Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 19
ERLENT
Framkvæmdastj óri Rauða hálfmánans á svæðum Palestínumanna
Morgunblaðið/Júlíus
IZZEDIN Aryan, framkvæmdastjóri Rauða hálfmánans á sjálfs-
stjórnarsvæðum Palestínumanna.
apteduct-cf
(&£'(&& GempaAif
Allir deiluaðilar virða
störf hjálparstofnana
munu gera það áfram, þrátt fyrir
boð og bönn.“
Vatninu misskipt
Aryan nefnir dæmi um þá mis-
munun sem Palestínumenn á her-
numdu svæðunum verði að þola af
hálfu ísraelskra stjórnvalda. Nokk-
ur þúsund landnemar úr röðum
gyðinga á Gaza megi bora eftir
vatni eins djúpt og þeir vilja. Það
geri þeir, hafi nóg vatn til drykkjar
og áveitu, „þeir eru meira að segja
með sundlaugar". Palestínskir
bændur megi aðeins bora niður á
ákveðið dýpi, þessum takmörkun-
um sé vandlega framfylgt og vatn-
ið úr efri jarðlögunum sé auk þess
svo salt að það sé ekki gott til
drykkjar.
ÖLL undirstaða heilbrigðiskerfis er
í molum á Gaza-svæðinu og ástand-
ið er einnig slæmt á Vesturbakkan-
um eftir nær þriggja áratuga
hemám ísraela, að sögn fram-
kvæmdastjóra Palestínudeildar
Rauða hálfmánans, Izzedins Ary-
ans. Hann kom í nokkurra daga
heimsókn til íslands í liðinni viku
og ræddi m.a. við fulltrúa íslands-
deildar Rauða krossins, átti auk
þess að hitta forseta íslands, Vig-
dísi Finnbogadóttur, í gær. Aryan
segir mjög gott samstarf vera á
milli Rauða hálfmánans og sam-
svarandi stofnunar í ísrael, Davíðs-
stjörnunnar.
Aryan er lyfsali, kvæntur og
fjögurra barna faðir, fæddur í Jerú-
salem en búsettur í Ramallah á
Vesturbakkanum þar sem aðal-
stöðvar Palestínudeildar Rauða
hálfmánans eru nú. Ættingjar hans
búa í Jerúsalem, gamla borgarhlut-
anum, og þarf hann sérstakt vega-
bréf til áð mega heimsækja þá.
Hann segir alla aðila, einnig
bókstafstrúarmenn í Jihad og Ham-
as, virða störf hjálparstofnananna
sem báðar eru í reynd deildir í Al-
þjóða Rauða krossinn í Genf. „Þetta
samstarf gengur vel og var einnig
virt meðan á uppreisninni á herm-
umdu svæðunum, intifada, stóð.
Stjórnmáladeilur hafa ekki áhrif á
starf okkar, við sinnum jafnt Pal-
estínumönnum sem ísraelum. Oft
hefur það komið fyrir eftir óeirðir
að sjúkrabílar okkar hafa flutt ísra-
ela, jafnvel slasaða hermenn, á
spítala og ísraelamir hafa einnig
annast slasaða úr röðum Palestínu-
manna.“
Þriggja áratuga
stöðnun
Aryan segir að ísraelsstjórn hafi
vissulega haft útgjöld til heilsu-
gæslu á hernumdu svæðunum á
fjárlögum en féð hafí að miklu leyti
runnið til sjúkrastofnana í Israel
sjálfu. Þótt aðstaðan hafi einnig
nýst Palestínumönnum komi það
sér illa núna, eftir að Palestínu-
menn hafí fengið takmarkaða
sjálfsstjórn, að nánast ekkert hafí
verið byggt upp á þessum áratug-
um og það sem fyrir var grotnað
niður.
Aryan segir efnahagsvandann
hafa aukist enn á Gaza vegna þess
að ísraelsstjórn hafí bannað Palest-
ínumönnum á svæðinu að leita sér
vinnu í ísrael en það hafí að
minnsta kosti 130.000 manns gert.
Þessi ráðstöfun, sem gripið var til
vegna sprengjutilræða palestínskra
hermdarverkamanna í ísrael, hafi
aukið vonleysi og reiði meðal al-
mennings sem fínnist að flest hafí
farið á verri veg eftir friðarsamn-
ingana í Ósló og Washington.
Framkvæmdastjórinn segir að
hafi markmiðið verið að koma í veg
fyrir að hermdarverkamenn kæm-
ust inn í ísrael sé aðgerðin vind-
högg. „Það hefur komið í ljós í öll-
um tilvikum að tilræðismennirnir
hafa ekki farið inn í ísrael með
löglegum hætti, við verðum að sýna
sérstakt skírteini við varðstöðvar.
Þeir hafa laumast inn í landið og