Morgunblaðið - 08.06.1995, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995
___________________________________________. MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rauðglóandi línur á 03
Margar villur í
nýju símaskránni
Á UPPLÝSINGASÍMANUM 03
hefur verið mikið að gera undan-
farna daga eftir að símanúmerum
var breytt og nýja símaskráin kom
út. Fólk hefur hringt þangað með
kvartanir og fyrirspurnir og ekki
eru allir glaðir.
Að sögn starfsfólksins á 03 er
mikill fjöldi fólks og fyrirtækja með
vitlaus símanúmer í nýju skránni.
Sumir hringi til að spyijast fyrir
um nýju símanúmerin en aðrir til
að kvarta. Dæmi eru um að margir
séu orðnir langþreyttir á að hafa
haft vitlaus símanúmer til margra
ára, sérstaklega atvinnurekendur.
Sóley Sigurðardóttir hjá Pósti og
síma sagði hins vegar að mun
minna hefði verið að gera á rit-
stjórn símaskrárinnar en undanfar-
in ár. Þó hefðu komið í ljós villur
og ráðstafanir yrðu gerðar í næstu
viku.
Öll númer Árbæjarsafns röng
Morgunblaðið hefur haft spurnir
af ýmsum villum í símaskránni.
Nokkuð hefur borið á að fólki sé
sleppt úr skránni, skráð tvisvar eða
oftar og jafnvel undir mismunandi
heimilisföngum og símanúmerum.
Árbæjarsafn í Reykjavík er kynnt
í nýju símaskránni undir fjórtán
mismunandi símanúmerum og eru
þau öll röng. Á Árbæjarsafni feng-
ust þær skýringar á þessu, að rit-
stjóm símaskrár hefði láðst að færa
til bókar hjá sér þær leiðréttingar
sem safnið sendi símaskránni.
Aðeins er gefið upp eitt síma-
númer á Þjóðleikhúsið í nýju
skránni en samkvæmt upplýsingum
frá 03 eru þar tíu símanúmer fyrir
utan símboðanúmer.
Aðalheiður Högnadóttir rekur
umboðsskrifstofu á Hellu. í nýju
skránni er hún hinsvegar kölluð
„uppboðsskrifstofa“. „Auðvitað er
þetta leiðinlegt. Mér hafa engar
bætur verið boðnar. Ég verð að
vera uppboðsskrifstofa í heilt ár og
fólk verður bara að hlæja að því.
Maður veit svo sem ekki hvað hægt
er að gera. Kannske að bjóða manni
lækkun á símareikningi," sagði
Aðalheiður.
Þá er dæmi um að þvagfæra-
skurðlæknir sé undir dálki lög-
manna í gulu síðunum.
Lítið að gera á ritstjórn
símaskrárinnar
Að sögn Sóleyjar Sigurðardóttur
hjá ritstjóm símaskrárinnar hefur
verið miklu minna að gera hjá þeim
en von var á og mun minna en t.d.
miðað við síðasta ár. Auðvitað séu
vankantar á einhveiju sem má rekja
til rangrar skráningar hjá Pósti og
síma. Erfítt sé að hafa skrána 100%
rétta og því sé alltaf eitthvað um
kvartanir á hveiju ári. í mörgum
tilfellum komi rangar skráningar
inn á borð til þeirra og þær væru
á ábyrgð hvers og eins.
Sóley sagðist ekki gera ráð fyrir
að gefin yrði út sérstök leiðréttinga-
skrá. „En það eru alltaf settar ein-
hveijar auglýsingar í dagblöðin með
leiðréttingum í, eitthvað sem við
verðum að taka á okkur héma hjá
Pósti og síma og ég geri ráð fyrir
að það komi einhvern tímann í
næstu viku,“ sagði Sóley.
Verzlunarskóli íslands
Innritar nemendur
eftir skólaeinkunnum
SKÓLAYFIRVÖLD Verzlunar-
skóla íslands munu ekki innrita
nemendur úr grunnskólum eftir
árangri þeirra í samræmdum próf-
um heldur miða við skólaeinkunnir
nemenda. „Við getum vel innritað
nemendur án þess að sjá samræmd-
ar einkunnir þeirra. Við munum
byggja á skólaeinkunnum í sömu
greinum en hefðum þó heldur kos-
ið að hafa samræmdu einkunnirn-
ar,“ sagði Þorvarður Elíasson
skólastjóri VÍ í samtali við Morgun-
blaðið.
„í ljósi þeirrar óvissu hvenær
samræmdar einkunnir koma og í
ljósi þess hve óæskilegt er að draga
nemendur á svörum sé ég ekkert
þvl til fyrirstöðu að afgreiða um-
sóknir um leið og þær koma,“ sagði
Þorvarður. Umsækjendum um
skólavist í VÍ verða að sögn hans
send svör í upphafi næstu viku.
Þorvarður sagði aðspurður að
skólinn væri ekki að gera lítið úr
samræmdu prófunum. „Þeir sem
halda þessi samræmdu próf verða
að dæma um það sjálfir hvort þeir
eru að gera lítið úr prófunum með
sinni framkvæmd," sagði hann.
Morgunblaðið/Golli
Gunnar
Huseby
borinn til
grafar
ÚTFÖR Gunnars Husebys, fyrr-
verandi Evrópumeistara í kúlu-
varpi, fór fram frá Neskirkju í
Reykjavík í gær. Kistu hins látna
úr kirkju báru þeir Magnús Ósk-
arsson, Ellert B. Schram, Þórður
B. Sigurðsson, Björn Lárusson,
Hörður Magnússon, Kristinn
Jónsson, Örn Clausen og Torfi
Bryngeirsson.
Faðir bjargaði dóttur sinni með snarræði úr sjónum við Suðureyri
Var á niðurleið
í annað skipti
ísafirði. Morgunblaðið.
„ÞAÐ versta var að horfa á eftir
telpunni í sjóinn. Ég fékk það á
tilfinninguna að allt væri búið en
þegar ég kom niður og náði henni
þá var allt unnið aftur.“
Þetta sagði Óðinn Gestsson
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Freyju á Suðureyri en honum
tókst að bjarga Töru, 7 ára gam-
alli dóttur sinni, eftir að hún féll
milli skips og bryggju við höfnina
á Suðureyri á mánudag.
Tara var í gönguferð með föður
sínum og yngri systur er óhappið
varð. „Tara var á hjólinu og ég
með litlu systur hennar í kerru.
Við gengum eins og vanalega nið-
ur á höfn og stoppuðum við einn
bátinn þar sem ég talaði við kunn-
ingja minn. Niðurstaða okkar, eft-
ir að við höfum rætt saman, er
að Tara hafi hjólað á bryggjukant-
inn og fallið til hliðar á milli skips
og bryggju. Hún mun hafa rekið
höfuðið í bátinn og síðan farið á
kaf í sjóinn.
Ég stóð 1-2 metra frá Töru og
sá á eftir henni niður. Mín fyrstu
viðbrögð voru að fara á eftir
henni. Eg hinkraði við er ég kom
á bryggjusporðinn til að sjá hvar
hún kæmi upp til að lenda ekki
ofan á henni. Síðan lét ég mig
vaða í sjóinn og náði Töru þegar
hún var á niðurleið í annað skipti.
Mestu erfiðleikarnir voru að
koma henni upp á bryggjuna. Það
var geysilega erfitt; ég hefði ekki
trúað því fyrirfram. Telpan er
hress í dag. Það varð enginn var-
anlegur líkamlegur skaði og hitt
kemur vonandi I Ijós. Hún er
óbrotin og öll heil,“ sagði Óðinn
Gestsson.
Spurst fyrir um vinnu
fyrir smiði í Noregi
SAMIÐN, samband iðnfélaga, hefur
sent Fællesforbundet, samtökum
norskra iðnfélaga, erindi þar sem
spurst er fyrir um atvinnutækifæri
íslenskra iðnaðarmanna í tengslum
við uppbyggingu á flóðasvæðum í
Noregi. Atvinnuástand meðal tré-
smiða hérlendis hefur sjaldan verið
bágbomara. Þorbjöm Guðmundsson
framkvæmdastjóri Samiðnar sagði að
síminn hefði ekki þagnað hjá Samiðn
í gær vegna fyrirspuma frá íslenskum
trésmiðum. „Við munum nýtum okk-
ur þá möguleika sem í þessu kunna
að felast," sagði Þorbjöm.
Þorbjörn sagði að skortur hafi
verið á trésmiðum til starfa í Nor-
egi. „Byggingaiðnaðurinn þar er
kominn á góðan skrið og því er ekk-
ert ólíklegt að skapist mikil verkefni
vegna flóðanna að Norðmenn þurfi
viðbótarstarfskraft," sagði Þor-
björn.
„Það er bara óskandi að þetta
gangi eftir. Það yrði hvalreki fengj-
um við vinnu fyrir 100-150 manns.
Það myndi gjörbreyta ástandinu á
vinnumarkaðnum því það eru á bilinu
100-150 trésmiðir atvinnulausir í
dag,“ sagði Þorbjörn.
MorgvnblaðiO/Halldðr SveinOjomsson
ÓÐINN Gestsson með dætur sínar Töru og Veru á þeim stað sem
Tara féll af reiðhjóli sínu í sjóinn við bryggjuna á Suðureyri á
mánudag. Fimm spor voru saumuð í höfuð Töru en að öðru leyti
var hún heil og óbrotin. Hún var yfir nótt á sjúkrahúsinu á ísafirði.
Löndun
frestað úr
Baldvin EA
FÉLAGAR í Verkamannafélaginu
Dagsbrún og Sjómannafélagi
Reykjavíkur komu í veg fyrir lönd-
un úr Baldvini Þorsteinssyni EA í
gær. Eftir orðaskipti á hafnar-
bakka í Reykjavík milli fulltrúa
Samheija hf. og verkamanna var
handsalað samkomulag um að
ekkert yrði landað nema lítið eitt
af fiski af millidekki.
í samkomulaginu fólst að ekk-
ert yrði landað í gær nema ísfísk-
ur af millidekki. Óljóst er hvort
landað verður úr skipinu í dag.
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar sagði að menn
myndu sjá til. Það skipti máli í
þessu sambandi að skriður væri
kominn á samningaviðræður í
Karphúsinu og því væri tæplega
ástæða til að standa í illindum nú.
Leigt til Færeyja
Baldvin Þorsteinsson var að
koma af Reykjaneshrygg með full-
fermi af úthafskarfa. Skipið var
leigt til Færeyja áður en verkfall
sjómanna skall á. Leigu skipsins
var mótmælt með þeim rökum að
verið væri að fremja verkfallsbrot.
Kristinn Pálsson, sem sæti á í
verkfallsstjórn sjómannasamtak-
anna, sagði að verkfallsstjórn liti
á veiðar skipsins sem skýlaust
verkfallsbrot, ekki síst þar sem í
öllum pappírum væri Samheiji
skráður eigandi skipsins.
Löndun úr Haraldi Kristjáns-
syni hófst í Hafnarfirði í fyrradag,
en skipið var einnig á úthafskarfa
á Reykjaneshrygg. Engin tilraun
var gerð til að stöðva löndun.
Haraldur Kristjánsson var leigður
til Vestfjarða áður en verkfall
hófst.