Morgunblaðið - 25.05.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 53
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Svar vegna
Stuttmyndadaga
Fri Inga R. Ingasyni:
„STUTTMYNDADAGAR í
Reykjavík 1995“ er fjórða stutt-
myndakeppnin sem Kvikmyndafé-
lag íslands stendur fyrir á jafnmörg-
um árum. Vegna metfjölda inn-
sendra mynda var ljóst að halda
þyrfti hátíðina í stærra húsnæði en
árinu áður. Vertar Hótel Borgar
voru svo góðir að skjóta skjólshúsi
yfír hátíðina í þetta skiptið með því
að fá að selja þar veigar sem þar
eru jafnan í boði.
Alltaf hefur hátíðin verið haldin
í húsnæði sem hefur vínveitinga-
leyfí. Við sem að keppninni stöndum
höfum ætíð skilgreint okkur á sama
hátt og þeir sem standa t.d. að þeim
myndlistarsýningum og álíka uppá-
komum sem haldnar eru í sams
konar húsnæði - án aidurstak-
marks. Aldrei fyrr höfum við komist
í kast við eftirlitsmenn vínveitinga-
húsa þó hátíðin hafi ætíð verið hald-
in í samskonar húsnæði áður.
Ástæðan fyrir því er e.t.v. sú að
hátíðin var nú betur auglýst og fjöl-
mennari en áður.
Vona ég að eftirfarandi svari
spurningum þeirra Eiríks Inga Böð-
varssonar og Valtýs Bergmann sem
fram voru bomar í Morgunblaðinu
þann 18. maí síðastliðinn:
Ekkert aldurstakmark
Hvergi var í auglýsingum getið
um aldurstakmark einfaldlega
vegna þess að ekkert aldurstakmark
er á þátttakendum í keppninni. Ald-
urstakmarkið kom ekki upp í okkar
huga fyrr en eftirlitsmenn vínveit-
ingahúsa sögðust ekki viðurkenna
keppnina sem listviðburð á borð við
myndlistarsýningar og settu því
fyrstu tvö kvöldin 18 ára aldurstak-
mark. Fyrir lokakvöldinu þurfti
vegna langrar dagskrár að fá sér-
stakt skemmtanaleyfi til kl. 02 frá
embætti lögreglustjóra og sjálfkrafa
skall þá á 20 ára aldurstakmark,
okkur til mikillar undrunar.
Vegna þessa bauðst eigandi Kaffí
Læks í Lækjargötu með svo til eng-
um fyrirvara til þess að lána sitt
húsnæði undir þá sem ekki voru
orðnir tvítugir og leyfa uppsetningu
á tækjabúnaði til áhorfs. Þar voru
tveir myndskjáir jafnstórir þeim sem
voru á Skuggabar Hótel Borgar þar
sem bæði sáust stuttmyndirnar og
kynnir hátíðarinnar og prýðis hljóð-
kerfi hússins sá um að koma hljóð-
inu til skila. Ekki heyrðust kvart-
anaraddir um gæði hljóðs og mynd-
ar hjá gestum Kaffi Læks þá frekar
en nú þar sem sömu skjáir sýndu
fyrir stuttu gestum og gangandi
leiki í nýlokinni Heimsmeistara-
keppni.
Matsölustaðurinn Subway og 01-
gerðin Egill Skallagrímsson buðu
gestum Hótel Borgar uppá samlokur
og bjór á meðan dómnefnd stakk
saman nefjum á lokakvöldinu. Miða-
verð var með öllu óháð þessum veit-
ingum sem allar voru í boði fyr-
irtækjanna. Þar sem skiptingu
áhorfendahópsins bar mjög brátt að
var meiri áhersla lögð á að koma
mynd og hljóði til skila en veiting-
um.
Reykjavíkurborg
er styrktaraðili
Reykjarvíkurborg hefur síðustu
þrjú ár styrkt stuttmyndadagana
með því að veita vegleg peninga-
verðlaun. Að öðru leyti tengist hún
ekki keppninni frekar en aðrir
styrktaraðilar og því ekki hennar
að svara hér spurningum varðandi
framkvæmdina.
Hrafn Gunnlaugsson, Þorgeir
Gunnarsson og Inga Björk Sólnes,
sem skipuðu dómnefndina, fengu í
hendur dagskrá keppninnar. í hléum
fengu þau aðstöðu til þess að skoða
þær myndir sem þau báðu um og
nýttu þau sér það.
Eftir þessa keppni í ár eru uppi
hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi
Stuttmyndadaga í Reykjavík. Forval
á myndum, tímatakmörk á þeim,
staðaival o.m.fl. er í bígerð og verð-
ur nánar auglýst síðar. Þakka ber
þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á
plóginn við þessa viðamiklu fram-
kvæmd. Starfsfólki, styrktaraðilum
og hinum mikla fjölda ungra kvik-
myndagerðarmanna sem sýndu verk
sín kunnum við bestu þakkir fyrir.
INGI R. INGASON,
framkvæmdastjóri Stuttmyndadaga.
Um rjúpuna
Frá Olgeiri Jónssyni:
ÉG UNDIRRITAÐUR Olgeir Jóns-
son hef talað við marga menn í
Suður:Þing. og vil láta friða ijúp-
una. Ég hef nú lifað í rúmlega 90
ár og man marga harða og kalda
vetur á þessum árum. Ég ætla að
lýsa sérstaklega einum hörðum vetri
árið 1936. Þá var aljarðlaust fyrir
sauðfé þrem vikum fyrir vetur og
harðindakaflinn stóð fram að pásk-
um, eða í 18 vikur. Tvo fyrstu daga
þorra var iðulaus stórhríð, svo fór
að rofa til á milli élja. Élin stóðu
allan þorrann en fór að birta fyrsta
dag í góu. Eftir tvo stórhríðardaga
sá ég að stór hópur af rjúpum var
kominn í Höskuldsstaðabrekkuna en
brekkan er hvít af holtasóleyjum á
vorin sem er blómkróna rjúpnalaufs-
ins. Þarna krafsaði ijúpan sig niður
| rjúpnalaufið hvern dag, en á kvöld-
>n hurfu þær svo upp á brún. Eitt
kvöldið fór ég á eftir þeim til að gá
hvað ég sæi. Þar sá ég að þær höfðu
grafið sér snjóhús, en höfðu smágat
sem höfuðið gægðist upp úr. Þessu
héldu þær áfram þorrann út.
Þá ætla ég að lýsa hörðu vori
árið 1949. Þá kom góður kafli fram
í aðra viku sumars og jörð roðnaði,
en þá spilltist tíðin og gekk í látlaus-
an byl fram til 17. júní. Tjörn utan
við Höskuldsstaði varð íslaus í góðu
tíðinni um sumarmál, en allur dalur-
inn var snævi hulinn nema nokkur
holt sunnan við þessa tjörn héldust
auð og þar hélt sig mikið af heiðlóu
sem komin var til landsins þegar
veður spilltist. Þegar loks rofaði til
þann 17. júní var fjöldi af dauðum
lóum sem höfðu króknað úr kulda,
en ijúpan var í brekkunum og krafs-
aði niður á ijúpnalaufið og ég vissi
ekki til að það félli ein ijúpa þetta
vor og ég hef aldrei vitað til þess
að það hafi fallið ijúpa hversu hörð
sem tíðin hefur verið.
Nú vildi ég óska þess að íslending-
ar hættu að hafa ijúpuna sem skot-
mark. Þar sem hún er mesta prýði
íslenskra heiða.
OLGEIR JÓNSSON
frá Höskuldsstöðum, S-Þing.
Verð
Fashion Ðazaar eru fyrsta
flokks vörur á viðráðan-
legu verði. Þær fást f miklu
úrvali lita og tegunda, en
auk þeirra sem hér er getið,
er fjöldi annarra fáanlegur.
Fashion Bazaar eru ofnæmis-
prófaðar snyrtivörur og
tilraunir framleiðandans
fara ekki fram á dvrum.
Varalitir
Varablýantar
Naglalökk
Litað dagkrem
Fast Make
Kinnalitir
Laust púður
Fast púður
Sólarpúður
Augnskuggar
Augnblvantar
| tilboð
Athugið
Næstu tólf daga fylgir
vandaður ferðageislaspilari
með þessum hljómtækjum,
í kaupbæti.
Kringlan 8-12 Sími 681000
Aiwa NSX-430 verðlaunahljómtæki
Hljómtæki með geislaspilara, tvöföldu segulbandi, útvarpi, „front surround",
karaoke kerfi með radddeyfi o.fl., o.fl.
VERÐ KR. 69.900 STGR.
MATREIÐSLUMAÐUR ARSINS
Keppnin „Matreiðslumaður ársins" verður haldin 26., 27. og 28. maí í Matreiösluskólanum
okkar, Bæjarhrauni 16 í Hafnarfirði á vegum Félags matreiðslumanna. Verðlaun gefa
Ásbjörn Ólafsson hf. og Knorr. Á sama stað verður sýning á vörum fyrir hótel- og
veitingarekstur, sérstaklega ætluð þeim sem starfa á því sviði. Sýningin er öllum opin frá
kl. 14:00 -19:00 á föstudag og kl. 12:00 -19:00 laugardag og sunnudag. Aðgangur er ókeypis.
FELAG
MATREIÐSLUMANNA