Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 17 Forsætisráðherra Víetnam í opinbera heimsókn til Islands Akafur umbóta- maður í landi sínu HEIMSÓKN Vo Van Kiet, forsætisráðherra Víetnam, til íslands er lokaáfanginn á för hans um Norðurlönd. Hér er Kiet ásamt Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, þegar hann var á ferð þar í landi. Finnland NATO- aðild ekki á dagskrá Helsinki. Morgunblaðid. RÍKISSTJÓRN Paavos Lipponens, forsætisráðherra Finnlands, hyggst ekki sækja um aðild að Atlantshafs- bandalaginu (NATO). Þetta kemur skýrt fram í skýrslu um öryggismál sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir þingheim. Lipponen telur að nú beri að auka jafnvægi og stöðugleika í evrópskum öryggismálum. í því skyni sé heppi- legast að Finnar standi áfram utan hernaðarbandalaga og annist eigin landvarnir. Á fréttamannafundi sem boðað var til er skýrslan kom út á þriðju- dag varaði Lipponen við áformum um stækkun NATO til austurs. Kvaðst hann þeirrar hyggju að hún myndi verða til þess að skapa örygg- isleysi í Rússlandi sem orðið gæti til þess að gefa öfgasinnuðum þjóð- ernisöflum aukinn styrk í rússnesk- um stjórnmálum. Þróun í þá veru yrði ekki í samræmi við hagsmuni Finna. í umræðu á þingi kom fram sú afstaða margra að staðan í öryggis- málum einkennist af óvissu nú um stundir. Það er ekki einungis að óviss þróun í Rússlandi sé mönnum mikið umhugsunarefni. Finnar bíða þess að sjá hvaða stefnu áformuð stækkun NATO til austurs tekur og vænta einnig niðurstöðu um framtíð- arhlutverk Vestur-Evrópusam- bandsins (VES), varnarbandalags níu aðildarríkja Evrópusambandsins. Þess er vænst að þessi tvö mál verði afgreidd á haustmánuðum. -----» » ♦ Stofna þing Norður- * Italíu Mantua. Reuter. NORÐURSAMBANDIÐ stofnaði í gær til „þings Norðursins" sem ætlað er það hlutverk að knýja á um breytingar á stjórnarskrá Italíu og kosningalöggjöf. Um 200 liðsmenn Norðursam- bandsins sem sitja á ítalska þing- inu, Evrópusambandsþinginu eða héraðsþingum mættu til stofnfund- arins, sem fram fór í 18. aldar villu í útjaðri miðaldaborgarinnar Mantua á sléttum Langbarðalands. Umberto Bossi leiðtogi Norður- sambandsins neitaði því í setningar- ræðu, að stofnun samkundunnar stangaðist á við stjórnarskrána eða að hún fæli í sér tilraun til aðskiln- aðar ítölsku landshlutanna. Hann sagði að þingið myndi fjalla lagafrumvörp og gera tillögur að lagabreytingum til þjóðþingsins í Róm. Ráðgert er að Norðurþingið fundi mánðarlega, eina viku í senn. „Héðan frá Matua verður þjóð- inni gerð rækileg grein fyrir þeim lagabreytingum sem þörf er á til þess að brjóta upp fámennisvald miðstýringaraflanna. -----» ♦ ♦----- Greiðslu- kort úr tré Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKT fyrirtæki hefur þróað náttúruvænt greiðslukort úr birki og endurvinnanlegu lími. Búast má við að nýja kortið verði talsvert dýrara en hefðbundið plastkort Framkvæmdastjóri sænska fyrir- tækisins Eco Card Sweden AB, Torsten Hakansta, sagði að birki- kortið mætti nota á allan þann hátt sem plastkortin eru nú notuð. Framleiðsla kortanna hefst eftir ár. FORSÆTISRÁÐHERRA Víetnam, Vo Van Kiet, kemur í tveggja daga opinbera heimsókn hingað til lands í dag, og er það lokaáfangi farar hans um Norðurlönd. í fylgdarliði forsætisráðherrans eru kona hans, þrír ráðherrar í stjórn hans og sér- stök viðskiptasendinefnd, ásamt fylgiliði. Heimsóknin er í boði Dav- íðs Oddssonar, forsætisráðherra ís- lands. Frá því Kiet tók við embætti for- sætisráðherra í Víetnam í ágúst 1991 hefur hann heimsótt Singap- ore, Malasíu, Thailand, Indónesíu og Brunei og leitast við að efla traust milli þessara ríkja og stjórn- valda í Hanoi, höfuðborg Víetnam. Gagnrýndur heimafyrir Kiet hefur verið nokkuð gagn rýndur af harðlínumönnum í Víet- nam fyrir að vilja fara mikinn í umbótum í landinu. Hann hefur jafnvel leitast við að breyta fata- vali embættismanna, sem hafa yfir- leitt látið sér duga gúmmískó og óformlegan klæðnað. Kiet hefur fylgt fordæmi fyrrum formanns Kommúnistaflokksins, Nguyen Van Linh, sem sagði skilið við miðstýringu á níunda áratugn- um með því að fella niður mikið af opinberum niðurgreiðslum og afnema lögbindingu vöruverðs. Bændum var heimilað að selja sjálf- ir vörur sínar og einstaklingar og fyrirtæki fengu að njóta hagnaðar af framleiðslu sinni. Af fátæku fólki Kiet fæddist í suðurhluta Cuu Long héraðs. Faðir hans var bóndi og fjölskyldan fátæk. Hann gekk til liðs við andspyrnuhreyfingu gegn frönskum yfirráðum 1938 þegar hann var sextán ára. Eftir mis- heppnaða byltingartilraun 1940 flúði Kiet inn í frumskóginn og árið 1945 hafði hann skyldum að gegna í Viet Minh-hreyfmgu þjóðernis- sinnaðra kommúnista. Hann var stjórnarerindreki flokksins í Saigon þegar hófust vopnuð átök við stjórn Ngo Dinh Diem, sem naut stuðnings Banda- ríkjastjórnar. Til ársins 1971 var hann yfirmaður uppreisnarliðs kommúnista í vesturhluta Suður- Víetnam. Fyrri eiginkona Kiets og börr þeirra fórust í sprengjuárás Banda- ríkjamanna þegar þau voru á leið til leynilegs fundar við hann. Lík- amsleifar þeirra hafa aldrei fund- ist. Ári eftir að kommúnistar höfðu sigur í stríðinu við sunnanmenn varð Kiet yfirmaður flokks þeirra í Saigon, eða Ho Chi Minh borg. Hann varð fullgildur meðlimur framkvæmdastjórnar flokksins 1982 og tók þá einnig við embætti aðstoðarforsætisráðherra og for- manns áætlananefndar ríkisins. Skógarplöntur 15-25 Stk. í bakka Birki, lerki, sitkagreni, blágreni, ölur og stafafura. kr. 698 bakkinn Hansa- rós kr. 349 Moltukassi 340 lítrar Fyrirgarða- og heimili kr. 4*900 stk. Surnar- nellikka kr. 99 blómoucil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.