Morgunblaðið - 12.07.1995, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Brýr
skemmdar
á leið í
Fjörður
Grýtubakka, Morgunblaðiö
GOMUL brú, sem sett var
yfir Illagil í Pjörðum skömmu
eftir 1960, er stórskemmd
eftir mikil snjóalög í vetur.
Brú þessi var í mörg ár yfir
Fnjóská á Grenivíkurleið.
Önnur brú er skemmd af völd-
um vatnavaxta en hún er á
Gljúfurá við svonefnt Gljú-
furárvatn. Vegagerðarmönn-
um og bændum úr Grýtu-
bakkahreppi tókst með snar-
ræði að bjarga henni því farið
var að skola frá öðrum brúar-
stólpanum þegar vatnavext-
irnir voru sem mestir í sumar.
Mikill snjór á
leið í Fjörður
Bændurnir sem reka fé sitt
norður yfir Leirdalsheiði hafa
síðustu daga verið að koma
fénu á afrétt, en það er mán-
uði seinna en vant er. Því
hafa verið farnir allt að fjórir
rekstar á sama sólarhring.
Gífurlegur snjór er á þeirri
leið sem farin er yfir í Fjörður
og ekki að sjá að sú leið verði
fær fyrr en seinni hluta ágúst-
mánaðar. Umferð var leyfð í
Fjörður um verslunarmanna-
helgina á síðasta ári eftir að
vegurinn var mokaður viku
áður.
Þrjú tilboð í
hafnargerð í
Ólafsfirði
í GÆR voru opnuð tilboð sem
Hafnasamlagi Eyjafjarðar
b.s. höfðu borist í að gera
þverbryggju, þekju og lagnir
í Ólafsfjarðarhöfn. Tilboðin
voru opnuð samtímis á bæjar-
skrifstofunni í Ólafsfirði og
hjá Vita- og hafnamálastjórn
í Kópavogi.
Alls bárust þijú tilboð í
verkið, öll lægri en kostnað-
aráætlunin, sem var
21.626.724.-. Lægsta tilboðið
kom frá Steypustöð Dalvíkur
hf. og Trésmiðju Ólafsjarðar
hf. að upphæð 18.115.236.-.
Næstlægst var tilboð Trévers
hf. í Ólafsfirði, 18.990.000.-,
en hæst var tilboð Eikaráss
hf. á Egilsstöðum,
19.379.446.-
Engar athugasemdir voru
gerðar við opnun tilboðanna.
Töluvert atvinnuleysi
ATVINNULAUST fólk á Akureyri er nokkru
fleira nú en á sama tíma í fyrra. Tala atvinnu-
lausra í lok maí og júní á þessu ári er um 30-40
manns fleira en um sömu mánaðamót í fyrra.
Atvinnulausir voru í upphafí júlí 489, 205
karlar og 284 konur. Á sama tíma í fyrra var
heildartala atvinnulausra 446, 183 karlar og 263
konur.
Að sögn Sigríðar Jóhannsdóttur á Vinnumiðl-
unarskrifstofunni á Akureyri segja þessar tölur
eingöngu hver staða skráninga var um mánaða-
Tala atvinnulausra í lok maí
og júní 30-40 manns fleira
en á sama tíma í fyrra
mót, en í heild voru 862 skráðir atvinnulausir í
júnímánuði. Þar kom vinnustöðvun vegna sjó-
mannaverkfalls nokkuð við sögu þar sem vinna
féll niður hjá ÚA. Sigríður sagði mikla hreyfíngu
á þessum málum, fólk kæmi inn á skrá og færi
út af henni. Fyrstu 10 daga júlímánaðar voru
þannig 22 nýir skráðir atvinnulausir en á sama
tíma fóru 12 út af atvinnuleysisskrá.
Sigríður sagði að á meðal atvinnulausra væri
nokkuð af skólafólki, en verið væri að koma
málum svo að allir 16 og 17 ára fengju ein-
hvetja vinnu á vegum bæjarins. Talsvert af
skráðum atvinnulausum í júní væru framhalds-
skólanemar, sem ekki hefðu verið búnir að út-
vega sér vinnu. Annars væru atvinnulausir mjög
blandaður hópur bæði hvað varðar aldur og fyrri
störf.
Úrgangsgúmmíi breytt í millibobbinga og öryggishellur
Listasumar
5.000 tonn
falla til
árlega
GÚMMÍVINNSLAN á Akureyri
hefur nú starfað í 12 ár og er elsta
endurvinnslufyrirtækið í Græna þrí-
hyrningnum við Réttarhvamm. Þar
eru sólaðir hjólbarðar af ýmsu tagi,
hvort tveggja hjólbarðar sem notað-
ir eru aftur og aftur með nýjum
sólum og einnig eru fluttir inn not-
aðir hjólbarðar og sólaðir hér.
Eitt meginverkefni Gúmmí-
vinnslunnar er endurvinnsla á
gúmmíi. Þar er unnið úr öllum
gúmmísalla sem til fellur við sóln-
inguna hjá fyrirtækinu og auk þess
eru fiutt til Gúmmívinnslunnar ár-
lega um 200 tonn af gúmmísalla
frá fýrirtækjum í Reykjavík. Þá
hefur einnig verið flutt inn hráefni
til vinnslunnar.
40 tonn flutt út
Þórarinn Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar
segir aðalafurðir verksmiðjunnar
vera millibobbingar fyrir skip, ör-
yggishellur til nota á barnaleikvöll-
um og við sundlaugar, og básamott-
ur, sem mikið eru notaðar í fjósum
og hesthúsum.
Þórarinn sagði að sala á vörum
fyrirtækisins gengi þokkalega.
Gúmmívinnslan hefði megnið af
markaðinum í millibobbingum hér-
lendis og um 40 tonn af þeim hefðu
verið flutt út til Noregs, en í bígerð
væri að auka þann útflutning.
Öryggishellur úr gúmmíi eru nú
komnar á barnaleikvelli víða. Þá
hafa hellur úr gúmmíi einnig verið
notaðar í görðum, við sumarhús og
í sólpalla, ekki síst við sundlaugar.
. Endurvinnsla er
auðlindavernd
Þórarinn sagðist vilja leggja
áherslu á að fólk notaði í auknum
mæli vörur úr endurunnum efnum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ÞÓRARINN Kristjánsson í verksmiðju Gúmmívinnslunnar hf.
Endurvinnslunni fylgdi vemdun auð-
lindanna, sem sífellt hefði verið
gengið á alla mannsins tíð, og þær
væru ekki óþijótandi. Auk þess fylgi
því mikill spamaður að nota endur-
unnar vömr, til dæmis að láta sóla
hjólbarða sína aftur og aftur og
spara með því gúmmíinnflutning.
Þórarinn sagði að þokkalega
gengi að afla hráefnis til vinnslu
hjá Gúmmívinnslunni, en einn galli
væri þó á og hann nokkuð stór.
Ekki væru enn til hér á landi tæki
til að tæta gamla hjólbarða og gera
úr þeim nýtilegan salla til gúmmí-
vinnslu. Þetta horfí þó væntanlega
til bóta. Hjólbarðafyrirtæki hér
hyggist efna til söfnunarherferðar
á ónýtum hjólbörðum og vél sem
geti tætt þá og fínmalað.
4.000-5.000 tonn falla til á ári
af gúmmísorpi á íslandi.
Fullkomin
sorpmóttaka
Endurvinnslufyrirtækin þijú,
Gúmmívinnslan, Endurvinnslan og
Úrvinnslan, standa öll í hnapp við
Réttarhvamm og Þórarinn nefnir
svæðið Græna þríhyrninginn. Að
sögn hans er stefnt að því að á
svæðinu austan við þessi fyrirtæki
komi Akureyrarbær upp fullkom-
inni sorpmóttöku.
Þar verði hægara en nú er að
sundurgreina sorp og koma því í
endurvinnslu þar á staðnum sem
mögulegt sé. Framkvæmdir við
þetta munu trúlega hefjast á þessu
ári.
'TjWrí
0|SbaaflD|SI 0t*
fCB Qafl« •ÐOOBBfil
HELGA Bryndís
og Hólmfríður
Bak við hina bláu jökla...
í KVÖLD verður kvöldstund
í Davíðshúsi. Þar munu Hólm-
fríður Benediktsdóttir sópran-
söngkona og Helga Bryndís
Magnúsdóttir píanóleikari
flytja dagskrá í tali og tónum
sem þær nefna „Bak við hina
bláu jökla er brúðurin hans.“
Dagskráin er í tilefni þess
að hundrað ár eru frá fæðingu
Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi og einkum verður
ijallað um konur í ljóðum
skáldsins. Kvöldstundin hefst
klukkan 21.00.
Einkaritari biskups
Óskað er eftir ungri, duglegri, jafnlyndri og andlega sinnaðri
manneskju. Góð kunnátta í ensku og vélritun nauðsynleg.
Fæði, húsnæði og dálítil laun.
Umsóknir, ásamt Ijósmynd og upplýsingum um fyrri störf,
sendist í Eyrarlandsveg 25, 600 Akureyri.
BIFREIÐASTÆÐASJ ÓÐUR
AKUREYRAR
Fjölgun gjaldskyldra stæða
Frá og með mánudeginum 10. júlí eru eftirtalin stæði á al
mennu bifreiðastæði austan Skipagötu gerð gjaldskyld og
komið þar fyrir stöðumælum.
a) 8 stæði í suðurlínu á móts við Kaupvangsstræti 4.
b) 10 stæði í norðurlínu á móts við Skipagötu 12.
Gjaldskrá er hin sama og við aðra stöðumæla eða 10 kr.
fyrir hverjar byrjaðar 15 mín. og hámarksstöðutími 1 klst.
Jafnframt er á hvorum þessara staða merkt eitt stæði fyrir
fatiaða. , „
Akureyri, 6. juli 1995.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
Fimmtudagur 13. júlí
Kl. 18.30-21.00: Kynning á framléiðslu fyrirtækja í sjávarútvegi.
Sjávarréttahlaðborð á Hótel Ólafsfirðir.
Kl. 20.30-21.45: „Horfðu glaður um öxl.“ Söguannáll Ólafsfjarðar
sýndur í Tjamarborg. Miðapantanir í Tjamarborg
kl. 17-21 ísíma 466 2188.
Föstudagur 14. júlí
Kl. 20.30: Tónlistarveisla. Ólafsfirskir atvinnumenn tlytja
blandaða dagskrá í Tjarnarborg.
Kl. 23.00-03.00: Vinafundir á hótelinu og Grillbamum. „Pöbbarölt“.
Laugardagur 15. júlí
Kl. 13.00-03.00: Fjölbreytt dagskrá frá hádegi og i'rain á rauða nótt.
Sýningar í Náttúrugripasafni, bamaskóla og gagnfræðaskóla
og galleríi handverksfólks í Tjarnarborg opnar á hverjum degi
frá kl. 13.00-18.00.
60 ára ($96
Röktu bolta
í áheita-
hlaupi
ÞESSI vasklegi hópur ungra
körfuboltamana í Þór á Akureyri
tók þátt í áheitahlaupi frá Dalvík
til Akureyrar um fyrri helgi. Að
sögn Baldvins Sigurðssonar voru
þátttakendur alls um 60 á aldrin-
um 12-18 ára og hlupu þeir um
það bil 2 kílómetra hver og röktu
á undan sér körfubolta.
Tilgangur hlaupsins sagði Bald-
vin að safna fé ti! að standa straum
af leigukostnaði við æfingahús-
næði í sumar, sem börnin þurfa
að greiða að hluta til sjálf. Með
því væri taisvert á börnin lagt, en
á meðan yfirvöld veittu ekki frek-
ari fyrirgreiðslu en nú er yrði að
beita aðferðum sem þessum.
Baldvin sagði að hlaupið frá
Dalvík hefði gengið vel og safnast
töluvert fé í sjóð, meðal annars
hefðu margir vegfarendur stans-
að og rétt seðla að hlaupurunum.
>
s
)
>
i
i
í
>
\
i
i
i
i
i
i