Morgunblaðið - 08.06.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 43
FRÉTTIR
Ráðstefna
ura atvinnu-
mál kvenna
SNERPA, átaksverkefni í at-
vinnumálum kvenna á Vestfjörð-
um, heldur ráðstefnu um atvinnu-
máí kvenna þann 24. júní nk.
Ráðstefnan verður haldin á
ísafirði.
Fyrir tæpum fjórum árum var
haldin ráðstefna hér á ísafírði um
atvinnumál kvenna. Á ráðstefn-
unni ákváðu vestfirskar konur að
eitthvað þyrfti að gera til þess að
efla stöðu kvenna í atvinnulífinu
og þá sérstaklega í fyrirtækja-
rekstri. Verkefnið Snerpa kom í
kjölfar ákvörðunarinnar og hefur
það starfað í tvö ár við að efla
konur til frumkvæðis í atvinnu-
sköpun og stuðla að fjölbreyttari
atvinnuháttum á Vestfjörðum.
Verkefninu lýkur nú í sumar.
Markmið ráðstefnunnar er að
líta yfir farinn veg, yfir þessi íjög-
ur ár frá því að síðasta ráðstefn-
an var haldin og vega og meta
þann árangur sem hefur náðst
fyrir konur í atvinnulífínu. Einnig
verður stefnt að því að komast
að niðurstöðu um það hvað á að
taka við, hvernig á að vinna að
málefnum kvenna í atvinnulífinu
í framtíðinni.
Framleiðslusýning verður
haldin í tengslum við ráðstefnuna
þar sem nýjungar í vestfirsku
atvinnulífi, sem orðið hafa til fyr-
ir tilstilli kvenna, verða kynntar.
• •
Okumaður
gefi sig fram
LÖGREGLAN í Reykjavík biður
ökumann bifreiðar, sem olli
skemmdum á viðvörunarbúnaði
við nýja brú yfir Vesturlandsveg
sl. laugardag, að gefa sig fram.
Stórum hvítum vöruflutninga-
bíl með tengivagni aftan í og
farmi ofan á þakinu var ekið
vestur Vesturlandsveg klukkan
rúmlega 6 síðdegis á laugardag.
Vitni ber að bílnum hafi verið
ekið viðstöðulaust á viðvörunar-
búnað, sem er í fjögurra metra
hæð nokkrum metrum áður en
komið er að nýju brúnni við
Höfðabakka, og áfram undir
brúna. Búnaðurinn skemmdist á
tveimur stöðum.
Ökumaður eða önnur vitni,
sem gætu gefið nánari lýsingu á
bifreiðinni, eru vinsamlegast beð-
in að gefa sig fram við lögreglu.
Levante-
stúlkan kynnt
á Ommu Lú
STÚDÍÓ Vík hefur hafið inn-
flutning á ítölsku Levante-
sokkabuxunum og af því tilefni
verður kynning á veitingastaðn-
um Ömmu Lú í kvöld. Húsið
verður opnað kl. 20.30 og er
aðgangur ókeypis.
Einnig verður kynning á Le-
vante-stúlkunni sem mun sýna
gestum Levante-vörur og hár-
greiðslu annast Mjöll Daníels-
dóttir frá Prímadonnu, förðun
Elísabet Agnarsdóttir og Hildur
Árnadóttir. Kynnir er Sævar
Öm. Skreytingar annast Kristján
Undir stiganum. Við þetta tæki-
færi verður einnig danssýning á
vegum Dansskóla Auðar Haralds
og sýndir verða skartgripir frá
Flex, Laugavegi. Einnig verður
boðið upp á sumardrykk frá Júl-
íusi P. Guðjónssyni.
SNORRI Bjarnason, forseti Vífils, heilsar upp á heimilismann á Lyngási eftir að hafa afhent
sjónvarpið og myndbandstækið. Aðrir á myndinnu eru forstöðukona heimiiisins, Hrefna Haralds-
dóttir (t.h.), og Jóhann B. Guðmundsson og Gissur R. Jóhannsson. Vífilsfélagar í baksýn ásamt
tveimur drengjum af heimilinu.
NÝLEGA afhenti forseti Kiw-
anisklúbbsins Vífils, Snorri
Bjarnason, Lyngási, heimili
þroskaheftra við Safamýri,
gjöf til styrktar starfseminni.
Var það sjónvarp og mynd-
bandsupptökuvél að verðmæti
230 þús. kr. Tækin verða m.a.
notuð til upptöku á myndum
af skjólstæðingum heimilisins
Gáfu
Lyngási
tæki
til að fylgjast með þroska
þeirra og framförum; sem
heimild; til að sýna foreldrum
skjóístæðinganna og svo að
sjálfsögðu til skemmtunar
fyrir dvalargestina. Að sögn
Hrefnu Haraldsdóttur, for-
stöðukonu heimilisins, koma
tækin að góðu gagni sem
hjálpartæki fyrir starfsemina
og það hjálparstarf sem innt
er af hendi á heimilinu.
Doktor í læknisfræði
BOGI Ásgeirsson,
svæfingarlæknir, lauk
1. apríl 1995 doktors-
prófí frá læknadeild
háskólans í Lundi í
Svíþjóð.
Doktorsritgerðin
fjallar um nýja með-
ferð við heilabjúg eftir
heilaáverka og heitir
á frummálinu: „Post-
Traumatic Brain Oe-
dema Therapy. A new
approach based on
aspects og brain vol-
ume regulation and
raised tissue press-
ure.“ Andæmlandi við
doktorsvörnina var Jens Astrup,
prófessor í heilaskurðlækningum
við háskólann í Árósum í Dan-
mörku. í ritgerðinni, sem byggist
á fimm vísindagreinum eftir Boga
Ásgeirsson og meðhöfunda hans,
er meðal annars grein gerð fyrir
þeim lífeðlisfræðilegu lögmálum
sem hin nýja meðferð byggist á,
skýrt frá þeim áhrifum sem lyf
þau sem notuð eru í meðferðinni
hafa á heilablóðflæði
og efnaskipti heila og
árangur meðferðar er
rakinn.
Bogi Ásgeirsson er
fæddur á Akureyri
24. febrúar 1954. '
Foreldrar hans eru
hjónin Jóhanna Mar-
grét Bogadóttir og
Ásgeir Áskelsson,
skipstjóri á Akureyri.
Bogi lauk stúdents-
prófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri
1974 og læknaprófi
frá Háskóla íslands
1980. Hann lauk
sérnámi í svæfinga- og gjör-
gæslulækningum 1987 og hefur
síðan starfað sem sérfræðingur
við svæfinga- og gjörgæsludeild
Háskólasjúkrahússins í Lundi.
Bogi Ásgeirsson er kvæntur Mar-
gréti Einarsdóttur, lækni, sem
starfar sem sérfræðingur í
krabbameinslækningum kvenna
við Háskólasjúkrahúsið í Lundi
og eiga þau tvö börn.
Dr. Bogi
Ásgeirsson
■ RÖSKVA, samtök félags-
hyggjufólks við Háskóla íslands,
hefur samþykkt ályktun þar sem
fagnað er áliti umboðsmanns Al-
þingis um að ólögmætt sé að standa
undir rekstri stjórnsýslu HÍ með
innritunargjöldum. Skorar félagið á
Alþingi að hækka fjárframlög til
HI og sýna með því í verki þá auknu
áherslu á menntamál sem lofað var
í kosningunum.
■ Samtök móðurmálskennara
halda aðalfund sinn i dag, 8. júní
í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Fundurinn hefst kl.17.00 eða að
loknum deildar- og fagstjórafundi
samtakanna. Á dagskrá verða
venjuleg aðalfundarstörf en að þeim
loknum verður boðið upp á léttar
veitingar.
- kjarni málsins!
Morgunblaðið/Sverrir
SÝNINGARMENN við kvikmyndahús komu saman í BíóhöIIinni
sl. föstudag til að fagna 50 ára afmæli félags síns. Frá vinstri:
Sigurjón Jóhannsson, Pétur Pétursson og Guðrún Júlíusdóttir.
Félag sýningarmanna 50 ára
*
Islensk kvikmyndahús
fremst 1 flokki
FÉLAG sýningarmanna við kvik-
myndahús fagnaði 50 ára afmæli á
sama tíma og fyrsta kvikmyndin
varð 100 ára. Sýningarstjórar hafa
orðið vitni að stórfelldum breyting-
um í starfi frá þvi félagið var stofn-
að.
í tilefni af tímamótunum voru
kvikmyndahús í London sótt heim
og aðstæður skoðaðar og 2. júní
sl. var haldið teiti í Bíóhöllinni af
tilefninu.
Að sögn Péturs Péturssonar,
formanns Félags sýningarmanna
við kvikmyndahús, hafa miklar
breytingar orðið á starfsemi fé-
lagsins og aðstæðum sýningar-
manna í kvikmyndahúsum. Sér-
staklega hafa tæknibreytingar síð-
astliðinna þriggja ára verið örar.
Nú er svo komið að tæknibúnaður
íslenskra kvikmyndahúsa er full-
komnari en víðast hvar í öðrum
Evrópulöndum og standa nýjar
bandarískar kvikmyndir íslenskum
kvikmyndaunnéndum fyrr til boða
en til dæmis í Bretlandi, að sögn
Péturs.
Félagið hefur um 70 meðlimi á
skrá en aðeins hafa um 12 manns
sýningarstjóm að fullu starfi. Aðrir
eru í hlutastarfi eða hafa látið af
störfum.
Pétur segir að ekki sé óalgengt
að starfið gangi mann fram af
manni en yfirleitt er það áhuginn
fyrir bíómyndum sem rekur menn
inn í sýningarklefann.
Mögiileikhúsið í
Ævintýra-Kringlunni
í ÆVINTÝRAKRINGLUNNI á 3.
hæð í Kringlunni er ýmislegt um
að vera í þessari viku.
Fimmtudag 3. júní kl. 17 kemur
Möguleikhúsið og verður með sýn-
ingu á Ástarsögum úr fjöllunum.
Leikritið er leikgerð af samnefndri
sögu Guðrúnar Helgadóttur. Alda
Ámadóttir og Pétur Eggertz leika
og stjórna brúðum. Leikstjóri er
Stefán Sturla Siguijónsson. Leik-
mynd, búningar og brúður hannaði
Hlín Gunnarsdóttir.
Laugardag kl. 13.15 kemur Lína
Langsokkur í heimsókn í Ævintýra-
kringluna og kemur hún vafalaust
á óvart með furðulegum uppátækj-
um eins og hún er vön.
Ævintýrakringlan er listasmiðja
fyrir börn 2-8 ára og geta foreldr-
ar verslað í Kringlunni á meðan
börnin una sér við leik og listir.
Ævintýrakringlan er opin frá kl.
14 virka daga og kl. 10-16 á laug-
ardögum.
r
TOPPTILBOÐ
verð kr. 995,-
Póstsendum samdœgurs
Ioppskórinn
musmi við iksólfsioic - sini: sw m?
J