Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reynt ab stemma stlgu vlb auklnnl sókn krókabáta meb því ab veita þeim rétt tll úreldingar
t styrkja úr Þróunarsjobi sjávarútvegslns: ^
|Heimilt að nýta úrelt
til annarra starfa
EFTIR þetta fjölnotaleyfi ættu krókabátakarlar að geta kvatt án þess að óttast að eiga ekki fyrir kistunni...
• •
Einar Oddur Kristjánsson og Ossur Skarphéðinsson
Flylja tillögu um
hærra aflamark smábáta
EINAR Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, og Öss-
ur Skarphéðinsson, þingmaður Al-
þýðuflokksins, sammæltust um það
við aðra umræðu um fiskveiði-
stjórnarfrumvarpið á Alþingi í
fyrrakvöld að flytja breytingartil-
lögu við þriðju umræðu um frum-
varpið þar sem lyft er því þorskafla-
hámarki smábáta sem kveðið er á
um í frumvarpinu, en það er 21.500
tonn.
í umræðunni kom fram að þing-
mennimir eru sammála um að það
muni ekki hafa nein áhrif á stærð
þorskstofnsins þó þorskafli verði
nokkrum þúsundum tonna meiri en
ráð sé fyrir gert.
„Ég hef margsinnis lýst því yfir
á undanförnum vikum, mánuðum
og árum, að ég hef fyrir því mikla
sannfæringu að hvort það eru veidd
Til Parísar
í viku
FJÖLDI sendinga barst í brúð-
kaupsleik Morgunblaðsins sem
birtist í blaðaaukanum Brúðkaup
- í blíðu og stríðu 28. maí sl. Björg
Hilmarsdóttir og Örn Guðmunds-
son voru dregin út en þau ætla
að gifta sig í Hallgrímskirkju 26.
ágúst nk.
Björg og Örn, sem eru búsett í
vesturbænum í Reykjavík, voru
að vonum ánægð með að hreppa
vinninginn, vikuferð til Parísar
með Heimsferðum. Undirbúningi
brúðkaupsins er að mestu lokið,
en þau voru ekki búin að ákveða
brúðkaupsferðina. Þau voru að
hugsa um vikuferð annaðhvort til
Parísar eða Kaupmannahafnar,
þannig að vinningurinn kemur í
góðar þarfir.
Þau eru bæði 22 ára og við nám
i Háskóla íslands, hún í dönsku
og hann í viðskiptafræði. Þau hafa
hvorugt komið til Parísar og því
tilvalið fyrir þau að njóta þess sem
hér einhveijum 10 eða 20 þúsund
tonnunum meira eða minna við
strendur landsins á þessa krókabáta
getur ekki skipt nokkrum sköpum
fyrir lífríkið," sagði Einar Oddur
meðal annars.
Sagði hann nær fyrir þingheim
að hafa áhyggjur af þeirri sóun sem
ætti sér stað við strendur landsins
með brottkasti fisks vegna rangra
stjómarhátta heldur en þó 10-20
þúsund tonnum meiri afli bærist á
land og skapaði þar með aukna
atvinnu og betri efnahag.
Einar Oddur sagði að aðalvanda-
málið sem blasti við krókaveiði-
mönnum væri að í lögum um stjóm
fiskveiða væri gert ráð fyrir að
veiðidagar þeirra væm ákveðnir
miðað við 21.500 tonna þorskafla.
Spurningin væri hvort menn treystu
sér til að koma til móts við króka-
borgin hefur upp á að bjóða í sum-
ar. I vinningnum er innifalið flug
og gisting í 7 nætur á þriggja
stjörau hóteli, Hotel Belloy, sem
er í hjarta Latínuhverfisins.
Þau sögðust hafa sent inn einn
seðil en síðan látið vini og ætt-
ingja vita af leiknum svo mögu-
leyfismenn. Bauð hann Össuri
Skarphéðinssyni upp á það að flytja
með honum tillögu um ákvæði til
bráðabirgða þess efnis að næstu
2-3 árin yrði dagafjöldi krókabáta
miðaður við hærra aflamark en
kveðið væri á um í lögunum. Sagði
hann að ef slík breyting yrði sam-
þykkt myndi það hafa miklu meiri
áhrif á afkomu krókaleyfisbáta
heldur en ef reglum um sókn smá-
báta yrði breytt úr banndagakerfi
yfir í róðrardagakerfi.
Össur fagnaði því að Einar Odd-
ur hefði lýst því yfir að hann myndi
við þriðju umræðu, að frumvarpi
sjávarútvegsráðherra samþykktu
við aðra umræðu, flytja með honum
tillögu um að auka aflamarkið.
Sagðist hann tilbúinn til að flytja
tillögu um að hækka aflamarkið
um 10 þúsund tonn.
leikar þeirra myndu aukast en
miðinn sem dreginn var út var
reyndar skrifaður af Björgu.
„Við áttum ekki von á að við
myndum fá ferðina svo þetta kem-
ur verulega á óvart,“ sögðu þau
þegar þeim var afhentur vinning-
urinn.
ÖRN og Björg, sem eru 22 ára nemar í Háskóla íslands, voru að
vonum ánægð með að hreppa vikuferð til Parísar með Heimsferð-
um í brúðkaupsleik Morgunblaðsins sem birtist í blaðaukanum
Brúðkaup - í blíðu og stríðu.
Óvenjulegur sjómannadagur
„Verkfallið kemur
á versta tíma
fyrir okkur“
Ingólfur Ásgrímsson
FFÆST fiskiskip lands-
ins hafa verið á sjó
undanfarnar vikur
vegna verkfalls sjómanna.
Fyrir marga er þessi árstími
aðalbjargræðistíminn og
sumir því uggandi yfir
ástandinu. Það er óhætt að
segja að flestir sjómenn upp-
Iifí sjómannadaginn öðruvísi
þetta árið en oft áður.
Á Höfn í Homafirði væri
humarvertíðin í fullum
blóma undir venjulegum
kringumstæðum. Næga at-
vinnu væri að hafa og iðandi
mannlíf á kæjanum. En
vegna verkfallsins eru fisk-
vinnslustöðvarnar lokaðar
og bátarnir bundnir við
bryggju. Það má því búast
við að stemmningin á Höfn
verði öðruvísi á sjómannadaginn
en íbúar Hafnar eiga að venjast.
„Ætli þetta verði ekki einn
versti sjómannadagur sem ég
hef upplifað. Ég held að það sé
ekki spurning," sagði Ingólfur
Ásgrímsson skipstjóri á Höfn í
Hornafirði þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann. „Þetta
verkfall kemur á versta tíma
fyrir okkur hér á Höfn. Að öllu
jöfnu höfum við verið búnir að
veiða helminginn af okkar hum-
arafla um sjómannadag."
„Það liggur náttúrulega mest
öll fiskvinnsla niðri núna hér á
Höfn og eins má segja að það
liggi illa á fólki hér á staðnum.
Hjá okkur í Skinney liggur vinna
alveg niðri vegna þess að við
fáum engan fisk frá smábátum."
- Hvernig eru horfurnar með
humarvertíðina ef verkfallið
leystist jafnvel á næstu dögum
eða vikum?
„Hún verður líklega engin í
ár. Það er alveg hrikalegt áfall,
bæði fyrir útgerð og áhöfn. Það
getur hver maður ímyndað sér
sem hugsar á annað borð. í
gegnum árin hef ég haft u.þ.b.
einn fjórða af mínum tekjum í
maí og byrjun júní. Svo þetta
er ekki glæsilegt mál. En ef
verkfallið leysist mjög fljótlega
þá fara menn á humar, þessir
bátar okkar tveir hérna hjá
Skinney og aðrir bátar hér á
staðnum. En ég fer með mitt
skip á sfld aftur.
Stefnan er auðvitað
sett á norsk-íslensku
síldina."
- Voru humarbát-
arnir búnir að róa eitt-
hvað áður en verkfall-
ið skall á?
„Það var búið að fara einn
humarróður áður en verkfallið
skall á. Það var svona frekar
lélegt þá. Þeir voru með svona
frá 700 kflóum upp í eitt tonn
þessir bátar sem réru héðan.
Humaraflinn hefur alltaf ver-
ið að minnka undanfarin ár
vegna þess að það hefur verið
alltof mikil ásókn í humarmiðin.
Við vöruðum við þessu fyrir
nokkrum árum síðan og vildum
minnka humarkvótann um einn
þriðja en þá var bara hlegið að
okkur.“
- Mér skilst að þú sért kom-
inn á nýtt ogstærra skip. Hvern-
ig gengur það?
„Já, nú þurfti ég að breyta
hugsanagangi mínum,“ segir
Ingólfur og hlær. „Þetta er svo
allt öðruvísi en ég er búinn að
►ingólfur Ásgrímsson er
fimmtugur að aldri. Hann er
kvæntur Siggerði Aðalsteins-
dóttur og eiga þau fjögur
börn. Hann er búsettur á Höfn
í Hornafirði. Ingólfur út-
skrifaðist úr Stýrimannaskóla
íslands árið 1962 og er nú
skipstjóri á Jónu Eðvalds SF
20 auk þess sem hann kemur
lítillega nálægt rekstri Skinn-
eyjar hf.
vera að gera síðastliðin 30 ár.
Það er alveg gjörólíkt að róa á
nýja skipinu. Það er kannski
ekki betra en gamla skipið að
öllu leyti. Þetta eru meiri fjar-
vistir en þetta er náttúrulega
betra skip og það fer betur um
mann. En auðvitað sakna ég
gamla skipsins, Steinunnar. Ég
hef róið á því síðan 1972 og á
annarri Steinunni þar á undan
frá 1968.“
- Hvernig mun ganga að
halda sjómannadaginn hátíðleg-
an þegar að ástandið er svona?
„Ætli menn reyni nú ekki að
bíta á jaxlinn og brosa út í ann-
að. Menn verða að gera það.
En þetta verður náttúrulega allt
önnur stemming en hefur verið
hér í gegnum árin. Maður þekkti
það hér í eina tíð að
þá voru humarbátarnir
oft að koma inn klukk-
an 6 og 7 á sjómanna-
dagsmorgun, svona
áður en fólk fór á fæt-
ur. Menn fóru þá beint
að sofa nema þeir hressustu sem
þræluðu sér kannske í kirkju.
Svo voru menn náttúrulega al-
veg hreint búnir að vera fljótlega
um kvöldið eins og gefur auga-
leið. Þó kom það fyrir að þeir
allra hörðustu hafi verið hressir
ennþá á mánudagsmorguninn.
Þannig að það var mikið betri
stemmning þá heldur en þessi
ósköp nú í ár.
Samt sem áður held ég að
dagskrá sjómannadagsins fari
fram með hefðbundnum hætti.
Það verður kappróður og sigling
á laugardeginum og skemmtiat-
riði á hóteltúninu á sunnudegin-
um. Samkoman í íþróttahúsinu
hér á sjómannadagskvöld hefur
verið með meiriháttar samkom-
um hér undanfarin ár en ég
held að hún verði risminni nú
en áður. Því miður.“
Það verður
allt önnur
stemmning