Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Ég á heima á „Strikelandi“
• •
Orfá atriði vegna umfjöllunar „blaðs allra landsmanna“ um kjaradeilu í Straumsvík.
FRAMLEIÐSLA í ÍSAL hefur
aukist frá árinu 1989 úr 88,6 þús
tonnum í 98,6 þús tonn árið 1994,
á sama tíma hefur starfsmönnum
fækkað frá 652 í 430 og fjöldi
greiddra vinnustunda farið úr 1,3
millj. klst. í 975 þús. klst. í síðasta
kjarasamning stéttarfélaga við
VSÍ/ÍSAL frá 15. apríl 1993 var
eftirfarandi bókun: „I ljósi afkomu-
erfiðleika fyrirtækisins og gagn-
>' kvæmrar óánægju með fyrra sam-
komulag eru aðilar sammála um
að víkja því til hliðar og vinna á
samningstímanum að nýjum hug-
myndum um form greiðslna fyrir
aukna hagkvæmni í rekstri sem
báðir aðilar geta sætt sig við.“
Ekki hefur verið staðið við þetta
af hálfu fyrirtækisins;
21.marz lagði VSÍ/ÍSAL fram
tillögnr um breytingar á kjara-
samningi. Þessar tillögur urðu síð-
an fyrirmynd m.a. samninga sem
gerðir hafa verið í öðrum verk-
smiðjum. í þessum tillögum VSÍ
kom fram athyglisverð nýjung:
„Náist samningar með friðsamleg-
um hætti greiðist hveijum starfs-
manni, sem þá hefur verið í starfi
a.m.k. 6 mánuði, kr. 25.000 ein-
greiðslu við aðra launaútborgun
eftir samþykkt samningsins.“
25. apríl lagði VSÍ/ISAL fram
lista yfir 15 atriði sem gert er ráð
fyrir að komi inn í næsta kjarasamn-
ing. A grundvelli þessara atriða var
H ffPBW
Sambyggðar
trésmíðavélar
Hjólsagir,
bandsagir,
spónsugur,
rynia
LAUGAVEGI 29
simar 552 4320 - 552 4321- 552 4322
unnið og átti að reyna
að ná saman samningi
á þeim grunni. Á fundi
nokkru síðar leggur
ÍSAL/VSÍ öllum að
óvörum fram algjör-
lega nýja kröfu um
sameiginlega af-
greiðslu samnings. Það
hefur alla tíð verið einn
kjarasamningur á
ÍSAL-svæðinu gerður
af einni sameiginlegri
samninganefnd stétt-
arfélaganna, endanleg
afgreiðsla hans hefur
síðan farið fram í
hveiju félagi. Eftir
nokkrar umræður var
samþykkt af hálfu stéttarfélaganna
að leggja fram hugmyndir um sam-
eiginlega afgreiðslu samninga.
Þá kemur enn ein ný krafa frá
ÍSAL/VSÍ um sama samning um
notkun verktaka og Atlantal fékk
á sínum tíma. Samningamenn
stéttarfélaganna bentu ÍSAL/VSÍ
á að í núgildandi kjarasamningi
væru ákvæði um verktaka og á
ÍSAL-svæðinu hefðu verið fleiri
hundruð verktakar á undanförnum
árum. Atlantal-samningurinn hefði
verið byggður á sömu forsendum
og giltu á ÍSAL-svæðinu. Bent var
á að VSÍ hefði ekki komið nálægt
gerð kjarasamnings við Atlantal
og túlkun VSÍ á samningum væri
einhliða túlkun þeirra á þessum
samningi. Vart hægt að grípa eitt
atriði úr samningi án samhengis
við önnur ákvæði hans.
Á næsta fundi þar á eftir leggur
svo ÍSAL/VSÍ fram enn einu sinni
nýja kröfu, endurskoðun kjara-
Guðmundur
Gunnarsson
samnings frá upphafi
til enda og að samn-
ingsaðili verði einn.
Samningurinn var allur
endurskoðaður á síð-
asta ári. Hvers vegna
kom þessi krafa fram
skyndilega nú? Vill
VSÍ/ÍSAL/Alusuisse
yfirhöfðuð semja? Á
erlendum auðhring að
líðast að það geti með
aðstoð VSÍ framið
stjórnarskrárbrot og
farið að skipta sér af
því í hvaða félög ís-
lenskir launþegar skipi
sér? Ætla þessir aðilar
að skipta sér af því í
hvaða stjómmálaflokk launþegar
velja? Hvar á að draga mörkin? Á
erlendum auðhring að líðast að
skipta sér af því hvemig skipulag
íslensk verkalýðshreyfing velur sér?
Því hefur verið haldið fram að
verkföll séu nánast daglegt brauð
á ÍSAL-svæðinu. Ekki hafa verið
verkföll þar síðan 1988. í þeirri
umræðu hefur ekki komið fram að
við gerð kjarasamninga hefur
VSÍ/ISAL tekið upp áður óþekkta
vinnureglu hér á landi, að hóta
launþegum í sífellu lokun fyrirtæk-
isins, leggja sífellt fram nýjar kröf-
ur í viðræðum og þverskallast við
að standa að eðlilegri samninga-
gerð eins og tíðkast í öðmm ís-
lenskum fyrirtækjum. Ein/iig virð-
ist það vera aukaatriði hvort sé
staðið við ákvæði fyrri samninga.
Því hefur verið haldið fram að
það hafí verið hársbreidd frá því
að verksmiðjunni hefði verið lokað
fyrir tveim ámm. Þá stóð yfír end-
Á erlendum auð-
hring að líðast, spyr
Guðmundur Gunnars-
son, að geta framið
stjórnarskrárbrot með
aðstoð VSÍ.
urnýjun á tæknibúnaði fyrir á ann-
an milljarð kr., bygging á nýju
mötuneyti og skrifstofum fyrir 500
millj. kr.!! Því hefur verið haldið
fram að launþegar standi að stans-
lausum ófriði á svæðinu. Hið gagn-
kvæma er réttara, það líður vart
sá mánuður að fyrirtækið taki ekki
einhliða upp nýja túlkun á kjara-
samning og ijúfí þannig friðar-
skyldu gagnvart launþegum.
VSI slær endurtekið um sig
þessa dagana með heilagleika og
gefur út yfirlýsingar um að sam-
bandið vilji ekki; „svíkja þúsundir
launþega sem þeir sömdu við í febr-
úar með því að gera betri kjara-
samninga við aðra launþega!!!" Slík
lofotó hafa aldrei verið gefin og
það hefur aldrei verið farið fram á
það við VSÍ að slík loforð séu gef-
in. Launþegar samgleðjast félögum
sínum sem þessa dagana eru að
rífa sig frá ofurvaldi VSÍ og knýja
fram launabætur.
Spyija má; Er staða allra fyrir-
tækja á Islandi sú sama? Fjöldi
fyrirtækja er þessa dagana að skila
niðurstöðum á aðalfundum með
hundruða milljóna hagnaði meðan
önnur ganga verr. VSÍ neitar að
horfast í augu við' staðreyndir og
semja um raunkaup. í stað þess
er sífellt samið um kauptaxta sem
eru langt neðan við raunkaup.
Launþegum er svo stillt upp við
vegg og sagt við þá; Annaðhvort
gangið þið að þessu eða farið í
verkfall. Lausnin þessa dagana
virðist svo vera eingreiðsla upp á
tugþúsundir króna náist kjara-
samningar með friðsamlegum
hætti!! Þessarar lausnar er svo ekki
geti í texta kjarasamningsins.
Sívaxandi fjöldi launþega þarf að
sækja félagslega aðstoð vegna þess
að fólk getur ekki framfleytt sér á
þeim launum sem greidd eru. Vinnu-
veitendur eru með þessu að yfírfæra
launakostnað á skattborgarana. Sí-
fellt færri greiða skatta vegna lækk-
andi launa og skattar þeirra sem
eftir standa hækka í sífellu. Laun-
þegar geta ekki sætt sig við þetta
og gera því tilraunir til þess að ná
fram launahækkunum. Láglauna-
stefna VSÍ og einþykkni við samn-
ingaborðið hrekur launþega út í
aðgerðir eins og við sjáum þessa
dagana. Nú vill erlendur auðhringur
njóta sömu fríðinda og fá að yfír-
færa sinn launakostnað á íslenska
skattgreiðendur. Undir þessi sjónar-
mið tekur „blað allra landsmanna“
athugasemdalaust. Þetta er afsakað
með kostulegum yfírlýsingum um
að verkalýðsforystan sé að störfum
í andstöðu við vilja launþega!! Þessu
er haldið fram þrátt fyrir að óvand-
aðar miðlunartillögur séu kolfelldar
þar sem launþegum er gert að aka
utan af landi til Reykjavíkur til þess
að mæta til atkvæðagreiðslu á skrif-
stofu sáttasemjara. Laun á íslandi
eru orðin meðal þeirra lægstu sem
þekkjast í Evrópu og á meðan svo
er komum við Islendingar til með
að búa í „Strikelandi“ og það geta
þeir þakkað láglaunastefnu VSÍ,
dyggilega studdri af „blaði allra
landsmanna!!!"
Höfundur er form.
Rafiðnaðarsambands íslands.
*
Arangnr í meðferðar-
starfi - hvað þarf til?
DEILD Meðferðar-
stöðvar ríkisins í
Efstasundi 86 sinnir
meðferð unglinga á
aldrinum 12-16 ára að
beiðni barnaverndar-
yfirvalda. Meðferðin
getur tekið allt að
þremur mánuðum og
í lok hennar liggja fyr-
ir niðurstöður grein-
ingar, meðferðar og
hugmyndir um áfram-
haldandi meðferðarúr-
ræði fyrir unglinginn.
Tillögurnar miðast að
því að viðhalda þeim
árangri sem hefur
Kolbrún
Baldursdóttir
náðst. Þær geta verið allt frá
reglulegum eftirfylgdarviðtölum
við unglinginn og fjölskyldu hans
til frekari vistunar á meðferðar-
eða fósturheimili. Það
kemur í hlut þeirra
barnaverndaryfir-
valda sem taka við
máli unglingsins að
vinna úr þessum til-
lögum og fylgja þeim
eftir.
Undanfarin 2 ár
hefur meðferðardeild-
in sent út spuminga-
lista til hlutaðeigandi
barnaverndaryfirvalda
u.þ.b. 2 mánuðum eftir
að unglingurinn út-
skrifast frá deildinni.
Tilgangurinn er að
kanna hvort samband
sé á milli tilfinningalegs- og félags-
legs gengis unglingsins og þess
hvort tekist hefur að fylgja eftir
tillögum meðferðardeildarinnar.
Niðurstöður sýna fylgni
milli stuðnings- og með-
ferðarúrræða, segir
Kolbrún Baldursdótt-
ir, og jákvæðra breyt-
inga á líðan og hegðun
unglingsins.
Þegar þetta er skrifað hafa 35
spurningalistar verið sendir út og
32 borist aftur til meðferðar-
deildarinnar. Af þeim má sjá að
tekist hefur að fylgja tillögunum
eftir að „nær öllu leyti“ í 4 tilvik-
um, „að hluta til“ í 24 tilvikum en
í öðrum 4 málum hefur það ekki
tekist að „neinu leyti“. í þeim til-
fellum sem tekist hefur að fylgja
tillögunum eftir „að nær öllu leyti“
eða „að hluta til“ er líðan og hegð-
un unglingsins betri en fyrir með-
ferðina. Hins vegar þegar ástand
unglingsins hefur haldist óbreytt
hefur ekki gengið að fylgja eftir
tillögum meðferðardeildarinnar.
Meðferðin ein og sér nægir þá ein-
faldlega ekki til að snúa óheilla-
þróuninni við svo einhveiju nem-
ur. í þessum tilvikum er tæpast
hægt að vænta meiri árangurs en
að hægja á þeirri þróun sem var
ástæða meðferðarinnar. Niður-
stöður sýna mjög afdráttarlausa
fylgni milli áframhaldandi stuðn-
ings- eða meðferðarúrræða og já-
kvæðra breytinga á líðan og hegð-
un unglingsins. í ljósi þessara vís-
bendinga er mikilvægt að barna-
verndaryfírvöldum um land allt sé
gert kleift að bregðast við tillögum
meðferðaraðila og skapa ungl-
ingnum þær aðstæður sem nauð-
synlegar eru til að viðhalda ár-
angri.
Höfundur er yfirsálfræðingur og
deildnrstjóri hjá Meðferðarstöð
ríkisins fyrir unglinga.
Alveg Einstök Gædi
Lavamat 9200 Þvottavél
• Vinduhraði 700/1000 + áfangavinding, tekur 5 kg.
• Sér hitavairofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar forskrift.
• UKS kerfi -jafnar tau í tromlu fyrir vindingu.
• Sér hnappur fyrir viðbótarskolun.
• Orkunotkun 2,0 kwst á lengsta kerfi.
Afborgunar verb kr. 85.914,-
3
Þriggju ára
ábyrgð á öllum
AEG
ÞVOTTAVELUM
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga,
Borgarnesi. Vesttiröir: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi.
Rafverk Bolungarvfk.Straumur.lsafiröi.
Noröurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð,
Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvlk
Kf Þingeyinga, Húsavik. Austurland: Sveinn Guömundsson,
Egilsstööum. Stál. Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstaö.
KASK, Höfn Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík.
Rafborg, Grindavik.
•Meðalfalsafborgun
á mánuði: 4.158,-
VISA
* Meðaltalsafborgun
á mánuði: 4,155,-
BRÆÐURNIR
=)] ŒMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
' Miðað við afborgun í 24 mánuði.