Morgunblaðið - 12.07.1995, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 12.07.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 13 LANDIÐ ii3b1 MEÐ fjóra bíla í eftirdragi. Heimsmetin slegin Egilsstöðum - Magnús Ver Magn- ússon var sérstakur gestur á Sum- arhátíð UÍA sem haldin var á Eiðum um síðustu helgi. Þar setti hann tvö heimsmet, að kasta dekki yfir rá og draga fjóra bíla. Magnús átti sjálfur heimsmet fyrir í að kasta dekki yfir rá, 9 m, en Gary Taylor hafði jafnað það. A Eiðum kastaði Magnús dekkinu yfir 9,50 m og setti þar með nýtt heimsmet. Fjórir bílar í togi Magnús sýndi gestum á Sumar- hátíðinni að hann er sterkasti mað- ur heims, því hann dró fjóra fólks- bíla sem bundnir voru saman 20 m vegalengd. Slíkt hefur aldrei verið gert áður og það sem gerir þrautina enn erfiðari, var það að bílarnir voru dregnir á grasi. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir MAGNÚS Ver kastar dekkinu vel yfir 9,50 m. Búkolla er fimmta bindið Vaðbrekka - Út er komin hjá Bún- aðarsambandi Austurlands bókin Sveitir og jarðir í Múlaþingi 5. bindi, Búkolla. Búkolla er framhald bók- anna Sveitir og jarðir í Múlaþingi er komu út í fjórum bindum á árun- um 1974-1978. Ákveðið var árið 1992 að ráðast í þessa útgáfu. Unnið var að útgáf- unni árin 1993 og 1994 undir stjórn ritnefndar er í sátu Ármann Hall- dórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson. í bókinni eru upplýsingar um öll býli á Austurlandi árabilið 1974 til 1994, einnig eru í bókinni sveitalýs- ingar allra sveita á Austurlandi ásamt yfirlitskorti yfir hverja sveit fyrir sig. Hvert býli hefur eina síðu í bókinni þar sem fram kemur þró- un, vélarkostur, hlunnindi ef ein- hver eru ásamt húsakosti. Einnig eru litmyndir af bæjum og ábúend- um í bókinni yfir 1.500 talsins og gera myndirnar gildi bókarinnar mikið meira þó þær hleypi upp kostnaði við útgáfuna, en heildar- kostnaður vegna útgáfunnar er um 15 milljónir króna. Bókin fæst hjá Búnaðarsambandi Austurlands á Egilsstöðum og kost- ar 12.900 krónur. 800 manns á sumar- hátíð UÍA Egilsstöðum - Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands hélt sína árlegu sumarhátíð á Eiðum, um síðustu helgi. Þar komu saman iðkendur íþrótta frá svæði UIA, þ.e. Bakkafirði í norðri til Djúpa- vogs í suðri. Sumarhátíðin er stærsta fijálsíþróttamót sem hald- ið er á svæðinu á hverju ári og ennfremur er keppt í pollaknatt- spyrnu. Um 7-800 manns voru á hátíðinni. Fj ölskylduhátíð Sumarhátíð UÍA er í senn íþrótta- og fjölskylduhátíð, því boðið var upp á ýmis skemmtiatriði alla helgina. Laddi kom fram í ýmsum gerfum, sungið var yið varðeld, dansað á tjalddansleik og Magnús Ver sterkasti maður heims sýndi krafta sína. Fimmþraut Lyftingasamband íslands kynnti fímmþraut, og var það í fyrsta sinn sem þessi grein er kynnt hér á landi. Þeir unglingar frá UIA sem kynntu þessa grein á hátíð- inni munu sýna þessa íþrótt á Unglingalandsmóti UMFÍ um næstu helgi. !0»P^ 0/VŒHL.IL Fulltrúar íþrótta- félaga gengu 1 skrúðgöngu við upphaf hátíðar- dagskrár. Verðlaunahaf- ar á Sumar- hátíð UÍA. :muTiuFP'?m GLÆSIBÆ • S/Mf 581 2922 • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó « Verður fyrsti vinningurinn í Víkingalottóinu millj. kr. ? Freistaðu gæfunnar - kannski er röðin komin að þér! • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Vikingalottó • Vikingalottó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.