Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STJÁRM BÍÓ
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
Kvikmyndagetraun. Verðlaun: Bíómiðar og regnhlífar
Verð 39.90 mínútan.Sími 991065.
BARDAGAMAÐURINN
Sýnd kl. 5. B.i. 16ára.
ODAUÐLEG AST
LITLAR KONUR
Gerð eftir sögu Louise May Alcott „Yngismeyjar" sem
hefur komið út á íslensku. Winona Ryder, Susan
Sarandon, Kristen Dunst, Samantha Mathis, Trini
Alvarado, Claire Danes fara með aðalhlutverkin í þessari
ógleymanlegu kvikmynd um tíma sem breytast og
tilfinningar sem gera það ekki.
Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna.
Winona Ryder hlaut tilnefningu fyrir bestan
leik í aðalhlutverki.
Framleiðandi: Denise Di Novi (Batman, Ed Wood).
Leikstjóri: Gillian Armstrong (My Brilliant Career.)
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9 og 11.15.
IMMQPJaL
• BeLoVeD ’
AÐALHLUTVERK: Gary Oldman, Isabella
Rossellini, Jeroen Krabbé, Valeria Golino
og Johanna Ter Steege.
Sýnd kl. 6.45 og 9. B.i. 12.
VINDAR FORTIÐAR
AÐALHLUTVERK:
BRAD PITT
ANTHONY HOPKINS
OG AIDAN QUINN
★★★ A. I. Mbl.
Sýnd ki 11.15. B.i. 16.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Sambíóin sýna Fylgsnið
SAMBÍÓIN hafa tekið til sýningar
kvikmyndina „Hideaway" eða
Fylgsnið eins og hún er kölluð á
íslensku. í aðalhlutverkum eru Jeff
Goldblum, Christine Lahti og Alicia
Silverstone.
Myndin er byggð á samnefndri
skáldsögu eftir Dean R. Koontz og
segir frá Hatch Harrison sem lend-
ir með fjölskyldu sinni í hræðilegu
bílslysi. Kona hans 0g dóttir sleppa
lifandi en hann er látinn þegar
komið er á spítalann. Hatch hefur
verið látinn í rúman klukkutíma
þegar læknum tekst með hjálp
hátæknibúnaðar að lífga hann við.
Á ferð sinni um hinn heiminn rekst
hann á góð og ill öfl og þegar
hann snýr aftur hefur hann tengst
andlegum böndum við geðveikan
morðingja, Vassago að nafni.
Hatch fer að sjá veröldina hans
augum og fær sýnir sem gefa til
kynna að dóttir hans Regina gæti
verið í stórhættu. Leikstjóri mynd-
arinnar er Brett Leonard.
ATRIÐI úr kvikmyndinni Fylgsnið.
Taktu
mjólkina
á beinið!
Rannsóknir sýna
að með nægri
mj ólkurdrykkju á
unglingsárum er
hægt að vinna gegn
hættunni á
beinþynningu
ATRIÐI úr kvikmyndinni
Snillingurinn.
Laugarásbíó
sýnir Snill-
ingurinn
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á_ myndini Snillingurinn eða
„I.Q“. I aðalhlutverkum eru Meg
Ryan, Tim Robbins og Stephen Fry.
Myndin gerist á miðjum 5. ára-
tugnum í háskólabænum fræga
Princeton en þar starfaði Albert
Einstein frá 1933 til dauðadags
árið 1955 við kennslu eftir að hafa
flúið ofsóknirnar í Evrópu á upp-
gangstímum Hitlers og nasista. í
sögunni fær höfundur hennar, Andy
Breckman, Einstein lánaðan og
staðsetur hann sem miðpunktinn í
ástarmálum frænku sinnar. Frænk-
an (Meg Ryan) er fluggáfuð 0g trú-
lofuð álíka gáfuðum menntamanni
og sálfræðingi sem leikinn er af
breska gamanleikaranum Stephen
Fry. Undir venjulegum kringum-
stæðum væri Einstein ekki að
skipta sér af persónulegum högum
skyldmenna sinna en í þessu tilviki
getur hann ekki setið á sér. Málið
er nefnilega það að hann þolir illa
sálfræðinginn og sér fram á hrika-
lega ófullnægjandi framtíð frænku
sinnar - ef hún giftist honum. Því
ákveður hann upp á eigin spýtur
að finna frænku sinni mannsefni
við hæfi. Það mannsefni telur hann
sig hafa fundið í líki bifvélvirkjans
Eds (Tim Robbins) sem starfar á
verkstæði einum í bænum. Vanda-
málið við Ed er bara að hann er
frekar tregur, greyið, auk þess sem
hann er alltaf útataður í oliu og
smurningu, nákvæmlega sú týpa
sem Catherine getur ekki hugsað
sér að giftast.
En eitthvað er það sem Einstein
sér við hinn unga og óreynda bif-
vélavirkja og hann ákveður að smá
vandamál eins og skortur á greind
séu vel yfírstíganleg og tekur til
sinna ráða. Ef hann getur ekki
komið hlutunum þannig fyrir að
Ed líti ekki út fyrir að vera eins
vitlaus og harm er í raun má vel
vera að Catherine verði ástfangin
af honum.