Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 36

Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ ___________AÐSEIMDAR GREINAR Hagkvæmni í heiisu- gæslu Reykvíkinga 36 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 Telepower Rafhlöður i") © ■ w' ••• í þráðlaus - ••• a ••• AAA síma jw w w, Dofhn v y inn $/# ndiuu Rauöarárstíg 1 il 8 /f Sími: S6Z2130 Fax: 562 2151 1 HEILSUEFLING - hefst hjá þér Fjölskyldudagur laugardaginn 27. maí um land allt Reykjavík, Akureyri, Akranes, Húsavík, Hafnarfjörður, Hveragerði, Hornafjörður, Isafjörður, Þingeyri, Selfoss, Hvammstangi, Klaustur, Laugaland í Holtum og víðar. Leiðsögn, leikir og léttar œfingar. Heilsuefling hefst hjá þér í STEFNUYFIRLÝSINGU nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er greint frá meg- inmarkmiðum stjórnarinnar í hinum ýmsu málaflokkum. í heilbrigðismál- um er ætlunin „að stuðla að hag- kvæmni og auka fjölbreytni í rekstri heilbrigðisstofnana". Fyrstu orð og athafnir Ingibjargar Pálmadóttur í starfi heilbrigðisráð- herra lofa vissulega góðu, því með varfærnislegum yfirlýsingum sínum hefur hún lagt grunn að betra sam- starfi við heilbrigðisstéttir þessa lands en fyrirrennari hennar átti. í viðtali við DV 29. apríl sl. sagðist hinn nýi heilbrigðisráð- herra vilja „sjá meiri nýtingu á þeirri góðu menntun og þeim tækja- og húsakosti, sem við þegar eigum.“ Einokunarstefna í heilsugæslunni Ég vil taka undir orð ráðherrans hér á und- an, enda eru þáu í sam- ræmi við þær áherslur, sem ég hef beitt mér fyrir, sem fulltrúi Reykvíkinga í stjórn heilsugæslu og heilsu- verndar á undanförn- um árum, þ.e. að sá mannauður og stofnkostnaður, sem er fyrir hendi í heilsugæslunni, sé nýttur með sem hagkvæmustum hætti. í því felst m.a. að áhersla sé fremur lögð á þjónustu við borg- arbúa en dýrar byggingarfram- kvæmdir, en eins og vikið verður að hér á eftir hafa síðustu ákvarðan- ir í heilbrigðisráðuneytinu miðað að miklum fjárfestingum í byggingar- framkvæmdum. Tiigangurinn virðist ekki einungis sá, að leysa húsnæðis- vanda heilsugæslustöðva, heldur einnig að stuðla að einokunarfyrir- komulagi í heilsugæslunni. í upphafi þessa áratugar sneru Svíar af braut miðstýringar og ein- okunar opinberra aðila á rekstri heil- brigðisþjónustu. Aratuginn á undan höfðu þeir lagt niður ýmsa sjálf- stæða starfsemi í heilbrigðisþjón- ustunni og kostnaðurinn við að byggja þessa þjónustu upp aftur undir merkjum einokunarfyrirkomu- lags var tvö- til þrefaldur á við fyrri kostnað. Samt skyldi siglt í sama kjölfarið hjá okkur í stað þess að læra af reynslu annarra. Það kom skýrt í ljós, þegar lagt var fyrir Al- þingi frumvarp urtí breytingar á lög- um um heilbrigðisþjónustu árið 1989, en þar var m.a. gert ráð fyrir því, að starfsemi Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur og heimilis- lækna utan heilsugæslustöðva yrði lögð niður. Þessar áætlanir voru óraunhæfar og tóku ekki tillit til sérstöðu Reykjavíkur í heilbrigðis- málum og því var horfið frá þeim. Heilsugæsla utan heilsugæslustöðva í lögum um heilbrigðisþjónustu, sem afgreidd voru frá Alþingi í maí 1990, var þess getið að skipuð yrði bráðabirgðastjórn til að annast rekstur Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og gera tillögur um framtíðarhlutverk stofnunarinnar. Undirritaður var tilnefndur í þessa stjórn af Reykjavíkurborg og lauk bráðabirgðastjórnin hlutverki sínu með því að skila tillög- um um framtíð Heilsu- verndarstöðvar Reykja- víkur í nóvember 1991. Síðan hefur ný bráða- birgðastjórn verið sett yfir stofnunina í eitt ár í senn, án þess að Heilsuverndarstöðin fengi lögbundið hlut- verk samkvæmt ákvörðun Alþingis. Hin óráðna framtíð Heilsu- verndarstöðvar Reykja- víkur er fyrir löngu orð- in að vandamáli við stjórn og skipulag heilsugæslu í Reykja- vík. Starfsfólk heilsugæslustöðva mið- svæðis í borginni þrýstir stöðugt á um að fá nýtt og stærra húsnæði undir starfsemi sína. Það gerir til- kall til þess, að sinna allri heilsu- gæslu á tilteknum „upptökusvæð- um“ heilsugæslustöðvanna og er þá gjarnan viðhöfð þröng túlkun á lög- um um heilbrigðisþjónustu. Sú túlk- un gerir ekki ráð fyrir því, að mið- svæðis í Reykjavík er rekin um- fangsmikil heilsugæsla utan heil- sugæslustöðva. Þar á ég við þá þjón- ustu, sem veitt er af Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur og sjálfstætt starf- andi heimilislæknum í borginni, en þeir starfa nær allir í -Domus Medica og Kringlunni. Starfsfólk Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur sinnir árlega um 11.000 af um 18.000 mæðraskoðunum utan sjúkrahúsa í Reykjavík (og á Seltjarnarnesi). Það sinnir jafnframt um 75% heima- hjúkrunar og um 25% ungbarna- verndar innan heilsugæslunnar í Reykjavík. Sjálfstætt starfandi heimilislæknar veita yfir þriðjungi borgarbúa heimilislæknaþjónustu. Heilsugæsla í Reykjavík verður ekki skipulögð með skynsamlegum og hagkvæmum hætti, nema þessar staðreyndir séu hafðar í huga og að eldra og nýrra kerfi heilsugæslu í borginni starfi saman. Mun vandasamara er að skipu- leggja heilsugæslu miðsvæðis í Ef hagkvæmni á að nást fram í heilsugæsl- unni í Reykjavík, segir __ _____ Olafur F. Magnússon, þurfa eldra og nýrra kerfi heilsugæslu að starfa saman. Reykjavík en í úthverfum borgarinn- ar af þeim ástæðum, sem hér hafa verið raktar. í úthverfum borgarinnar hefur heilsugæslan hins vegar byggst upp með líkara sniði og á landsbyggð- inni, enda sjálfsagt bæði vegna vega- lengda og þeirrar staðreyndar að umtalsverð uppbygging eldra kerfis heilsugæslu var ekki fyrir hendi í úthverfunum. Þar vantaði bæði ná- læga þjónustu og þann „tækja- og húsakost", sem áður er nefndur. Nýjustu áform í heilsugæslunni Nýjustu áætlanir heilbrigðisyfir- valda í uppbyggingu heilsugæslunn- ar í Reykjavík eru flutningur Heilsu- gæslustöðvarinnar í Fossvogi úr Borgarspítalanum yfir á lóð Ríkisút- varpsins, en þar er ætlunin að reisa 6-8 lækna heilsugæslustöð á horni Efstaleitis og Listabrautar. Heilsu- gæslulæknar á Fossvogsstöð eru nú 3, þannig að gert ér ráð fyrir fjölgun um 3-5 lækna. Norðan Listabraut- arinnar starfa 8 sjálfstætt starfandi heimilislæknar, þannig að alls verða 14-16 heimilisíæknar stafandi á Fossvogs- og Kringlusvæðinu sam- kvæmt þessum áætlunum, en íbúar á þessu svæði eru um 11.400. Heim- ilislæknar í Kringlunni hafa ítrekað óskað eftir auknu samstarfi við stjórn heilsugæslunnar og heilbrigð- isyfírvöld á undanförnum árum, en án árangurs. Slíkt samstarf gæti sparað ríkinu mikla fjármuni í lækk- uðum kostnaði við byggingar heilsu- gæslustöðva. Sparnaður virðist hins vegar ekki hafa verið helsta áhuga- mál heilbrigðisyfirvalda á undan- förnum árum, heldur ríkisrekstur! Á sama tíma og sjúkradeildum er lokað og hæfu starfsfólki sagt upp störfum eru teknar ákvarðanir um miklar byggingaframkvæmdir í heilbrigðis- þjónustunni. Ef staðið verður við áform um byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Utvarpslóðinni, þarf að tryggja sem besta nýtingu á þeirri fjárfest- ingu, sem sú framkvæmd felur í sér. Til dæmis mætti athuga breytta skiptingu heilsugæsluumdæma í Reykjavík og hvort leysa mætti hús- næðisvanda tveggja heilsugæslu- ÓlafurF. Magnússon rtiiar at sian eium STIGA Collector sláttuvél, 3,75 ha., 4 hæðastillingar. 52 Itr uppsafnari. Einstök heimilisvél. STIGA Dino sláttuvél 3,7 ha„ 3 hæðastillingar. Góð heimilisvél. geroir og sláttuorfum. STIGA sláttuvélarnar eru þrautreyndar viö íslenskar aðstæður. Traust varahluta- og viðgerðaþjónusta. Umboð: Vetrarsól hf. VETRARSÓL Hamraborg 1-3, norðanmegin Kópavogi. 564 18 64 | STIGA aksturssláttuvélar. Fjöldi fylgihluta fáanlegur. Frá kr160.200 stgr. vélorf, 0,9 ha. Fyrir heimili og sumarbústaði. ^ Kr. 16.055 stgr. stöðva með einni og sömu fram- kvæmdinni. Á ég þar við hugsanlega sameiningu heilsugæslustöðvanna í Fossvogi og í Drápuhlíð. Ef af þessu gæti orðið, væri hægt að ljúka uppbyggingu heilsugæsl- unnar miðsvæðis í borginni með því að koma á fót heilsugæslustöð í Voga- og Heimahverfi, en íbúar þessa svæðis hafa lengi þurft að sækja heimiiislæknaþjónustu í önnur hverfi borgarinnar. Það er æskilegt, að allir Reykvíkingar eigi kost á heilsugæslu og heilsuvernd í þeim hverfum borgarinnar sem þeir búa, en það er jafnframt nauðsynlegt að tryggja, að íbúar borgarinnar geti valið sér heimilislækni án tillits til þess hvar þeir húa í borginni. Um fimmtungur Reykvíkinga flytur bú- ferlum árlega og ef allur þessi fjöldi skipti jafnoft um heimiiislækni myndi það valda mikilli röskun og óþægindum og koma í veg fyrir, að traust samband skapaðist á milli heimilislækna og skjólstæðinga þeirra. Nýtum „tækja- og húsakost“ Að mínu mati er óþarfi að reisa heilsugæslustöð á svæðinu næst Heilsuverndarstöðinni og Domus Medica. Þarna er þegar fyrir hendi mannafli og stofnkostnaður, til að þjóna nærliggjandi svæði vel varð- andi heilsugæslu og heilsuvernd. Sé það sérstakt áhugamál heilbrigðisyf- irvalda, að koma á fót heilsugæslu- stöð á þessu svæði, er húsnæði þeg- ar fyrir hendi í Heilsuverndarstöð- inni. Byggingarframkvæmdir vegna heilsugæslustöðvar á þessu svæði eru varla réttlætanlegar með tilliti til hagkvæmrar nýtingar almanna- fjár. Vert er að geta þess, að sjálf- stætt starfandi heimilislæknar í Do- mus Medica hafa reist húsnæði yfir sig sjálfir og án kostnaðarþátttöku almennings. Auk heimilislæknaþjón- ustu er rekin fjölbreytt sérfræðiþjón- usta og öflug rannsóknar- og rönt- genþjónusta í Domus Medica. Heil- brigðisyfirvöldum ber að stuðla að aukinni samvinnu milli lækna í Do- mus Medica og Heilsugæslunnar í Reykjavík, ef þau hafa raunveruleg- an áhuga á hagkvæmni í rekstri heilsugæsælu í Reykjavík. Enginn hefur talað um að leggja niður heilsugæslustöðvar. Hins vegar eru stöðugt uppi kröfur um að starf- semi Heilsuverndarstöðvar Reykja- víkur og heimilislækna utan heilsu- gæslustöðva verði lögð niður, Sterk íjárhagsleg og fagleg rök mæla þó gegn slíku. Stærstu deildir Heilsu- vemdarstöðvarinnar eru hagkvæmar í rekstri og nýting starfskrafta góð. Heilsuverndarstöðin er auk þess nauðsynlegur samræmingaraðili í heilsugæslunni í Reykjavík. Starf- semi heimilislækna utan heilsugæslu- stöðva er einnig rekstrarlega hag- kvæm og það væri heilsugæslustöðv- unum ekki hollt faglega, að fá algera einokunarstöðu í heilsugæslunni. Það er vafalítið hagkvæmara að byggja upp heilsugæslu í Reykjavík á þeim grunni, sem fyrir er, en að leggja eldra kerfi niður og reisa nýtt á rústum þess. Ósk hins nýja heilbrigð- isráðherra um „nýtingu á þeirri góðu menntun og þeim tækja- og húsa- kosti, sem við þegar eigum" á svo sannarlega við í þessu sambandi. Höfundur er varaborgarfulltrúi í Reykjavík. HUGO

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.