Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 25
SNEGLA Listhús
Slæðudagar
í Sneglu
SLÆÐUDAGAR verða opnaðir í
Sneglu Listhúsi við Klapparstíg á
laugardag kl. 15. Slæðurnar eru
handmálaðar og þrykktar á silki og
eru engar tvær eins.
Að sýningunni standa sex af
fimmtán listakonum Sneglu List-
húss; Björk Magnúsdóttir, Erna
Guðmarsdóttir, Hrafnhildur Sigurð-
ardóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Jóna
Sigríður Jónsdóttir og Þuríður Dan
Jónsdóttir.
Slæðudagarnir standa til 16. júní
og er opið mán.-föst. kl. 12-18 og
laugardaga kl. 10-14.
Höfundur Villtra
svana á íslandi
JUNG Chang, höf-
undur einnar vin-
sælustu og umtöluð-
ustu bókar siðari
ára, Villtir svanir,
er væntanleg til
landsins. í Villtum
svönum, segir höf-
undurinn í senn
sögu fjölskyldu
sinnar og sögu Kína
á þessari öld frá
sjónarhóli þriggja
kynslóða kvenna;
sjálfrar sín, móður
sinnar og ömmu.
Fjölmörgum ís-
lenskum lesendum hennar
gefst hér einstakt tækifæri til
að sjá hana og heyra.
Föstudaginn 26. maí kl.
16.30-18 mun Jung Chang árita
bók sína í Bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi 18.
Bókin kom út lyá Máli og
menningu á hausti sem leið,
hlaut góðar móttök-
ur lesenda hér og
seldist þá upp. í til-
efni af komu Jung
Chang til landsins
hefur bókin nú ver-
ið endurprentuð, að
þessu sinni í rnjúku
bandi, en þannig
mun hún kosta
2.700 kr.
Laugardaginn
27. maí kl. 14 verð-
ur dagskrá með
Jung Chang í Há-
skólabíói, sal 2. Þar
les Hjörleifur
Sveinbjörnsson úr þýðingu
sinni á Villtum svönum, en síð-
an mun Jung Chang flytja er-
indi um bók sína og að því
loknu svara fyrirspurnum við-
staddra. Dagkráin fer fram á
ensku. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Jung Chang
Allt bendir til þess að vegna góðra skilyrða í
sjónum og góðs seiðabúskapar í ám á Suður-
og Vesturlandi muni laxveiðin verða mjög góð á
þessu svæði. Beðið hefur verið eftir sumri
sem gefur afburða veiði.
Er það nú komið - sumarið 1995?
Fiskifræðingar hafa verið varkárir, í að spá í
laxveiði sumarið 1995, en þeir hafa þó óformle-
ga gefið ýmislegt í skyn.
Skoðum hvað er laust hjá okkur í SVFR:
Norðurá I:
Af sérstökum ástæðum eru fáeinar stangir
lausar á topp” tíma í þessari verðlaunaá (júlí
3.-6. og 24.-27.) sömuleiðis örfáar stangir í
ágúst. Nú er lag.
Hítará I:
Þessi silungs- og laxveiðá með sitt sögufræga
veiðihús á eftir að koma verulega á óvart í
sumar. Verðinu er stillt í hóf og það er ekkert
skyldufæði. Veiöileyfi eru enn fáanleg á besta
tíma í júlí og ágúst.
Hítará II:
Stórbrotið umþverfi, falleg á, fallegir hylir, lax
og silungur. Veiðileyfi í Hítarvatni fylgir hverju
leyfi.
Gljúfurá:
í sumar verður að öllum líkindum nóg vatn í
Gljúfurá. Þessi þriggja stanga á er vinsæl af
þeim sem til þekkja Ágætis gistiaðstaða er
fyrir 8-10 manns og ein stöng í Langavatni
fylgir hverri stöng. Nokkrar stangir lausar.
Miðá í Dölum:
Aðalástæðan fyrir minni laxveiði í Miðá
undanfarin ár er vatnsleysi. Allir sem þekkja
til vita að ef nóg vatn er í Miðá er góð laxveiði,
Ekki vantar hylina og vatnasvæðið er stórt.
Nú er mikið af snjó, algjört forðabú, svo
yfirgnæfandi líkur eru á að Miðá verði með
gott vatn í sumar og því nóg af laxi og þá
bónusinn - silungur. Þetta er tilvalin fjölskyldu
á því veiðihúsið tekur 12 manns. Veiðileyfi eru
fáanleg.
Sogið:
Svæðið við Sog eru: Alviðra, Ásgarður I og II,
Bíldsfell og Syðri-Brú. Við Alviðru, Ásgarð og
Bíldsfell eru stórglæsileg veiðihús. Miðað við
þær væntingar sem, menn hafa vegna
laxveiði á Suður- og Vesturlandi, er líklegt að
Sogið verði fengsælt í sumar. Þetta svæði er
steinsnar frá Stór-Reykjavíkursvæðinu og ekki
skemmir að vita að þar veiðast „þeir
stóru”.Laus veiðileyfi á öllum svæðunum.
Önnur svæði sem við höfum á boðstóium :
Norðurá II, Norðurá/Flóðatangi, Tungufljót,
Stóra Laxá I, II, III og IV, Snæfoksstaðir og
Laugabakkar.
Hægt er m.a. að greiða með greiðslukorti,
raðsamningum eða á anna þann hátt sem um semst.
Allar upplýsingar eru gefnar á afgreiöslu Stangaveiöifélags Reykjavikur,
Háaleitisbraut 68 eöa í síma 91-568 6050, fax. 91-553 2060.
Opið er mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18 e.h.
SVFR
PR0FUTURA
Þú þarft ekki að vera hrsedd
við hrukkur lengur, þvi hafinn
er nýr kafli i umhirðu húðarinnar.
Með Profutura kremi, sem flytur
30 sinnum meira af A og E
vitaminum inn i húðina en
lipósóm. Það þýðir meiri vörn
og aukinn raka. Hrukkur
myndast síður og húðin
verður fallegri dag fró degi.
MARBERT
- og þú lítur vel út!
Við seljum MARBERT
Líhía, Mjódd;
Spes, Háaleitisbraut;
Sandra, Laugavcgi;
Brá, Laugavegi;
Bylgjan, Kópavogi;
Snyrtihöllin, Garðabæ;
Gallery Förðun, Kcflavík;
Krisma, ísafirði;
Vöruhúsið, Akureyri;
Apótckið, Vestmannaeyjum.
í þaki og veggjum er öryggisgler. Valkostur er gler, sem
ver gegn ofhitun á sólardögum og hefur tvöfalt
einangrunargildi tvöfalds glers. Burðarrammar úr áli eða
viði. Glerjað er með állistum undir og yfir glerið. Seljum
einnig glerið eftir máli. SÝNINGARHÚS Á STAÐNUM.
KIRKJULUNDI 13 v/VÍFILSSTAÐAVEG GARÐABÆ
SÍMI 565 6900 - Opið í dag frá kl. 13-17.