Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ1995 28
LISTIR
I höllu
Svía-
konungs
SVERRIR Guðjónsson, kontra-
tenór, heldur einsöngstónleika 17.
júní næstkomandi á vegum kon-
unglegu óperunnar í Svíþjóð.
Sverrir segir að konunglega óp-
eran í Drottningarhólmshöll sé
eina eiginlega barokkóperan á
Norðurlöndum en þar var Gústaf
3. með sitt einkaleikhús. „Þetta
er því einstakt tækifæri en um
leið er það mikil upphefð fyrir mig
að fá að syngja þarna.“
Sverrir segist hafa sungið
ásamt fjölda annarra umsækjenda
fyrir framkvæmdastjóra ðperunn-
ar í fyrra er hann var á ferð '
Stokkhólmi og hún hefði svo haf
samband við hann í vetur og boð
ið honum að syngja á júnítónleik
um sem haldnir eru árlega í óper-
unni. „Það er mikill áhugi fyrii
eldri tónlist og því raddsviði seir
ég hef sérhæft mig í, kontratenór
og kannski er það þess vegna sen
það gekk svona hratt og vel ac
komast að í þessu húsi.“
Yfirskrift tónleikanna er „Frán
Monteverdi til Monte Hekla“ og
eins og hún gefur til kynna er
efnisskráin fjölbreytt. Sungnir
verða söngvar frá endurreisnar-
tíma, einnig Shakespeare-söngvar
frá hinum ýmsu tímum, söngvar
eftir Jón Leifs sem tengjast Heklu
að vissu leyti og íslensk þjóðlög
sem sérstaklega hafa verið útsett
af þessu tilefni. Auk þessa verður
fluttur Epistel nr. 30 eftir Bell-
mann sem á 200 ára dánarafmæli
á þessú ári. Hljóðfæraleikarar á
tónleikunum verða Guðrún Ósk-
arsdóttir semballeikari og Snorri
Örn Snorrason sem leikur á lútu
og theorbe.
Gamli vestur-
bærinn - mann-
líf og saga
SÝNINGUNNI Gamli vesturbær-
inn - mannlíf og saga, sem staðið
hefur yfir í Ráðhúsinu frá 20.
maí, lýkur nú á sunnudag. Sýning-
in var sett upp vegna sögu og
menninngarhátíðar í gamla vest-
urbænum.
A sýningunni eru ljósmyndir,
skipulagsuppdrættir og skjöl, sem
sýna brot úr þróun þessa elsta
hverfis Reykjavíkur.
Sýningin er í austursal Tjarnar-
salarins á jarðhæð. Hægt er að
kaupa bækling sem geymir fróð-
leikskorn úr sögu hverfisins ásamt
myndum á sýningunni.
Sýningin er opin frá kl. 8-21 á
virkum dögum og um helgina frá
kl. 10-18.
BARNAFOT
VÖNDUÐ - NÍDSTERtt - FALLEG
QGÓRÝKl
Norskir alþýðusálmar
í Hallgrímskirkju
GAMLIR norskir alþýðusálmar
verða sungnir í kvöld í Hallgríms-
kirkju kl. 20. Flytjendur eru
norska óperusöngkonan Anne-
Lise Berntsen og tónskáldið Nils
Henrik Asheim.
Asheim er kunnur tónlistar-
maður og tónskáld. Hann vann
meðal annars samkeppnina um
lag Olympíuleikanna í Lilleham-
mer og gerði söngleikinn Upp-s
risa Martins Luthers Kings.
Anne-Lise hefur sungið stór
hlutverk við flest óperuhús á
Norðurlöndum og víðar.
Flutningur þeirra á Örvum
englanna, en svo nefnist dagskrá-
in í Hallgrímskirkju, hefur fengið
góðar undirtektir og eru þau nú
á leið vestur um haf til tónleika-
halds með þessa dagskrá.
Þetta er breyting frá upphaf-
legri dagskrá en samkvæmt henni
átti að flytja Örva englanna á
föstudag. Af óviðráðanlegum or-
sökum þurfti að flýta tónleikun-
um um einn dag og hafa orgeltón-
leikar prófessors Edgars Krapps
frá Þýskalandi í staðinn verið
færðir til föstudagskvölds.
24-
24-
24-
24-
Bækur og rit
Evrópusambandsins
fÁðóÁaÁúcí
LÁRUSAR BLÖNDAL
Skólavörðustíg 2
Sími 551 5650, Fax 552 5560
■¥
PARTAR
Kaplahrauni 11, S. 565 3323
Eigum nýja og notaða boddýhluti í japanska & evrópska
bíla. Húdd, bretti, stuðara, grill, hurðir, hlera, skottlok, rúður.
Góðir hlutir — gott verð.
LAUGAVEGI 20 • SÍMI 552-5040
FÁKAFENI 52 • SÍMI 568-3919
KIRKJUVEGI 10 • VESTM. • S. 481-3373
*£3&u.
Nýjung:
Tryggingavernd
fyrir sjóðfélaga
ALVIB hefur samið við Sameinaða líftjyggingarfélagið hf, SAMLÍF, um að
bjóða sjóðfélögum í ALVÍB lífeyristryggingar á hagstæðu verði. SAMLÍF er
í eigu Sjóvá-Almennra trygginga og Tryggingamiðstöðvarinnar. Gert er ráð
fyrir að sjóðfélagar velji sér tryggingar eftir þörfum hvers og eins en sér-
fræðingar VIB og SAMLIF eru reiðubúnir að aðstoða við val á tryggingum.
ALVIB mun sjá um greiðslu tryggingariðgjalda jyrir sjóðfélaga og
upplýsingar um tryggingavemd munu birtast á yfirlitum til sjóðfélaga. '
Með því að greiða í ALVlB og kaupa lífeyris-
tryggingar hjá SAMLÍF geta sjóðfélagar greitt í
séreignarsjóð og notið sambærilegra trygginga og
sjóðfélagar í sameignarsjóðum njóta.
Með þessu móti vita sjóðfélagar nákvæmlega
hversu hátt hlutfall iðgjalda fer í eftirlaunasjóð
annars vegar og tryggingar hins vegar. Þeir vita
nákvæmlega hvað hver trygging kostar og hver
inneign þeirra í séreignarsjóði er á hverjum tíma.
Þær tryggingar sem SAMLlF býður sjóðfélögum í
ALVÍB eru eftirfarandi:
Líftrygging tryggir nánustu vandamönnum
fjárhagslegt öryggi við fráfall sjóðfélaga. Eftir því
sem inneign í ALVÍB eykst minnkar þó þörfin á
líftryggingu.
Iðgjaldstrygging tryggir áframhaldandi greiðslu í
lífeyrissjóð og kaup á tryggingum ef starfsorka
skerðist um helming eða meira.
Afkomutrygging tryggir mánaðarlegar tekjur til 60
eða 65 ára aldurs ef starfsorka skerðist um helming
eða meira af völdum sjúkdóma eða slyss.
Ævilífeyrir tryggir mánaðarlegar greiðslur frá
lífeyrisaldri til dánardags. Þannig má hugsa sér að
greiðslur úr ævilífeyri taki við þegar sjóðfélagi er
búinn með inneign sína í ALVÍB.
Sjúkra- og slysatrygging, tryggir dagpeninga-
greiðslur í allt að þrjú ár vegna slyss eða sjúkdóms
og eingreiðslu við varanlega örorku, ef örorka er
metin 40% eða meira vegna slyss eða sjúkdóms.
Nú er kominn út nýr bæklingur um ALVÍB
með gódum fréttum um lífeyrismál, í honum
er að finna upplýsingar um hvernig tryggja má
fjárhagslegt öryggi alla ævina með pví að greiða
í ALVÍB. Bæklingurinn liggur frammi í
afgreiðslum VÍB, Tryggingamiðstöðvarinnar og
Sjóvá-Almennra.
Notiö símaþjónustu okkar milli kl. IB.00-I9.00
alla þriöjudaga ef einhverjar spurningar eru.
Ókeypis ráögjöf i síma 560-8900.
FORYSTA I FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR lSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.