Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Gróðurskemmdir í
bæjarlandi Isfirðinga
ísafirði - Svo virðist sem nýliðinn
vetur hafí skemmt mikið af gróðri
í bæjarlandi ísfirðinga og hafa tré
og stærri plöntur orðið mun verr
úti en áður hefur þekkst. Að sögn
Ásthildar Cecil Þórðardóttur,
garðyrkjustóra ísafjarðarkaup-
staðar, hefur lægri gróður og
yngri plöntur komið vel undan
vetri en mikið er um að stærri tré
hafi skemmst mikið.
„Eldri tré eru víða illa farin og
er sama hvar litið er yfir bæjarfé-
lagið, engin einn staður hefur
sloppið betur en annar. Hér er um
mikið tilfinningatjón að ræða, sér-
staklega fyrir fólk sem hefur verið
með gömul og falleg tré í garðin-
um hjá sér og í krónum talið er
tjónið mikið, þótt erfítt sé að meta
það á þessari stundu. Mörg tré eru
illa farin en eiga sér þó lífsvon
með réttri meðferð. Ég hef fengið
mikið af fyrirspurnum að undan-
fömu og hef reynt að liðsinna fólki
eftir bestu getu,“ sagði Áshildur
Cecil.
Ásthildur sagði gróður í skrúð-
görðum bæjarins hafa sloppið
nokkuð vel frá vetrinum en gera
mætti ráð fyrir að önnur svæði í
bæjarfélaginu, s.s. fyrir ofan Urð-
arveg og inni í Tunguskógi, væru
nokkuð farin að láta á sjá, þó að
það hefði ekki verið kannað sér-
staklega. „Það verður nóg að gera
hjá okkur í garðyrkjudeildinni í
sumar við að snyrta og fegra
bæinn en auk þess er gert ráð
fyrir að senda flokk inn til Súða-
víkur til aðstoðar börnunum þar
við hreinsun. Þá er á döfinni að
senda hreinsunarflokk á ferða-
mannastaði á Hornströndum en
framhaldið ræðst af því hvort við
fáum ókeypis siglingu norður, en
litlum fjármunum er varið til þessa
verkefnis og því þurfum við á öll-
um stuðningi að halda. Við höfum
rætt við Djúpbátinn um aðstoð við
flutninga og bíðum eftir svari frá
þeim. Verði það jákvætt förum við
í_ hreinsunarferð norður,“ sagði
Ásthildur.
Morgunblaðið/Jóhannes Pálsson
Landsbankahlaup í snjómuggu
EINS og víðast hvar á landinu
var hlaupið Landsbankahlaup á
Reyðarfirði. Veðrið var ekki
hið ákjósanlegasta til hlaupa,
snjómugga og hiti við frost-
mark. Krakkarnir létu það ekki
aftra sér og hlupu af miklum
krafti og hámuðu í sig grillaðar
Austmatspylsur og Svala að
loknu hlaupi. Fyrst í mark í
yngri flokki voru Guðlaug
Andrésdóttir og Oddur Sig-
urðsson.
Á myndinni eru þátttakendur
í hlaupinu.
ARNDÍS
Berndsen, nem-
andi frá Sauð-
árkróki, sýndi
gestum verk-
efni í hand-
mennt.
HRAFNHILD-
UR Valdimars-
dóttir, úr
Skagafirði, og
Guðrún Teits-
dóttir, frá
Keflavík, tóku
á móti gestum
við innganginn.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Hallormsstað
Handa-
vinnu-
sýning
Egilsstöðum - Nemendur
Hússtjórnarskólans á Hall-
ormsstað héldu sýningu á
verkum sínum, bæði í eldhúsi
og handmennt. Um 250
manns heimsóttu skólann
þennan dag, skoðuðu sýning-
una og þáðu veitingar. Sýn-
ing sem þessi er árlegur við-
burður og um leið óformlegt
tákn um lok skólastarfs.
Margrét Sigbjörnsdóttir
skólastjóri sagði að þessu
sinni hafi 16 nemdendur lokið
námi, en 6 aðrir hættu við
nám í kjölfar verkfalls kenn-
ara.
Mjög góð aðsókn hefur verið
að skólanum og koma nem-
endur alls staðar af landinu.
Umsóknir um nám við næsta
skólaár eru farnar að berast
og er útlit fyrir að færri kom-
ist að en vilja.
VILTU VÍKKA SJÓNÞEILDARHRINGINN?
AFS Á ÍSL4NDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
Þú hefur tækifæri til að
eignast nýjan f jölskyldumeðlim
Við óskum eftir fjölskyldum fyrir
skiptinema, á aldrinum 16-19 ára,
frá lok ágúst '95 til byrjun júlí '96,
eða hálft þetta tímabil.
Hvort sem fjölskyldan er stór
eða lítil, með ungbörn, unglinga
eða engin börn, þá hefur hún
möguléíka á að hýsa erlendan
skiptinema.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
AFS á íslandi, Laugavegi 26,
3. hæð, sími 552 5450.
■BMMMBMHOTMMHaaHaHMMMmMMMMMMÉMaaMWMaJ
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
TOYOTA Foreigner jeppinn sem lenti í ófærðinni á Hálsunum
ásamt eigandanum Reinhard Reynissyni.
Vorið lætur víða bíða eftir sér
Fjallvegir ófærir á
N orð-Austurlandi
Þórshöfn - Vorið lætur bíða eftir
sér hér á norðausturhorninu og
snjókoma og kuldi hafa einkennt
veðurfarið undanfarið. Óvenju mik-
ið er af mófuglum í görðum fólks
og virðist hart í ári hjá þeim.
Ófært varð á Hálsunum milli
Raufarhafnar og Þórshafnar um
síðustu helgi og þurfti Toyota For-
runner-jeppi aðstoð við að komast
yfir ófærðina og fólksbíll komst
alls ekki yfir Hálsana og var skilinn
eftir. Ferðalangarnir höfðu lagt af
stað með bjartsýni vorsins í huga;
á blankskóm og ekki klætt til vetr-
arferða og vitanlega enginn með
skóflu því enginn taldi sig þurfa á
henni að halda síðustu daga maí-
mánaðar. Brekknaheiðin milli Þórs-
hafnar og Bakkaijarðar var einnig
orðin þungfær fyrir fólksbíla um
helgina.
Vorverkum bænda seinkar
Að sögn bónda á Langanesi eru
engin vorverk enn hafin, því tún
eru flest undir snjó og ekki autt
nema rétt meðfram sjónum. Fyrir-
sjáanlegt er að ekki verður borið á
fyrr en í júní og allar skepnur eru
inni. Sauðburður er að komast í
fullan gang og gengur þokkalega
vel. Ekki er hægt að segja um kal
í túnum ennþá, en þau hafa legið
undir snjó og klaka frá áramótum.
Nokkuð víst er þó að ekki er kal í
túnum næst sjó. Óhemju mikill snjór
er inn til landsins ennþá og árnar
á ísi ennþá. Hafralónsá er ekki
búin að ryðja sig enn, sem er óvenju
seint. Bændur taka tíðinni með ró
því þeir vita að ekki þýðir að deila
við veðurguðina og alltaf kemur
aftur vor.
Oddastefna um
Suðurströndina
Hellu - Nýlega hélt Oddafélagið sína
árlegu Oddastefnu í Félagsheimili
Þykkvabæjar. Oddafélagið, sem er
áhugamannafélag um að endurvekja
forna frægð Oddastaðar, stendur
fyrir slíkri ráðstefnu vor hvert sem
næst Sæmundardegi sem er 22. maí
en Sæmundur fróði Sigfússon í Odda
lést þann dag árið 1133.
Meginstef Oddastefnu í ár var
Suðurströndin en að loknu erindi
Þórs Jakobssonar, veðurfræðings og
formanns Oddastefnu um hafís við
Suðurland flutti dr. Páll Imsland,
jarðfræðingur, fyrirlestur um eðli og
þróun sandstrandarinnar og Þórður
Tómasson, safnvörður í Skógum, um
sjósókn við suðurströndina. Að lok-
um fræddi Pálmi Eyjólfsson, fulltrúi
á Hvolsvelli, ráðstefnugesti um
strönd og skipaskaða.
Að ráðstefnunni lokinni var gest-
um ekið á Þykkvabæjarijöru að svo-
kölluðum Snösum, en það er allstór
hóll á vestanverðri fjörunni hvaðan
útsýn er hin fegurst um allt Suður-
landsundirlendið.