Morgunblaðið - 12.07.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 11
FRÉTTIR
FULLTRÚAR hreppsnefndar og sveitarstjóri funda með ráðherrum og'fáðuneytissíjóra í gær.
Ríkisstjórnin fjallar um málefni Súðavíkur
Framkvæmt fyrir 140 millj.
Doktor
í verkfræði
• Már Másson hefur lokið dokt-
orsprófi í verkfræði á sviði líftækni
frá Tokyo Institute of Technology.
Már stundaði
rannsóknir á sviði
lífefnanema undir
leiðsögn Masuo
Aizawa prófess-
ors. Rannsóknir á
lífefnanemum
(Biosensors) hafa
verið í örum vexti.
Lífefnanemar
eru mælitæki þar sem sérvirkni líf-
efnisins er tengd beint við rafeinda-
búnað. Með slíkum tækjum er hægt
að gera beina mælingu á efnisstyrk
án þess að til þurfi að koma flókin
og erfið sýnismeðhöndlun.
í doktorsritgerð sinni lýsir Már
m.a. tveimur nýjum hvarfefnum
sem hafa ákjósanlega eiginleika
fyrir þróun á lífefnanemum sem
byggja á þessari aðferð.
Már Másson er fæddur 1963,
sonur hjónanna Jóhanns Más Mar-
íussonar verkfræðings og Sigrúnar
Gísladóttur lyfjafræðings. Már lauk
stúdentsprófi frá MS árið 1983 og
BS-prófi í efnafræði frá Háskóla
íslands árið 1987. Már útskrifaðist
með kandídatsgráðu í efnafræði frá
Kaupmannahafnarháskóla vorið
1990. Um haustið hóf hann svo nám
við Tokyo Institute of Technology
með styrk frá japanska mennta-
málaráðuneytinu. Már er kvæntur
Sigríði Maack arkitekt og eiga þau
einn son, Má, fæddan 1991.
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra,
og Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, funduðu í gær með sveitar-
stjóra og fulltrúum úr hreppsnefnd
Súðavíkur um málefni hreppsins og
framtíðarhorfur.
„Hreppsnefndin óskaði eftir fund-
inum til þess að gera ráðherrunum
grein fyrir stöðu mála. Það voru eng-
ar ákvarðanir teknar, enda stóð það
ekki til,“ segir Ólafur Davíðsson,
ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis-
ins.
Hann segir að um þessar mundir
sé unnið að hættumati fyrir núver-
andi byggð í Súðavík og sé niður-
stöðu að vænta í ágúst.
Einnig sé unnið að reglugerð um
ofanflóðasjóð, þar sem tekið sé á því
hvemig standa skuli að flutningi og
kaupum á fasteignum, sem séu
óskemmdar, en standi á hættusvæði.
„Hún ætti að verða tilbúin á næstu
vikum,“ segir Ólafur.
Loks hafi verið farið í það hvemig
þær framkvæmdir verði fjármagnað-
ar sem sveitarfélagið þarf að standa
fyrir, sem felast í gatnagerð og nýjum
lögnum á nýja svæðinu. Rætt hafí
verið um að allar framkvæmdimar
kosti 140 milljónir króna og finna
þyrfti úrlausn á ijármögnun þeirra.
„Málin verða rædd á ríkisstjórnar-
fundi á föstudaginn kemur og eftir
það verða þau rædd frekar við heima-
menn,“ segir Ólafur. „Það má hins
vegar taka það fram að báðir aðilar
töldu þetta mjög gagnlegan og grein-
argóðan fund.“
Jón Gauti Jónsson, sveitarstjóri í
Súðavík, tekur í sama streng og Ólaf-
ur Davíðsson og segir að fyrst og
fremst hafi verið um stöðumat að
ræða.
Búið að tryggja framgang
framkvæmda á þessu ári
Hann segir að þessar vikurnar sé
unnið í þeim atriðum sem skipti Súð-
víkinga mestu, þ. e. hættumati og
reglugerð um kaup á húsum, sem
sé að komast á umsagnarstig.
Fjármögnun framkvæmda í gatna-
gerð liggi ekki alveg fyrir, en ríkis-
stjórnin sé búin að bjarga því sem
bjarga þarf gagnvart framkvæmdum
þessa árs til að framkvæmdir geti
haldið áfram. Svo séu menn að átta
sig á umfangi verksins og hvað sé
til úrbóta.
Þrjú þvotta-
efni sam-
bærileg
IÐNTÆKNISTOFNUN gerði
könnun fyrir Nathan & Olsen á
hreinsihæfni þriggja þvottaefna,
annars vegar Maraþon Extra frá
Sápugerðinni Frigg og hins vegar
Ariel Ultra og Ariel Future frá
Procter & Gamble, sem flutt er inn
af Íslensk-ameríska. Niðurstöður
þessara prófana voru þær að
Maraþon Extra væri algjörlega
sambærilegt Ariel Ultra og Ariel
Future, sem eru leiðandi á mark-
aðnum.
„Það má taka það fram að þetta
er engin fullnaðarúttekt, en könn-
unin var gerð samkvæmt ráðlegg-
ingum danskra ráðgjafa hjá
dönsku Tæknistofnuninni, sem eru
sérfræðingar á þessu sviði. Þeir
ráðlögðu okkur hvaða bletti ætti
að prófa og miðað við útkomuna
verður að segjast að efnin þijú eru
alveg sambærileg," segir Guðjón
Jónsson deildarstjóri Umhverfis-
og efnatæknideildar Iðntækni-
stofnunar.
„Þetta eru allt mjög frambæri-
leg þvottaduft. Síðan verður að
kanna málið frekar ef á að finna
einhvern blæbrigðamun á efnun-
um, hvað varðar einstakar teg-
undir bletta. Könnunin var gerð
til að komast að því hvort þau
væru sambærileg og svo reyndist
vera. Þá var fyrst og fremst litið
til hreinsihæfni, slits og bleiking-
ar.“
Andlát
DR. GEORGES
JOHNSONS
VESTUR-
ÍSLENDINGUR-
INN, dr. George
Johnson, fyrrver-
andi fylkisstjóri í
Manitoba, lést á
Gimli 8. júlí sl., sjö-
tíu og fjögurra ára
að aldri.
George fæddist 18.
nóvember 1920 í
Winnipeg. Hann
var sonur Laufeyj-
ar Benediktsdóttur
og Jónasar Georges
Johnsons en þau
voru bræðrabörn.
Feður þeirra hjóna voru Halldór
og Benedikt Jónssynir, synir Jóns
Benediktssonar frá Hólum í
Hjaltadal, er fluttist vestur um
haf ásamt fjórum sonum árið
1887. Kona Jóns var Sigríður,
dóttir sr. Halldórs Björnssonar í
Sauðanesi og síðari konu hans,
Þóru Gunnarsdóttur.
George las læknisfræði við
Manitobaháskóla í Winnipeg og
lauk þaðan prófi árið 1950. Hann
lagði stund á lækningar á Gimli
í Manitoba 1950-1958 en var þá
kjörinn á þing fyrir Gimli kjör-
dæmi.
Hann gerðist heil-
brigðis- og velferðar-
málaráðherra í stjórn
fylkisins og árið
1963-1968 var hann
menntamálaráðherra
og heilbrigðis- og fé-
lagsmálaráðherra
fram á mitt árið 1969
en þá urðu stjórnar-
skipti í Manitoba. Eftir
að hann lét af stjórn-
sýslustörfum hóf hann
aftur að stunda lækn-
ingar sem hann var
menntaður til og
stundaði þær þar til
hann var skipaður fylkisstjóri í
Manitoba árið 1987.
George lét mikið að sér kveða
í margs konar framfaramálum í
sínu heimafylki, Manitoba. Hann
beitti sér m.a. fyrir því að fastari
skipan yrði komið á fiskveiðimál
og fisksölu í fylkinu.
George kvæntist Doris Blöndal,
sem var dóttir Ágústs Blöndals,
læknis og listmálara í Winnipeg,
og konu hans Guðrúnar Stefáns-
dóttur. Þau hjón, George og Dor-
is, eignuðust tvo syni og fjórar
dætur.
Vatn flæddi
niður þrjár
hæðir
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kallað að húsi við Baldursgötu um
tvöleytið í gær vegna vatnsleka.
Vatn hafði flætt frá þvottavél
í risíbúð á fjórðu hæð og niður á
hæðirnar fyrir neðan. Að sögn
varðstjóra hjá slökkviliðinu
skemmdist parkett á gólfum en
tjónið í íbúðunum var þó mismikið
eftir hæðum.
Slökkviliðsmenn hreinsuðu upp
vatnið og kölluðu til trygginga-
menn.
-----»..♦ »----
Brotist inn í
Dalbrautar-
skóla
TILKYNNT var á mánudagsmorg-
un að brotist hefði verið inn í
Dalbrautarskóla í Reykjavík. Inn-
brotið hefur sennilega verið framið
um_ síðustu helgi.
Úr skólanum var stolið mynd-
bandstæki, örbylgjuofni, þremur
tölvum, síma, hljómflutrtingstækj-
um, myndböndum og geisladisk-
um.
Málið er í rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Ármúli 17 108 Rvk. S: 533 1234 GRÆIUT IUÚMER: 800 6123
Hjólsagir