Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ESB- andstæðingar geta andað rólega. Allar líkur benda til að pósturinn Páll sitji fastur
I bréfalúgu sambandsins út kjörtímabilið.
Menntamálaráðherra um álit umboðsmanns um skráningargjöld
Lagastoð fyrir gjaldinu
en upphæð umdeilanleg
BJÖRN Bjamason menntamálaráðherra sagði á Alþmgi í gær að ekki
yrði séð af áliti umboðsmanns Alþingis áð Háskóli íslands hefði ekki
heimild til að leggja á skrásetningargjald. Upphæðin sem Háskólinn
innheimti væri hins vegar umdeilanleg og stofnunin yrði að taka á
því máli í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis. Svavar Gestsson,
Alþýðubandalagi, spurði menntamálaráðherra um viðbrögð hans við
áliti umboðsmanns. Hann sagðist ítrekað hafa bent á það á síðasta
kjörtímabili að ekki væri lagastoð fyrir skrásetningargjaldinu og nú
væri umboðsmaður að staðfesta að sú gagnrýni hefði átt rétt á sér.
Samstarf
um skip-
rúmfyrir
ungmenni
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
gengið verði til samstarfs við
bæjaiyfirvöld í Kópavogi, Hafnar-
fírði og Keflavík-Njarðvík-Höfn-
um um skipsrúm fyrir ungmenni
um borð í Haftindi HF 123.
Samkomutagið gerir ráð fyrir
7-8 plássum samtímis fyrir ung-
menni í starfsþjálfun um borð í
fiskiskipinu. Kostnaður af hveiju
plássi er um 30 þús. krónur á
mánuði og er beinn kostnaður
borgarinnar um 600-700 þúsund
krónur auk trygginga.
Lína og handfæri
Veitt verður á línu og handfæri
og verða laun þátttakenda 55 þús-
und á mánuði. Að auki skiptist
hlutur á handfæraveiðum til helm-
inga milli þátttakenda og útgerðar
eftir að aflað hefur verið sem nem-
ur föstum launum.
Gert er ráð fyrir að verkefnið
standi í minnst sex mánuði miðað
við átta þátttakendur.
Menntamálaráðherra sagði ekki
rétt að umboðsmaður teldi að Há-
skólanum væri ekki heimilt að leggja
skrásetningargjald á nemendur og
hvatti Svavar og aðra þingmenn til
að kynna sér álitið.
„í sjálfu sér er ekki dregið í efa
að lagagrundvöllur sé undir álagn-
ingu skrásetningargjaldsins. Hins
vegar ræðir umboðsmaður það í
þessu tilviki sem öðrum, þar sem um
slíka gjaldtöku er að ræða, að stofn-
unin þurfi að sýna fram á að gjaldið
byggist á kostnaði sem hún verður
fyrir. Um það snýst þetta mál að því
er Háskóla íslands varðar og hann
þarf að sjálfsögðu að taka á því i
samræmi við álit umboðsmanns Al-
þingis," sagði menntamálaráðherra.
Svavar sagðist vera þeirrar skoð-
unar að álit umboðsmanns Alþingis
varðaði einnig álagningu skrásetn-
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu famkvæmdastjóra Bílastæða-
sjóðs um að veita 20% afslátt af
P-kortum í miðamæla. Greiðslukort-
in eru seld á afgreiðslustöðum sjóðs-
ins og innihalda hleðslu sem nemur
2.500 krónum. Gert er ráð fyrir að
verð kortanna verði 2.000 krónur
með afslætti.
í tillögunni kemur fam að verið
sé að koma til móts við starfsfólk í
miðbænum sem noti gjaldsvæði 3.
Lenging gjaldskyldu um 9 klukku-
ingargjalds í framhaldsskólum og
þúsundir námsmanna hefðu hugs-
anlega rétt til að krefjast endur-
greiðslu á þessum gjöldum. Svavar
sagði óhjákvæmilegt að það mál yrði
skoðað á þessu vorþingi.
Björn vísaði þessu algerlega á bug
og sagði ekkert í áliti umboðsmanns
benda til að hann efaðist um lög-
mæti þess að leggja áskrásetningar-
gjöld í framhaldsskólum.
Eyða þarf óvissu
„Mér þykir eðlilegt að sterkum
lagastoðum verði skotið undir inn-
heimtu skráningargjalda við Háskól-
ann, til að eyða óvissu þar um,“ sagði
Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis
og fyrrverandi menntamálaráðherra,
í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Háskólinn á eftir að leggja fram
mat á því á hvaða grunni fjárhæð
skráningargjalda byggðist. Þegar
ákveðið var að hækka skráningar-
gjöldin voru ýmis rök nefnd, meðal
annars að ef það yrði ekki gert þá
myndi þjónusta skólanna, bæði Há-
skólans og framhaldsskólanna,
minnka. Það var því Háskólans og
framhaldsskólanna að meta hvort
heimild til skrásetningargjalda yrði
nýtt og það var gert.“
stundir, úr 35 í 44 á viku samsvari
tæplega 26% hækkun á langtíma-
stæðum á því gjaldsvæði. Þá segir
að viðbrögð notenda hafi verið góð
og að nýting Miðbakkasvæðis hafí
aukist eins og gert hafi verið ráð
fyrir.
Bent er á að með afslætti af P-
kortum, sem aðeins ganga i miða-
mæla, sé gerð tilraun til að koma
til móts við þá sem leita eftir magn-
afslætti af skammtímastæðum.
20% afsláttur af P-
kortum Bílastæðasjóðs
Bræður Ólympíumeistarar í skák
Morgunblaðið/Þorkell
Bragi og Björn Þorfinnssynir.
Fáum aldrei leið
á skákíþróttinni
ISLENDINGAR eignuðust
sína fyrstu Ólympíumeistara
í skák á dögunum þegar
landslið Islands vann glæsilegan
sigur á Ólympíumóti landsliða 15
ára og yngri sem haldið var í Las
Palmas á Kanaríeyjum. Sigurinn
þótti koma talsvert á óvart en
liðsmenn og fararstjóri höfðu
vonast til þess að verða meðal
tíu efstu sveita. í sveit íslands
voru fimm vaskir piltar og þeirra
á meðal voru bræður, Björn og
Bragi Þorfinnssynir, margfaldir
íslands- og Norðurlandameistar-
ar í sínum aldursflokki. Þeir
komu heim af mótinu í tæka tíð
til að hefja stífan próflestur en
þeir gáfu sér samt tíma til að
svara nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
- Um leið og rétt er að óska
ykkur til hamingju með sigvrinn
þá má spyrja hver hafi verið gald-
urinn á bak við sigur ykkar?
Björn verður fyrri til að svara.
„Við fengum í fyrsta lagi mjög
góða þjálfun fyrir mótið hjá Mar-
geiri Péturssyni stórmeistara. Síð-
an lánaði Einar J. Skúlason okkur
ferðatölvu með skákgagnagrunni
sem við notuðum til að finna og
skoða skákir andstæðinga okkar.
Þá höfum við fengið góða þjálfun
og fjölmörg tækifæri hjá Taflfé-
lagi Reykjavíkur. Þar höfum við
alist upp.“
- Hvað hafið tefit lengi, Bragi?
„Við fórum á fyrstu æfinguna
hjá TR þegar við vorum fimm og
sex ára gamlir en gengum svo í
félagið árið 1987.
- Fáið þið aidrei leið á skák-
inni?
„Nei, alveg örugglega ekki.
Þetta er alltaf jafn skemmtilegt,"
segja þeir einum rómi.
- Hvað er svona heiilandi við
skákíþróttina, Björn?
„Þetta er spennandi íþrótt sem
gefur óteljandi möguleika. Við
teflum til að mynda sjaldan eins
stöður nema helst í byijununum."
- Hvernig gengur að samræma
nám ykkar og skáklífið?
„Það gengur bara mjög vel.
Við æfum alla daga að minnsta
kosti 1-2 klukkutíma. --------
Við sækjum einnig æf-
ingar 3-4 sinnum á
viku. Yfirleitt verða
engir árekstrar á milli
náms og skákæfinga.
Stundum getur þetta "
verið erfitt, sérstaklega á próf-
tímabilum. Vegna Ólympíumóts-
ins þurftum við t.d. að fá tíu daga
frí frá skólanum. En þetta redd-
ast alltaf einhvern veginn,“ segir
Bjöm.
- Þið náið þannig alitaf að
sinna heimaiærdómnum?
„Við reynum að nýta vel tímann
þegar við erum ekki að tefla eða
æfa okkur,“ segir Bragi. „Við
fáum einnig góða hvatningu frá
foreldrum okkar og vinum.“
► BjörnogBragiÞorfinnssynir
eru fæddir í Reykjavík, Björn
árið 1979 og Bragi árið 1981.
Þeir eru synir Þorfinns Björns-
sonar bankastarfsmanns og
Aðalheiðar Bragadóttur kenn-
ara. Bræðurnir stunda báðir
nám í Æfingaskóla Kennarahá-
skóla Islands og eru í miðjum
prófum. Þeir hafa teflt frá
barnæsku, eru félagar í Taflfé-
lagi Reykjavíkur og hafa marg-
sinnis keppt fyrir Islands hönd.
Þeir hafa á undanförnum árum
klifið ELO-skákstigalistann og
um þessar mundir er Bragi með
2185 ELO-stig, en Björn með
2060 ELO-stig. Besti árangur
þeirra er þó án efa sigur á
Olympíumóti sveita 15 ára og
yngri á dögunum. Bræðurnir
náðu góðum árangri á mótinu. 1
Bragi fékk 5 vinninga í 7 skák-
um á 2. borði en Björn 5Vi vinn-
ing í jafnmörgum skákum á 4.
borði.
TR hefur stutt
okkur mikið
og komið okk-
ur á mörg mót
- Styðja foreidrar ykkur fylli-
lega í skákiðkuninni. Hafa þau
engar áhyggjur af náminu?
„Nei, þau hafa litlar áhyggjur
af náminu og styðja vel við bakið
á okkur,“ segir Björn. „Við höfum
einnig notið ómetanlegrar aðstoð-
ar ömmu okkar, Kristbjargar
Gunnarsdóttur, sem hefur safnað
áheitum og styrkjum frá fjölmörg-
um fyrirtækjum. Mörg þeirra hafa
styrkt okkur reglulega og kunn-
um við þeim bestu þakkir.“
- Eigið þið einhvert sérstakt
takmark í skákinni? Hafið þið
nokkuð spáð í að hætta á toppn-
um?
„Ég held að það sé lítil ástæða
til að hætta núna. Við stefnum
alltaf að því að ná lengra og gera
betur,“ segir Bragi. „Flestir skák-
menn stefna að því að verða stór-
meistarar og það gerum við líka.“
- Er skákin vinsæl meðal jafn-
aldra ykkar?
„Hún er ekki mjög vinsæl með-
al jafnaldra minna,“ sagði Björn,
„en það er greinilegt að hún nýt-
ur mikilla vinsælda hjá krökkum
sem eru yngri en 14 ára. Að
minnsta kosti er alltaf
fullt, oft allt að 50
manns, á laugar-
dagsæfingum sem eru
sérstaklega 1 þeim ald-
urshópi."
- Eruð þið ánægðir
með ungiingastarfið hjá Skák-
sambandinu og skákfélögunum?
„Taflfélag Reykjavíkur hefur
stutt okkur mikið og gefið okkur
ótal tækifæri á mótum. Skákskól-
inn hefur einnig unnið gott starf
fyrir okkur og það gerist einnig
oft í samstarfí við Skáksamband-
ið,“ segir Bragi.
- Hver er fyrirmynd ykkar og
átrúnaðargoð í skákinni?
„Það er tvímælalaust Gary
Kasparov, hann er iangbestur!"