Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 22

Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 22
22 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Þorkell SIGMUNDUR Andrésson forstjóri Max hf: Við leggjum áherslu á að gera prófanir á flíkunum, bæði visindalegar og hjá notandanum sjálfum. Allur fatnaður hefur farið i gegnum langan þróunarferil. SAMHLJÓMUR f SA UMASKAPNUM VIDSKIFTÚMVINNinÍF Á SUNNUDEGI ►Sigmundur Andrésson er fæddur í Ásgarði í Dölum árið 1939. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla íslands árið 1957 og hóf sama ár störf hjá Búnaðarbanka íslands þar sem hann var til ársins 1960. Hann starfaði hjá Verslunarbanka íslands frá 1960 og hjá Seðlabanka íslands frá 1968 til 1980. Hann hóf sjálfstæðan atvinnurekstur árið 1984 þegar hann keypti fataverksmiðjuna Max hf. Síðar keypti hann Belgjagerðina og Vinnufatagerð íslands og sameinaði fyrir- tækin þijú. Hann hefur verið aðaleigandi og forsljóri fyrir- tækisins frá sameiningu þeirra. eftir Kristínu Marju Baldursdóttur VIÐSKIPTAVINIR gætu haldið að þeir hefðu villst inn á listagallerí þegar þeir koma inn í Max hf í Skeifunni 15, því á öllum veggjum hanga listaverk sem gleðja augað. Max hf er þó ekki vinnustofa myndlistarmanna heldur ein elsta fataverksmiðja landsins. Sigmundur Andrésson forstjóri, segir að fyrirtækið hafi bytjað að kaupa verk myndlistarmanna fyrir um það bil fjórum árum í þeim tilgangi að gera vinnustaðinn fal- legri og auka vellíðan starfs- manna. „Síðan ákváðum við að bjóða listamönnum að halda einka- sýningu á verkum sínum hér í skrifstofuhúsnæðinu og í þetta sinn varð Gígja Baldurs myndlist- armaður fyrir valinu.“ Á kaffistofunni hanga verk í eigu fyrirtækisins og þar spjöllum við Sigmundur saman ásamt fram- kvæmdastjóranum Sævari Krist- inssyni og Grétu Sigurðardóttur skrifstofustjóra. Sameíning „Max framleiðir hlífðarfatnað, vinnufatnað og einkennisfatnað af öllum gerðum og reynir að mæta sérkröfum viðskiptavina, segir Sig- mundur. „Vinnufatnaður er stærsti hluti framleiðslunnar og viðskipta- vinir okkar eru fyrirtæki og stofn- anir um land allt. Æska landsins, böm og unglingar eru einnig við- skiptavinir okkar því að þau hafa kunnað vel að meta kuldagallana og regnfötin frá okkur.“ Fyrirtækið Max var stofnað árið 1941 og framleiddi þá kvenundir- fatnað. Á árunum 1985 og ’86 keypti Sigmundur Andrésson fyr- irtækið og í framhaldi af því Belgjagerðina og Vinnufatagerð Islands, og sameinaði þessi þijú fyrirtæki undir nafninu Max hf. „Það má því segja að fyrirtækið hafi framleitt allt frá léttum kven- undirfatnaði til þyngsta sjófatnað- ar!“ segir Sigmundur. - Er það ekki óvenjulegt að menn kaupi þijú fyrirtæki á skömmum tíma? „Ástandið á íslenskum markaði á þeim tíma var með þeim hætti að ég eygði rekstrarmöguleika í því að kaupa 'þessi fyrirtæki og sameina þau. Sameining fyrir- tækja var ekki eins algeng þá og hún er núna þannig að ég var aðeins á undan tíðarandanum í þeim efnum. Þessi fyrirtæki voru til sölu, þeim fylgdu engin vanda- mál og ég sá fram á hagræðingu með kaupunum. Okkur var ekki spáð góðu gengi í fyrstu, en síðar varð þensla í þjóðfélaginu sem hafði svo aftur jákvæð áhrif á reksturinn.“ „Sigmundur hafði aldrei áhuga á tuskum, það voru einungis rekst- arsjónarmið sem réðu úrslitum,“ segir Gréta skrifstofustjóri, og forstjórinn andmælir því ekki. Vöruþróun Max hf hefur verið til húsa í Skeifunni 15 frá árinu 1986 og er nú fyrirtækið í 2000 fermetra hús- næði. Á götuhæð er verslunin og verksmiðjan en á hæðinni eru skrif- stofur, stór kaffístofa og lager. „Á sínum tíma kölluðu aðstæður á fækkun starfsfólks og á tveimur árunum frá ’89 til ’91 var starfs- mönnum fækkað úr 95 í 60,“ seg- ir Sigmundur. Það tók okkur síðan um hálft ár að ná upp fyrra fram- leiðslumagni. Auk starfsmanna hér í húsinu erum við með sjö undirverktaka víða um land sem sauma Maxfatnað undir okkar eft- irliti, þannig að starfsfólk er hátt á annað hundrað.“ Að sögn Sævars framkvæmda- stjóra kaupir fyrirtækið hráéfni af bestu framleiðendum í Evrópu og Bandaríkjunum, og er Ítalía stærsta viðskiptalandið. „Fatahönnuðir fyrirtækisins hanna fatnaðinn og er Sólbjört Gestsdóttir aðalverkstjóri okkar helsti hönnuður," segir Sævar. „Hún útfærir hugmyndir við- skiptavina en vöruþróun okkar byggist fyrst og fremst á sam- starfí við þá. Við hvetjum þá til að segja okkur sínar leyndustu óskir og þær reynum við að upp- fylla. Orðin „ekki hægt“ eru ekki til í orðabókinni okkar. Stærsti neytendahópur Max eru iðnaðarmenn. Við tökum að okkur að hanna föt fyrir ákveðna vinnu- hópa, og reynum að skapa fyrir- tækjum ákveðna ímynd með því að samræma fatnað starfsfólks. Það er algengt hjá stórum fyrir- tækjum eins og til að mynda Flug- leiðum að samræmi sé í fatnaði starfsfólks, en það hefur verið minna notað hjá fyrirtækjum sem eru með almennan vinnufatnað. En ef menn trúa að starfsemi þeirra sé eftirtektarverð, eiga þeir að samræma fatnað starfsfólks síns því það sýnir að menn eru stoltir af fyrirtækinu. Vinnufötin frá okkur eru sterk, láta ekki lit, hafa ákveðna hreyfívídd og neytandinn fínnur hversu þægileg þau eru. Þau eru aðeins dýrari en innfluttur fatnað- ur en þau skila sér margfalt til baka í betri endingu.“ - Kuldagallarnir sem ungling- arnir fóru að ganga í fyrir nokkr- um árum hafa þó verið hvað mest áberandi frá ykkur, hvernig kom- ust þeir í tísku? „Fyrir um það bil þremur árum gekk tískubylgja yfír erlendis og unglingar fóru að klæðast vinnu- fatnaði dagsdaglega. Þessi tíska barst hingað og Maxgallarnir virð- ast hafa fallið vel inn í dæmið.“ „Við höfum náð tökum á því að framleiða hágæða kuldafatnað á heimsmælikvarða,“ bætir Gréta skrifstofustjóri við. „íslenskir unglingar fóru allt í einu að klæða sig eftir veðráttu. Það komst í tísku, en ég held að það hafi líka haft sitt að segja að unglingar sáu gallana okkar á starfsmönnum uppi í Bláfjöllum. Þau komu ef til vill rennblaut og köld inn í skála og hittu þá fyrir starfsmennina sem voru þurrir og heitir í kuldag- öllunum frá okkur. Kennari nokk- ur hefur líka sagt mér að kulda- gallarnir hafi haft bætandi áhrif á líðan nemenda inni í kennslu- stund. Þau sem eru í göllum koma inn þurr og heit, í stað þess að vera köld, blaut og pirruð. Við þetta má bæta að blöðrubólgutil- fellum hjá ungum stúlkum hefur fækkað verulega eftir að þær fóru að nota gallana." - Hvað ef kuldagallarnir fara úr tísku? „Ég held að kuldagallarnir frá okkur fari aldrei úr tísku því að þegar fólk hefur einu sinni kynnst því hversu gott það er að vera þurr og hlýr í kulda og bleytu, á það erfítt með að sætta sig við annað. Hins vegar er stöðug vöru- þróun í gangi hjá okkur til að mæta breyttum tímum. Nú er til dæmis mikil eftirspurn eftir svonefndum öndunar-og flís- göllum sem eru hliðarvara við samfestingana okkar. Miðað við fyrstu viðbrögð erum við á góðri braut með framleiðslu á þeim göll- um því að eftirspurn er svo mikil að oft er búið að selja vöruna áður en hún er komin á markaðinn." í hita og kulda Sigmundur segist hafa átt von á aukinni samkeppni á innfluttum fatnaði en sú hafí ekki orðið raun- in. „Fólk hefur kosið fatnaðinn frá okkur jafnvel þótt sá innflutti sé ódýrari. Við höfum því staðið af okkur alla samkeppni. Það er metnaður okkar að nota ætíð bestu hráefnin og við leggjum áherslu á að gera prófanir á flíkunum, bæði vísindalegar og hjá notandanum sjálfum. Allur fatnaður framleidd- ur hjá okkur er búinn að ganga í gegnum langan þróunarferil. Vöruþróun fer fram í samstarfi við fagmenn sem nota flíkurnar, eins og björgunarmenn, fjali- göngumenn og reykkafara svo að einhveijir séu nefndir. Fyrstu ís- lensku Norðurpólfararnir, Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson, notuðu til dæmis galla frá okkur og gáfu þeim bestu einkunn. Þeir sögðu að för sinni lokinni að þeir vildu í engu breyta flíkunum, þær hefðu staðist allar hugsanlegar kröfur. Við vinnum að einangrun á varmaleiðni og í því sambandi má nefna að settir voru síritandi hita- mælar inn á fatnað pólfaranna sem skráði líkamlegt ástand og líðan þeirra allan tímann. Reykkafaragallar slökkviliðs- manna sem framleiddir eru hjá okkur þola því mörg hundruð gráðu hita. Gallamir voru prófaðir eftir EES stöðlum og fengu fyrst- ir viðurkenningu fyrir að standast próf þeirra.“ „Varmaleiðni er Iykilorð hjá okkur,“ bætir Sævar fram- kvæmdastjóri við . „Við höldum hita, á þeim sem klífa jökla, og verndum þá sem vaða eld og reyk gegn hita. Þarna er stórt stökk á milli en í vöruþróunarverkefni okk- ar stefnum við að því geta gefið nákvæmar upplýsingar um það hversu mikinn hita eða kulda fatn- aður okkar þolir.“ Veljum íslenskt Rekstur fyrirtækisins hefur ver- ið hagstæður frá upphafí og árleg veltuaukning hefur verið um 8% til 16%. „Þótt markaðurinn innanlands sé dvergmarkaður höfum við ekki undan að sinna honum,“ segir Sig- mundur. „Við höfum því ekki ver- ið með útflutning á vörum okkar svo að nokkru nemi. Við einbeitum okkur hins vegar að því að hanna I i I I ! $ i ts I > i > i i i I ) I I i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.