Morgunblaðið - 12.07.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 17
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLEIMT
Reuter
Lengi á þingi
ENGINN hefur setið jafnlengi á
Evrópuþinginu og breska þing-
konan Winifred Ewing. A mánu-
dag var haldin móttaka henni til
heiðurs en þá voru liðin tuttugu
ár frá því að hún tók sæti á Evr-
ópuþinginu. Hér skálar hún í vi-
skýi við Klaus Hánsch þingforseta.
Bildt krefst af-
sagnar Persons
Stokkhólmur. Reuter.
CARL Bildt, formaður sænska
Hægriflokksins, krafðist þess í gær
að Göran Persson, fjármálaráðherra
í stjórn jafnaðarmanna, segði af sér
embætti. Sakaði hann Persson um
að hafa sýnt vítavert kæruleysi í
málefnum Evrópusambandsins. Það
væri hneyksli að hann hefði kosið
að fara í frí á sama tíma haldnir
væru mikilvægir fundir í ráðherrar-
áðinu.
„Að vera ijarverandi á fimm
fundum af átta er tákn um kæru-
leysi gagnvart ESB og vítavert
kæruleysi gagnvart Svíþjóð," sagði
Bildt í yfirlýsingu.
Bildt sagði að Persson hefði á
dögunum ekki mætt á mikilvægan
fund, þar sem mat var lagt á sænskt
efnahagslíf. „Það er að mínu mati
nauðsyn að stokka ríkisstjómina
upp þannig að Svíþjóð þurfi ekki
áfram að líða auðmýkingu af þessu
tagi,“ sagði Bildt.
Sænska síðdegisblaðið Expressen
birti í gær mynd af Persson þar sem
hann var að slá grasflöt við sumar-
bústað sinn og sagði í myndatexta
að fjármálaráðherranum væri meira
annt um grasrótina en ESB. Hafði
Expressen eftir honum að allir fund-
ir væru ekki mikilvægir, jafnvel
ekki innan Evrópusambandsins.
Blaðinu tókst hins vegar ekki að
bera afsagnarkröfu Bildts undir
Ingvar Carlsson forsætisráðherra,
þar sem að ekki náðist í hann. Hann
var í fríi. •
ESB hindrar norræna
si ónv arpsáætlun
• BÚIZT er við að framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins (ESB)
muni koina í veg fyrir samkomu-
lag milli norskra, danskra og
sænskra aðila um dreifingu á
sjónvarpsrásum til kapal- og
gerfihnattadiskaeigenda. Að
mati sérfræðinga framkvæmda-
stjórnarinnar brýtur fyrirhugað
samkomulag í bága við sam-
keppnisreglur. Þeir telja nýju
norrænu samsteypuna um rekst-
ur gerfihnattasjónvarps komast í
of mikla yfirburðastöðu á hinum
norræna sjónvarpsmarkaði.
• SVÍ AR styðja umsókn Pól-
lands um inngöngu í Evrópusam-
bandið. Mats Hellström, utanrík-
isráðherra Svíþjóðar, sagði í gær,
þriðjudag, að Svíþjóð muni veita
Pólveijum þá aðstoð sem þeir
geta til að auðvelda þeim inn-
gönguna, m.a. með því að hjálpa
pólskum vörum inn á innri mark-
að Evrópu.
• VACLAV Klaus, forsætisráð-
herra Tékklands, bar í gær til
baka fullyrðingar um, að Tékk-
land myndi hljóta inngöngu í
Evrópusambandið í upphafi
næstu aldar. Portúgalska viku-
blaðið Expresso hafði um helgina
haft þau orð eftir Klaus, að Tékk-
land myndi sækja um aðild að
ESB fyrir ríkjaráðstefnuna 1996
og hljóta inngöngu sennilega
strax eftir aldamótin. Klaus sagði
þetta rangt eftir sér haft; rétt
væri að hann gerði ráð fyrir að
samningaviðræður um ESB-aðild
Tékklands hæfust strax að lok-
inni ríkjaráðstefnunni og að
Tékkar vonuðust til að geta gerzt
aðilar fyrir aldamót.
Finnar vilja draga
úr skjalaleynd
Hclsinki. Morgunblaðið.
FINNSKA ríkisstjómin ætlar að
beita sér fyrir því að öll skjöl Evr-
ópusambandsins (ESB) verði gerð
opinber og aðgengileg fyrir almenn-
ing. Sauli Niinistö dómsmálaráð-
herra segir að fyrst þurfi að endur-
skoða Rómarsáttmálann sem er
stjórnarskrá ESB. Niinistö telur
ólíklegt að þess konar breytingar
geti gengið fram án þess að þær
verðj lögfestar í gmnnsáttmála
sambandsins.
Finnar telja að sameiginlegur
þrýstingur Dana, Finna, Svía og
Hollendinga, muni nægja til að
hrinda breytingunni í framkvæmd.
Löngum hefur verið sterk hefð fyrir
gagnaleynd innan ESB. Niinistö
segir hins vegar að mikil andstaða
í fjölmörgum aðildarríkjum við Ma-
astricht-samkomulagið hafi sýnt
ráðamönnum ESB fram á að leyni-
legur undirbúningur mála sé ekki
alltaf æskilegur.
í stefnuyfirlýsingu Finna er gert
ráð fyrir að allir þegnar ESB-ríkjka
fái aðgang að skjölum sambandsins.
Hingað til hafa engar reglur gert
þetta kleift. Menn hafa fengið upp-
lýsingar úr kerfinu eftir því hversu
góða vini þeir hafa átt meðal emb-
ættismanna í Brussel.
Náinn samstarfsmaður Kohls, kanslara Þýskalands
Sagði af sér vegna ásakana
um kynferðislega áreitni
Bonn. The Daily Telegraph.
HEINZ Eggert, einn varaformanna
Kristilega demókrataflokksins í
Þýskalandsins og innanríkisráðherra
Saxlands, sagði af sér embætti á
mánudag vegna ásakana um að hafa
áreitt nána samstarfsmenn sína kyn-
ferðislega.
Eggert, sem talinn var vera ein
skærasta vonin í flokki Helmuts Kohls
kanslara, er 49 ára gamall, giftur og
fjögurra bama faðir. Hann segir ásak-
animar á hendur sér ekki vera á rök-
um reistar en hann hefði þó ákveðið
að segja af sér þar sem að hann og
fjölskylda hans gætu ekki lengur set-
ið undir ásökunum af þessu tagi.
Það eru fjórir fyrmm samstarfs-
menn Eggert sem halda því fram að
hann hafi áreitt þá kynferðislega. „Ef
yfirmaður hvetur samstarfsmenn ít-
rekað til að sænga með sér er það
ekki lengur sakleysislegt," sagði Oli-
ver Lang, fyrmm talsmaður Egg-
erts. Hann er meðal annars sakaður
um að hafa afklætt sig í návist sam-
starfsmanna, lagt til að þeir horfðu
á klámmyndir í sameiningu og gefíð
ýmislegt í skyni við hina „ungu,
hraustlegu lífverði" sína, líkt og blað-
ið Bild orðaði það.
Eggert er fyrrum prestur og aust-
ur-þýskur andófsmaður. Var hann
einn fárra stjómmálamanna úr aust-
urhluta landsins, sem enn var áber-
andi í forystusveit þýskra stjórn-
málamanna.
í^L
Bolir fró kr. 190
Stuttbuxur fró kr. 590
Pils fró kr. 790
Blússur fró kr. 990
Peysur frókr. 1.190
Buxur fró kr. 1.290