Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 41 FRÉTTIR ■ ZONTAKLÚBBURINN Embla hefur fært Alnæmissam- tökunum á Islandi peningagjöf að upphæð 100 þúsund krónur sem varið verður til að skipuleggja og efla heimilda- og bókasafn AI- næmissamtakanna. Á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri eru f.v. Hrafnhildur Stefánsdóttir, formaður Zonta- klúbbsins Emblu, Hanna Pálsdótt- ir, Margrét Magnúsdóttir og Björgvin Gíslason, formaður Al- næmissamtakanna á Islandi. Fyrirlestur um verkfræði BIRGIR Hrafnkelsson flytur opin- beran fyrirlestur um ritgerð sína til meistaraprófs í verkfræði fimmtudaginn 8. júní kl. 16.15 í stofu V-158 í VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Ritgerðin fjallar um hvernig beita má tölfræðilegum aðferðum við að meta hámarksálag hjá hita- veitum út frá rennslisgögnum úr daglegum rekstri. Ekki er tekið til- lit til hugsanlegra takmarkana í flutningsgetu vegna dreifikerfis heldur er metin eftirspurnin í mjög köldu veðri. Umsjónarmaður með verkefninu var Guðmundur R. Jóns- son, dósent í verkfræðideild, -en auk hans sátu í umsjónarnefnd Birgirs, þeir dr. Anders Holtsberg, sérfræð- ingur við Institutionen för Matema- tisk Statistik, Háskólanum í Lundi og dr. Ólafur P. Pálsson, sérfræð- ingur við verkfræðideild. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. æ*.tvimBtiu/\/ ir^i Y^iKir^AP „Au pair“ óskast Þroskuð stúlka, reyklaus, eldri en 20 ára, óskast til New Jersey, USA, nálægt New York, frá 30. júlí. Sérherbergi. Afnot af bíl. Upplýsingar gefur Jóhanna Sveinbjörnsdóttir í síma 9019083596527. Frá Fræðsluskrifstofu Austurlandsumdæmis Sérkennara vantar að grunnskóladeildum Verkmennta- skóla Austurlands í Neskaupstað. Upplýsingar gefur skólameistari í síma 477 1620, heimasíma 477 1833. Umsóknarfrestur til 18. júní. Fræðslustjóri Austurlandsumdæmis. Frá , Fósturskóla íslands Kennara vantar í hagnýta uppeldisfræði og verknámsleiðsögn í fjarnámi Fósturskólans. Staðan er u.þ.b. 40% starf. Umsóknir berist skólanum fyrir 15. júní nk. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma 581 3866 Skólastjóri. Matreiðslumaður Matreiðslumaður óskast á veitingahúsið Ránna, Keflavík. Upplýsingar í síma 421 4601. Frá Fræðsluskrifstofu Vestfjarðaumdæmis Umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra og kennara við Grunn- skólann í Örlygshöfn framlengist til 20. júní nk. Umsóknarfrestur um stöðu forstöðumanns ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu á Fræðsluskrif- stofu Vestfjarða framlengist til 20. júní nk. Sálfræðimenntun og reynsla áskilin. Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis. hötelOðal Hótel Óðal óskar að ráða matreiðslumann til starfa nú þegar. Viðkomandi þarf að sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar gefur hótelstjóri í síma 461 1900. Frá Menntaskólanum í Reykjavík Starf konrektors er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 16. júní. Kennara vantar í líffræði/erfðafræði næsta vetur. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Nánari upplýsingar fást hjá rektor í síma 551 4177 milli kl. 11 og 12 árdegis. Rektor. Gallerí Sara Reykjavík og Hafnarfirði Okkur vantar starfsfólk nú þegar í eftir- farandi störf: Hafnarfjörður: í sumarafleysingar í júní, júlí og ágúst. Reykjavík: í boði er hálfsdagsstarf til frambúðar. Við leitum eftir vönu fólki með einhverja reynslu í vefnaðarvörum. Upplýsingar á skrifstofu okkar í Hafnarfirði milli kl. 14 og 16 í dag og á morgun. Upplýsingar ekki veittar í síma. Gallerí Sara, Trönuhrauni 6, Hafnarfirði. RADAUGÍ YSINGAR Aðalfundur Borgartaks hf. verður haldinn í Borgartúni 33 fimmtudaginn 15. júní nk. og hefst kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Hluthafar fjölmennið. Stjórnin. Opinn fundur um starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar Borgarstjórinn í Reykjavík boðar til opins fundar um starfsmannastefnu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 12. júní i 1995 kl. 15.00. i Fyrirlesarar verða: Bjarni Ingvarsson, sál- fræðingur, Margrét Rósa Sigurðardóttir, bókagerðarmaður, Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur og Þórður Óskarsson, sál- fræðingur. í pallborðsumræðum taka þátt auk fyrirles- ara: Jón G. Kristjánsson, starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar, Sjöfn Ingólfsdóttir, for- maður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Hildur Petersen, framkvæmdastjóri Hans I Petersen hf. 5 herbergja íbúð 5 manna fjölskylda á heimleið frá útlöndum óskar eftir að taka á leigu 5 herbergja íbúð, hæð eða raðhús í Reykjavík, Kópavogi eða Garðabæ frá 1. ágúst nk. Upplýsingar gefnar í síma 552 5865 eftir kl. 18.00. BESSASTAÐAHREPPUR Bann við eggjatöku Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að eggja- taka í landi Bessastaðahrepps á Álftanesi er stranglega bönnuð. Brot við banni þessu varða sektum samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi. Hvítasunnukirkjan Völvufeii Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir.. " Hjálpræðis- herinn Kírkjustræti 2 Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30. Sven Fosse talar. Allir velkomnir. Breski miðill- inn og kennar- inn Colin Kingshot starfar hjá fé- laginu 12.-16. júní. Hann verður með einkatíma í áruteikningu og sambandslestri og einnig í heilun. Colin hefur skilað frábærum árangri. Upplýsingar og bókanir i símum 551 8130 og 561 8130. Stjórnin. FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Helgarferðir 9.-11. júní Breiðafjarðareyjar - Flatey Ekið í Stykkishólm (kl. 19.00), siglt í náttúruparadísina Flatey og gist i svefnpokaplássi. Gönguferðir, útsýnissigling. Þessi ferð kemur í stað Reykhól- ar - Flatey. Þórsmörk - Langidalur Brottför kl. 20.00 Gist í Langa- dal. Gistiaðstaða í skála eða tjöldum. Gönguferðir við allra hæfi. Tilboðsverð þessa helgi. Miðvikudagsferðir fyrir sum- ardvalargesti hefjast 21. júní. Munið söguferð á Njáluslóðir laugardaginn 10. júní kl. 9.00 og 7. áfanga náttúruminja- göngunnar sunnudaginn 11. júní kl. 13.00: Vatnsskarð - Djúpavatn (Ath. engin ferð kl. 10.30). Gerist félagar í F.í. og eignist árbóklna nýju og glæsilegu um Hekluslóðir. Hún er innifalin f árgjaldi kr. 3.200 (500 kr. auka- gjald f. innbundna árbók). Ferðafélag íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.