Morgunblaðið - 25.05.1995, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Kirkjustarf
aldraðra
MARKMIÐ Elli-
málaráðs Reykjavíkur-
prófastsdæma sem
stofnað var 1982 er að
vinna að kristilegri
öldrunarþjónustu í
söfnuðum. Ráðið hefur
gengið í broddi fylking-
ar og gengist fyrir
ýmsum nýjungum í
öldrunarstarfi safnað-
anna. Einnig hefur ráð-
ið gengist fyrir
fræðslufundum og ráð-
stefnum um málefni
aldraðra. Á aðalfundi
sínum í apríl 1992 voru
samþykkt lög og starfs-
hættir Ellimálaráðs.
Lögin eru í 7 greinum, í 3 gein seg-
ir að tilgangur ráðsins sé að:
a) gera öldruðum kleift að rækta
trúarlíf sitt á heimilum sínum, í
kirkjum, á sjúkrastofnunum og
dvalarheimilum.
b) efla mannleg samskipti og
tengja þau kristilegu starfi.
c) vera söfnuðum til ráðgjafar
og styrktar í öldrunarstarfí. Mark-
miðum sínum hyggst ráðið ná með
því að:
a) virkja aldraða í safnaðarstarfi
b) vera málsvari aldraðra i próf-
astsdæmunum
c) standa fyrir námskeiðum fyrir
starfsmenn
d) gefa út fréttabréf.
Fræðsla, uppbygging,
helgihald
Kirkjustarf aldraðra víðs vegar
um landið er mjög fjölbreytt. í boði
er ýmiss konar fræðsla, opið hús
þar sem fólk kemur saman að spila,
föndra, biblíulestrar og hópstarf. I
sumum kirkjum er boðið upp á fót
og hársnyrtingu. Kórastarf er í
nokkrum kirkjum.
Hópstarf með er í nokkrum kirkj-
um. Efnið sem notað er í því starfi
eru hefti er nefnast „Vinafundir"
og „Við saman í kirkjunni" sem eru
sérstaklega samin fyrir hópastarf
með öldruðum. í þeim er fjallað um
ýmis svið mannlegs lífs s.s. gleði,
fyrirgefningu og sorg og það tengt
Biblíunni, bæn og helgihaldi. Um-
ræðurnar byggjast á
reynslu og tilfínning-
um þátttakenda, þann-
ig að allir hafa mikið
að gefa, sem er eigin
reynsla. EUimálanefnd
þjóðkirkjunnar hefur
gefið út sálmakver
með stækkuðu letri og
nú í vor kom út fræðsl-
umappa með ýmiss
konar fræðsluefni til
notkunar í kirkjustarf-
inu s.s frásagnir, sög-
ur, sálmar og bænir.
Heimsóknar-
þjónusta
Mikill og vaxandi
áhugi er hjá söfnuðum hér í Reykja-
vík og annars staðar í þéttbýli að
heíja heimsóknaþjónustu til aldr-
aðra eða annarra sem um lengri
eða skemmri tíma eru einangraðir,
s.s vegna sjúkdóma eða fötlunnar.
Margir búa einir heima og búa við
öryggisleysi og vonleysi. Kærleiks-
þjónustan á að vera veigamikill
þáttur í starfi safnaðanna. Fólk lif-
ir lengur en áður og við sjáum fleiri
og fleiri einkenni stórborgar, mann-
lífið einkennist af annríki. Æ færri
gefa sér tíma til að heimsækja fólk
og spjalla. Einsemd hefur aukist
og margir eru einangraðir. Mark-
mið þjónustunnar er að ijúfa ein-
angrun, skapa samfélag og glæða
von.
Heftið „Að glæða von“ var sam-
ið fyrir Ellimálaráð Reykjavíkur-
prófastsdæma -, þar er teírið á flest-
um þeim atriðum sem hafa þarf í
huga við undirbúning heimsókna-
þjónustu í söfnuði og framkvæmd
hennar. Boðið hefur verið upp á
námskeið fyrir starfsmenn og sjálf-
boðaliða. Nokkrir söfnuðir í
Reykjavíkurprófastsdæmum sinna
heimsóknaþjónustu og tveir
söfnuðir eru að undirbúa slíka
þjónustu. Heimsóknaþjónusta
kirkjunnar kemur alltaf sem viðbót
við þá þjónustu sem opinberir aðil-
ar veita nú þegar. Margir bíða eft-
ir að njóta þessarar þjónustu og
þeir sem njóta hennar nú þegar
eru mjög ánægðir.
Sigrún
Gísladóttir
Vaxandi áhugi er hjá
söfnuðum, segir Sigrún
Gísladóttir, að hefja
heimsóknarþjónustu til
aldraðra og annarra,
sem búa einangraðir.
Sumardagar
í kirkjunni
Sú nýbreytni var tekin upp á síð-
asta sumri að bjóða upp á sérstaka
sumardagskrá í kirkjunni. Alla mið-
vikudaga í júnímánuði verða sam-
verur í hinum ýmsu kirkjum. Hu-
gleidd verða vers úr 121. Davíðs-
sálmi, kórar aldraðra syngja og á
eftir verður boðið upp á kaffi og
spjall. Dagskráin verður nánar aug-
lýst.
Samstarf
Samvinna hefur verið við Öldrun-
arþjónustudeild félagsmálastofnun-
ar um sumardvöl bæði í Skálholti
og á Löngumýri í Skagafirði. Einn-
ig hefur kirkjan tekið þátt í sameig-
inlegri fræðslu og fleiru og átt gott
samstarf við prest aldraðra hjá öldr-
unarþjónustudeild Félagsmála-
stofnunnar og fleiri aðila s.s. Öldr-
unarráð íslands.
Lokaorð
Ég hef komið inn á helstu þætti
kirkjustarfs aldraðra. Starfið er
fjölbreytilegt og verkefnin óþijót-
andi, en við viljum sjá öflugra öldr-
unarstarf í kirkjunni. Þjónustan er
eitt' af hlutverkum kirkjunnar.
Mjög brýnt er að kirkjan efli heim-
sóknarþjónustuna í framtíðinni.
Niðurskurður í þjóðfélaginu kemur
niður á þjónustu við aldraða.
Eflaust eru margir einstaklingar í
sóknum landsins sem vilja leggja
kirkjunni sinni lið. Forsenda þess
að sjálfboðaliðar fáist til starfa er
að fastur starfsmaður sjái um og
beri ábyrgð á starfinu og skipu-
leggi heimsóknir, leiti að sjálfboð-
aliðum og styðji þá í starfinu. Sjálf-
boðaliðum sem þykir viðfangsefnið
gefandi, finnst eftirsóknavert að
vera með í starfinu fái þeir stuðn-
ing og gott samfélag. í verki heyr-
ist rödd kirkjunnar með þjónustu
við aldraða og umhyggju fyrir ná-
unganum.
Höfundur er framkvæmdnstjóri
Ellimálaráðs
Reykjavíkurprófastsdæma.
ARGENTÍNA AUSTURRÍKI ÁSTRALÍA BANDARÍKIN BELgIa BÓLIVÍA BRASILÍA BRETLAND
f%
X
AFS vill gera
kleift að gerast
SKIPTINEMAR
Yfír 25 lönd eru í boði
í öllum heimsálfum.
Ogleymanleg reynsla.
Eykur þroska
og víðsýni.
Gagnlegt
tungumálanám.
50 ára reynsla af
nemendaskiptum.
íslenskir nemar og fararstjóri í Venezuela. ^ OÍtfÖF ÍVISVar a 01Í.
Þess vegna hýður félagið mjög viðráðanleg greiðslukjör.
Erum að taka á móti umsóknum til Astralíu og
S-Ameríku mcð brottför eftir áramót.
AFS Á ÍSL4NDI
Upplýsingar og umsóknarblöð fást á skrifstofu AFS á Islandi,
Laugavegi 26, 3. hæö, milli kl. 10 og 16 virka daga.
Sími 552-5450 Alþjóðieg fræðsla og samskipti
PORTÚGAL PARAGUAY MEXÍKÓ LETTLAND JAMAÍKA ÍTALÍA INDÓNESÍA HOLLAND GVATEMALA
m
O
>
Z
S
o
90
*
O
oj
s
z
5»
x
>
<
o
<
m
r
O
5
m
x
0
o
O
90
Kærur
Magnúsanna
í Hafnarfirði
NÚ HEFUR ríkis-
saksóknari hafnað al-
farið lögreglurannsókn
á hendur bæjarfulltrú-
um Alþýðuflokksins
eins og Magnús Jón
Árnason oddviti Al-
þýðubandalagsins og
Magnús Gunnarsson
oddviti Sjálfstæðis-
flokksins kröfðust. í
þrígang hefur kæru
þeirra verið hafnað
fyrst af félagsmála-
ráðuneytinu, eða
dómsmálaráðherra,
settum félagsmálaráð-
herra í málinu, og síð-
an í tvígang af ríkis-
saksóknara. Þessi kærumál verða
Magnúsunum til ævarandi háðung-
ar og skammar en því miður hefur
Hafnarijarðarbæ sett niður við all-
an þennan málatilbúnað „forystu-
manna“ Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrst kærðu Magnúsarnir bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokksins fyrir meint
glæpsamleg samskipti við verktaka-
Magnúsarnir halda
áfram ærumeiðingum
sínum, segir Tryggvi
Harðarson. I stað þess
að skammast sín.
fyrirtækið Hagvirki/Klett til félags-
málaráðherra. Málið endaði í hönd-
um Þorsteins Pálssonar dómsmála-
ráðherra sem vísaði ákærunum á
bug en benti á að ákæruatriðin, ef
rétt væru, sneru að almennum
hegningarlögum. Því ákváðu Magn-
úsarnir að kæra bæjarfulltrúa Al-
þýðuflokksins til ríkissaksóknara.
Hann hafnaði kæru þeirra með bréfi
dagsettu 11. apríl 1995. Þeim úr-
skurði héldu Magnúsarnir vandlega
leyndum og kærðu aftur, þá tvo
fyrrverandi bæjarstjóra Alþýðu-
flokksins og fjármálastjóra bæjar-
ins. Umræddir einstaklingar fengu
ekki nokkra vitneskju um það fyrr
en þeir lásu um kæruna í blöðunum
eftir að úrskurður lá fyrir. Magnús-
arnir kröfðust að umræddir aðilar
yrðu dæmdir í allt að tveggja ára
fangelsi. Enn var ákæruatriðum
þeirra hafnað.
Pólitískt ofstæki
Nú mætti ætla að Magnúsarnir
viðurkenndu villu sína og bæðu
bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins og
starfsmann þeirra afsökunar fyrir
að bera á þá rangar sakargiftir. Svo
var þó ekki. Enn þverskallast þeir
við og lýsa því yfir að bæði ríkissak-
sóknari og Þorsteinn Pálsson, settur
félagsmálaráðherra í málinu, hafi
Sœvar Karl Ólason
Bankastræti 9, slmi 551-3470.
ekki verið vanda sínum
vaxnir. Þannig halda
þeir til streitu ásökun-
um sínum um glæp-
samlegt athæfi bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokks-
ins, nánast þjófkenna
þá, þrátt fyrir það sem
á undan er gengið.
Magnúsarnir halda því
ærumeiðingum sínum
áfram í stað þess að
skammast sín.
Varðandi ákæru
Magnúsanna segir í
bréfi saksóknara, dag-
settu 9. maí sl. að ekki
sé unnt að telja lögreg-
lurannsókn „falla að
markmiðum slíkra rannsókna og
enn síður vera lfkleg til sakfellis í
refsimáli. .Því sé erindi þeirra
hafnað.
í bréfi ríkisaksóknara frá 11.
apríl segir m.a. um málatilbúnað
Magnúsanna. „Af hálfu ákæru-
valdsins verður sérstaklega að and-
mæla auðkenndri setningu í niður-
lagi tilvitnana í bréf yðar þar sem
fram kemur ályktun, sem gengur
lengra en lesið verður úr úrskurði
félagsmálaráðherra . . .“ Af þessu
má ráða að málatilbúnaður Magn-
úsanna stjórnast fremur af sjúklegu
pólitísku ofstæki en málefnalegum
rökum.
Magnúsarnir ómerkingar
Það er hart fyrir okkur bæjarfull-
trúa Alþýðuflokksins að sitja undir
endalausum falsásökunum af hálfu
forkólfa bæjarins. Auðvitað hefur
hvarflað að okkur að hreinlega
kæra Magnúsana fyrir síendurtekin
ærumeiðandi ummæli. En við sem
lifum og hrærumst í pólitík látum
ýmislegt yfir ganga. Við kjósum að
vinna að heill og velferð bæjarbúa
í stað þess að standa í sífelldum
málaferlum og kærum. Við rekum
okkar pólitík ekki í gegnum lög-
fræðinga eða löggilta endurskoð-
endur.
Það sem eftir stendur í þessu
málaþrasi öllu er að Magnúsarnir
hafa gert sig að algerum ómerking-
um í augum bæjarbúa. Það er svo
sem ekki í fyrsta skipti, því í málum
listahátíðar voru Magnúsarnir ólmir
í að kæra einhvern, þeir vissu bara
ekki hvern ætti að kæra eða fyrir
hvað.
Löggiltir endurskoðendur hf., sem
enn eru á mála hjá meirihluta Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðisfokks,
eiga líka sinn þátt í þessu máli og
skyldu vanda sig betur í framtíð-
inni. Þá hefur Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra haft lítinn sóma af af-
skiptum sínum í þessu máli en hann
tók efnislega undir ákærur Magnús-
anna á opinberum vettvangi. Það er
mannlegt að skjátlast og ekki ætla
ég að úthrópa umrædda aðila sem
glæpamenn. Þeim væri hins vegar
sæmst að biðja afsökunar á aðdrótt-
unum sínum í minn garð og félaga
minna í Alþýðuflokknum í Hafnar-
firði.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
'kripalujógá'
Byrjendanámskeið
29. maí—19. júní.
Leíðbeinandi. Helga Mogensen.
Jógastöðin Heimsijós,
Ármúla 15,
s. 588 9181 og 588 4200.
Einnig símsvari.
v J
Tryggvi
Harðarson