Morgunblaðið - 25.05.1995, Page 64
OPIN KERFI HF
Simi: 567-1000
Œ
HEWLETT®
PACKARD
HP umboðiö á íslandi
Frá mögtileika ril veruMka
Aifil :þega-r þörf IkæifuirS
RISC System / 6000
(Ö> NÝHERJI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(5>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fimm þúsund sjómenn lögðu niður vinnu á miðnætti
Samningafundi var
haldið áfram í nótt
VERKFALL sjómanna hófst á mið-
nætti í nótt, en þá stóð enn yfir
fundur deiluaðila í húsnæði ríkis-
sáttasemjara við Borgartún. Stað-
an í deilunni var þá mjög óljós og
treystu viðmælendur Morgunblaðs-
ins sér ekki til að meta það hvort
fundað yrði áfram um nóttina eða
hvort skammt væri í að fundarhöld-
um yrði hætt. Samningafundurinn
hófst klukkan tíu í gærmorgun og
stóð linnulaust í allan gærdag fyrir
luktum dyrum.
Verkfall sjómanna nær til allra
sjómanna utan Vestfjarða á öllum
skipum yfír 12 tonn að stærð, alls
um 5.000 manns. Þá hafa félögin
á Vestfjörðum boðað til samúðar-
vinnustöðvana sem koma til fram-
kvæmda 11. og 15. júní. Reiknað
er með að um 6.500 manns vinni
í fískvinnslu hér á landi og þykir
sennilegt að áhrif sjómannaverk-
fallsins nái til 4.500-5.000 manns,
sem verða verkefnalausir strax í
næstu viku ef verkfall stendur þá
enn. Starfsemi lunga fískvinnslu-
fyrirtækja utan Vestfjarða mun
stöðvast í byijun næstu viku vegna
hráefnisskorts.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagðist á Alþingi í gær
hafna lagasetningu á verkfall sjó-
manna og sagðist telja óheppilegt
að setja löggjöf sem skyldaði að
allur afli yrði seldur á fiskmörkuð-
um.
Samningur á Fáskrúðsfirði
Kjarasamningur milli félaga sjó-
manna og útgerðarfélagsins Búra
hf. á Fáskrúðsfirði, sem rekur
rækjuskipið Klöru Sveinsdóttur,
tókst á tíunda tímanum í gær-
kveldi. Skipið lét úr höfn á Fá-
skrúðsfírði skömmu síðar og hélt á
miðin á Flæmska hattinum við
Nýfundnaland.
Samningurinn er gerður af
Verkalýðs- og sjómannafélagi Fá-
skrúðsfjarðar, Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Sindra á Austur-
landi og Vélstjórafélagi íslands. í
samningnum, sem gildir aðeins í
skamman tíma eða til júlíloka í
sumar, er kveðið á um að útgerðin
skuli ávallt tryggja skipveijum
hæsta verð sem fáanlegt sé hjá
óskyldum aðila.
Eiríkur Stefánsson, formaður
VSF, segir að með þessu sé tryggt
að sjómenn fái hæsta verð fyrir
aflann sem í boði sé hveiju sinni,
en í þeim viðræðum sem nú standi
yfír sé mest deilt um verðmyndun-
ina. Að auki feli samningurinn í
sér að tímakaup við vinnu við skip
í höfn, búnað þess og veiðarfæri
hækki úr 344 krónum í 500 krónur.
Hann sagði að það hefði verið
tímabært að reyna að ná til þeirra
sem vildu gera samninga, en átti
ekki von á að aðrir útgerðarmenn
á Fáskrúðsfírði myndu gerast aðil-
ar að þessum samningi. Þeir myndu
láta Landssamband íslenskra út-
vegsmanna sjá um sig. Hins vegar
myndi grein eins og sú sem væri
í samningnum varðandi það að sjó-
menn fengju ætíð hæsta mögulegt
verð sem í boði væri leysa deiluna
hvað það varðar.
■ Fimmþúsund/6
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Sett niður í
skólagörðum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Byijað er að setja niður í skóla-
garðana í Eyjum en tómstunda-
ráð Vestmannaeyjabæjar sér um
rekstur skólagarða á hveiju ári.
Nemendur 4. og 5. bekkja
grunnskólanna hafa rétt til þátt-
töku og að þessu sinni eru yfir
70 börn þátttakendur í skóla-
görðunum en það er meiri þátt-
taka en áður hefur verið.
Börnin fá úthlutað garði sem
þau síðan sjá um. Byijað er að
setja niður kartöflur og aððtoða
foreldrar börnin við það
Morgunblaðið/Halldór
Ungfrú ís-
land valin
Selja upp fisk-
vinnslu í Rússlandi
VERKFRÆÐISTOFAN Meka hf.
hefur gengið frá viðamiklum
samningi við bandarískt fyrirtæki
um sölu á vélum og tækjum fyrir
niðursuðuverksmiðju í Rússlandi.
Ennfremur sér Meka um uppsetn-
ingu á lítilli fiskimjölsverksmiðju
og reykhúsi. Verksmiðjan verður
i borginni Dolzhanskaya við Azov-
haf, sem gengur inn úr Svarta-
hafí. Samningurinn hljóðar upp á
um 4,5 milljónir dollara eða rúm-
lega 290 milljónir króna.
Að sögn Elíasar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Verkfræði-
stofunnar Meka, er hér um að
ræða svokallaða heildarlausn þar
sem eru allar vélar og tæki í ofan-
greindar verksmiðjur. Samningur-
inn er viðamikill og hefur gerð
hans staðið yfir í hátt á annað ár
og farið fram hér á landi, í Banda-
ríkjunum og Rússlandi.
Áætlað er að umræddar vélar
og tæki verði að miklu leyti fram-
leidd hér á landi í málmsmiðjum
sem þegar hafá getið sér gott orð
við smíði fyrir fyrir innlenda og
erlenda kaupendur. Elías segir í
samtali við íslenzkan iðnað, frétta-
bréf Samtaka iðnaðarins, að ætla
megi að vinnsluvirði innanlands
verði meira en helmingur af samn-
ingsfjárhæðinni.
■ Meka reisir/18
HRAFNHILDUR Hafsteinsdóttir,
19 ára Reykvíkingur, var í gær-
kvöldi valin fegurðardrottning
íslands 1995. Margrét Skúladóttir
Sigurz, ungfrú Island 1994,
krýndi Hrafnhildi.
Sigríður Ósk Kristinsdóttir, 18
ára Akureyringur, hreppti 2. sæt-
ið í keppninni og Brypja Björk
Harðardóttir, 20 ára Njarðvíking-
ur, það þriðja en hún var einnig
kosin vinsælasta stúlkan í keppn-
inni.
í 4. sæti varð Berglind Ólafs-
dóttir, 17 ára Reykvíkingur, og í
5. sæti varð Guðlaug Harpa Gunn-
arsdóttir, 23 ára Kópavogsbúi.
Berglind Laxdal, 18 ára úr Mos-
fellsbæ, var kjörin besta ljós-
myndafyrirsætan.
Mikil andstaða
við kvóta
á krókabáta
ÞINGFLOKKUR Framsóknarflokks-
ins frestaði að afgreiða frumvarp um
breytingar á lögum um stjórn físk-
veiða, en þingflokkur sjálfstæðis-
manna heimilaði að frumvarpið yrði
lagt fram. Mikil andstaða er þó við
aðra grein frumvarpsins meðal sjálf-
stæðismanna og segist Einar K.
Guðfinnsson líta svo á að hún sé
ekki afgreidd af hálfu stjórnarflokk-
anna.
„Það er ekki ágreiningur um þetta
mál í þingflokki Framsóknarflokks-
ins,“ sagði Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra. „Það er samstaða um
að bæta aflamarksbátunum upp þá
miklu skerðingu sem þeir hafa orðið
fyrir eða um 5.000 tonn. Það er líka
samstaða um að halda afla svokall-
aðra krókabáta við 21.500 tonn. Það
má hins vegar fara ýmsar leiðir til
þess að halda aflanum í skefjum og
þar er engin ein leið rétt í því sam-
bandi. Við ætlum okkur að fara bet-
ur yfír þetta í samvinnu við sam-
starfsflokkinn og vonandi næst nið-
urstaða í því.“
Halldór sagði að ráðherrar Fram-
sóknarflokksins hefðu í ríkisstjóm-
inni staðið að því að heimila að frum-
varpið færi fyrir þingflokka. Ráð-
herrar flokksins hefðu hins vegar
verið og væru reiðubúnir að skoða
allar leiðir í þessu sambandi. Hann
sagði að flokkurinn myndi taka sér
skamman tíma í að skoða málið.
Breytt yfir í
róðrardagakerfi
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að innan þingflokks
Sjálfstæðisflokksins væri ekki
ágreiningur um að miða við 21.500
tonna markið, en það væri ágreining-
ur um leiðir og margir væru ósáttjr
við aðra grein frumvarpsins.
„I frumvarpinu er gert ráð fyrir
grundvallarbreytingu. Það verður
breytt úr banndagakerfí yfír í róðr-
ardagakerfi. Meðan við höfum ekki
meiri tök á að hafa eftirlit með því
er gert ráð fyrir að það verði sett
þak á hvern bát. Ég lýsti því yfír
að ég væri tilbúinn til þess með laga-
legri skuldbindingu, að koma með
frumvarp sem fæli í sér að gervi-
hnattaeftirlit myndi leysa þetta þak
af hólmi um leið og tæknilegar að-
stæður leyfa,“ sagði Þorsteinn.
Andstaða meðal
sjálfstæðismanna
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins lýstu yfir fyrirvara við aðra
grein frumvarpsins. Einar K. Guð-
fínnsson sagðist llta svo á að þessi
grein væri ekki afgreidd af hálfu
þingflokksins og sagðist vonast eftir
að sjávarútvegsnefnd breytti grein-
inni þegar nefndin fengi í hendur
upplýsingar um áhrif hennar. Það
væri hægt að fara aðra leið á grund-
velli banndagakerfisins sem skilaði
sama árangri.
„Ef litið er á frumvarpið í heild
tel ég að mjög margt í því sé til
bóta. Ég á þar við tilraunir til að
koma böndum á sóknarmátt flotans
og viðleitni til að bæta upp þeim
bátum sem hafa orðið fyrir mestri
skerðingu. Ég tel að önnur grein
frumvarpsins sé mjög varhugaverð
svo ekki sé meira sagt. Þar er gert
ráð fyrir því að hámark sé sett á
þorskafla krókaleyfisbáta, en að það
gildi einungis um tveggja ára skeið.
Eg óttast að þessi tveggja ára til-
raunastarfsemi geti reynst þessum
útgerðarflokki ákaflega dýrkeypt og
bakað honum tjón sem ekki verði
bætt. Ég er þessari grein afskaplega
andsnúinn. Eg tel að hún sé óskyn-
samleg og muni hafa í för með sér
óskaplegt óréttlæti," sagði Einar.