Morgunblaðið - 12.07.1995, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 45
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
Marlon Brando ]öhnny Depp Faye Dunaway
Ó.H.T. Rás 2
★ ★★ g.b:óv
cm ákco
Ef þú hefðir elskað
1500 konur, myndir
þú segja kærustunni
frá því?
Johnny Depp og
Marlon Brando,
ómótstæðilegir í
myndinni um
elskhuga allra tima
Don Juan DeMarco
Bjpndo hefur
jirglfyhjt, hann
;emmtiljtér og
pllum óðrbm
Konunglegs.
^JGAZIN^^
Mmkmfc
Komdu á HEIMSKUR HEIMSKARI strax,
Þetta er einfaldlega fyndnasta mynd ársins. Aöalhlutverk: Christopher Lambert og
Það væri heimska að bíða.
John Lone.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
I
Sýnd kl. 5, 7. 9 og 11.05. B.i. 16 ára.
FEIGÐARKOSSINN
FRÁBÆRLEGA VEL
HEPPNUÐ SPENNU-
MYND EINS OG ÞÆR
GERAST BESTAR.
AÐALHLUTVERK: David
Caruso (NYPD Blue),
Nicholas Cage (It Could
Happen To You,
Honeymoon In Vegas, Wild
At Heart) og Samuel L.
Jackson (Die Hard With
Vengeance, Pulp Fiction,
Patriot Games).
Leikstjóri: Barbet
Schreoder (Single White
Female).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
JÓNSMESSUNÓTT
Before
SUNRISE
A Ric|iard I^únklatcr Film
S.V
EITT SINN STRÍÐSMENN
Galdur opnar
kvikmyndahús
MAGIC Johnson, körfuboltahetjan eydnismit-
aða, opnaði nýlega nokkur kvikmyndahús.
Hann tekur ekki fyrir að einhvern daginn kunni
hann að birtast á hvíta tjaldinu í einu þeirra. ^"
Hann segist hafa neitað nokkrum tilboðum um
að leika í kvikmyndum, þrátt fyrir að hafa
áhuga á kvikmyndaleik.
„Eg er að bíða eftir að mér bjóðist eitthvert
einstakt, lítið hlutverk,“ segir Johnson. „Ég
myndi leika með góðum leikurum, þannig að
ég myndi læra eitthvað um kvikmyndaleik. Ég
vil ekki leika í kvikmynd bara til þess að leika
í kvikmynd,“ segir galdramaðurinn vinalegi.
MEÐAL gesta var
tveggja ára stúlka,
Dawn Michelle Coll-
ins. Amma hennar er
íslensk og heitir Ást-
hildur Schwab.
íslensk fána-
hylling í aðal-
stöðvum NATO
51. þjóðhátiðardags íslendinga
var minnst að venju í aðalstöðv-
um Atlantshafsbandalagsins í
Norfolk með fánahyllingu og sér-
stakri móttöku gesta. Atli Stein-
arsson, fréttaritari Morgunblaðs-
ins, var viðstaddur.
Athöfnin fór fram 16. júní og
var fáni íslands þá dreginn að
húni við sérstaka athöfn með til-
heyrandi lúðrablæstri hljóm-
sveitar flotans. Aðalræðismaður
íslands í Virginíu, Jerry Parks,
afhenti tveimur sjóliðsforingjum
íslenska fánann og í lok athafn-
arinnar veitti hann viðtöku tré-
skildi með fánum allra aðildar-
ríkja bandalagsins ásamt ágröfn-
um skildi til minningar um at-
höfnina.
Eftir athöfnina var boðið til
móttöku innanhúss með léttum
veitingum. Konur í íslendingafé-
laginu í Norfolk, þær Bryndís
McRainay, Sesse^ja S. Seifert og
Kristín Golden juku við þær veit-
ingar með því að koma með hlað-
in föt af kleinum, pönnukökum
með rjóma og sykri og brauðsn-
ittur. Var þessum íslensku veit-
ingum vel fagnað og segja má
að fötin hafi tæmst á augabragði.
Um 30-40 íslendingar voru við-
staddir fánahyllinguna ásamt
fjölda fulltrúa annarra aðildar-
ríkja Atlantshafsbanda- .
lagsins. Meðal gesta var
frú Ransy Morr, íslensk
kona sem er blaðaljós-
myndari í Newport
News. Tók hún með-
fylgjandi myndir.
TONOST
Gcisladiskur
„TEIKA“
Bubbi Morthens og G. Rúnar Jú-
líusson „Teika. Bubbi syngur og
leikur á raf- og kassagítar, Rúnar
syngur og leikur á rafbassa og
kassagítar, Bergþór Morthens leik-
ur á rafgitar og raddar, Gunnlaug-
ur Briem leikur á trommur og slag-
verk og raddar, og Þórir Baldurs-
son leikur á Hammondorgel og
raddar. Bubbi og Rúnar útsettu
lögin, sem eru öll eftirjiá, Bubbi
stjórnaði upptöku, en Oskar Páll
Sveinsson sá um hljóm og hjjóð-
blöndun. Skífan gefur út, 37,23
mín., 1.999 kr.
ÞAÐ ÞÓTTI saga til næsta
bæjar þegar þeir félagar Bubbi
Morthens og Rúnar Júlíusson
brugðu sér í hljóðver að taka upp
breiðskífu fyrir margt löngu.
Fyrir skemmstu kom svo út þriðja
platan sem þeir gera saman,
„Teika“.
í samstarfinu hafa þeir Bubbi
og Rúnar leyft sér að daðra við
hvaðeina sem þeim dettur í hug,
bara það sé rokkkyns. Á „Teika“
bregður þannig víða fyrir hug-
myndum úr ýmsum áttum, en
þeir sem amast við því skilja
ekki hvað er á seyði, rokkarfur-
inn er sameiginlegur og gamanið
er oft einmitt helst fólgið í því
að vitna í eða næla sér í innblást-
an, eða ljúfsárt eins og í Mikið *
ertu Ijúf.
Bestu lög þeirra Bubba og
Rúnars verða til þegar þeir beita
saman röddunum með sínum
ólíka lit í kaflaskiptum, eða text-
inn er saminn sérstaklega fyrir
tvær raddir. Það gengur síður til
að mynda í Ilmandi hörundi sem
hefði betur hentað fyrir einn
söngvara og er fyrir vikið eitt
sísta lagið á plötunni. Annað lag
sem ein rödd hefði hentað betur
er Þessi kvöð, en það er líka með
slakan texta. Öllu betri eru text-
ar eins og Vímuefnahraðlestin
og afbragðs textinn við Aula-
klúbbinn, sem er nöturlega raun- .
sönn mynd af sjálfsvígsmýþunni
sem heillaði Kurt Cobain.
Útsetningar á plötunni eru oft
innblásnar eins og á Mikið ertu
ljúf, Aulaklúbbnum og Vímu-
efnahraðlestinni, þó þeir félagar
nái varla þeirri kæruleysislegu
nákvæmni sem einkennir gott
reggi. Þórir Baldursson á stórleik
á plötunni og orgelleikur hans
stelur senunni hvað eftir annað,
en einnig er lipur gítarleikur
Bergþórs Morthens víða eyma-
yndi.
„Teika“ er um margt vel
heppnuð plata og kaflar eru sér-
deilis vel heppnaðir, en þeir félag- '
ar hefðu mátt gefa sér meiri tíma
í lagasmíðar og hugsa suma text-
ana upp á nýtt.
Árni Matthíasson
Daðrað við
rokkarfinn
„Teika“ þeirra Bubba Morthens og Rúnars Júlíussonar er um
margt vel heppnuð plata og kaflar sérdeilis vel heppnaðir.
ur án þess þó að stela, eins og
í Konur og vín, Þetta líf, Vímu-
efnahraðlestin og Aulaklúbbur-
inn, sem vísar beint í Bob Dylan
sjöunda áratugarins og gerir lag-
ið skemmtilegra fyrir vikið;
Bubbi og Rúnar nýta sér hu-
grenningar sem kunnuglegir
frasar vekja og spinna við eigin
þel, myrkt eins og í Aulaklúbbn-
um, sem er eitt það besta sem
þeir félagar hafa tekið upp sam-
--------------
Morgunblaðið/Ransy Morr