Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kórtónlist og Schubert TÓNLIST Ilallgrímskirkja KÓRSÖNGUR Samkór Reylqavíkurprófast- dæmis eystra og Sinfóníhljóm- sveit áhugamanna, organisti Bjarni Þór Jónatansson. Ein- söngvarar: Sigríður Gröndal, Þorgeir J. Andrésson og Sigurð- ur Skagfjörð. Stjórnendur: Smári Ólason, Oddný Þorsteins- dóttir, Sigrún Steingrímsdóttir og Kjartan Siguijónsson. Á FYRRI hluta tónleikanna voru flutt norræn kórlög er stjórnendumir skiptust á að stjóma. Flutt vom sex íslensk kirkjulög, eitt eftir Jakob Hall- grímsson (Ó, undur lífs), fjögur eftir Þorkel Sigurbjörnsson, þar á meðal þau ágætu lög Til þín, Drottinn og Heyr himna- smiður og síðast Vor raust og tunga, kyndilmessusálmur úr grallaranum, í ágætri radd- setningu éftir Glúm Gylfason. Eitt fallegasta lagið af þeim norrænu var Psamlus CXX, eftir Otto Olsson, er Oddný Þorsteinsdóttir stjórnaði. Til þín, Drottinn hnatta og heima, eftir Þorkel, var mjög fallega sungið undir stjóm Sigrúnar Steingrímsdóttur og sama má segja um síðasta lagið, Vor raust og tunga, sem Smári Ólason stjórnaði en í því lagi var leikið undir á piccolotromp- ett og orgel. Siðasta verk tónleikanna var Messa í G-dúr, eftir Schubert, og mætti til leiks Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna og ein- söngvarar. Stjórnandi var Kjartan Siguijónsson og var flutningurinn í heild ágætlega hljómandi, þótt vel hefði mátt hafa meiri mun á sterkum og veikum leik og hraða kaflanna. Þarna kemur til reynsluleysi en að öðra leyti var leikur hljómsveitarinnar hreinn og kórinn söng af nokkra öryggi, þó oft ætti hann varla í fullu tré við styrk hljómsveitarinnar. Einsöngvararnir sungu vel sín- ar stuttu strófur. Samkór Reykjavíkurpróf- astsdæmis eystra söng nokkuð vel, þó aðeins bæri á að tón- staðan væri óviss þegar sungið var veikt, en þá er einmitt hætta á að söngmenn slaki á og stuðningurinn við tóninn minnki. Hvað sem þessu líður er söngur kirkjukóra alltaf að batna og víst, að það starf sem liggur að baki þessum tónleik- um, skilar sér í bættum söng og eflir mönnum kjark til átaka við stór og erfið vekefni. Jón Ásgeirsson Auði Gunnarsdóttur sópran hlotnast mikill heiður Morgunblaðið/Guðrún Hólmgeirsdóttir AUÐUR Gunnarsdóttir sópran býr sig nú undir viðburðaríkt sumar. Boðið á hina árlegu Wagner- hátíð í Þýskalandi HIÐ alþjóðlega Wagner-félag hef- ur boðið Auði Gunnarsdóttur sópr- an að fylgjast með gangi mála á árlegri tónlistarhátíð í Bayreuth í Þýskalandi í ágúst, en hún er tileinkuð einu helsta óperuskáldi sögunnar, Richard Wagner. I boð- inu felst gisting, uppihald, kynn- ing og miðar á þijár sýningar. Wagner-hátíðin er einn helsti tón- listarviðburðurinn í Þýskalandi ár hvert og margra ára bið getur verið eftir miðum. Félagið er stofnað af Wagner sjálfum í Bayreuth en teygir nú anga sína víða um lönd. Markmið þess er að styrkja unga og efni- lega tónlistarmenn og gera þeim kleift að fylgjast með sýningum á hátíðinni. Hátíðin er haldin í leikhúsi í Bayreuth sem Loðvík 2. Bæjara- konungur lét reisa fyrir Wagner. Var það vígt árið 1876 en fyrsti leikhússtjórinn var eiginkona Wagners, Cosima. Óperurnar sem settar verða á svið að þessu sinni eru Parsifal, Tannhauser og Trist- an og ísold. „Þetta er fyrst og fremst við- urkenning fyrir mig og frábært tækifæri til að vera viðstödd þessa hátíð og fá að kynnast þessum óperum svona náið. Þarna verða margar þekktar s1jörnur,“ segir Auður sem ljúka mun námi frá óperu- og einsöngvaradeild Tón- listar háskólans í Stuttgart á næsta ári. Einungis þrír samnemar henn- ar munu fylgja henni til Bayreuth; einn píanóleikari og tveir söng- varar. Miklar framfarir Auður hefur verið mjög virk í óperuuppfærslum skólans síðast- liðin tvö ár. Strax á fyrstu önn fékk hún að spreyta sig á hlut- verki Marsellínu í Brúðkaupi Fígarós og var það fyrsta ein- söngshlutverk hennar á sviði. Síðastliðið haust fór Auður síðan með hlutverk í nýrri nútimaóperu sem ungt tónskáld var fengið til að semja sérstaklega fyrir fimm nemendur í skólanum. Auður þótti taka miklum fram- f örum fyrsta árið og í vetur var ákveðið að setja upp fyrir hana Seldu brúðina eftir Smetana. Fór hún þar með aðalhlutverkið. Á laugardaginn verður síðan óperan Orfeifur og Evrýdíka eftir Gluck frumsýnd í skólanum og fer Auður með hlutverk Evrýdíku. Aðal- kennari hennar er prófessor Luisa Bosabalian. Auður sinnir ekki eingöngu óperunni. Kemur hún meðal ann- ars reglulega fram á ljóðatónleik- um. Kostar söngkonan þá jafnan kapps um að hafa einhver íslensk verk á efnisskránni. Auður segir að spennandi verk- efni séu framundan, meðal annars með Fílharmóníusveitinni í Stutt- gart. Þá fá Islendingar að njóta krafta hennar í fyrsta sinn síðan hún fór utan tii náms á tónleikum í Listasafni Siguijóns Ólafssonar 1. ágúst næstkomandi. „Ég hef verið mjög heppin og hef eigin- lega ekki undan. Ég er því bjart- sýn á framhaldið en þetta er nátt- úrulega alltaf spurning um að vera réttur maður á réttum stað.“ FRÁ æfingu Darraðardans. Ástrós Gunnarsdóttir, Hörður Bragason, Katrín Ólafsdóttir, Kristinn H. Árnason, Þórarinn Kristjánsson, Margrét Eir og Kormákur Geirharðsson. Af ánægju malandi Tímarit • NÝTT tímarit / apótekinu hefur hafið göngu sína. Ritið er gefið út undir merki Apótekarafélags íslands. „í Apótekinu er ætlað að miðla hlutlægum upplýsingum til almennings um lyf, heilsuvörur, sjúkdóma, sjúk- dómseinkenni, húð- og hreinlæt- isvörar og annað er varðar heil- brigði einstakl- ingsins," segir í tilkynningu frá Útgefanda. Jóhannesson Fyrirhugað er að í Apótekinu komi út 2-4 sinnum á ári og verð- ur því dreift til apóteka, þar sem það mun liggja frammi og er fólki fijálst að taka eintak með sér end- urgjaldslaust. I fyrsta tölublaði er fjallað um lyfjaskammtabox, fijóofnæmi, sól- arvörn, hitastillandi lyf fyrir börn, húðvandamál, opnunartíma apó- teka og margt fleira. Rjtstjóri og útgefandi tímarits- ins í Apótekinu er ÓlafurM. Jó- hannesson. Formaður blaðstjórnar erlngolf Petersen lyfjafræðingur. LISTFÉLAGIÐ Darraðardans frumsýnir tón-, dans- og kvik- myndaverkið „Af ánægju malandi stukku“ í Héðinshúsinu í kvöld kl. 23. Aðstandendur sýningarinnar segja að verkið sé tilraun til að þætta saman ólíkar listgreinar sem ekki hafi verið gert jafn mikið hér á landi og erlendis. „Það má e.t.v. setja þetta undir hatt tilraunaleik- húss,“ segir Ástrós Gunnarsdóttir, annar dansaranna í sýningunni, „gerðar eru tilraunir með hreyf- ingar, tónlist og myndir og Mar- grét Eir sýngur texta eftir Óttar Proppé sem myndi líklega flokkast undir ljóðrænan prósa." Jöfnum höndum og fótum Verkið er samið af öllum þeim sem taka þátt í sýningunni og er að þeirra sögn fullt af gleði og hamingju eins og heiti þess gefur til kynna. Katrín Ólafsdóttir, dansari, segir að verkið hafi ekki verið samið með neitt sérstakt þema í huga heldur hafi þau spunnið það af fingrum fram í kringum ýmsar hugmyndir. Katrín segir þessa vinnu hafa verið sérstaklega skemmtilega. „Veiyulega fá dansarar fullbúna tónlist til að semja dansa eftir en hér höfum við samið dans og tónlist jöfnum höndum." „Já, eða jöfnum höndum og fót- um,“ skýtur Hjörtur Bragason að, en hann er einn af fimm hljóðfæra- leikurum í sýningunni. Hjörtur seg- ir að samvinnan hafi gengið mjög vel þrátt fyrir að meðlimir hópsins hafl komið úr öllum áttum og aldr- ei unnið saman áður. „Bakgrunnur þessa fólks er n\jög ólíkur, hér er fóik sem aðallega hefur unnið í popphljómsveitum, sumir hafa klassískan bakgrunn, aðrir hafa unnið mikið í leikhúsum, enn aðrir eru í námi, sjálfur var ég í pönk- hljónisveitinni Bruna B.B. hér áður fyrr en er nú kirkjuorganisti." Hópurinn segist ekki hafa séð kvikmynd Sæmundar Norðfjörðs, sem sýnd verður stórum vegg fyr- ir aftan sviðið meðan á sýningunni stendur en myndin hefur ðll verið tekin á æfingum hópsins í Héðins- húsinu. Kvikmyndin verður þannig eins konar spegilmynd af verkinu eða kannski öllu heldur verk um verkið. Verkið verður sýnt aftur á morgun og laugardag á sama tíma og sama stað. * Ahugaleikarar funda og faerna fi rði Mnrnrunhlaflið Seyðisfirði. Morgunblaðið. UM helgina hélt Bandalag íslenskra leikfélaga aðalfund sinn í Herðubreið á Seyðisfirði. Þar mættu um 70 fulltrúar leikfé- laga víða af landinu. Aðalmál fundarins að þessu sinni var um- Ijöllun um hvernig standa ætti að rekstri og fjármögnun Þjón- ustumiðstöðvar leik- listarinnar sem banda- lagið rekur. Nýlega festi það kaup á eigin húsnæði að Laugavegi 96 í Reykjavík. Þar er rekin eina þjónustum- iðstöðin á landinu fyrir leiklist og sér hún meðal annars um miðlun og samningagerð sem tengist leik- verkum, höfundum, þýðendum og leikstjóram. Framkvæmdastjóri BÍL er Vil- borg Valgarðsdóttir. Hún sagði frá því að á skrifstofunni eru nú 1,6 stöðugildi ritstjóra Leiklistarblaðs- ins sem kemur út fjórum sinnum á ári. Það var mál manna að nauðsyn- legt væri að styrkja starfsemi þjón- ustumiðstöðvarinnar og samþykkti fundurinn ályktun þar sem skorað er á menntamálaráðherra að sýna vilja sinn til að efla menningu í land- inu með því að styrkja BIL vegna húsnæðiskaupanna á 45 ára af- mæli þess. Nýr formaður, Einar Rafn Har- aldsson, Egilsstöðum, tekur nú við stjórn bandalagsins. Fráfarandi for- maður, Kristján Hjartarson, sýndi hlýhug sinn til bandalagsins með því að efna til styrktartónleika í Herðubreið og söfnuðust um 40.000 krónur sem renna til húsnæðiskaup- anna. Á föstudaginn var fundargestum boðið á sýningu Leikfélags Seyðis- VILBORG Valgarðsdóttir, fjarðar á Aldamóta- elexír eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Á laugardagskvöldið bauð svo bæjarstjórn Seyðisfjarðar fundar- mönnum til hátíðar- kvöldverðar. Þorvaldur Jóhannsson bæjar- stjóri var veislustjóri og leikarar úr Leikfé- lagi Seyðisfjarðar sáu um skemmtiatriði. Að því loknu var haldin árshátíð áhugaleikara og búin til hljómsveit á staðnum. Séra Hannes Orn Blandon, prestur í Eyjafirði, sá um trommuleik. Sigurður Hallmarsson frá Húsavík lék á nikkuna og bæj- arbúarnir Einar Bragi á flautu og píanó og dægurlagasöngvarinn Villó lék á gítar. Einnig var æft upp leikrit um helgina undir stjórn Guðjóns Sig- valdasonar leikstjóra. Þetta var svo- kallað samskiptaleikrit sem svo var sýnt á götu úti um allan bæ á sunnudaginn. Þar var fjallað um vandræði kvennanna í Sólliljunum sem ekki gátu fundið rútubílinn sinn aftur (bilaður eða týndur) og leituðu ásjár hjá bæjarbúum. Stjórnandi kórsins, Hans Rigmorson, átti erfitt með að gera sig' skiljanlegan þar sem hann talaði „endast Svenska". Karlakórinn átti einnig í erfíðleikum og leituðu víða að Karli Gústafi sem syngja átti afmælissönginn fyrir. Skipulagning og framkvæmd fundarins var í höndum félaga í Leikfélagi Seyðisfjarðar. Allt virðist hafa heppnast sérlega vel ef marka má alla þá sem komu til fréttarit- ara Morgunblaðsins og báðu hann um að skila sérstöku þakklæti til gestgjafanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.