Morgunblaðið - 11.06.1995, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 23
Islenskir unglingar
fóru allt í einu að klæða
sig eftir veðráttu.
Það komst í tísku.
átti að sýna okkur á táknrænan
hátt að það sama gildir um starfið
í fyrirtækinu. Samhljómurinn
heyrist þegar allir vinna að sama
markmiði.
Starfsmenn taka allir þátt í
verkefninu og fá upplýsingar um
það sem er að gerast. Með ýmsu
móti reynum við að gæta þess að
það séu ætíð tengsl á milli starfs-
fólks á skrifstofu og í verksmiðj-
unni. Þess utan gerum við okkur
stundum glaðan dag, til dæmis
með því að fara saman í árlega
Jónsmessuferð.
Max hf mun í framtíðinni halda
áfram á sömu braut. Við munum
sérhæfa okkur enn meir. Þannig
verðum við á breiðum grunni hæf-
ari til að mæta nýjum kröfum.
Framleiðsla fatnaðar af því tagi
sem við erum með, er örugg í land-
inu.“
Morgunblaðið/Þorkell
UR vinnslusal fataverksmiðj-
unnar sem er ein hin elsta á
landinu. Starfsmenn taka allir
þátt í gæðaverkefninu.
og framleiða sérhæfðan fatnað
sem aðrir framleiða ekki.“
- Eigið þið þá keppinauta?
„Við eigum marga keppinauta.
Sjóklæðagerðin er okkar helsti
innlendi keppinautur, en síðan er
mikil samkeppni við fyrirtæki sem
selja innfluttan fatnað. Okkur
finnst hollt að hafa samkeppni en
við viljum að vara okkar sé metin
eftir gæðum.
Menn sjá strax muninn á jeppa
og fólksbíl, en sjaldnar á flík og
flík svona í fljótu bragði. Ég get
nefnt sem dæmi að fatnaðurinn
sem lögreglan notar núna og sem
framleiddur er í Austur-Evrópu
hleypir 18 sinnum meira vatni í
gegnum sig en lögreglufatnaður-
inn sem framleiddur var hjá okk-
ur. Lögreglan hafði keypt vinnu-
fatnað af okkur, og áður af Vinnu-
fatagerðinni í áratugi, en síðan var
ákveðið að kaupa hann frá Austur-
Evrópu því að þar var hann fram-
leiddur á lægra verði. En lögreglu-
menn hafa margoft sagt okkur
hversu óánægðir þeir eru með
þennan innflutta fatnað."
- Kom samdráttur síðustu ára
á einhvern hátt niður á fyrirtæki
ykkar?
„Það áttu allir von á miklum
samdrætti hjá okkur þegar ríkið
hætti að kaupa af okkur lögreglu-
fatnaðinn, en hið gagnstæða gerð-
ist þvert ofan í allar spár. Það
varð 16% veltuaukning það ár.
íslenskur markaður snerist á sveif
með okkur. En okkur þótti það
nokkuð kaldhæðnislegt að á sama
tíma og stjórnvöld prédikuðu
„Veljum íslenskt", voru þau að
semja við erlenda aðila um kaup
á vöru sem hægt var að framleiða
hér heima.“
Gæðaverkefni
Það hefur verið lítið um manna-
skipti hjá Max, að sögn Sigmund-
ar. „Fólk hefur að vísu hætt út
af aldri, en þó hefur enginn verið
látinn fara af þeim sökum. Um
nokkurt skeið höfum við verið með
gæðaverkefni í gangi í fyrirtækinu
sem við nefnum „Max 2000“, og
er ætlunin að vinna samkvæmt
því til aldamóta. Tilgangurinn með
því er sá að gera fyrirtækið enn
betra og að efla samkennd starfs-
manna þess. Innan fyrirtækisins
starfa því margir litlir gæðahópar
sem koma saman, spjalla um það
sem betur mætti fara og reyna
að finna betri og hagkvæmari leið-
ir. Við erum með sérstaka gæða-
handbók sem sýnir hvernig fyrir-
tækið vinnur. Það verður þá sam-
ræmi í því hvernig fyrirtækið kem-
ur út á við gagnvart viðskiptavin-
unum og þeir fá sömu þjónustuna
hjá öllum starfsmönnum.
Við kynntum starfsmönnum
verkefnið hér á kaffistofunni og
fengum Sniglabandið til liðs við
okkur. Þeir spiluðu fyrst hver um
sig sama lagið en án þess að vera
í takt hver við annan, en síðan
léku þeir lagið eins og vera ber
og þá kom samhljómurinn. Þetta
RÆKTAÐU
ÞAÐ SEM
GEFUR EÉR
MEST
og láttu okkur tryggja þér
stöðugar greiðslur
- allt að 10% á ári
Viltu tryggja...
þér stöðugar greiðslur af sparifé þínu?
Viltu nýta...
bestu tækifæri sem gefast til fjárfestinga
hverju sinni?
Viltu auka...
fjárhagslegt öryggi þinna nánustu
með fjárfestingarábyrgð?
Viltu vita...
af sparifé þrnu hjá traustum aðila
sem veitir þér ítarlegar upplýsingar um
eign þína á þriggja mánaða fresti?
GRUNNVAL með fj árfestingarábyrgð
er ný og einstök þjónusta fyrir sparifjár-
eigendur sem enginn annar býður.
Komdu eða hringdu.
GRUNNVAL
- til að njóta lífsins betur.
y LANPSBREF HF.
hl -
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík,
sími 588 9200, bréfasími 588 8598.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
HfRlrNÚ AUGLÝSINGASTOfA / SÍA