfangastað var eigandi rútunnar kvaddur á
staðinn til að aka börnunum til baka.
Skólarúta stöðvuð
Ný skýrsla OECD um styrki til landbúnaðar
Island úr öðru
fjórða sæti
BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGINU
Sleipni bárust af því fregnir í
gærmorgun að sumir viðsemj-
enda félagsins væru famir að
láta ættingja sína, sem ekki hafa
réttindi til aksturs hópferðabif-
reiða, stunda akstur fyrir þá með
skólabörn. Þá mun eitthvað vera
um það að réttindalausir aðijar
séu farair að stunda akstur gegn
gjaldi með farþega til Keflavík-
urflugvallar.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, sagði i samtali við Morg-
unblaðið að einum aðila hefði
verið veitt undanþága til aksturs
með skólabörn á höfuðborgar-
svæðinu ef félagsmaður í Sieipni
sæi um aksturinn og eigandinn
stundaði ekki annan akstur á
meðan. Þetta hefði verið brotið
og undanþágan því afturkölluð.
Þá hefði bömunum verið ekið í
og úr skóla í einkabíl eigandans
af ökumanni sem ekki hefði rétt-
indi til aksturs hópferðabíla.
„Ég bendi fólki á að hafa sam-
band við Sleipni til þess að það
geti fengið upplýsingar um hvers
konar fíflagangur er hér á ferð-
inni. Ég bendi á það að komi eitt-
hvað fyrir blessuð börain, þótt
það sé alls ekki ætlun okkar, þá
eru þau gjörsamlega ótryggð
með svona fólki. Ég skora á
skólastjóra að taka nú við sér og
stöðva þetta,“ sagði Óskar.
sætií
ÍSLAND var það vestrænt ríki,
sem á síðasta ári greiddi fjórðu
hæstu styrkina til landbúnaðar,
samkvæmt nýrri skýrslu Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar,
OECD. Stuðningur við landbúnað
hafði minnkað um þrjú prósentu-
stig frá því árið 1993, er íslenzka
ríkið eyddi næstmestu fé hlutfalls-
lega í stuðning við bændur.
OECD reiknar út svokallað PSE-
gildi, jafngildi niðurgreiðslna til
framleiðenda, sem er heildarstuðn-
ingur við landbúnaðinn. Stofnunin
reiknar síðan út hlutfall stuðnings-
ins af heildarverðmæti landbúnað-
arframleiðslu hvers lands.
Mestur stuðningur í Sviss
Samkvæmt þessu er stuðningur
við landbúnað mestur í Sviss, eða
82% af verðmæti framleiðslunnar.
Noregur er í öðru sæti, þar sem
niðurgreiðslur eru 75%. Japan er
í þriðja sæti, greiðir framleiðendum
samtals 74% af verðmæti fram-
leiðslu.
ísland kemur svo í fjórða sæti.
Hér nemur stuðningurinn við land-
búnaðinn 73% af heildarverðmæti
Sama krónutala í
landbúnaðar-
styrki og á Nýja
Sjálandi
Þau styrkja sinn land-
búnað mest í OECD
Styrkir sem hlutfall / ^
af heildarverðmætí iXi
landbúnaðarframleiðslu í hverju landi
Land 1993 1994
Sviss 80% 82%
Noregur 75% 75%
Japan 73% 74%
ÍSLAND 76% 73%
Finnland 64% 67%
Austurriki 59% 62%
Svíþjóð 53% 51%
ESB (12) 49% 50%
landbúnaðarframleiðslunnar og
hefur minnkað úr 76% árið 1993.
Evrópusambandsríkin reka sam-
eiginlega landbúnaðarstefnu og
nam stuðningurinn þar 50% af
framleiðsluandvirðinu á síðasta ári.
Sami stuðningur í landi með
52 milljónir sauðfjár
Athygli vekur að samkvæmt
skýrslu OECD er stuðningur við
landbúnað svipaður í krónum talið
á Islandi og á Nýja Sjálandi. Nýja
Sjáland er einn helzti útflytjandi
ullar og kindakjöts í heiminum,
enda er sauðfé þar um 52 milljón-
ir. Nýsjálendingar eru 3,3 milljón-
ir taísins.
Samkvæmt tölum úr skýrslu
OECD, sem Reuters-fréttastofan
birtir, nema niðurgreiðslur í báð-
um löndum um átta milljörðum
króna. Á Nýja Sjálandi nemur
hlutfall þeirra af verðmæti land-
búnaðarframleiðslunnar ekki
nema 3% og er það minnsti stuðn-
ingur við landbúnaðinn í ríkjum
OECD. Nýsjálendingar gerðu rót-
tækar breytingar á landbúnaðar-
kerfinu fyrir nokkrum árum.