Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 15
Nýr útibús-
stjóri Lands-
banka
ísafirði - Bankaráð Landsbanka
íslands ákvað á fundi sínum í síð-
ustu viku að ráða Brynjólf Þór
Brynjólfsson sem svæðisútibús-
stjóra Landsbanka íslands á ísafírði
í stað Birgis Jónssonar, sem gegnt
hefur starfínu í tæp tíu ár. Brynjólf-
ur Þór, sem er 46 ára að aldri,
hefur undanfarin ár starfað í aðal-
stöðvum Landsbankans í Reykjavík,
þar sem hans aðalstörf hafa verið
fyrirtækjaviðskipti og útlánaeftirlit.
Hann gegndi um tíma stöðu úti-
bússtjóra Landsbanka íslands á
Bíldudal en hefur auk þess starfað
í útibúi bankans í Keflavík, í nokkr-
um útibúum i Reykjavík og hin síð-
ari ár í höfuðstöðvum bankans í
Austurstræti. Ákveðið er að Brynj-
ólfur Þór taki við hinu nýja starfi
13. júní og hann er ráðinn til
tveggjá ára, eða til 1. maí 1997.
Staða svæðisútibússtjóra Lands-
bankans á ísafírði var auglýst í
tvígang og voru sex umsækjendur
um stöðuna í síðari umferð.
Brynjólfur Þór er kvæntur Ragn-
heiði Jónsdóttur húsmóður og eiga
þau þrjú börn á aldrinum 12, 20
og 23 ára.
SR. MAGNÚS Erlingsson,
sóknarprestur á Isafirði,
Gunnar Steinþórsson, for-
maður byggingarnefndar
kirkjunnar og sr. Karl V.
Matthíasson, sóknarprestur á
Bíldudal og fyrrum sóknar-
prestur á ísafirði, við hið nýja
Kristslíkneski.
Ný kirkja
vígð á ísafirði
ísafirði - ísafjarðarkirkja verður
formlega vígð í dag, uppstigningar-
dag. Það verður herra Ólafur Skúla-
son, biskup yfír íslandi, sem mun
vígja hina nýju kirkju en viðstaddir
athöfnina verða allir núlifandi prest-
ar sem þjónað hafa á ísafirði auk
heimamanna og annarra gesta.
Á þriðjudag var kirkjan tilbúin
að miklu leyti en þá átti eftir að
setja upp altari og sæti í aðalsalinn.
Þegar ljósmyndari blaðsins leit inn
í kirkjuna þann dag var verið að
setja upp Kristslíkneski, líkt og var
í gömlu kirkjunni og var meðfylgj-
andi mynd tekin eftir að því hafði
verið komið á sinn stað.
naturecaré
er skrásett vörumerki fyrir þá bómull sem við notum í fötin okkar.
Bómullin er handtínd og við framleiðsluna er notað eins lítið af skaðlegum efnum og mögulegt
er. Þess vegna eru Naturecare fötin okkar sérstaklega góð fyrir viðkvæma ungbarnahúð og alla
þá sem þola illa aukaefni í fatnaði og vilja hugsa um umhverfi sitt.
£> u ma rti I boð
Hneppt peysa kr. 1.000
Duxur kr. 1.000
Alveg instök
SUMAfflllBOD
Þegar gamla ryksugan sýgur sitt síðasta,
þá er kominn tími til að endurnýja.
Er þá ekki tilvalið að skoða AEG möguleikana.
4EG
Ryksuga Vampyr 7400 1400 w.
Þrjár sogstillingar. Sexföld síun.Ultrafilter skilar 99.97%
hreinu lofti. Pokastær& 4 L. Inndraganleg snúra.
Lengjanlegt sogrör. Fylgihlutageymsla.
Verb á&ur 18.720,- eða 17.789,- stgr.
Verð nú 15.900,- stgr.
BRÆÐURNIR
=)] QKMSSON HF
Lágmúla 8, Sími 553 8820