Morgunblaðið - 25.05.1995, Side 54

Morgunblaðið - 25.05.1995, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ 2 /r / fs/L kÁsr íslenskir tómatar eru safaríkir, bragðmiklir og hollir. Þeir eru ómissandi í salöt, sem álegg, grillaðir eða sem ferskur biti á milli máltíða. Mundu eftir íslenskum tómötum, rnzst þegarþú verslar. 4«i) ÍSLENSK GARÐYRKjA é> ÍSLENSKUR LANDBUNAÐUR ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Ljóð eignað öðrum MIG langartil þess að biðja Velvakanda að koma á framfæri smáleiðréttingu í blaðinu. Fyrir nokkrum árum var ég beðin að gera lítið minningarljóð eftir látna konu og varð ég við þeirri beiðni. Ekki löngu síðar fór fyrsta erindi þessa ljóðs að birtast í minningargreinum Morg- unblaðsins og upphaflega með fangamarki að undir- skrift. En nú fyrir skömmu brá svo við að ljóðið er eignað Davíð Stefánssyni. Mig langar vinsamlegast til þess að fá þetta leið- rétt. Mér þykir ekki við hæfi að ljóð eftir mig séu eignuð þjóðskáldi okkar Davíð Stefánssyni. Svo er annað, þetta litla erindi hefur aldrei komið rétt, þar sem það hefur verið notað í minningagreinum, sem birst hafa í Morgunblaðinu og langar mig einnig til þess að fá það leiðrétt. Frá minni hendi var ljóðið þannig: Hver minning dýrmæt perla að liðnum degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér. Ingibjörg Sigurðardóttir Frábært á Nausti AÐ gefnu tilefni langar okkur að fá að þakka sér- staklega fyrir frábæra kvöldstund sem við áttum á Naustinu þann 19. maí í tilefni afmælis eins okk- ar. Það var okkur strax ljóst að þarna var fag- mennska og ánægjan í fyr- irrúmi til að láta öðrum líða mjög vel á þessum skemmtilega stað að ógleymanlegt verður. Eftir að hafa borðað þama mjög svo góðan mat með góðum drykkjum og við farin að sýna á okkur fararsnið var okkur boðið að líta inn á Naustkrána sem við gerð- um þar sem kvöldið var enn ungt og þar reyndist sama ánægjan vera hjá starfsfólkinu til að þjóna og láta fólki líða vel þó margt fólk væri á staðnum. Þetta var í fyrsta en örugg- lega ekki í síðasta skipti sem við veljum veitinga- húsið Naust til að láta stjana við okkur. Lára Björgvinsdóttir, Guðný Tómasdóttir, Þórhallur Einarsson, Jón Pálsson. Tapað/fundið Myndvél tapaðist MYNDAVÉL tapaðist 11. febrúar sl. í samkomuhúsi í Borgarnesi. Vélin er grá Splash-myndavél. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa sam- band við Hildi í síma 15792. Bakpoki tapaðist BRÚNN bakpoki með sunddóti í, ómerktur, tap- aðist sunnudaginn 14. maí sl. á leiðinni frá Sundhöll- inni og niður á Miklubraut. Finnandi vinsamlegast hafí samband í síma 989- 61806. Sólgleraugu fundust KVENMANN SSÓLGLER- AUGU fundust í Ljárskóg- um laugardaginn 20. maí. Uppl. í síma 5670995. Rafmagnsrakvél tapaðist SEM ný rafmagnsrakvél með hleðslusnúru í svörtu leðurhulstri tapaðist sl. föstudag. Finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 626640. Reiðhjól tapaðist SVART þriggja gíra gam- aldags SCO kvenreiðhjól með barnastól tapaðist fyr- ir réttri viku frá Garða- stræti 43. Finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 13662 á kvöldin. Ulpa tapaðist BLÁ og lillablá úlpa gleymdist á leikvellinum við Hlíðarskóla sl. föstu- dagskvöld. Finnandi vin- samlegast hafí samband í 5683163. (2.645), 26 ára, var með hvítt, en gamli bragðarefur- inn Lajos Portisch (2.585) var með svart og átti leik. Sokolov var að leika gróf- lega af sér með 31. Dc2-e2??, en eftir 31. Dd2 eða 31. Ddl hefði hann átt vinningsstöðu. Nú sá Portisch sér leik á borði: 31. - Hxcl! 32. Hxcl? (Sokolov er svo brugðið að hann fmnur ekki 32. Bxb7! sem hefði dugað til jafnteflis) 32. - Dh6 (með tvöfaldri hótun á cl og h2) 33. g3 - Dxcl+ og Sokolov gafst upp því hann hefur tapað manni. Þrátt fyrir þetta náðu Bosníumenn öðru sæti á mótinu. SKÁK Umsjön Margeir Pétursson SVARTUR á leik Staðan kom upp_ í mikil- vægri viðureign á Ólympíu- skákmótinu í Moskvu í des- ember. ívan Sokolov Með morgunkaffinu Ast er... Þegar hann spillir þér. TM Reg. U.S. Pat. Ofl — Bll riflhta mserved (c) 1995 Los Angotes Tlmos Syndicato ÉG vil gjarnan fá að hugsa málið. Víkverji skrifar... AÐ verður varla kallað annað en afrek, það þrekvirki sem læknarnir unnu í flugvél British Airways í fyrradag, á leiðinni frá Hong Kong til London, með því að framkvæma skurðaðgerð á farþega sem var í lífshættu, vegna þess að annað lungað hafði fallið saman. Eins og sást á forðsíðu Morgunblað- isins í gær, þar sem atburðinum var lýst, voru aðstæður afar erfiðar fyrir læknana, sem urðu að notast við herðatré, skæri, gosflösku og koníaksdreitil, í stað hefðbundinna skurðstofuáhalda. Það er alltaf ánægjulegt að frétta af atburðum sem þessum, ekki síst þegar svo vel tekst til. xxx UPPHAF íslandsmótsins í knattspymu virðist ætla að lofa góðu um knattspyrnuna í sum- ar, því í fyrstu fimm leikjunum, sem allir voru leiknir á þriðjudag, voru skoruð hvorki fleiri né færri en 19 mörk og flest i leik Eyjamanna gegn Val í Vestmannaeyjum, þar sem heimamenn tóku Valsara í kennslustund, sem lauk með því að Eyjamenn skoruðu 8 mörk gegn einu marki Valsmanna. Liklega komu nýliðarnir í 1. deild, Leiftur frá Ólafsfirði, þó mest á óvart í viðureign sinni við Fram, þar sem nýliðarnir lögðu Frammara að velli með fjórum mörkum gegn engu. Það getur ýmislegt óvænt og skemmtilegt átt eftir að koma á daginn í knattspyrnuleikjum sum- arsins, sem hlýtur að vera knatt- spymuáhugamönnum fagnaðar- efni, því fátt er meira óspennandi en leikir þar sem hægt er að segja fýrir um úrslitin. xxx VIÐ hér á höfuðborgarsvæðinu erum fyrir allnokkru hætt að hugsa um vetrarhörkur, ófærð og fannfergi og Víkveiji hyggur að tilhugsunin um snjóflóð sé orðin ærið fjarlæg þeim sem á mölinni búa, nú þegar mánaðamót maí og júní nálgast. Það er þó síður en svo að slíkt eigi við um landsmenn alla. Fyrir nokkrum dögum birtust hér í Morgunblaðinu myndir að norðan, sem sýna að víða er enn mikill snjór í byggð. Á baksíðu Morgunblaðsins í gær gat svo að líta litla frétt sem greindi frá því að snjóflóð féll í Óshlíðinni í fyrrakvöld og lokaði veginum milli Bolungarvíkur og Hnífsdals. Það er ljóst að ákveðinn hluti landsmanna má búa við vetr- arhörkur langt fram á sumar. xxx EINHVERS staðar var því haldið fram að áhugi almennings á handknattleik í Svíþjóð hefði aukist til muna við það að Svíar komu hing- að til lands og kepptu i riðlakeppn- inni á Akureyri. Því hefur verið gaukað að Víkveija, af áhugamanni um sænsku pressuna, að hann hafi ekki orðið þessarar aukningar var í þeim sænsku blöðum sem hann rýn- ir gjarnan í. Hann sýndi Víkveija til dæmis íþróttakálf úr sænsku dag- blaði máli sínu til sönnunar og viti menn: Þar gat að líta glæsilega umfjöllun um Ameríkubikarinn á heilli síðu, með tilkomumikilli mynd af skútu á siglingu. Áfram var flett í íþróttakálfinum, á næstöftustu síðu gat að líta litla eindálksfrétt á vinstri síðu, efst í vinstra horni af gengi Svíanna á Akureyri! Skyldi hið sama hafa verið upp á teningnum í öðrum þátttökulöndum í HM-keppninni og hér á iandi?!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.