Morgunblaðið - 25.05.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 23
FYRIRMYNDIN að „Nöktum
manni, séðum aftan frá“ er
talin vera skógarvörður, Font
að nafni.
KRÍTAR- eða blýantsteikn-
ingin, „Kona með útréttar
hendur“ er talin auðseljanleg-
ust myndanna þriggja.
HENDUR „Nakins sígauna-
drengs" bera handbragð Pic-
assos greinileg merki að mati
sérfræðings í verkum hans.
KOMIÐ hefur í ljós að tvö mál-
verk og skissa sem keypt voru
fyrir nokkur hundruð krónur á
flóamarkaði í Barcelona fyrir
fimm árum, eru eftir Pablo Pic-
asso. Tveir helstu sérfræðingar í
verkum Picassos eru sammála um
að verkin séu eftir hann og að
hann hafi verið 18 ára þegar hann
málaði þau. Ekki er vitað hverjir
voru eigendur verkanna síðustu
100 árin.
Það var Enrique Garcia-Herra-
iz, sem m.a. hefur gert sjónvarps-
þætti um Picasso sem uppgötvaði
eftir hvern myndirnar voru. Hann
var einmitt að vinna við þættina,
er hann sá myndirnar hjá upp-
boðsfyrirtæki.
Var í sturtu
„Ég var í sturtu, morguninn
eftir að ég sá myndirnar, og átt-
aði mig þá á því að ég hafði séð
mjög svipaðar teikningar áður, í
þeim bókum sem ég hafði flett í
gegnum er ég vann að þáttunum.
Frá þeim tíma hef ég ekki verið
í vafa um að myndirnar væru eft-
ir Picasso. Þið getið rétt ímyndað
ykkur hvernig mér leið þegar ég
fór á uppboðið. En ég bauð einn
í myndirnar,“ segir Garcia-Herra-
iz í samtali við The Daily Te-
legraph.
Hann bauð sem svarar 42.000
Verk
Picassos
finnast á
flóamarkaði
kr. ísl. í myndirnar og hófst svo
þegar handa við að kanna upp-
runa þeirra. Seljandinn var lista-
verkasaii í Barcelona og hafði
keypt myndirnar á flóamarkaði
þar í borg fyrir slikk. „Hann hélt
að þær væru dæmi um málaralist
í borginni um aldamótin og seldi
þær sem slíkar. Hann er mér ekki
reiður vegna málsins," segir
Garcia-Herraiz, sem kveðst ekki
hafa sagt nokkrum lifandi manni
hvað hann hefði fundið þar sem
flestir hefðu talið sig óðan. Hann
hefur ekki ákveðið hvað hann
gerir við myndirnar en segir að
vera kunni að ein verði sett á
uppboð.
Olíklegt er talið að olíumál-
verkin seljist fyrir meira en 30
milljónir kr. hvort og skissan fyr-
ir 15 milljónir. Þær myndir Pic-
assos sem seldar eru á hæstu verði
eru myndir frá bláa tímabilinu
svokallaða sem hófst 1901. Mynd-
ir málaðar fyrir þann tíma eru
ekki sérlega eftirsóttar af söfnur-
um.
Fyrirmyndin þekkt
Myndirnar bera það með sér að
hafa verið geymdar lengi upprúll-
aðar. Ekki er vitað hver átti þær,
eða hver seldi þær á flóamarkaði.
Olíumyndirnar kallast „Nakinn
sígaunadrengur" 56x36 sm og
„Nakinn maður, séður aftan frá“
79x46 sm. Kola- eða blýantsteikn-
ingin „Kona með útrétta hand-
leggi" er 53x34 sm.
Katalóninn Josep Palau, sem
talinn er fremsti sérfræðingur
heims í eldri verkum Picassos,
rannsakaði sögu myndanna í hálft
ár. Hann segir Picasso hafa málað
myndirnar þegar hann var 18 ára,
árið 1898, en það sumar dvaldi
hann í Horta del Ebro þorpinu
sunnan við Barcelona. Hendur
sígaunadrengsins beri t.d. greini-
legt handbragð Picassos, eins og
sjáist í myndinni „Hendur Picass-
os“ sem hann málaði 1921. Þá tel-
ur Palau að fyrirmynd nakta
mannsins sé skógarvörður, Font
að nafni, en Picasso tók af honum
ljósmynd rúmum áratug síðar.
Annar Picasso-sérfræðingur,
John Richardson í New York, hef-
ur staðfest greiningu Palaus.
Morgunblaðið/Sverrir
FRA afhendingu verðlaunanna í gær.
íslensku barnabókaverðlaunin afhent í gær
Eplasneplar sigruðu
ÞÓREY Friðbjörnsdóttir hlaut í gær
íslensku barnabókaverðlaunin 1995
sem Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka veitir. Þórey tók við
verðlaununum við athöfn í Þjóðar-
bókhlöðunni en verðlaunasaga
hennar, Eplasneplar, kom út á veg-
um bökaforlagsins Vöku-Helgafells
í gær. Þetta var í tíunda sinn sem
barnabókaverðlaunin voru afhent,
en að þessu sinni voru yfir þrjátíu
handrit send inn í samkeppnina og
er það svipaður fjöldi og á liðnum
árum.
í umsögn dómnefndar um Epla-
snepla segir m.a.: „Sagan er sögð
á nýstárlegan hátt og skrifuð af
mikilli leikni. Höfundur hefur næm-
an skilning á reynsluheimi íslenskra
barna og unglinga og setur dagleg
vandamál og spurningar sem vakna
í einkar spaugilegt ljós.“ Þórey Frið-
björnsdóttir er enskukennari í
Hlíðaskóla í Reykjavík en hún hefur
áður sent frá sér tvær ung-
lingabækur og þýtt nokkur verk.
Aðspurð sagði hún að Eplasneplar
væri bók fyrir alla aldurshópa og
þá ekki síður fullorðna en börn.
„Bókin er bréfasaga og sögð út frá
sjónarhóli drengs, Breka Bollason-
ar. í sögunni reyni ég að fara inn
í hinn saklausa hugarheim þessa
drengs sem einkennist auðvitað
fyrst og fremst af barnslegri ein-
lægni en er um leið fullur af einstök-
um húmor.“ Þórey segir að verðlaun
sem þessi séu vissulega uppörvandi
og hvetji sig til að halda áfram á
sömu braut. Hún sagðist vera með
ýmislegt í deiglunni en vildi hins
vegar ekki gefa upp hvað það væri.
Leikþættir
úr Vestur-
bænum
Á MORGUN, föstudag verða tvær
sýningar á leikþáttum, sem samdir
voru sérstaklega fyrir Sögu- og
menningarhátíðina í gamla Vestur-
bænum. Fyrri sýningin verður kl.
17 og sú seinni kl. 21. Leikið er í
húsnæði Frú Emilíu á annarri hæð
Héðinshússins við Seljaveg.
Fjögur leikskáld, sem búsett eru
í gamla Vesturbænum, skrifuðu
leikþætti fyrir hátíðina, innblásin
af sögu hverfisins. Þau eru: Elísa-
bet Kristín Jökulsdóttir, Guðrún
Ásmundsdóttir, Sveinn Einarsson
og Örnólfur Árnason. Einn þáttur-
inn gerist í gamla Gúttó, sam-
komustað Góðtemplarareglunnar
undir síðustu aldamót. Annar segir
frá morðmáli snemma á þessari
öld. Sá þriðji gefur innsýn í lífið í
Unuhúsi á þriðja áratugnum og sá
síðasti, „Heimsstyijöld á Bakka-
stíg“ gerist á heimili Skúla Hall-
dórssonar tónskálds og konu hans,
Steinunnar Magnúsdóttur, á
stríðsárunum, þar sem m.a. koma
við sögu Vilhjálmur frá Skáholti
og Björn Bjarnason magister,
Bjúsi.
Helga Jónsdóttir er leikstjóri
sýningarinnar, leikmyndina vann
Jón Þórisson og 10 leikarar, flestir
úr hverfinu, bregða sér í hlutverk
genginna, núlifandi og ímyndaðra
Vesturbæinga og vina þeirra.
Aðeins þessar tvær sýningar
verða á hátíðinni.
Allt fyrir garðinn
26.-27. maí
Nú tökum vlð létta sveiflu og höldum
blóma- og garðmarkað í Kringlunni.
Fjölmargir sýna og selja
á mjög góðu verði.
sumarblóm og fjölær blóm Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur Sólblóm, Byggt og Búið
grill, leiktæki og garðhúsgögn Jóhann Helgi & Co Hagkaup, BYKO
pottaplöntur og afskorin blóm Sólblóm BYKO
tré og runnar Fossvogsstöðin, BYKO
garðverkfæri, áburður og sláttuvélar BYKO
grænmeti Hagkaup
tækjaleiga Hörkutól
ráðgjöf Birgir Eiríksson skrúðgarðyrkjufræðingur
Kynning á bókunum: Garðurinn
og Trjáklippingar
Ævintýra-Kringlan:
Myndlistarsýning barnanna
Dönsum saman blómavalsinn í Kringlunni.
KRINGMN
f>ar sem bestu blómin gróa
Afgreiðslutími Kringlunnar: Mánudaga til fimmtudaga 10-18.30
föstudaga 10-19 laugardaga 10-16
HÓTEL ALEXANDRA AUGLÝSIi