Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 43
JÓHANNES
JÓNSSON
+ Jóhannes Jóns-
son frá Geita-
bergi var fæddur I
Klettstíu í Norður-
árdal I Mýrasýslu
þann 2.1. 1923.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu á Akranesi
19. maí sl. og verður
jarðsunginn að
Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd föstudag-
inn 26 þ.m. Foreldr-
ar Jóhannesar voru
Jón Jóhannesson
bóndi í Klettstíu, f.
7.12. 1984, d. 26.10.
1973, og Sæunn E. Klemens-
dóttir f. 5.2. 1890, d. 7.4. 1985.
Jóhannes átti þrjá bræður, sem
allir eru á lífi, en þeir eru:
Karl, fyrverandi bóndi í Kletts-
tíu og síðar starfsmaður vega-
gerðarinnar í Borgamesi, f.
19.2. 1918. Kona hans er Lára
Benediktsdóttir; Klemenz, leik-
ari, búsettur í Reykjavík, f.
29.2. 1920, kæntur Guðrúnu
Guðmundsdóttur; Elis, f. 3.4.
1931, umdæmissljóri Vega-
gerðar ríkisins á Suðvestur-
landi, búsettur í Borgarnesi.
Kona Elisar er Brynhildur
Benediktsdóttir. Jóhannes
stundaði nám í gamla Ingimars-
skólanum í Reykjavik á árunum
1940-1943. Þá var hann einn
vetur í Menntaskólanum í
Reykjavík og lauk búfræðinámi
frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri vorið 1945. Eftir það starf-
aði hann við kennslu næstu árin
og var kennari í Norðurárdal
í Borgarfirði á árunum 1945-
1947 og síðar í Strandahreppi
á Hvalfjarðarströnd 1948-1957.
Það ár kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni, Ernu Jónsdótt-
ur frá Geitabergi í Svínadal og
hófu þau hjónin búskap á Geita-
bergi það sama ár og hafa búið
þar miklu rausnar-
búi allt til þessa, en
hin síðari ár í sam-
býli við son sinn
Pálma. Foreldrar
Emu vora Stein-
unn Bjarnadóttir
og Jón Pétursson,
sem lengi bjuggu á
Geitabergi í
Svínadal. Eftir að
Jóhannes hóf bús-
skap á Geitabergi
gegndi hann ýms-
um trúnaðarstörf-
um fyrir sveitarfé-
lag sitt. Sat m.a. í
hreppsnefnd í fjölda ára og í
skólanefnd Leirárskóla á áran-
um 1966-1974. Jóhannes og
Erna eignuðust fjögur böm.
Elst þeirra er Sigríður, f. 23.5.
1958 og á hún einn son, Kára
Eyþórsson að nafni. Næst
barna þeirra er Pálmi, f. 2.10.
1959. Kona hans er Asgerður
G. Ásgeirsdóttir og eiga þau tvo
syni: Jóhannes Om og Jón
Hauk. Fyrir hjónaband eignað-
ist Pálmi Erlu Björk og Ásgerð-
ur Katrínu Ingu. Þriðja barn
Jóhannesar og Ernu er Jón, f.
6.9. 1960, skrifstofustjóri hjá
Búseta í Reykjavík kvæntur
Kristínu Sif Jónínudóttur og
eiga þau einn son, Bjart Örn.
Yngstur er Einar Stefán, f.
23.3. 1962, trésmíðameistari,
kvæntur Fjólu Ágústu Ágústs-
dóttur. Bam þeirra er Steinunn
Marín.
Útför Jóhannesar fer fram
frá Saurbæjarkirkju á morgun
og hefst athöfnin klukkan 14.
VIÐ BRÓÐURMISSI koma ýmsar
gamlar minningar fram í hugann.
Mínar fyrstu bernskuminningar eru
tengdar fæðingu þessa yngra bróð-
ur. Með því tel ég að ég muni fyrst
eftir mér í þessari jarðvist, því svo
fast hefur sá atburður greipst í
hugskot mitt. Eitthvað óvænt og
um leið dularfullt var í vændum í
litlu baðstofunni í Klettstíu. Það var
áliðið kvölds í svartasta skammdeg-
inu og samt gat ég ekki sofið. Eg
mun hafa verðið með ærsl og læti
svo mér var komið fyrir í „holunni“
hjá honum afa mínum og hann
sagði mér sögur til að róa ærslafull-
an dreng. Enn man ég vísuna sem
hann var að reyna að kenna mér,
en hún var gamall húsgangur í
Borgarfirði.
Árin liðu og þegar ég hafði
þroska og þrek til fól móðir mín
mér að vagga þessum litla bróður
í svefn, -en það gekk ekki alltaf
þrautalaust. Eg var óeirinn og þótti
þetta ekki skemmtilegur starfi.
Hann vildi alltaf að ég segði sér
fleiri og fleiri sögur, sem afi hafði
kennt mér, enda var drengurinn
snemma fróðleiksfús. Um leið og
hann lagði aftur augun læddist ég
á tánum út úr herbergiskompunni
og reyndi að leggja hurðina hljóð-
lega að stöfum. Þá kallaði hann
ævinlega: „Ég er ekki sofnaður
enn, segðu mér fleiri sögur.“ Venju-
lega fór ég volandi í burtu og móð-
ir okkar varð að leysa mig af hólmi.
Jóhannes var snemma skýr og
athugull. íslenskt sveitalíf og gróð-
ursæld fijórrar gróðurmoldar átti
brátt hug hans allan. Hann unni
friðsæld íslenskra dala og það var
eins og sá eiginleiki í fari hans
ágerðist eftir því sem árin liðu.
Jóhannes var ágætur námsmaður
og varð _gagnfræðingur frá Ingi-
marsskólanum í Reykjavík eftir
þriggja ára nám. Þá stundaði hann
ginn vetur nám í Menntaskólanum
í Reykjavík. En sveitalífið og bú-
skapur heillaði hann ætíð svo hann
hætti við að fara í langskólanám í
menntaskóla og á háskólastigi þótt
hann ætti þess kost. Þess í stað fór
hann í Bændaskólann á Hvanneyri
og útskrifaðist þaðan sem búfræð-
ingur vorið 1945. Með þeirri
ákvörðun voru örlög hans ráðin.
Jóhannes og kona hans Erna
tóku við búsforráðum á kostajörð-
inni Geitabergi í Svínadal vorið
1957. Þau endurnýjuðu allar bygg-
HELGIEINAR PÁLSSON
+ Helgi Einar Pálsson fæddist
12. desember 1916 í Hóla-
koti í Fljótum. Hann lést á
Siglufirði 13. apríl sl. og var
jarðsunginn frá Siglufjarðar-
kirkju 22. apríl.
MIG LANGAR til að minnast í örfá-
um fátæklegum orðum, frænda
míns og vinar, Helga Einars Páls-
sonar frá Hvammi í Fljótum.
Ég var tveggja ára þegar ég kom
fyrst til Imbu móðursystur minnar
og Helga í Hvammi, en þau önnuð-
ust mig þá um tíma í veikindum
móður minnar. Seinna var ég í
Hvammi á sumrin til fimmtán ára
aldurs og taldi þar vera mitt annað
heimili. Eg verð þakklátur fyrir það
alla tíð að hafa átt þess kost að
vera hjá þeim hjónum. Þau voru
mér ævinlega góð og ekki spillti
Ingveldur móðir Helga fyrir, en hún
eyddi ævikvöldinu hjá syni sínum
og tengdadóttur.
Eftir að ég eignaðist sjálfur mína
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Lokahóf
og bæjarkeppni
á Suðurnesjum
LOKAHÓF Bridsfélags Suðurnesja
og Bridsfélagsins Munins verður í
Vitanum nk. laugardagskvöld kl.
19.30. Miðaverð er 2000 krónur
fyrir hjónin og er innifalinn matur
og fordrykkur. Veitt verða verðlaun
fyrir keppni vetrarins í báðum fé-
fjölskyldu'var oft farið í sunnudags-
bíltúr í Fljótin og þá gjarnan komið
við í Hvammi. I Hvamm var alltaf
gaman að koma. Þetta var rausnar-
heimili, sem ævinlega ljómaði af
snyrtimennsku og myndarskap. Þar
ríkti gestrisni, eins og hún gerist
best í íslenskri sveit. Húsbændurnir
voru sammála um að ekkert væri
gestum of gott. Ánægjuna af því
að taka á móti gestum höfðu þau
með sér þegar þau brugðu búi í
Hvammi og fluttust til Sigluíjarðar.
Það var alltaf jafn yndislegt að
koma til þeirra.
Eftir að til Siglufjarðar kom,
vann Helgi í Hraðfrystihúsi ísafold-
ar hf. og var þar afar vel látinn,
enda ósérhlífinn og ljúfur í allri
umgengni. Helgi var glæsimenni í
sjón. Hann hafði ágæta söngrödd
og kunni, eins og títt er um Fljóta-
fólk, býsn af sönglögum. Hann
hafði líka mikla ánægju af spilum
og ekki síður af því að tefia. Hesta-
mennsku stundaði hann svo lengi,
sem heilsan leyfði og átti alltaf
lögum. Hljómsveit á vegum hússins
spilar fram á rauðanótt en húsið
verður opnað almenningi um mið-
nætti.
Á laugardeginum verður bæjar-
keppni milli Keflavíkur og Sand-
gerðis. Keppnin hefst kl. 13 og
verður spilað í sal á Suðurgötunni
í Sandgerði. Spilað er um veglegan
bikar.
Síðasta keppniskvöld vetrarins
hjá Bridsfélagi Suðurnesja var sl.
mánudag. Spilaður var eins kvölds
tvímenningur og sigruðu Garðar
Garðarsson og Eyþór Jónsson með
172 stig. Arnar Arngrímsson og
Reynir Oskarsson urðu í öðru sæti
með 166 stig og þrjú pör voru með
163 stig.
ágætis hross. Hann var laginn
hestamaður og afskaplega
skemmtilegur ferðafélagi. Við eig-
um góðar minningar frá skemmti-
legum ferðalögum á hestbaki yfir
Siglufjarðarskarð til Fljóta. Þá voru
klárarnir oft látnir spretta úr spori
seinasta spölinn í Hvamm. Þessar
minningar verða ekki frá okkur
teknar og munu ylja alla tíð.
Nú ertu farinn fyrir fullt og allt,
Helgi. Síðast þegar við sáum þig,
kvöldið áður en kallið kom, grunaði
okkur ekki að þú værir kominn
svona nærri landamærunum. Víst
vissum við að þú varst þjáður, en
þú kvartaðir aldrei og harkaðir
þjáningar þínar af þér með ótrú-
legri karlmennsku.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að njóta vináttu þinnar og
það er alveg víst að þín er sárt
saknað. Megi góður Guð hugga
eftirlifandi konu þína, dóttur þína
og aðra ástvini, sem nú syrgja þig.
Gestur Halldórsson
og fjölskylda.
Spilarar eru hvattir til að mæta
í bæjarkeppnina og lokahófið en
þátttökugjaldi er mjög í hóf stillt.
Bridsfélag kvenna
SL. MÁNUDAG var síðasta spila-
kvöld vetrarins, spilaður var Mitchell-
tvímenningur með þátttöku 17 para
og urðu úrslit þannig:
NS-riðill
Hulda Hjálmarsdóttir - Ólína Kjartansdóttir 250
Sigrún Pétursdóttir—Guðrún Jörgensen 239
Hertha Þorsteinsdóttir - Elín Jóhannsdóttir 232
Kristín Jóndóttir ■- Erla Ellertsdóttir 224
AV-riðill
Sigríður Möller - Preyja Sveinsdóttir 247
Lilja Halldórsdóttir - Oskar Karlsson 242
Jón I. Jónsson - Haraldur Hermannsson 228
Inga L. Guðmundsdóttir - Unnur Sveinsdóttir 226
ingar og færðu alla búskaparhætti
á jörðinni í nýstískulegt form til
þess að svara kröfum tímans. Allt
var tæknivætt og nýjar og full-
komnar búvinnuvélar voru keyptar
til að létta undir við búskaparstrit-
ið. Nú má segja að Geitaberg sé
stórbýli með öllum nýtískulegum
búnaði. Allt þetta ber vitni um
myndarskap og framsýni þeirra
hjóna.
í all mörg ár hefur Pálmi sonur
þeirra búið félagsbúi með foreldum
sínum. Hann hefur byggt reisulegt
íbúðarhús fyrir fjölskyldu sína svo
nú er þar tvíbýli. Fagurt er heim
að líta að Geitabergi í friðsæla
fjalladalnum og þar er mjög staðar-
legt.
Fyrir tæpu ári kenndi Jóhannes
þess illvíga sjúkdóms sem leiddi
hann til dauða. All oft dvaldist hann
á sjúkrahúsum og gekkst undir erf-
iðar skurðaðgerðir. Þangað kom ég
í heimsóknir til hans og varð þess
var að hann bjó yfir mikilli hugarró
og andlegum styrk. Hann æðraðist
aldrei og sætti sig við sitt erfiða
hlutskipti. Lengi bar hann þá von
í bijósti að sér mundi batna og að
hann kæmist aftur heim að Geita-
bergi. En þegar honum var ljóst
hvert stefndi tók hann því með
miklu æðruleysi og sagði eitt sinn
við mig: „Öll töpum við síðustu or-
ustunni við sláttumanninn slynga.“
Nú að leiðarlokum sendum við
hjónin Ernu, börnum hennar,
tengdabörnum, barnabörnum og
öðrum nánum ættingjum hugheilar
samúðarkveðjur.
Um sjötíu ár eru liðin frá því að
móðir mín fól mér að vagga litla
bróður mínum í væran svefn. Þess
gerist ekki þörf lengur því nú er
hann sofnaður svefninum langa.
Hann er horfinn inn í vorið og gró-
andann.
Far þú í friði kæri bróðir.
Blessuð sé minning Jóhannesar
á Geitabergi.
Klemenz Jónsson.
t
Ástkaer faðir minn, sonur og bróðir,
ÁRNIÞÓR JÓNSSON
frá Skógum f Öxarfirði,
til heimilis á Faxabraut 5,
Keflavtk,
lést 20. maf.
Sigrfður Árnadóttir,
Sigrfður Guðmundsdóttir
og systkini.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
EGGERT JÓNAS GUÐMUNDSSON,
Hjaröartúni 3,
Ólafsvfk,
lést í St.Fransiskusspítalanum, Stykkis-
hólmi J3. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Vilborg Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
HÁKON KRISTINSSON
kaupmaður,
Heiðarbrún 6,
Keflavík,
lést á Borgarspítalanum þriðjudaginn
23. maí.
Hafdís Jóhannsdóttir,
Guðrún Hákonardóttir, Stefán Jónsson,
Rakel Lárusdóttir, Hákon Stefánsson.
+
Ástkœr eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN SIGURÐSSON,
Hæðargarði 33,
Reykjavík,
lést 15. maí sl. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey samkvæmt ósk hans.
Helga Hannesdóttir,
Hrund Jóhannsdóttir, Gunnar Jónsson,
Hanna Birna Jóhannsdóttir, Árni Óli Ólafsson,
Rannveig Auður Jóhannsdóttir,
Sigurður Rafn Jóhannsson, Margrét Runólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.