Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Smíðað undir Esjunni Miðlunartillaga sáttasemjara Atkvæði talin um miðnætti BÚIST er við að niðurstaða úr at- kvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjari, sem hann lagði fram í kjaradeilu sjómanna og út- vegsmanna, liggi fyrir aðfaranótt þriðjudags. Haldnir verða fundir í nær öllum sjómannafélögum á land- inu á mánudaginn þar sem miðlun- artillagan verður kynnt og greidd verða skriflega atkvæði um hana. Samkvæmt lögum um sáttastörf í vinnudeilum fer talning atkvæða um miðlunartillögu fram sameigin- lega. Það nægir því ekki til að fella tillöguna þó að t.d. vélstjórar felldu. Einfaldur meirihluti ræður því hvort tillagan verður samþykkt eða felld að því tilskyldu að a.m.k. 35% félagsmanna taki þátt í atkvæða- greiðslunni. Ef þátttakan verður minni þarf aukinn meirihluta til að fella tillöguna. Ef þátttaka verður undir 20% telst tillagan samþykkt. í miðlunartillögunni er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslu um hana verði lokið kl. 18:00 á mánudag og talning atkvæða hefjist hjá ríkis- sáttasemjara kl. 22:00. Allt eins er þó búist við að talning geti dregist fram yfir miðnætti. Tæplega 70 ökumenn stöðvaðir LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði tæplega 70 ökumenn frá miðvikudagsmorgni til fímmtudagsmorguns. Flestir fengu aðeins áminn- ingu, 30 ökumenn, ýmist fyrir of hraðan akstur, vegna þess að ljósabúnaður var ekki í lagi eða ökutækin voru enn á nagladekkjum. 16 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og skráningamúmer voru tekin af 21 ökutæki fyrir vanrækslu á að færa ökutækin til aðal- eða endurskoðunar. Aðfaranótt föstudags var innbrotsþjófur staðinn að verki í sölutumi við Grensásveg. Hann hafði rótað í frysti- geymslu og dreift matvælum um verslunina. Hann hefur komið við sögu svipaðra mála áður hjá lögreglu. ÞEIR Ingvar Á. Guðmundsson og Rögnvaldur Gísláson smíð- uðu af kappi á Árvöllum á Kjalarnesi í vikunni. Ingvar kvað þá vera að koma upp gufubaði og nuddpottum, sem kæmu þeim fjölmörgu ferða- JÓHANNES Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að breytingartillaga efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis við GATT- frumvarp sé „fráleit" og algerlega óviðunandi fyrir neytendur. Neytendasamtökin og innflutn- ingsfyrirtæki hafa gagnrýnt frum- varpið harðlega og bent á að miðað við það verð landbúnaðarafurða, sem fáanlegt sé í Vestur-Evrópu, verði flestar innfluttar landbúnaðarvömr samkvæmt ákvæðum GATT um lág- marksaðgang, sem svarar til 3-5% af innanlandsneyzlu, alltof dýrar og því óseljanlegar. Breytingartillaga nefndarinnar gerir ráð fyrir að landbúnaðarráð- mönnum sem Esjuna sækja heima að góðum notum. Bær- inn Iiggur skammt undan hlíð- um Esju og fjöldi útlendinga leggur leið sína þangað til að sleppa við skarkala höfuðborg- arinnar. herra geti ákveðið að lækka tolla á tilteknu magni vara, ef lágmarksað- gangurinn seljist ekki vegna of hás verðs. Duttlungar landbúnaðarráðherra ráða „Það er fáránlegt að innflutningur sé kominn undir duttlungum land- búnaðarráðherra hverju sinni,“ segir Jóhannes. „Það er ekkert haldbært í þessari breytingartillögu og engin ákvörðun tekin, heldur er landbún- aðarráðherra sagt að hann megi ráða þessu.“ Jóhannes segist vilja sjá óyggj- andi lagalegar skuldbindingar um Iægri tolla en eru í núverandi frum- Vestfjarða- samningarnir Kaup- trygging hækkar SAMIÐ var um 4,3% hækkun kauptryggingar í samningum sjó- manna og útvegsmanna á Vest- Qörðum. Hækkunin kemur til vegna hækkunar á orlofsuppbót og desemberuppbót, sem hingað til hafa verið inn í almennum töxt- um. Aðrir launaliðir hækka um 3% strax og um 3% 1. janúar á næsta ári. Samningurinn felur í sér hliðstæð ákvæði um verðmynd- un afla og samið var um milli sjó- manna og útvegsmanna annars staðar á landinu. Samkvæmt samningnum er heimilt að veiða bolfísk, rækju og fleiri tegundir í sömu veiðiferð. Það ákvæði er sniðið að samningi sem gerður var við Hrönn hf. um veiðar Guðbjargarinnar. Hann fel- ur í sér að 10% álag kemur á all- an fisk. Auk þess var samið um breytingar á fríum. Samið um verð afla utan markaða Samningurinn um verðmyndun afla felur í sér að sjómenn og út- vegsmenn verða að gera samning um verð alls afla sem ekki er land- að á fískmörkuðum. Á Vestíjörð- um er til úrskurðarnefnd, sem fjalla á um ágreining um verð- myndun afla, og þurfti því ekki að semja um störf hennar. varpi. „Við höfum nú kynnzt ýmsu úr herbúðum landbúnaðarráðuneyt- isins. Þetta er algerlega óviðun- andi,“ segir hann. Þarf ákvæði um skyldu, ekki heimild Óskar Magnússon, forstjóri Hag- kaups hf., tekur í sama streng og Jóhannes. Hann segir að það nægi ekki að veita landbúnaðarráðherra heimild til að leiðrétta tolla, verði innfluttar landbúnaðarvörur of dýrar að hans mati. Það, sem þurfi, séu skýr ákvæði um skyldu ráðherra til að lækka tollana og tryggja þannig framboð erlendra vara á samkeppn- isfæru verði. Formaður Neytendasamtakanna Breytingartillaga við GATT fráleit Framsóknarflokkurinn gagnrýndur fyrir vanefndir í húsnæðismálum Ráðherra boðar frumvörp í haust STJÓRNARANDSTAÐAN gagn- rýndi Framsóknarflokkinn harð- lega í utandagskrárumræðu á AI- þingi í gær, laugardag, fyrir að hafa ekki efnt kosningaloforð sín um úrbætur í húsnæðismálum. Páll Pétursson félagsmálaráðherra skýrði frá því að hann hefði skipað tvær nefndir til að skoða vandann og gera tillögur til úrbóta. Frum- vörp yrðu lögð fyrir haustþingið, er það kæmi saman. Önnur nefnd félagsmálaráð- herra á að semja frumvarp um greiðsluaðlögun, „sem stuðli að því að einstaklingar, sem eiga í alvar- legum greiðsluvandræðum, hafí möguleika á að ná tökum á fjár- málum sínum, annað hvort með samkomulagi við Iánardrottna eða með aðstoð dómstólanna," að sögn ráðherra. ísólfur Gylfi Pálmason, þingmaður Framsóknarflokksins, er formaður nefndarinnar. Félags- málaráðherra segir að viðfangsefni nefndarinnar sé flókið, meðal ann- ars réttarfarslega. Hin nefndin á að „athuga hvort aðstoða megi fólk í greiðsluvanda með því að gera breytingar á lána- fyrirkomulagi. Nefndinni hefur ver- ið falið að athuga kosti þess að láns- tími fasteignaverðbréfa verði breytilegur á bilinu 15-40 ár og að skuldarar eldri fasteignaverðbréfa, sem eiga í verulegum greiðsluvand- ræðum, eigi kost á lengingu lána.“ Formaður nefndarinnar er þing- maður Framsóknarflokksins, Magnús Stefánsson. „Bráðamóttaka“ vegna greiðsluerfiðleika? Páll Pétursson sagði jafnframt koma til greina að koma upp „bráðamótttöku" á vegum félags- málaráðuneytis fyrir þá, sem lent hfefðu í greiðsluerfíðleikum. Stjómarandstæðingar gagn- rýndu ráðherrann fyrir aðgerða- leysi. Össur Skarphéðinsson, Al- þýðuflokki, sagði að þrátt fyrir að sum kosningaloforð Framsóknar- flokksins í húsnæðismálum hefðu ratað inn í stjórnarsáttmálann, hefðu efndimar enn engar orðið. Össur spurði hvort fætur framsókn- arráðherra væru úr gúmmíi, eða hví þeir lyppuðust alltaf niður í húsnæðismálunum. Ögmundur Jónasson, Alþýðu- bandalagi, málshefjandi utandag- skrárumræðunnar, sagði að út- reikningar BSRB sýndu að blanda óhagstæðs lánakerfis, kjaraskerð- inga og skattahækkana væri undir- rót greiðsluerfíðleika og sagði þurfa samhæfðar aðgerðir til að taka á öllum þessum þáttum. Vill flytja frumvarp framsóknarmanna Jóhanna Sigurðardóttir, formað- ur Þjóðvaka og fyrrverandi félags- málaráðherra, sagði ráðherra ekki þurfa á nefndastarfí að halda. Frumvörp lægju þegar fyrir í fé- lagsmálaráðuneytinu. „Er tími að- gerða nú ekki kominn? Þolir málið bið?“ spurði Jóhanna og vitnaði þar til ummæla frambjóðenda Fram- sóknarflokksins fyrir kosningar. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, bauðst til þess að flytja á Alþingi, strax eftir helgina, frumvarp þingmanna Framsóknarflokksins frá því á sein- asta þingi um greiðsluaðlögun. Bauð hann fram aðstoð stjómar- andstöðunnar til þess að frumvarp- ið mætti öðlast lagagildi 1. júlí 1995, eins og gert var ráð fyrir í frumvarpi framsóknarmanna. Fiskur fyrir borð ►Flestir sjómenn virðast hafa tek- ið þátt í að fleygja veiddum fiski aftur í sjóinn, sumir miklu, og vita mörg dæmi þess. Kemur þetta fram í viðtölum blaðamanna Morg- unblaðsins við sjómenn í verstöðv- um víðsvegar um landið. Viðtölin sem hér birtast eru fyrsti hluti umfíöllunar blaðsins um þetta mál og verður því fylgt frekar eftir á næstu dögum./10-19 Samhljómur í sauma- skapnum ►í Viðskiptum og atvinnulífi á sunnudegi er rætt Sigmund Andr- ésson í Max hf sem framleiðir hlífðargallana frægusem eru að verða vetrartískan á íslandi. /22 ► 1-32 Það þarf hugrekki ►Á mánudag sendir Björk Guð- mundsdóttir frá sér aðra breiðskífu sína sem beðið er með eftirvænt- ingu um heim allan. Árni Matthías- son hitti Björk að máli í Lúndúnum í síðustu viku og hún fregnaði honum um plötuna, búsetuna í Bretlandi og framtíðina./l Réttarhöidín og veröld Kafka ► Réttarhöldin er ein umtalaðasta skáldsaga. aldarinnar og er nú að koma út hérlendis í endurskoð- aðri útgáfu. Rætt er við þýðend- urna, feðganna Eystein Þorvalds- son og Ástráð Eysteinsson./6 Kylfa réð kasti ►Haft er fyrir satt að í öllum blundi ævintýramaður. Spurning sé aðeins sú með hvaða hætti hann brýst fram. Hrafn Valdemarsson er hreinræktaður ævintýramað- ur,sem hefur siglt um flest eða öll heimsins höf, síðast í vopnaflutn- ingum í Persaflóa. /14 Þar sem engin tré festa rætur ►Norðmenn renna nú nýjum stoð- um undir byggðina á Svalbarða. Blaðamaður Morgunblaðsins dvaldi nokkra daga í Longyearby- en þar sem smám saman er að þróast venjulegt norskt samfélag sem leysir karlasamfélag kola- námumanna af hólmi./16 Tundurdufl í næturlíki ►Talið er að yfir 400 íslendingar hafi farist í sjóslysum í síðari heim- styrjöldinni. Nokkur skip voru skotin niður af kafbátum, önnur urðu fyrir árásum flugvéla. Morg- unblaðið kynnti sér siglingar is- lenskra sjómanna í stríðinu og tók nokkra þeirra tali./30 BÍLAR ► 1-4 BMW328Í ►Nýtt flaggskip í 3-línunni með stærri en léttari vélum. /1 Suzuki Vitara ►Lengri gerðin af þessum vinsæla jeppa reynsluékið. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavíkurbréf 26 Minningar 28 Myndasögur 36 Brids 36 Stjömuspá 36 Skák 36 Bréf til blaðsins 36 INNLENDAR FRÉ'ITIR: 2-4-8-9-BAK erlendar fréttir- 1-6 Idag 38 Fólk í fréttum 40 Bíó/dans 42 íþróttir 46 Útvarp/sjónvarp 48 Dagbók/veður 31 Mannlífsstr. 8b Dægurtónlist 10b Kvikmyndir 12b

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.