Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Réttarhöld yfir plútonsmyglurum Leyniþjónustan sögð hafa greitt fyrir smygl Bonn. Reuter. MIKILVÆGT vitni í réttarhöldum yfir þrem mönnum, sem hafa verið ákærðir fyrir smygl á piútoni til Þýskalands í ágúst, sagði í gær að þýska leyniþjónustan BND hefði greitt honum fyrir að útvega efnið. Sewarion Kirkitadse, verjandi eins sakborninganna, skýrði fréttamönnum frá þessu, en réttað er í málinu fyrir luktum dyrum. Mennimir þrír eru sakaðir um að hafa smyglað 363 grömmum af plútoni, sem hægt er að nota í kjamavopn, frá Moskvu til Múnchen með farþegaþotu. Á mála hjá þýsku ley niþj ónustunni Veijendur þeirra ætla að reyna að sanna að mennimir hafí verið fómarlömb leynimakks BND. Vitn- ið, sem kveðst hafa verið á mála hjá leyniþjónustunni undir nafninu „Rafa“, kveðst hafa farið í þýska sendiráðið í Madrid' og samþykkt að hafa samband við plútonsmygl- ara. „Ég gerði það af hugsjón til að koma þessu hættulega efni úr umferð," hafði veijandinn eftir vitn- inu. Vitnið kvaðst hafa hitt plúton- smyglara tvisvar sinnum, en ekki var ljóst í gær hvort hann hefði átt við sakborningana þijá. Leyniþjónustan neitar Leyniþjónustan hefur neitað því að hafa staðið fyrir plútonsmyglinu og kveðst hafa látið lögregluna vita af því eftir að hafa fengið upplýsingar um það frá óþekktum manni. Tveir sakbominganna eru Spán- veijar og sá þriðji er Kólombíumað- ur. Annar Spánveijanna, sem er kaupsýslumaður, sagði að þrír menn, þeirra á meðal Þjóðveiji, hefðu beðið hann um að útvega plúton. Rannsókn hafin á vegum þingsins Þýska þingið hefur hafið rann- sókn á ásökunum um að leyniþjón- ustan hafi staðið fyrir plútons- mygli til að sýna hversu öryggis- eftirlit Rússa væri lélegt. Tímaritið Der Spiegel hefur fjallað um þess- ar ásakanir og rússneskir emb- ættismenn hafa staðfest þær. Reuter Siglingamönnunum fagnað TVEIR úr áhöfn Svartagaldurs, sigurvegara Ameríkubikarsins, Peter Blake skútustjóri og Russ- ell Coutts, stýrimaður veifa sigri hrósandi til mannfjöldans sem tók á móti þeim er þeir sneru til síns heima í Auckland á Nýja- Sjálandi í gær. Um 300.000 manns fögnuðu þeim við kom- una til „Seglaborgarinnar" en áhöfnin bar sigurorð af Banda- ríkjamanninum Dennis Connor í keppninni er lauk fyrir tíu dögum. * Oboðinn gestur á lóð Hvíta hússins Tveir hlutu skotsár Washington. Reuter. LÍFVORÐUR og vopnaður maður, sem klifraði yfir girðingu við Hvíta húsið í Washington, særðust þegar þeir tókust á um 30 metrum frá aðsetri forsetans seint á þriðju- dagskvöld. Bill Clinton forseti og fjölskylda hans voru í Hvíta húsinu en aldrei í hættu. Mennirnir tveir voru flutt- ir á sjúkrahús en særðust ekki al- varlega. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn klifraði yfir girðinguna, sem er um 2,4 metrar á hæð. Maðurinn, Leland William Modj- eski, er 37 ára pitsusendill og bandarískir saksóknarar sögðu í gær að hann yrði sóttur til saka. Lífverðir urðu Modjeski varir þegar hann gekk í átt að Hvíta húsinu. Einn þeirra skipaði honum að nema staðar og skellti honum þegar hann gegndi því ekki. Líf- vörðurinn sá að maðurinn var með skammbyssu og hrópaði: „vopn!“. Annar vörður skaut þá á Modjeski og særði hann á hendi, en kúlan lenti einnig á hendi lífvarðarins. Hert öryggisgæsla Ekki er óalgengt að menn klifri yfir girðinguna en þetta er í fyrsta sinn sem skotvopni er beitt við slík- ar aðstæður frá árinu 1978. Undanfarin misseri hefur nokkrum sinnum verið skotið að bygging- unni, auk þess sem flugvél lenti á lóðinni. Öryggisgæslan hefur verið hert vegna þessara atburða, svo og vegna tilræðanna í World Trade Center og Oklahomaborg. Blöð í íran ljá máls á sáttum víð Iraka Teheran. Reuter. DAGBLÖÐ í íran sögðu í gær að mögulegt væri_ að koma á sáttum milli írans og íraks og nefnd hátt- settra íranskra embættismanna er í Bagdad til að bæta samskipti ríkj- anna. Stjómvöld í íran og írak hafa „sameiginleg sjónarmið í nokkrum mikilvægum málum sem snerta þennan heimshluta", sagði dagblað- ið Iran, sem íranska fréttastofan IRNA gefur út. „íran og írak geta ekki haft ólík sjónarmið um hlut- verk þeirra innan OPEC [Samtaka olíuútflutningsríkja]... um erlend- ar hersveitir í þessum heimshluta og jafnvel um þörfina á sameigin- legu öryggiskerfi allra ríkjanna á svæðinu.“ Blaðið sagði þó að ekki væri hægt að koma á eðlilegum sam- skiptum milli ríkjanna nema írakar vísuðu hreyfingu íranskra stjómar- andstæðinga úr landi. „Gullið tækifæri“ til sátta Stjórnin í Teheran sendi embætt- ismannanefndina til íraks á mánu- dag. Dagblaðið Iran News, sem er gefið út á ensku, sagði að ferð nefndarinnar veitti ríkjunum „gullið tækifæri" til að sameinast á gmnd- velli sameiginlegra hagsmuna þeirra. Blaðið gaf til kynna að íran- ir gætu stutt Iraka í baráttu þeirra fyrir því að refsiaðgerðum Samein- uðu þjóðanna frá innrásinni í Kú- veit árið 1990 yrði aflétt. Blöðin ítrekuðu einnig kröfu Ir- ana um að írakar leystu hundmð íranskra stríðsfanga úr haldi. írak- ar neita því að hafa hermenn úr Persaflóastríðinu á árunum 1980-88 í haldi. íranir krefjast þess ennfremur að írakar aðstoði þá við að fjarlægja jarðsprengjur af írönsku landsvæði og tryggi sítum í íran trúfrelsi. Embættisbústaður Ingvars Carlssons Gertað greiða aukaskatt Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. INGVAR Carlsson, forsætisráð- herra Svía, er fluttur í nýjan emb- ættisbústað og er ástæðan sú, að öryggislögreglan segir mun auð- veldara að gæta ráðherrans í þessu húsnæði en ef hann byggi úti í bæ. Nú hefur ráðherrann hins vegar fengið tilkynningu um að hann verði að greiða skatt af nýja heimilinu en flestir frammámenn í sænskum stjómmálum hafa farið fram á laga- breytingu til að til þess þurfi ekki að koma. Ingvar Carlsson hefur í áratugi leigt íbúð í íbúðahverfi utan við Stokkhólm eins og fjöldi Svía gerir. Fyrir nokkrum ámm var hins vegar hafist handa um að innrétta gam- alt hús fyrir embættisbústað for- sætisráðherra, rétt við þinghúsið. Hugmyndin var að það yrði líkt og Downingstræti 10, þar sem breski forsætisráðherrann býr. í húsinu er 300 fermetra einkaíbúð forsætis- ráðherrans og síðan vistarvemr fyr- ir gesti. 100 þús. kr. aukaskattur Carlsson var mótfallinn því að flytja þarna inn en beygði sig fyrir þeim röksemdum að öryggislögregl- an sparaði sem samsvaraði tæpum tuttugu milljónum íslenskra króna til öryggisgæslu ef hann byggi í bústaðnum og ekki í íbúð sinni. Eins og góður Svíi spurðist hann fyrir hjá skattstofunni hvernig væri með skatt af embættisbústaðnum áður en hann flutti inn. Nú hefur borist svar þar sem segir að metin verði hlunnindin við að búa í húsinu og sú upphæð lögð við mánaðarlaun ráðherrans og af þessu öllu eigi hann að greiða skatt. Gert er ráð fyrir að matið verði tæpar 170 þúsund íslenskar á mán- uði og skattur af því nemur um 100 þúsundum. Forsætisráðherrann hefur um 650 þúsund í laun en eft- ir skatt fær hann tæplega helming í vasann. Það er því dijúg viðbót að eiga að borga skatt af bústaðn- um, sem hann er skyldaður að búa í, því eftir sem áður verður hann að borga leigu af eigin íbúð. Sænskir stjórnmálaleiðtogar leggja nú til að lögum verði breytt til að koma í veg fyrir þessa skött- un og það án þess að ráðherrann sjálfur þurfí að koma þar nærri. Carlsson segir þetta ekki alvarlegt vandamál og vill ekki gera mikið veður út af því. Hópur þýskra þingmanna í heimsókn í boði Sjálfstæðisflokksins Ahugasamir um af- stöðu íslands til ESB FIMM þingmenn Kristilega demókrataflokksins (CDU), Claus Peter Grotz, Andreas Krautscheid, Ruprecht Polenz, Christa Reichard og Andreas Storm hafa dvalið hér á landi í vikunni á vegum Konrad Adenauer-stofnunarinnar ásamt þeim Klaus Welle, framkvæmda- stjóra Evrópska alþýðuflokksins (EPP) og Ludger Eling, yfírmanns skrifstofu Konrad Adenauer- stofnunarinnar í London. Að sögn Ásdísar Höllu Braga- dóttur, framkvæmdastjóra þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, hef- ur Konrad Adenauer-stofnunin lagt aukna áherslu á að efla sam- skipti Þýskalands við Norður- löndin og er það skrifstofa stofn- unarinnar í London, sem sér um að rækta þessi tengsl. Hefur stofnunin m.a. boðið fulltrúum norrænna hægriflokka í heim- sókn til Þýskalands og fór Ásdís Halla til Þýskalands í tengslum við kosningarnar þar sl. haust. „í kjölfar þessa ræddum við um að efla samstarf Sjálfstæð- isflokksins og kristilegra demó- krata og kom upp sú hugmynd að bjóða hingað nokkrum þing- mönnum," segir Ásdís Halla. Hún segir þýsku sendinefndina hafa kynnt sér efnahagsástandið á íslandi, starfsemi NATO hér og „ Morgunblaðið/Emilía ÞÝSKA sendinefndin á fundi með Davíð Oddssyni, forsætisráð- herra og formanni Sjálfstæðisflokksins. afstöðu íslendinga til utanríkis- mála. Hún segir að þeir hafi verið áhugasamir um afstöðu íslands til Evrvópusambandsins og fund- ist gagnlegt að heyra hver við- horf forsætisráðherra til ESB væru og fundist afstaða Islend- inga mun skiljanlegri eftir að hafa gert sér grein fyrir mikilvægi físk- veiða hér á landi. Á meðan á heim- sókninni stóð áttu þingmennirnir m.a. fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra, Birni Bjarna- syni menntamálaráðherra, Geir H. Haarde, formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Kjartani Gunnarssyni, framkvæmdastjóra flokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.