Morgunblaðið - 30.07.1995, Side 30

Morgunblaðið - 30.07.1995, Side 30
30 SUNNUDAGUR 30. J(ÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ H * BRÉF TTLBLAÐSINS 4 EG V/LQl AP É6 FEMGI Kmjurye/R. WERTStClPT/ SEMáSSVAZA ÞESSU/ 1-H Grettir 01995 PAWS. INCyDiMrtbul^j öy Urfv*«M Prw» 8yncScM* Smáfólk 50METIME5 I LIE AWAKE AT NléHT.AND I THINK/’MAYBE I CAN CHAN6E tM LIFE AROUND" Stundum ligg ég vakandi á nóttunni og hugsa: „Kannski get ég breytt lífí mínu.“ THEN A VOICE C0ME5 TOME OOT OF THE . DARK," 5URE, MAKE A LOT OF PAPER- £. LtiOKK FOR THF RF5T OF !)<; " Þá heyri ég rödd utan úr myrkrinu sem segir: „Vissuíega, fáðu okkur hinum nóga skriffínnsku." Kringlunni 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 „Þaðkvaðvera fallegt í Kína“ * Frá Vigdísi Ágústsdóttur: ÞAÐ KVAÐ vera fallegt í Kína er sagt í kvæðinu, en ég held að landar mínir fómi höndum við fréttimar frá Kína, um stúlku- bömin sem borin em út. En hvað með hugsunarháttinn hér heima? Við vitum öll hvemig gengið hefur með jafnréttið t.d. í launamálum, nákvæmlega ekki neitt. Á hinn bóginn heimta karlmenn réttinn og engar refjar. Jafnan rétt til forsjár bama við skilnað, þ.e.a.s. ef þeir kæra sig um, sem er í 10% tilfella. í þeim hópi sem lendir í deilum fer hlutur þeirra karla sem kreijast forsjár vaxandi, m.a. út á hærri laun. En hvað um hin 90%. í þeim hópi er helmingur og vel það, sem lætur sig hag bama sinna litlu máli skipta. Þekkir þau varla í sjón. Samt vilja þeir allan rétt til jafns við konur. Nú er það fæð- ingarorlofið. Gerum þá skylduga til að taka fullt fæðingarorlof. Geta ekki læknar sprautað ein- hveiju sársaukavaldandi efni í þá, svo að þeir fái líka hríðir. Ja, mik- il er vitleysan, vinir mínir. Jafnrétti kynjanna Ég er enginn karlmannahatari - hef alist upp með bræðrum og á marga stráka. En ég man að það var engu réttlæti framfylgt milli kynja - ekki þurftu bræður mínir að taka til í kringum sig. Væri þar drasl, var það víst bara eðlilegt hjá strákum. Væri hins vegar drasl kringum systurina fékk hún nafnbótina „drusla“. Það var allt eftir þessu. Sem betur fer er þetta svolítið öðmvísi hér hjá mér. Hér ganga bæði kynin í störf jafnt úti sem inni - dóttirin er engin stof- ustúlka, hún er hins vegar góður smiður, blessuð stelpan, en leiðist að sauma og pijóna. Áldrei skal ég gera upp á milli krakkanna minna og strax er ég búin að vara stelpuna við að fara ekki í svoköll- uð kvennastörf, sem em illa laun- uð. Enn sem komið er komumst við konur ekki hjá að ganga með börn- in og fæða þau af okkur. En fyrir það emm við taldar minna virði á atvinnumarkaði. Það erum jú við sem bemm ábyrgð á bömunum, þetta er bara staðreynd, en sem sagt, ef, ég segi ef karlmaðurinn vill þá má hann hafa jafnan rétt til bama hafi sambúð staðið meira en tvö ár, sem kostar deilur af versta tagi, sem verst lenda á bömunum, sem um er deilt. Nei, takk, mælirinn er löngu fullur. Það á að gera það eftirsóknarvert að vera heima hjá ungum börnum og launa vel fyrir það, því að enginn lifír á loftinu. Líði börnunum vel í sínum uppvexti verður þjóðin betri. Við fáum betra fólk, það er ósköp einfalt. Undirstaðan er góð- ar mæður, ég er ekkert feimin við að segja ykkur það ef að þið hafíð gleymt því. ísland er stórbrotið land en þessi fámenna þjóð sem | byggir það þarf að hlúa betur að * bömum sínum. Það er hægt að hafa hér almenna velmegun ef ( þannig er að málum staðið. „Gamlmgjageymslur“ Mér hefur lengi litist illa á þess- ar „gamlingjageymslur“ sem nú rísa upp ein af annarri. Að vísu var þama upplögð leið til að ná peningum út úr skuldlausa fólkinu eins og húsasmiðir og fasteigna- ( salar sáu. En nú situr fólk þama í fínum, rándýmm íbúðum, alveg , jafn einangrað og áður og enga meiri aðstoð að fá. En krakkarnir koma að tómum kofanum heim úr skólanum með lykil um hálsinn. Og þó að kröfumar séu miklar er það ansakomið ekki aðalástæðan fyrir að nú þarf tvo til að vinna fyrir heimili, sem einn gat séð fyrir hér áður. Það hefur lækkað | kaup hins almenna borgara hrein- lega, en fyrirtæki hafa grætt. Meira samstarf Hvernig væri að hafa meira samstarf eins og áður var? Leiða saman alla aldurshópa, blanda þeim sem jafnast í þessi stóru, nýju hús. Hvað ætli fólk um sex- tugt hafí ekki bæði þrek og löngun til að umgangast böm sem komin em á skólaaldur? Þá myndi lagast I móðurmálskenndin. Börnin fengju öryggið og eldra fólkið ánægjuna og báðir aldurshópamir nytu góðs af. Þetta gerði mannlífíð litríkara, við megum ekki missa tengslin við fortíðina og út úr þessu kæmi ábyggilega skemmtilegra fólk. Þama er verkefni fyrir félagsráð- gjafa og arkitekta til að vinna úr saman. Er ekki betra að byrgja bmnninn áður en barnið dettur ( ofan í? Enginn skal koma mér inn í „gamlingjageymslu" á meðan þar býr einlitur aldurshópur. Vitið þið 1 að þetta em langdýrustu íbúðimar á markaðnum? Svo ætla ég að senda öllum kveðju með setningunni „Thank heaven for little girls“. Ætli þeir viti það ekki helst eða fínni það „gamlingjarnir“ að það em ekki síst dætumar sem þeir halda tengslum við. Gegnum konur hafa alltaf verið sterkustu fjölskyldu- tengslin. Við þurfum að aðlagast betur breyttu þjóðfélagi, það kann að kosta bæði fé og fyrirhöfn. En ef það kemur öllum til góða er það vel þess virði. Umfram allt ekki vera að búa til meiri vandamál með svona „gamlingjahöllum“. VIGDÍS ÁGÚ STSDÓTTIR, Lækjarhvammi, Laugardal. I Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.