Morgunblaðið - 11.06.1995, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 49
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
í
I
!
!
I
í
(
I
t
(
(
beinu brautinni
Landsliðið á
„skotæfingu"
MIKILL áhugi erfyrir landsleik
íslands og Ungverjalands íEvr-
ópukeppni landsliða, sem fer
fram á Laugardalsvellinum í
kvöld ki. 20. Þegar Ungverjar
komu til landsins um hádegið
í gær, voru landsliðsmenn Is-
iands á „skotæfingu" í Keilu-
höllinni í Öskjuhlíð.
að er mikiil hugur í leikmönnum
íslánds fyrir hinn erfiða leik
sem framundan er og allir ákveðnir
að leggja sig alla fram. Tvær breyt-
ingar eru á byijunarliðinu frá leikn-
um gegn Svíum í Stokkhólmi. Hlyn-
ur Stefánsson og Þorvaldur Örlygs-
son eru komnir í leikbann — fengu
að sjá sitt annað gula spjald í leikn-
um gegn Svíum.
Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari,
var ekki búinn að tilkynna hveijir
kæmu í stað Hlyns og Þorvaldar,
þegar Morgunblaðið fór í prentun í
gær, en eftir að hafa séð uppstilling-
ar á æfíngu landsliðsins á föstudag-
inn, er líklegt að Ólafur Þórðarson
og Arnar Grétarsson taki stöður
þeirra á miðjunni.
Byijunarliðið verður þá þannig
skipað: Birkir Kristinsson, Guðni
Bergsson, Ólafur Adolfsson, Krist-
ján Jónsson, Arnar Grétarsson, Ólaf-
ur Þórðarson, Sigurður Jónsson,
Arnór Guðjohnsen, Rúnar Kristins-
son, Arnar Gunnlaugsson og Eyjólf-
ur Sverrisson. *
Arnar hefur skorað bæði mörk
Islands í landsleikjum þessa árs —
gegn Chile og Svíþjóð, í tveimur
jafnteflisleikjum, 1:1. Eyjólfur
Sverrisson skoraði síðast mark með
landsliðinu fyrir tveimur árum, gegn
Ungveijum á Laugardalsvellinum.
Þá fögnuðu íslendingar sigri, 2:0.
Forsala aðgöngumiða hefur geng-
ið vel og verður henni haldið áfram
dag — kl. 11 á Laugardalsvellinum
og einnig á miðbakka við Reykjavík-
urhöfn á meðan hátíðarhöld Sjó-
mannadagsins standa yfir.
Reuter
RISARNIR Hakeem Olajuwon hjá Houston og Shaquille O’Ne-
al hjá Orlando eigast hér vlð undlr körfunnl. Þó svo að O’Ne-
al hafi náð að skora yflr Olajuwon á myndlnnl var það Hous-
ton sem hrósaðl sigri elns og í fyrsta leiknum.
Houston á
- hefur unnið tvo fyrstu leikina í Orlando og
getur nú tryggt sér NBA-titilinn á heimavelli
HOUSTON Rockets hafði mikla
yfirburði í öðrum úrslitaleiknum
um NBA-titilinn gegn Orlando
Magic í fyrri nótt. Meistararnir
sigruðu 117:106 og hafa þvf
unnið tvo fyrstu leikina í Or-
lando, en næstu tveir leikirfara
fram í Houston og ef til fimmta
leiks kemur verður hann einnig
í Houston. Það virðist því fátt
geta komið í veg fyrir að Hous-
ton verji titilinn því það hefur
aldrei gerst í úrslitum NBA-
deildarinnar, að lið sem tapar
fyrstu tveimur heimaleikjunum
hafi orðið meistari.
Bestu leikmenn Houston voru
Hakeem Olajuwon með 34 stig
og Sam Cassell með 31. Clyde Drexl-
er var einnig sterkur og setti niður
23 stig. „Ég er ánægður með stöðu
okkar,“ sagði Olajuwon, sem einnig
tók 10 fráköst.
Shaquille O’Neal var með 33 stig
fyrir Orlando og Anfernee Hardaway
32 stig, en næstur kom Nick Ander-
son með aðeins 11 stig. Hann náði
sér aldrei á strik og eins og hann
væri ekki búinn að jafna sig eftir
að hafa klúðrað fyrsta leiknum fyrir
Orlando, er hann hitti ekki úr fjórum
vítaskotum í röð á lokasekúndum
venjulegs leiktíma. í þessum leik hitti
hann aðeins úr fjórum skotum af 13.
„Við höfum ekki verið að leika eins
og við eigum að gera. Við verðum
að vera grimmari bæði í vöm og
sókn. Þessi orusta er ekki búin því
þeir geta líka tapað á heimavelli eins
og við,“ sagði Ánderson.
Houston, sem hefur nú unnið sjö
útileiki í röð í úrslitakeppninni, hafði
ótrúlega yfirburði og var komið með
20 stiga forskot, 52:32 þegar fjórar
mínútur voru liðnar af öðrum leik-
hluta, en staðan í hálfleik var 63:41.
O’Neal og félagar náðu að minnka
muninn fimm sinnum niður í níu stig,
en nær hleyptu meistararnir þeim
ekki og sigurinn ótrúlega auðveldur.
Sam Cassell var mjög öflugur í
síðari hálfleik, hitti úr átta af tólf
skotum sínum utan af velli og setti
niður fjórar þriggja stiga körfur úr
sex tilraunum. „Við áttum ekkert
svar við stórleik Cassells í þessum
leik,“ sagði Brian Hill, þjálfari Or-
lando.
Morgunblaðið/Þorkell
LANDSLIÐSHÓPURINN í Kelluhölllnnl í gær. Arnór Guðjohnsen varð sigurvegarl í „skotkeppn-
lnni“ og fékk í verðlaun kellu, sem landsllðsmennlrnir árltuðu. Arnór heldur á keilunni.
m f
FACOR 3
GETUR
TREYSTFAGOR
NÝ SENDING
s
FAGOR C31R - 2 pressur
Kælir: 2701 - Frystir: 110 I
HxBxD: 170x60x57 cm
Danfoss kælikerfi
fltgr.kr. S7 .800
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 568 5868
FAGOR S-23N
Kælir: 2121 - Frystir: 161
HxBxD: 122x55x57 cm
Danfoss kælikerfi
Stgr.kr. 38.800
FAGOR D-27R
Kælir: 2121 ■ Frystir: 781
HxBxD: 147x60x57 cm
Danfoss kælikerfi
S^49.800