Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ1995 47
FRETTIR
AÐALLEIKARAR myndarinnar Eitt sinn stríðsmenn.
Regnboginn for-
sýnir myndina Eitt
sinn stríðsmenn
Athugasemd um
þýfi í Kolaporti
REGNBOGINN forsýnir Nýsjá-
lensku verðlaunamyndina „Once
Were Warriors" eða Eitt sinn stríðs-
menn. Myndin hefur hlotið yfir 20
aiþjóðleg verðlaun á kvikmyndasýn-
ingum þ.á m. allar helstu viður-
kenningar á hátíð í Montreal í
Kanada. Myndin byggir á sam-
nefndri og afar umdeildri skáldsögu
Alan Duff. Segir sagan frá örlögum
fjölskyldu af kynstofni maoría sem
voru frumbyggjar Nýja-Sjálands.
Hjónin Jake og Beth, sem hafa
verið gift í 18 ár og eiga fimm
börn, búa í félagslegri íbúð í út-
hverfi Auckland, stærstu borgar
Nýja-Sjálands. Jake er skapstyggt
vöðvaijall sem helst illa í fastri
vinnu en eyðir því meiri tíma með
vinunum á pöbbinum. Beth annast
heimilið og börnin en þau elstu eiga
erfitt með að fóta sig í lífinu. Ást-
arblossi hjónabandsins er enn til
staðar en lítið má út af bera til að
allt fari í bál og brand. Skapofsi
og drykkja Jake ágerist sífellt og
drykkjuveislur draga þungan dilk á
eftir sér. Það kemur að því að Beth
verður að gera upp hug sinn: Ætlar
hún að þola að bæði hún og börnin
séu kúguð eða beijast á móti með
kjafti og klóm, hugrekki og reisn?
Leikkonan Rena Owen, sem leik-
ur Beth, mun heimsækja Reykjavík
um hvítasunnuhelgina og verða við-
stödd frumsýningu kvikmyndarinn-
ar hérlendis sem Regnboginn mun
tileinka Kvennaathvarfinu.
Morgunblaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Kolaportinu:
í Morgunblaðinu 24. maí birtist
frétt um það að þýfi hafi fundist á
sölubás í Kolaportinu og að þetta
hafi verið þriðja tilfellið á skömmum
tíma sem slíkt hafi gerst. Það kom
hins vegar ekki fram að í tveimur
þessara tilfella voru það starfsmenn
Kolaportsins sem létu lögregluna
vita af grunsemdum um slíkt, og
að gott samstarf hefur ætíð verið
með Kolaportinu og Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
„Kolaportið er opið öllum til að
selja hvað sem er (innan ramma laga
og velsæmis)“, eins og þetta hefur
verið orðað í greinum og auglýsing-
Ráðstefna um
ölvunarakstur
NORRÆN ráðstefna Bindindisfélags
ökumanna verður haldin á Grand
Hótel Reykjavík föstudaginn 26.
maí.frá kl. 9-16.
Á ráðstefnunni halda margir sér-
fræðingar erindi og má nefna norsk-
an vísindamann, Asbjörg S. Christof-
fersen, frá Statens Rettstoksilogiska
Institut í Osló í Noregi. Þá mun Jak-
ob Kristinsson, deildarstjóri rann-
sóknarstofu í lyfjafræði við Háskóla
íslands flytja erindi og Gylfi Ás-
mundsson við Geðdeild Landspítal-
ans segir frá rannsóknum sem hann
hefur gert um akstur og áfengi.
Högni S. Kristjánsson, fulltrúi frá
Dómsmálaráðuneytinu mun tilgreina
lög og reglugerðir. Daníel Hafsteins-
son, tæknifræðingur frá Sambandi
íslenskra tryggingafélaga, flytur er-
indi og Sigurður Helgason frá Um-
ferðarráði.
um. Þegar litið er á skoðanakannan-
ir sem ÍM Gallup hefur þrívegis
gert fyrir Kolaportið kemur í ljós
að seljendur og gestir eru nánast
þverskurður af þjóðfélaginu í heild.
Það er því ekki að furða að einstaka
svartir sauðir séu innan um fjöldann
eins og gengur og gerist í þjóðfélag-
inu yfirhöfuð. En með tilliti til þess
að um 10% þjóðarinnar, eða um
26.000 manns, hafa prófað að selja
í Kolaportinu einu sinni eða oftar
má kannski segja að ótrúlega sjald-
an hafi slík tilfelli komið upp sem
vitnað er til hér að framan. Það
má kannski þakka því hve starfs-
menn markaðstorgsins eru vel á
varðbergi.
Helgarferðir
Ferðafélags
íslands
FARIN verður helgarferð föstudag-
inn 26. maí kl. 20 til Þórsmerkur.
Boðið upp á gönguferðir. um Mörk-
ina. Á laugardaginn verður gengið
yfir Eyjaijallajökul. Sú ganga tekur
um 8 klst. og verður komið niður
hjá Seljavallalaug en þangað sækir
bíll hópinn, gist verður aftur í Þórs-
mörk og báðir hópar koma til baka
á sunnudag.
Laugardaginn 27. maí verður jarð-
fræðiferð um Reykjanes.
Sunnudaginn 28. maí verður hinn
árlegi Göngudagur Ferðafélagsins.
Ferðir verða kl. 10.30 og kl. 13.
Myndakvöld með ferðakynningu
verður þriðjudagskvöldið 30. maí kl.
20.30. íslandsferðir fyrir hlé og
Grænland eftir hlé.
Afmælisget-
raun ístaks
í TILEFNI af byggingadögum
Samtaka iðnaðarins og 25 ára
afmæli ístaks í ár stóð ístak fyr-
ir afmælisgetraun. Getrauna-
kassar voru rneðal annars í íbúð
fyrir 63_ára og eldri að Þorra-
götu 7. íbúðin var sýnd fullbúin
húsgögnum og húsbúnaði og yfir
700 manns lögðu leið sína í
Þorragötuna. Dregið var úr rétt-
um svarseðlum á sunnudaginn.
Hinn heppni vinningshafi er
Laufey Sólmundardóttir. Hún
svaraði bæði spurningunni um
aldur og starfsmannafjölda ís-
taks hárrétt. Á myndinni sést
Þórunn Pálsdóttir, fjármála-
sljóri ístaks afhenda Laufeyju
vinninginn í afmælisgetrauninni,
Sterling-gasgrill frá Skeljungi.
-----» ♦ ♦----
■ FÉLAG fósturforeldra boðar
til félags- og fræðslufundar í mötu-
neyti Hafnarhússins, Tryggva-
götu 17, föstudaginn 26. maí kl.
20. Gestur fundarins verður Guðjón
Bjarnason frá Barnaverndarstofu
sem kynnir nýlegar breytingar á
lögum um vernd barna og unglinga.
ATVIN NUAUGIÝSINGA R
Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis
Lausar eru til umsóknar stöður við eftirtalda
grunnskóla í Reykjvík skólaárið 1995-1996.
Laugalækjarskóli: Kennarastaða, aðal-
kennslugreinar íslenska, danska og samfé-
lagsfræði í 8. bekk.
Hagaskóli: Staða aðstoðarskólastjóra.
Melaskóli: Staða aðstoðarskólastjóra.
Umsóknarfrestur er til 9. júní 1995.
Fræðslustjórinn íReykjavík,
Túngötu 14, 101 Reykjavík,
sími 562 1550.
Framhaldsskóla-
kennarar - bóka-
safnsfræðingar
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
auglýsir framlengdan umsóknarfrest um
eftirfarandi störf:
Kennarastöður í þýsku (3A), íslensku (V2)
og stærðfræði. Einnig í rafvirkjun, rafeinda-
virkjun, sálfræði og viðskiptagreinum.
Þá er laus til umsóknar stundakennsla í raun-
greinum, ensku, grunnteikningu og tjáningu.
Ráðið verður í kennarastöður frá 1. ágúst nk.
Bókasafnsfræðing vantar í fullt starf á safn
skólans frá 1. september nk.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 2. júní.
Umsóknir skulu sendar Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi, Vogabraut 5,
300 Akranesi.
Skólameistari.
„Au pair“ - Island
21 árs þýsk „au pair“ óskar eftir að komast
á íslenskt heimili sem fyrst, í sex mánuði til
að byrja með. Talar ensku og eilítið í frönsku.
Upplýsingar í síma 91-13449 á kvöldin eða
í síma 0049-511-958-5949, Janice Wilke.
Tryggingafulltrúi
Laust er til umsóknar starf tryggingafulltrúa
við embætti sýslumannsins Vík í Mýrdal.
Ráðið verður í starfið sem fyrst. Umsóknir
skulu sendar á embættið, Ránarbraut 1,870
Vík, fyrir 1. júní nk. Laun skv. launakerfi opin-
berra starfsmanna. Starfið felst í afgreiðslu
fyrir Tryggingastofnun ríkisins, og að auki
öll almenn afgreiðslustörf, og er reynsla af
tölvum nauðsynleg.
Sýslumaðurinn Vík í Mýrdal.
Sigurður Gunnarsson.
Prentsmiðja
Óskum eftir starfskröftum í eftirtalin störf:
1. Prentsmiður, þarf að hafa kunnáttu á
Macintosh og geta hafið störf fljótlega.
2. Frágangsstarf í bókbandi.
Aðeins reglusamt fólk kemur til greina.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
þurfa að sendast fyrir 2. júní.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Litlaprent,
Nýbýlavegi 26,
200 Kópavogi.
r?
Gerðaskóli í Garði
Sérkennari - almennur kennari
Gerðaskóli óskar eftir áhugasömum sérkenn-
ara til að skipuleggja og leiða sérkennsluúr-
ræði við skólann og einnig góðum almennum
kennara í eldri deildir. í skólanum eru- um
220 nemendur í 1.-10. bekk og samhent
kennaralið.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Upplýsingar um aðstöðu og húsnæði gefur
Eiríkur Hermannsson, skólastjóri í síma
92-27020 (vs.) eða 92-27048 (hs.).
Skólanefnd.
PRENTSMIÐJAN ODDI HF.
Kanntu að reikna
rétt?
í stóru og öflugu fyrirtæki er laust starf við
tilboðsgerð og útreikninga. Unnið er á tölvu,
sérsmíðað forrit.
Við leitum að aðila, sem er glöggur á tölur,
hefur góða framkomu, getur tekið ákvarðan-
ir sjálfstætt og hefur þekkingu á vinnslu
prentgripa (þó ekki skilyrði). Þarf að geta
hafið störf sem allra fyrst.
Vinsamlega sendu umsókn, með
upplýsingum um þig, til okkar merkta:
„Sölumennska - tilboðsgerð" fyrir 30. maí nk.
Öllum umsóknum svarað.