Morgunblaðið - 08.06.1995, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 47
IDAG
Árnað heilla
DEMANTSBRÚÐKAUP. Hjónin Ragnheið-
ur og Sigurjón Sæmundsson eiga 60 ára
brúðkaupsafmæli í dag, fímmtudaginn 8.
júní 1995. Þennan dag fyrir 60 árum voru
þau gefín saman í hjónaband í Möðruvalla-
kirkju í Hörgárdal af sr. Sigurði Stefáns-
syni, vígslubiskupi. Þau hjón hafa allan sinn
búskap átt heima á Siglufírði. Þau eru að
heiman í dag.
DEMANTSBRÚÐKAUP. í dag, fímmtu-
daginn 8. júní, eiga 60 ára brúðkaupsaf-
mæli hjónin Guðrún Dagbjört Svein-
björnsdóttir og Pétur Gunnar Stefáns-
son, Fálkagötu 9, Reykjavík. Þau eru að
heiman.
BRIPS
Umsjón Guómundur Páll
Arnarson
HVER er að hindra hvern?
Það er ekki gott að segja
þegar forseti Bridssam-
bandsins, Helgi Jóhanns-
son, er annars vegar. Hann
hélt á spilum suður hér að
neðan á landsliðsæfingu um
síðustu helgi, en landsliðin
í opnum flokki og kvenna-
flokki eru nú að leggja síð-
ustu hönd á undirbúning
sinn fyrir Evrópumótið, sem
hefst í Portúgal um miðjan
mánuðinn.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 97
V D10
♦ 96
♦ D108764S
Vestur Austur
* ÁKG102 ♦ D643
: gs niiii: ‘kc,,“
♦ Á95 ♦ G2
Suður
♦ 85
V 2
♦ ÁKDG107543
♦ K
Spilað var á þremur borð-
um og á tveimur þeirra
opnaði suður á 5 tíglum,
sem er blátt áfram og eðli-
leg sögn á spilin, en varla
frumleg. Helgi ákvað hins
vegar að opna á sterku laufi
og hitti sannarlega á óska-
stundina, því AV eiga al-
slemmu í tveimur litum! í
vestursætinu var annar
bragðarefur, sem lét sér
detta í hug að stökkva
hindrandi í tvo spaða. Eftir
þessa sérkennilegu byijun
var ekki við því að búast
að sagnir tækju vitræna
stefnu. En framhaldið var
þannig:
Vestur Norður Austar Suður
1 lauf*
2 spað-Pass 4 spaðar 5 tlglar
ar*’
Dobl Pass 5 spaðar. Pass
Pass Dobl Pass 6 tíglar
Pass Pass Dobl Allir pass
‘Precision, a,m.k. 16 punktar!
“Ilindrun!
Frá bæjardyrum norðurs
og austurs var ekkert
óvenjulegt við sagnir þar til
suður tók út úr doblinu á 5
spöðum og vestur doblaði
síðan ekki 6 tígla. En sterkt
lauf er sterkt lauf, og austur
hreinlega trúði því ekki að
slemma stæði í hans átt.
Helgi missti hins vegar af
fallegri sögn - að passa 4
spaða! norður hefur upplýst
veik spil með passi sínu við
2 spöðum, svo það er dag-
Ijóst að AV eiga töluna.
Spumingin er bara hversu
há hún er.
Pennavinir
TÓLF ára sænsk stúlka
með áhuga á dýrum, sér-
staklega hestum:
Cecilia Bouvery-Holm,
Lungnet-Nántuna,
75598 Uppsala,
Sweden.
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á stór-
móti í Madrid i síðasta
mánuði. Artúr Júsupov
(2.665), Þýskalandi, hafði
hvítt og átti leik, en Alex-
ander Beljavskí (2.655),
Úkraínu var með svart.
Síðustu leikir voru: 19. -
Ha8-c8?? 20. Bd3-h7+ -
Kg8-f8. í staðinnn hefði
Beljavskí getað
leikið 19. - Rf6.
Nú vinnur hvítur
með einfaldri
fléttu:
21. Rxf7! - Rf6
(En alls ekki 21.
Kxf7? 22. Dg6+
Kf8 23. Dxe6 með
máthótunum á g8
og e7) 22. Rxd8
Hxd8 23. He5 -
Da6 og hvítur hef-
ur unnið skipta-
mun og peð. Nú
er 24. Hxe6 ein-
faldast en Júsupov tefldi
ónákvæmt og eftir 24. d5!?
- exd5 25. h3? - dxc4 26.
Hg3 - b5 þurfti hann að
tefla 15 leiki til viðbótar
áður en hann innbyrti vinn-
inginn.
HÖGNIHREKKVISI
O
Hctnri' Ufcist -fö&ur s'irxumsí "
Farsi
STJÖRNUSPA
cftlr Frances Drake
*
TVÍBURAE
Afmælisbarn dagsins:
Vönduð vinnubrögð og
réttsýni tryggja þér vin-
sældir og viðurkenningu.
Hrútur (21. mars- 19. apríl) Ein'hver misskilningur kem- ur upp í vinnunni, sem unnt er að leysa ef málin eru rædd í einlægni. Kvöldið verður rómantískt.
Naut (20. apríl - 20. maí) Þótt þú metir mikils einhvem sem vill leiðbeiná þér í dag, geta ráð hans verið vafasöm. Þú getur fundið betri lausn.
Tvíburar (21.maí-20.júnf) ÆX1 Tafir í vinnunni árdegis valda þér áhyggjum, en síð- degis rætist úr og þér tekst að Ijúka því sem þú ætlaðir þér.
Krabbi (21. júní — 22. júlí) HltB Þér berast ekki fréttir, sem þú áttir von á, og þú þarft að sýna þolinmæði. Góð dómgreind þín í fíármálum skilar árangri.
Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Taktu það ekki nærri þér þótt þú verðir fyrir tíma- bundnum töfum í vinnunni í dag. Þér tekst samt það sem þú ætlaðir þér.
Meyja (23. ágúst - 22. september) <&.% Ekki ríkir algjör eining á heimilinu varðandi fíárfest- ingu, og þú ættir að íhuga málið betur. Vinur getur gefið þér góð ráð.
Vog (23. sept. - 22. október) Hugmyndir þínar hljóta góð- ar undirtektir I vinnunni í dag, og í samvinnu við starfsfélaga tekst þér að koma þeim í framkvæmd.
Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) 9U(0 Þú gætir séð eftir því síðar ef þú trúir öðrum fyrir áformum þínum. Fundur með ráðamönnum á eftir að skila góðum árangri.
Bogmaóur (22. nóv. - 21.desember) Það kemur þér á óvart þegar vinur, sem þú hefur ekki séð lengi, lætur frá sér heyra. Gefðu þér tíma til að hitta hann.
Steingeit (22.des. - 19.janúar) Þegar líður á daginn kemstu að því að ástæðulaust var að hafa áhyggjur út af erfiðu verkefni. Lausnin liggur ljós fyrir.
Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) ðírkt Þér tekst að ná hagstæðum samningum við ráðamenn, en fíármálin valda þér ein- hverjum áhyggjum. Ræddu þau við þína nánustu.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 2* Framkoma vinar veldur þér vonbrigðum, en þú ættir ekki að dæma hann of hart. Ást- vinir taka mikilvæga ákvörð- un í kvöld.
„ óArltið oh öU i/iXsktptœamböricf
pirv óbcUC c’e.ruL, cL- ri/lcUtorica, "
Stjömuspdna d að lesa sem
dœgradvöl. Sþdr af þessu tagi
byggjast ekki d traustum
grunni visindalegra stað-
reynda.
ft
ÆLKERAMATSEÐILL
«3>r<£-
PARMASKINKA
MEÐ MELÓNU.
EÐA_____
i EÐA_
i
1
SILUNGATERRINE
MEÐ
SAFFRAN VINAIGRETTE.
EGGALDINSÚPA
MEÐ PAPRIKURJÓMA.
VILLIGÆS MEÐ
SKÓGARSVEPPUM.
4 RI TTA VEISl UMAITIÐ
2.500
NAUTAHRYGGSTEIK
RIB EYE
MEÐ TÓMATBASIL
OG S KARLOTTU LAU K.
%>><<&
SÚKKULAÐI MARQUISE
MEÐ HUNANGSIS.
KR.
Á LAUGARDÖGUM
BORÐAPANTANIR í SÍMA 552 5700
Auglýsing
Markaðsdögum fjölgar í Kolaportinu
Lönff helgi hiá Kolaportinu:
Líka opið fimmtu-
dag og föstudag
Vegna mikillar aðsóknar í Kolaportið hefur verið ákveðið að fjölga
markaðsdögum og þessa helgi verður opið þar bæði í dag og á morgun
kl. 12-18, en áfram verður opið á hefðbundnum tíma um helgar.
Frá því að Kolaportið flutti í Toll-
húsið fyrir ári hefur verið jöfn og
stöðug aukning, bæði seljenda og
gesta. „Við vorum farin að upplifa
jólastemmningu í maímánuði", segir
Guðmundur G. Kristinsson hjá
Kolaportinu, en jafnan er mest að
gerast á markaðstorginu á haustin og
fram að jólum. „Við urðum strax í
fyrrasumar vör við mikla aukningu á
fjölda seljenda, en gestum hefur
fjölgað enn meira og sumar helgar
hefur húsið bókstaflega verið að
springa þrátt fyrir að nýja húsnæðið
sé næstum tvöfalt stæiTa en það
gamla“.
Bylting í matvælasölu
„Með fluiningnunt í Tollhúsið má
segja að það hafi orðið algjör bylting
í starfsemi Kolaportsins. Á nýja
staðnum höfum við til dæmis getað
uppfyllt ströngustu skilyrði heil-
brigðiseftirlitsins og sala hvers konar
matvæla hefur blómstrað. Það er ekki
síst þess vegna sem við treystum
okkur nú til að fjölga markaðsdögum
og ég er ekki í vafa um að fólk mun
notfæra sér að kaupa fjölbreytt mat-
væli í Kolaportinu á fimmtudögum
og föstudögum til að hafa tneð sér í
ferðalög eða sumarbústaðinn, nú eða
bara að kaupa inn fyrir helgina eða
bara kvöldið," segir Guðmundur.
Mikið vöruúrva)
Auk matvæla er að sjálfsögðu alltaf
hægt að t'inna ótrúlegustu hluti í
Kolaportinu enda má hver sem er
selja hvað sem er „innan ramma laga
og velsæmis“ eins og Kolaportsfólk
orðar það, og á laugardögum bætist
sjálfur sýslumaður í hóp seljenda
nteð stórt lausafjáruppboð. „Ég held
ég geti fullyrt að vöruúrvalið ltefur
sjaldan verið meira,“ segir Guð-
mundur, enda hafa margir rekið upp
stór augu á undanfömum vikum og
mánuðum að sjá hjá okkur allt upp í
10 tonna hraðfiskibáta, amerísk hjóna-
rúm og ekta Levis gallabuxur á hálf-
virði svo eitthvað sé nefnt. í Kola-
portinu getur fólk kontið dag eftir dag
og alltaf fundið eitthvað nýtt og
spennandi."
Vantar alltaf kompudót
Einn vinsælasti vöruflokkurinn í
Kolaportinu er kompudótið svo-
nefnda, enda sannast það að eins
manns drasl getur svo sannarlega
verið annars manns fjársjóður. Þó
alltaf sé taisvert hjá okkur af kom-
pudóti finnst mér hræðileg tilhugsun
hvaö mikið lendir á haugunum. Það
er stórkostlegt að sjá fólk koma með
alls konar notað dót, sem það hefur
ekki not fyrir lengur, og hafa jafnvel
tugþúsundir upp úr krafsinu. Ég skil
bara ekki að fleiri skuli ekki notfæra
sér þennan skemmtilega tekjumögu-
leika og hvet nú alla til að taka til hjá
sér og panta sölubás" segir Guð
mundur að lokum.