Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
*EMERALD AFSLATTAR-
FARGJÖLD FYRIR ALLA.
Frá 23. júní -1. september (í sölu til 2. júní).
Keflavík - Belfast frá kr 17.680*
Kejflavík - London frákn 22.780
Flug og bíli
Flug og gisting
Flug og golf
Flug og húsbátur
Allt eftir þörfum hvers og eins.
‘Flugsæti meö flugvallargjöldum.
feréáitr
Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinu)
sími 623020.
Vilcu rútuferð
um N-írBand
30. júní-7. júlí.
UR VERIIMU
Meka reisir niðursuðu-
verksmiðju fyrir 290
milljónir í Rússlandi
VERKFRÆÐISTOFAN Meka hf.
hefur gengið frá viðamiklum samn-
ingi við bandarískt fyrirtæki um sölu
á vélum og tækjum fyrir niðursuðu-
verksmiðju í Rússlandi. Ennfremur
sér Meka um uppsetningu á lítilli
fiskimjölsverksmiðju og reykhúsi.
Verksmiðjan verður í borginni Doiz-
hanskaya við Azovhaf, sem gengur
inn úr Svartahafi. Samningurinn
hljóðar upp á um 4,5 milljónir doll-
ara eða rúmlega 290 milljónir króna.
Frá þessu er greint í Islenzkum
Jung Chang, höfundur einhverrar vinsælustu og umtöluðustu metsölubókar
síðustu ára, Villtir Svanir, er komin í heimsókn til íslands. Fjölmörgum
íslenskum lesendum hennar gefst hér einstakt tækifæri til að sjá hana og heyra.
Föstudaginn 26. maí,
kl. 16:30 - 18:00 mun
Jung Chting árita bók sína í
Bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi 18.
Af því tilefni er bókin væntanleg á ný, að
þessu sinni í mjúku bandi, en þannig mun
hún 2700 krónur. Notið tækifærið, því
enginn vafi er á að þessi útgáfa mun seljast
hratt upp eins og sú fyrri.
'Athugið að þeir sem eiga eldri útgáfuna mega líka taka
bók sína með til áritunar.
Þar les Hjörleifur Sveinbjörnsson ár þýðingunni, en síðan mun
Jung Chang flytja erindi um bók sína og að því loknu svara
fyrirspurnum viðstaddra.
Athugið að dagskráin fer fram á ensku!
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
MÁL OG MENNING
Vélar og tæki að
mestu framieidd
hér á landi
iðnaði, fréttabréfi Samtaka iðnað-
arins, sem er að koma út um þessar
mundir. Að sögn Elíasar Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Verk-
fræðistofunnar Meka er hér um að
ræða svokallaða heildarlausn (turn-
key) þar sem eru allar vélar og tæki
í ofangreindar verksmiðjur. Samn-
ingurinn er viðamikill og hefur gerð
hans staðið yfír í hátt á annað ár
og farið fram hér á landi, í Bandaríkj-
unum og Rússlandi.
Áætlað er að umræddar vélar og
tæki verði að miklu leyti framleidd
hér á landi í málmsmiðjum sem þeg-
ar hafa getið sér gott orð við smíði
fyrir fyrir innlenda og erlenda kaup-
endur. Elías segir í samtali við frétta-
bréfið að ætla megi að vinnsluvirði
innan lands verði meira en helmingur
af samningsfjárhæðinni.
„Sölusamningurinn er til marks
um árangursríkt starf Verkfræði-
stofunnar Meka hf. að afla verkefna
á alþjóðamarkaði fyrir íslenzk málm-
iðnaðarfyrirtæki. Slíkt starf er að
sönnu ómetanlegt og sýnir að mögu-
leikarnir eru fjölmargir ef rétt er á
málum haldið og traust skapast milli
aðila. Samningurinn er einnig mikil
traustsyfirlýsing á smíði þeirra inn-
lendu málmsmiðja, sem standast þær
miklu kröfur, sem gerðar eru í verk-
um eins og þessu. Þess vegna er
sérhver samningur af þessu tagi við-
urkenning á íslenzku handverki og
vitnisburður um að þrátt fyrir áföll
síðustu ár er málmiðnaðurinn á ís-
landi aibúinn að taka að sér krefj-
andi verkefni," segir meðal annars .
Um of sótt í humarinn
„Eðlilegt svar að
minnka kvótann44
NÝLOKIÐ er humarleiðangri Haf-
rannsóknastofnunar og benda nið-
urstöður hans til þess að um of sé
sótt í humarstofninn og draga verði
úr veiðum. „Niðurstöðurnar eru því
miður ekki góðar, en það þarf ekki
að koma á óvart, því það hefur jafnt
og þétt verið að draga úr aflanum.
Það fannst bæði minna af humri en
áður og mjög lítið af stórum humri
og mjög smáum. Þetta er þó ekkert
meiriháttar áfall, en taka verður
ákvörðun um það hvernig bregðast
skuli við. Haldi fram sem horfir er
eðlilegt svar að minnka kvótann,"
segir Sólmundur Einarsson, fiski-
fræðingur.
Humarveiðamar hafa farið mjög
hægt af stað, einkuny fyrir austan
Ingólfshöfða og segir Óli Björn Þor-
bjömsson, skipstjóri á Sigurði Ólafs-
syni SF, að þetta hafi aldrei verið
eins lélegt og nú. Aflinn aðeins brot
af því, sem var þegar bezt var og
humarinn mjög smár. Heildarkvóti
nú var ákveðinn í fyrra um 2.200
tonn, sem er nokkru minna en veiða
mátti í fyrra.
Mikið úrkast
Sólmundur segir nú hafi lítið
fengizt af humri á öllum veiðisvæð-
um og humarinn sem fengizt hafi,
hafrverið jafnsmærri en áður. Lítið
hafi orðið vart við stóran humar
og mjög smáan. Því sé mikið úr-
kast úr aflanum, en það sem fer
aftur í sjóinn, lifir sjaldast af. Því
eigi sér stað veruleg grysjun í nýlið-
uninni og hrygnum.
Miðin fá aldrei frið
Hlut skýringarinnar á slakri
stöðu stofnsins sé umgegnin um
auðlindina. Þessi mið fái aldrei frið,
það sé verið að hamast á þeim allt
árið með fiskitroll og snurvoð og
auk þess hafi humarveiðar verið
leyfðar á veturna. Miðin fái því aldr-
ei frið. „Það verður fylgzt mjög
grannt með framvindu mála og
brugðizt við í samræmi við hana.
Hins vegar hafa vertíðir áður farið
illa að stað, svo hugsanlegt er að
úr rætist," segir Sólmundur.
Þing' um ónæmisfræði físka
íslands í stjórn samtakanna er Sig-
ríður Guðmundsdóttir, ónæmisfræð-
ingur sem starfar á Tilraunastöð
Háskóla íslands á Keldum. Auk Sig-
ríðar eru fimm íslenzkir sérfræðing-
ar í framkvæmdanefnd þingsins.
Á annað hundrað sérfræðingar
víðsvegar úr heiminum sækja ráð-
stefnuna. Auk níu titilerinda, verða
rannsóknamiðurstöður sjötíu verk-
efna kynntar á þinginu. Þar á meðal
eru merkar nýjungar, sem marka
tímamót á fræðasviðinu.
Þingið hófst síðastliðinn miðviku-
dag og stendur það fram á laugar-
dag.
ÞESSA dagana stendur yfir í
Reykjavík fyrsta þing nýstofnaðara
samtaka um rannsóknir á ónæmis-
fræði físki. Samtökin, sem nefnast
á ensku The Nordic Society for Fish
Immunology, eru hin fyrstu sinnar
tegundar í heiminum, en þau eru
eins og nafnið ber til kynna, norræn
og eru öllum opin,
Samtökin voru stofnuð að frum-
kvæði samnorrænnar nefndar (Proj-
ektstyregruppe for fiskeimmuno-
logy) sem starfaði á vegum norrænu
ráðherranefndarinnar 1990 til 1994
og vann að því að efla rannsóknir
og samskipti á fræðasviðinu. Fulltrúi
1995 bældinguriim er komiim út!
Fæst hjá okkur og á flestum bensínstöðvum.
Ferðaþjónusta bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík, sími 562-3640/42/43.