Morgunblaðið - 30.07.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 30.07.1995, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sigurbur Geirdal, bajarstjóri í Kópavogi, býst vib ab Hafnfírbingar verbi orbnir fíeirl en Kópavogsbúar í árslok: NÆSTA, gjöri svo vel! VEIÐIMAÐUR þenur sig með fluguna f Kvörninni í Haffjarðará. Sjóbleikja sums staðar aðalfiskurinn GÓÐAR veiðifréttir berast víða að og sums staðar er það ekki bara laxinn sem skilar sér, heldur sjó- bleikjan, s.s. í Hörðudalsá og Miðá í Dölum, en í báðum hafa verið miklar bleikjugöngur að undan- förnu, auk þess sem fyrstu laxa- göngurnar hafa skilað sér. Fyrsta skotiðí Miðá ' Ifyrir'stuttu kom fyrsta skotið í Miðá í Dölum, en þá veiddust á tveimur dögum 15 iaxar og næsti hópur veiddi nokkra að auki. Báðir hópar voru að auki í hörkugóðri sjóbleikjuveiði og að sögn er margt af bleikjunni yfir 2 pund og allt að 4 pund. Sjóbleikjan veiðist bæði á flugu og maðk, en ýmsir hafa náð leikni í að veiða hana á flugu með nettum tækjum og gefur þá glíman því lítt eða ekkert eftir að kljást við lax. Líka í Hörðudalsá Það hefur verið rífandi bleikju- veiði í Hörðudalsá í Dölum. „Síð- asti hópur fór með 110 fiska, þar á undan veiddi hópur 70 fiska og þar á undan 52 bleikjur. Þetta eru orðnar alls um 300 sjóbleikjur og 10 til 15 laxar. Þetta er hörku- veiði, því jietta er tekið á aðeins tvær stangir á tveimur dögum,“ sagði Jójhann Sigurðarson leikari, sem er einn-leigutaka árinnar í samtali við Morgunblaðið í viku- lokin. Sagði Jóhann mikið af bleikjunni vera 2 pund og allt upp í 4 pund. Megnið hefur veiðst á flugu, en bleikjan tekur einnig maðk. Hörkuveiði í Blöndu Undir lok vikunnar voru komnir 375 laxar á land af neðra svæði Blöndu og 65-70 af efra svæðinu. Um teljarann LEnnisflúðum höfðu farið yfir 1.000 laxar og talsverðar smálaxagöngur höfðu farið um svæðið síðustu daganna. „Það má segja að það hafi verið linnulaus taka að undanförnu, oftast að veið- ast 10 til 15 laxar á dag og menn missa auk þess mikið. Góð bleikju- veiði hefur auk þess verið í ánni, einkum á efra svæðinu," sagði Jón M. Jónsson hjá Stangaveiðifélaginu Flugunni á Akureyri, sem er leigu- taki árinnar. Stærsti laxinn til þessa í sumar var 20 pund, en uppistaðan að undanfömu hefur verið feitur og fallegur smálax. Öflusá og Hvítá líflegar Talsvert virðist vera af laxi víða á vatnasvæði Hvítáf og Ölfusár, t.d. fyrir landi Snæfoksst^ða. Að undanförnu hefur vþiðin þar tekið vel við sér og mikill lax verið á lofti á svæðinu. Lítið Veiddist þarna framan af, en síðustu daga hefur ræst úr og þar munu komnir um 40 laxar á land, þar af einn 20 punda sem Sævar Garðarsson veiddi á spón. Sogið lifnar verulega Ágætisveiði hefur verið í Soginu að undanförnu, sértsaklega í Al- viðru og Ásgarði, en undir lok vik- unnar höfðu veiðst 50 laxar á fyrr- nefnda staðnum, en 40 í Ásgarði. Mun minna hefur verið í Bíldsfelli, en þess meira af rokvænni bleikju og hafa sumir fengið mokafla. Syðri Brú hefur valdið vonbrigðum til þessa. Þrastarlundarsvæðið hef- ur einnig gefið góð „skot“. Einn líksnyrtir starfar hérlendis Mjög andlega krefjandi starf Erla Pálmadóttir ERLA Pálmadóttir er eini starfandi lík- snyrtirinn hérlend- is en á annað þúsund lík fara um hendur hennar á ári. Þetta er í raun braut- ryðjendastarf því ekki var unnið markvisst að líksn- yrtingu fyrr en_ hún kom til starfa 1991. Áður höfðu starfsmenn kirkjugarð- anna reynt eftir bestu getu að greiða og laga hina látnu. Erla segist hafa komið til starfa með áhug- ann einan að vopni en hélt sama haust til Hollands og Danmerkur og lærði lík- snyrtingu hjá stórri útfar- arstofnun í Amsterdam. Erla segir að Island sé miklu fremra öðrum lönd- um Evrópu í snyrtingu hinna látnu og sé nær Bandaríkj- unum í þessum efnum, þar sem lögð er áhersla á látleysi og feg- urð, þvert á það sem margir halda. Hún telur dauðann vera eitt þeirra mála hérlendis sem aldrei megi ræða til fulls, þó er hann það eina sem örugglega liggur fyrir okkur öllum. Dauðinn hafi ijarlægst okkur og því standa margir frammi fyrir miklum ótta við hann og hinn látna. í líkhús- inu, sem er hennar vinnustaður, sé hins vegar friðsæld og mikla vernd að fmna. - Hvaða kostum þarf góður líksnyrtir að vera búinn? „Mannleg samskipti eru grund- völlur starfsins því líksnyrtir þarf að kunna að umgangast syrgjend- ur. Fólk lærir ekki á skólabekk að geta haldið utan um fólk og stutt það í gegnum sorg sína. Eg vil ekki kasta neinni rýrð á karl- menn en ég held að þessir þættir séu konum eðlislægari en körlum og að auðveidara sé fyrir okkur að taka utan um syrgjendur og sýna af okkur blíðu. Góður lík- snyrtir þarf fyrst og fremst að geta unnið markvisst, tekið á móti fólki og gefið af sér. Hann þarf að búa yfir mikilli hlýju, jafn- framt því að gæta sjálfs sín ákaf- lega vel því að þetta starf tekur mikið frá manni og því er aidrei hægt að venjast. Nærgætnin verður að vera afar ríkuleg, því að eitt rangt orð á röngum stað getur valdið miklum skaða. í raun þarf þó ekki mörg orð því nærver- an og hlýjan eru mikilvægari í hugum syrgjenda." - / hverju felst starfið? „Ég legg aðaláherslu á að hinn látni líti út eins og hann sofi. Ef um er að ræða yngri konur sem ef til vill hafa notað tilteknar snyrtivörur, farða ég eins og þær voru vanar í daglegu lífi. Eg tel að flestar ungar konur sem deyja í blóma lífins væru sáttar við þetta. Einnig eru mörg dæmi um eldri konur sem hafa snyrt sig talsvert og ég miða förðunina við að hún sé sem næst því sem var í lifandi lífi. Aldrei þó þannig að förðunin sé of mikil, heldur er áhersla lögð á að hafa hana milda og fallega. Ég greiði að sjálfsögðu öllum og laga hárið á konum, nema kannski þeim sem voru vanalega með fléttur, en þá flétta ég hárið upp á nýtt. Stundum hef ég ljós- mynd til viðmiðunar en oftast snyrti ég af eigin þekkingu og fljótlega lærir maður hvað hentar best. Ég nota varalit, púður, sér- blandaða andlitsliti fyrir kalda ► Erla Pálmadóttir er fædd 1950 í Reykjavík og lauk versl- unarprófi frá Vogaskóla 1967. Hún starfaði um langt árabil sem ritari Iögreglustjórans í Reykjavík, hjá Umferðarráði og sem læknaritari á Borgar- spitala áður en hún hóf störf hjá Kirkjugörðum Reykjavík- urprófastsdæma. húð, hárþurrku, krullujárn o.fl. við starfið. Ef fólk er mjög fölt reyni ég að gera snyrtinguna þannig úr garði að litarhátturinn sé eins eðlilegur og unnt er. Fólki bregður annars og finnst andlitið óhugnanlegt. Karlmönnum greiði ég einnig og raka, en reyni að nota sem minnst af farða nema hann sé nauðsynlegur. Þetta er síðasta mynd aðstandenda af hin- um látna og því er mikilvægt að sú mynd sé falleg og sönn, því að hún situr eftir. Hafi fólk orðið fyrir alvarlegum áverkum í slysum reyni ég að gera allt sem ég get til að hægt sé að hafa opna kistu við kistu- lagningu. Þau tilvik eru vitaskuld til sem það er ekki hægt. Ég reyni þó af fremsta megni að gera það kleift og það getur verið margra klukkustunda vinna. Ef hylja verður andlit reynum við að leyfa fólki að taka í hönd hins látna. Það er fólki ákaflega mikilvægt að fá að snerta látna ástvini sína og skiptir miklu máli sálrænt séð fýrir syrgjendur." - Er þetta starf ekki erfitt? „Þetta er ákaflega andlega krefjandi starf og það er enginn svo andlega sterkur að upplagi að hann geti axlað það fyrirvara- laust. Ég hef mínar aðferðir við það, þvi að það verður að skilja starfið eftir á vinnustað áður en haldið er heim. Það er hins vegar 'ekki alltaf hægt, en ég er svo lánsöm áð iijóta mikils skilnings : á heimilinu og hef gefcáð unnið mig frá reynslu í starfinu með góðum göngutúr. Auk þess á ég góða vinkonu sem er prestlærð og hún hefur stutt mig með ráðum og dáð. En auðvitað þurfum við öll, sem vinnum þetta starf, á hand- leiðslu að halda til að endumýja orkuna sem nauðsynleg er til að halda áfram. Fyrst eftir að ég byrjaði og einnig síðar, kom oft fyrir að ég settist niður og grét fögrum tárum. En ég hef lært með árunum að taka betur á þess- um málum. Eftir erfiðustu stund- irnar er maður oft eins og tættur að innan. Mér þykir samt svo vænt um þetta starf að ég vil ekki fyrir nokkurn mun hætta.“ Dauðinn fjarlægist okkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.