Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 21

Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995 21 Við verðum bara að búa þessa pen- inga til í hvelli, hugsaði ég. Einn daginn stóð ég við eldhús- vaskinn og hugsaði ákaft um það hvernig við gætum útvegað þessa peninga. Ég bað til guðs, sagði hon- um að okkur vantaði 130 þúsund krónur og bað hann um að gefa mér einhverja hugmynd um hvemig við gætum aflað þeirra. Sjö mínútum eftir bæn mína hringdi síminn. Það var þá hún skólasystir mín frá Kanada sem ég sagði áður frá, Unnur Halldórsdótt- ir, en hún var þá alflutt til landsins. Hún sagði: „Heyrðu elskan, þú ert alltaf að safna aurum til að styrkja hann Óla, hvað segirðu um að hafa veitingasölu?" Ég vissi nú alltaf að guð heyrði vel, en ekki að hann heyrði svona vel. Mér hafði aldrei dottið veitinga- sala í hug, en nú setti ég allt í gang ið lifa. Ég var gerð að formanni, þótt ég hefði nú heldur viljað sitja á kassanum eins og ég var vön. Gjaldkerinn sem félagið fékk var þó ekki af verri endanum, löggiltur endurskoðandi, ekki einhver hús- móðir í Arbæjarhverfi með plast- poka! Við höfðum verið dugleg að fara í ferðalög og heimsækja hvert annað á stórafmælum og vera þá með alls konar sprell, en mér fannst að við þyrftum að hafa eitthvert markmið. Orð Óla, um stað fyrir sig og Jón, leituðu sífellt á mig og mér fannst það háleitt markmið ef við gætum komið upp vísi að heilsuhæli á ís- landi. 1 Ég hafði þá samband við Karl Vigni og sagði að við yrðum að tala saman um framtíð Bergmáls. Þá sagði hann að fyrra bragði: Eigum við ekki að gera eitthvað fyrir Mörg fyrirtæki hafa styrkt okkur og það er alveg sérstakt hvað fólk hefur verið okkur velviljað. Til dæm- is fengum við málningu og spasl gefins og Vouge og Z-brautir hafa gefið gluggatjöld og uppsetningar, auk margs annars. Matvælaframleiðendur sem við höfum leitað til hafa einnig tekið okkur einstaklega vel og við erum búina að fá meðal annars kaffi, smjör, kjöt, hrökkbrauð og salernispappír svo að eitthvað sé nefnt. Það var aðeins einn heildsali sem taldi sig ekki geta gefið okkur sykur. Okkur fínnst það stórkostlegt að fá tækifæri til að styðja við bakið á þessu fólki. Það veit enginn hvað það er að missa heilsuna nema sá sem hefur reynt það. Þegar margir taka höndum saman er hægt að gera stór- kostlega hluti og ég er þakklát fyrir það að vera ein af þeim sem tengir þessar hendur. Þótt við séum búin að fá aðstoð frá mörgum fyrirtækjum og mat- vælaframleiðendum vantar okkur ehn fé. Okkar aðalfjáröflun verður því veitingasalan í Suðurhlíðarskóla á sjómannadaginn. Ég vona að með henni fáum við þá upphæð sem við þurfum til að gera þennan draum að veruleika." Skipulögð kona Kolbrún hefur nú sagt sögu þessa einstaka kórs sem kom saman aftur í þeim tilgangi að syngja og skemmta sér, en gerði það síðan að hugsjón sinni að setja upp vísi að heilsuhæli. Slíkt verkefni útheimtir óhemju vinnu og snúninga og ég spyr Kolbrúnu hvort það hafí ekki hreinlega bjargað málunum að hún var ekki bundin í FRÁ stofnfundi Bergmáls 1992. Þrír af félögunum, Rafnhildur Björk Eiríksdóttir, Jón Hjörleifur Jónsson og Ólafur Ólafsson sem var í sljórninni en er nú látinn. KÓRINN endurreistur á ferðalagi árið 1994, söngstjórinn í lopapeysunni, enn að stjórna. og mestu bökunarmeisturum og dugnaðarforkum félagsins var hóað saman. Við vorum síðan með veit- ingasölu i Suðurhlíðarskóla á sjó- mannadaginn og hvað heldurðu að mikið fé hafi safnast? Jú, kr. 133.000. Ég stormaði niður í banka daginn eftir og keypti 13 þúsund danskar krónur. En guð hafði verið fram- sýnni en ég og reiknað með kostn- aði við gjaldeyriskaup, því að með kostnaði greiddi ég kr. 132.800. Óli fór til Danmerkur og þegar hann kom til baka deildi hann minn- ingum sínum um dvölina þar með sjúklingum sem lágu með honum á Landakoti. Herbergisfélagi hans þar hét Jón og stundum þegar við kom- um í heimskókn til hans minntist hann Danmerkurdvalarinnar og sagði: „Mikið væri það dásamlegt ef til væri svona staður hér heima fyrir Jón og mig.“ Öii barðist við þennan sjúkdóm af miklu æðru- leysi enda mjög trúaður maður, en laut í lægra haldi í ágúst síðastliðn- um. Við fórum upp í sveit á stað sem hann hafði elskað, klipptum lyng í fjóra poka og bjuggum honum krans. Vísir að heilsuhæli Óli hafði verið ein helsta driffjöð- urin í Bergmáli og þegar hann var allur héldum við að dagar félagsins væru taldir. En þá fundum við stíla- bók á náttborðinu hans og í henni stóð skrifað: Lofíð Bergmálinu að lifa, það er alltaf þörf fyrir kærleika. Við hóuðum þá fólkinu saman, ég og Karl Vignir Þorsteinsson, og það voru allir sammála um að láta félag- krabbameinssjúklinga? Hvað segirðu um heilsuviku eða orlofsviku fyrir þá úti á landi? Það var eins og hann hefði lesið hug minn. Við byijuðum á því að hringja í Krabbameinsfélag íslands og báðum þá um að leiða okkur fyrstu sporin. Við höfðum líka samband við heil- brigðisráðuneytið og mættum alls staðar mikilli vinsemd. Nú erum við búin að fá lánaðan Hlíðardalsskóla í Ölfusi í sumar og ætlum að bjóða krabbameinssjúkl- ingum sem hafa fótavist að dvelja þar hjá okkur í viku sér til ánægju og hressingar og að sjálfsögðu þeim að kostnaðarlausu. Við vonumst til að geta tekið á móti 30 manns. Flestir skólar breytast í Edduhótel á sumrin og því vorum við heppin að fá þennan skóla. Þarna er að- staða öll mjög góð, til dæmis er sundlaug á staðnum og við verðum með fólk til aðstoðar í sundinu. Við erum líka búin að fá hárgreiðslu- dömu og fótsnyrtidömu sem munu veita þjónustu sína og Reynir Guðsteins- son skólastjóri mun sjá um kvöldvök- ur. Við ætlum líka að fá félagsfræð- ing og fulltrúa frá tryggingafélagi og banka til að kynna fólki réttindi sín og þá þjónustu sem stendur til boða. Það er ýmislegt sem þarf að gera áður en skólinn verður tekinn í notk- un, eins og að mála, skipta um gluggjatjöld og breikka rúmin, svo að eitthvað sé nefnt, og nú vinna um tuttugu sjálfboðaliðar að þvi undir- búningsstarfí. Við erum þegar búin að fá fé frá gefendum sem ætluðu það til slíkra nota. vinnu frá níu til fímm? „Þó ég vinni ekki frá níu til fimm er ég ekki búin í vinnunni þegar nemendur mínir eru farnir því að þá á ég eftir að hreinsa postulínið, brenna það og gylla. Auðvitað eru þetta snúningar og umstang, en ég er svo heppin að eiga góðan og skilningsríkan eigin- mann og svo hef ég alltaf reynt að skipuleggja störf mín. Máltíðir eru ætíð á réttum tíma á mínu heimili, ég held að það hafi aðeins gerst fímm sinnum í öllum mínum búskap að matartíminn hafí flust til og jóla- gjafakaupum hef ég lokið í júní og pakka þeim þá inn! Þannig að tíminn nýtist vel þegar hann er skipulagður, en ég fer ekki að sofa fyrr en klukkan þijú á næt- urna. Svo sef ég oftast til klukkan tíu á morgnana, en þá vakna ég full af orku, og gæti gengið á fjöll ef út í það er farið.“ En kórinn, er hann hættur að syngja? „Ekki alveg, en okkur vantar karlaraddir. Kórinn er auðvitað sí- syngjandi á ferðalögum og í afmæl- um og það verður heldur betur sung- ið ef vel tekst til með þetta stóra verkefni okkar. Ég hef það á tilfinn- ingunni að þetta sé aðeins byijunin á einhverju miklu stærra. Það eru ekki aðeins krabbameinssjúklingar sem þurfa tilbreytingu með því að komast í orlof, það vantar ekki síður stað sem þennan fyrir hjartasjúkl- inga, sykursýkissjúklinga, MS sjúkl- inga, reyndar hvaða sjúklinga sem er. Eg hef þá trú að ef fólki líði vel andlega líði því líka vel líkamlega. Gleði, góðvild og að sjá björtu hlið- arnár á tilverunni er eitt besta heilsulyfíð." Með þeim orðum kveður þessi kjarnakona og heldur fjáröfl- unarferð sinni um bæinn áfram. É6 VISSI nú allt- al að guð heyrði vel, en ekki að hann heyrði svona vel. | Hjá Qy4)fást fötin Jakkaföt 4.900-14.900 kr. Jakkaföt m/vesti 17.900 kr. Stakirjakkar 2.000-11.900 kr. Stakarbuxur 1.000- 5.600 kr. stofnað 1910 Andrés, ----------- Skólavörðustíg 22A. Póstkröfuþjónusta simi 551 8250. 17. júní tilboð 30% afsláttur á skirtum, peysum, höttum og húfum SPARIBOÐ í JÚNÍ Gildir út júní eða meðan birgðir endast. Kælibox. 18 lítra. 12 V. Dýpt innan: 325 mm Kr. 8.900 - Skrúfjárnasett 6 stk. skrúfjárn ( kassa. Fyrir skoru og stjörnu. Vönduð vara. Kr. 1.800 - Trappa sem nota má sem stiga. Samanleggjanleg. Stærð: 8,3 x 11 x 190 cm (samanbrotin). Kr. 7.900 - Hjólagrind Fyrir tvö reiðhjól. Fest aftan á bílinn á 50 mm dráttarkúlu. Kr. 2.990 - Háþrýstidæla Mjög gott tæki fyrir heimilið og bílinn. 1500W. 240V. 90 bar. Með ýmsum aukahlutum. Stærö: 310 x 180 x 290 mm. Kr. 19.900- Loftborvél Vönduðvél. 1/4". 10mm. ’oTTPT Sóltjöld Hentugar rúllugardínur í bíla, báta og hjólhýsi. 2 stk. í setti.- Breidd 45 cm. Kr. 890 - Lás á ferðatöskur Ól með númeralás. Fyrir töskur og ýmsan farangur. Kr. 470 - uvél Skurðarbreidd: 20". 4 stillingar á grashæð. Briggs & Stratton bensínvél. 3,5 hö. Meö graspoka. Stærð: 1570 x 545 x 1020 mm. Kr. 26.990 - Kr. 6.500 - Tjaldhælar Níösterkir plasttjaldhælar. Obrjótanlegir. Kr. 59 - Kúlur í sæti Nudda þægilega og örva bló&rásína. ^ ggQ Áttaviti Kr. 490 naust Borgartúni 26, Rv. Sími 562 2262 Bíldshöföa 14, Rv. Sími 567 2900 Skeifunni 5A, Rv. Sími 581 4788 Bæjarhrauni 6, Hafn. Sími 565 5510

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.