Morgunblaðið - 11.06.1995, Qupperneq 47
/ÍITT
l /
; , ,/MP. (J^
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 47
teikningu, tónlist og almennum fög-
um. Þar sér stað fyrstu athöfnum
hans á listasviði, því félagslífið var
öflugt í skólanum og bauð upp á
áhugaleikhús og tónlistaruppfærsl-
ur, sem Jorn fór fljótlega að gera
skreytingar við. Og skólablaðið gaf
honum möguleika á að skrifa um
aðskiljanlegustu efni, allt frá stjóm-
málum til lista, og hann myndlýsti
það með dúkristum. í nágranna-
byggðinni kynntist hann syndika-
listanum Christian Christiansen og
varð fyrir miklum áhrifum af skoð-
unum hans og gerðist meðlimur í
kommúnistaflokknum. Er Christ-
iansen sagði sig úr flokknum 1933
fylgdi hann honum, en gerðist aftur
meðlimur 1935, en eins og svo
margir miklir myndlistarmenn var
hann ekki leiðitamur, og hafði mjög
ákveðnar og markaðar skoðanir.
Eins og svo margir myndlistar-
menn af landsbyggðinni kynntist
Jorn fyrst núlistarstraumum af vel
mannaðri farandsýningu frá Kaup-
mannahöfn, sem náði til Silkiborgar
1932. Meðal sýnenda voru ýmsir
framsæknustu meistarar danskrar
málaralistar svo sem Edvard Weie
og William Scharff, og þessi kynni
af nafnkunnum málurum höfðu
djúpstæð áhrif á hinn unga mann.
I Silkiborg bjó málarinn Martin
Kaalund Jörgensen, og persónuleg
kynni Jorns af honum urðu enn til
að auka áhuga hans á myndlist og
að teikna og mála. Fyrir tilstilli
Jörgenssens var honum boðið að
sýna þrjú málverk hjá listhópnum
,,Frjálsir jóskir málarar“, sem hald-
in var í Silkiborg sennilega árið
1934. Teningnum var kastað og
segja má að Kaalund Jörgensen,
sem var frekar íhaldssamur málari
hafí óforvarendis átt þátt í að bijóta
blað í danskri núlistarsögu. Eftir
kennaranámið ákvað Jom að leggja
út á listabrautina og lagði peninga
sem hann vann fyrir sér með ýmsum
störfum til hliðar, með lengri utan-
landsdvöl í sigtinu, og hélt til París-
ar á mótorhjóli 1936. Hann hafði
lesið sér til um þróun núlistar á
öldinni, um málverkið frá Picasso
til Kandinsky, og hafði ákveðið að
gerast nemandi hins síðarnefnda.
| Kandinsky hafði búið í nágrenni
Parísarborgar frá árinu 1935, er
nazistar lokuðu Bauhausskólanum.
En þá kom í ljós, að Kandinsky
var hættur að kenna svo að hann
gerðist nemandi í skóla Fernands
Légers, sem kom honum m.a. í
kynni við Le Corbusier. Eitthvað
hefur Léger séð í hinum unga Dana,
( því að hann lætur Jom ásamt tveim
i öðrum nemendum sínum útfæra
J stórt málverk á heimssýninguna í
1 París eftir frumrissi sínu, og fyrir
Le Corbusier stækkaði Jom barna-
teikningar þúsundfalt fyrir „Höll
nútímans".
Það var einmitt á þessari Heims-
sýningu að verk Picassos „Guem-
ica“ var sýnt í fyrsta sinn, sem
hafði sterk áhrif á Jorn, og á þess-
. um tíma kynntist hann einnig verk-
1 um þeirra Klees og Mírós. Er Jorn
| hélt heimleiðis rétt fyrir stríðið var
á hann þannig með úttroðin mal af
ferskum áhrifum í farteskinu og
ekki var að undra þótt hann laðað-
ist að mönnum eins og Egil Jacob-
sen og Eiler Bille, ásamt hópnum
sem kenndi sig við „Línuna“, og
viðurkenndi þar með arfinn frá
Eckersberg, um hið nákvæmt af-
markaða form og virka rými flat-
| anna.
a Línan gaf út tímarit og gekkst
® fyrir frammúrskarandi sýningum,
( °g meðal þáttakenda 1937 voru
ekki minni bógar en Kandinsky,
Klee, Mondrian, Max Ernst og Míró.
Varðandi síðustu sýningu listahóps-
ins 1939 var formáli skrifaður af
Asger Jorn ritskoðaður og klipptur
til af Richard Mortenssen, sem olli
mikilli misklíð. Tímaritið Línan lenti
þar eftir á svo háu fræðilegu plani,
| að menn voru ekki lengur með á
j nótunum, og er „Helhesturinn" hóf
^ útkomu sína 1941, var um aðgengi-
I legri skrif að ræða og tímaritið
varð til að þjappa listamönnum
saman, sem seinna urðu kjaminn í
Cobra. Öðm fremur Egill Jacobsen,
Ejler Bille, Carl Henning Pedersen,
Asger Jorn, Svavar Guðnason og á
næsta leiti Else Alfelt, Erik Thom-
mesen, Sonja Ferlov Mancoba,
Henry Heerup og Robert Jacobsen.
Hins vegar var Richard Mortensen
á einangraðri nótunum.
Listamennirnir sameinuðust í
sýningarhópnum „Haust“ (Höst),
sem á tímabilinu 1936-42 tengdist
listhópnum „Hornið" (Corner, sem
útleggst horn þar sem línur og flet-
ir mætast). Eftir því skal tekið að
á sýningum Hausts og Hornsins
(Höst & Corner) sýndu óhlutbundn-
ir málarar með hlutbundnum og
héngu hlið við hlið í sýningarsölun-
um!
Bakgrunnur þessara málara og
þá ekki síst Asgers Joms voru þann-
ig alþjóðlegir straumar, og um skeið
voru þeir margir undir sterkum
áhrifum frá surrealistunum. En
þeir lokuðu ekki augunum fyrir því
sem næst þeim var og þannig sóttu
þeir áhrif inn fyrir veggi Þjóðminja-
safnsins og þá ekki síst í þjóðhátta-
deildina. Þeir sökktu sér niður í list
frumstæðra;, norrænar hellarúnir,
skreytilist víkingatímabilsjns • og
kalkmálverk þorpskirknanna auk
þess sem þeir löðuðust af barna-
teikningum og list geðsjúkra. þetta
var flest að vísu í ætt við það sem
fyrirrennarnir sunnar á meginland-
inu gerðu löngu áður, en það hjálp-
aði engu síður til að jarðtengja þá
umhverfí sínu og auka vitundina
um norræna menningararfleifð. Hér
var þó ekki um að ræða neina teg-
und af hetjurómantík og því síður
fortíðarþrá, því menn vom með
báða fætuma á jörðinni. Fyrsta
hálfa árið eftir Parísardvölina sótti
hann listakademíuna í Kaupmanna-
höfn, en var mjög á móti kennslu-
forminu í málaradeildinni, en laðað-
ist hins vegar að grafíska skólanum
þar sem Axel Jörgenssen réði ríkj-
um og gerði þar ýmsar tilraunir í
steinþrykki og málmætingu. Þegar
á unga aldri gaf hann út þá yfírlýs-
ingu að grafík og veggmálverk
væru þau tjáform sem honum hugn-
uðust mest og taldist það í and-
stöðu við þjóðfélagsskoðanir hans.
Ofanskráð er bakgrunnurinn á
ferli Asgers Joms, sem á sér einn
samnefnara sem er „atorka“ allt frá
fæðingu til dánardægurs. Og þrátt
fyrir að hann missti svo til heilsuna
i tvígang og var seinna skiptið, í
Silkiborg árið 1953, nálægt dauð-
ans dymm af vannæringu og berkl-
um. Þetta ár var þó. viðburðarríkt
hjá honum og hann málaði stórar
myndir, sem hann gaf bókasafni
Silkiborgar gegn því að það borg-
aði efnið, Meðan hann lá á spítalan-
um höfðu þau Anna og Kresten
Krestenssen keypt stærsta hluta
einaksafns Elnu Fonnesbech- Sand-
berg og þar á meðal mörg málverk
eftir Jorn, Um haustið var safn
Krestenssens hjónanna sýnt á
Charlottenborg til stuðnings „sjúk-
um listamanni" Ágóðanum af inn-
gangseyrinum auk einkasýningar í
listhúsi Birchs á Breiðgötu sem
gekk mjög vel, gerði Jorn kleyft
að yfirgefa Danmörku og setjast
að í Sviss ásamt konu sinni og fjór-
um börnum og safna kröftum. Hann
snéri aldrei aftur til Danmerkur
nema sem gestur og hataðist við
norræna listasögufræðinga, sem
hann taldi halda niðri eðlilegri list-
þróun, liggja kylliflatir fyrir öllu
erlendu og líta niður á norræna
menningu. Helstu einkenni listar
Asgers Joms eru fyrir utan hráan
og umbúðalausan frumkraftinn,
ýmis óljós hlutbundin tákn, sótt í
goðafræðina og dulin óhamin öfl
undirvitundarinnar, þetta borið uppi
af kímni, takmarkalausri leikgleði
og sköpunarþörf. Fuglar, vættir og
furðudýr ólmast um litríkan mynd-
flötinn en allt er þetta borið uppi
af óvenjulega þroskaðri myndsýn.
Á stundum er eins og að um ragna-
rök sé að ræða, en haldið í skefjum
af guðlegri stjórnvisku og ramm-
skorðuð við myndflötinn.
Sumapfllboð
25% afsláttur 12.-16. júní.
Lokað á laugardögum.
marion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
VILTU VÍKKA SJÓNDEILDARHRINGINN?
ÆS Á ISLANDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
Þú hefur tækifæri til að
eignast nýjan f jölskyldumeðlim
Viö óskum eftir fjölskyldum fyrir
skiptinema, á aldrinum 16-19 ára,
frá lok ágúst '95 til byrjun júlí '96,
eða hálft þetta tímabil.
Hvort sem fjölskyldan er stór
eöa lítil, meö ungbörn, unglinga
eða engin börn, þá hefur hún
möguleika á að hýsa erlendan
skiptinema.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
AFS á íslandi, Laugavegi 26,
3. hæð, sími 552 5450.
PHIL.COI
l! Vi li
. endalaus gæði
WMN 862
Þuonavél
Vél með rafeindastýringu sem
skynjar misvægi í hleðslu og
stjórnar vinduhraða. Tekur inn
á sig heitt og kalt vatn.
Vinduhraði er 500/800 sn.mín.
Afköst: 5 kg.
Verð: 52.500,-
WDN 1053
Þvonavéi
og Þurrkari
AlsjáHvirkt þvotta- og þurkkerfi.
Þéttir gufu og er því barkalaus.
Tekur inn á sig heitt og katt vatn.
Afköst: 5 kg. þurrkaraafköst: 2£ kg.
Verð: 75.300,-
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 568 1SOO