Morgunblaðið - 11.08.1995, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C
179. TBL. 83. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
T engdasynir Saddams
flýja til Jórdaníu
Sonur Saddams til Amman - Clinton
lýsir stuðningi við Jórdaníukonung
Bagdad, Amman, Washington. Reuter.
TVEIR tengdasynir Saddams Huss-
eins, sem báðir voru í áhrifamiklum
stöðum, hafa flúið frá írak ásamt
eiginkonum sínum, dætrum leiðtog-
ans, og fjölskyldum og fengið hæli
í Jórdaníu.
Elzti sonur Saddams, Uday, fór
til Amman í gær og krafðist fundar
með Hussein Jórdaníukonungi. Tals-
menn útlægra íraskra stjórnarand-
stöðuhópa segja að ástæðu flóttans
megi rekja til ágreinings milli ann-
ars tengdasonarins og Udays. Þessir
atburðir eru túlkaðir þannig, að losn-
að hafi verulega um tök Saddams á
vaidataumunum.
Hussein Kamel Hassan var talinn
einn áhrifamesti maðurinn í innsta
valdahringnum í kring um einræðis-
herrann. íraska fréttastofan INA
tilkynnti í gær að Hussein Kamel
hefði verið rekinn að skipun Sadd-
ams úr embætti ráðherra iðnaðar-
og jarðefnamála og yfirmanns hms
hernaðarlega iðnvæðingarráðs ír-
aks. Hinn landflótta tengdasonurinn
er bróðir Husseins Kamels; hann var
yfirmaður lífvarðasveita Saddams.
Hussein Kamel Hassan er þriðji
maðurinn úr nánustu fjölskyldu leið-
togans sem horfið hefur úr ríkis-
stjórnarsæti á síðastliðnum þremur
mánuðum og fjórða breytingin_ sem
gerð hefur verið_ á ríkisstjórn íraks
á sama tímabili. í maí svipti Saddam
hálfbróður sinn Watban Ibrahim al-
Hassan embætti innanríkisráðherra
og í júlí rak hann frænda sinn Ali
Hassan al-Majeed úr
sæti varnarmálaráð-
herra. Saddam skipaði
í gær í embættin, sem
Kamel Hassan gegndi.
Landflótti svo
áhrifaríks manns, sem
margir háttsettir emb-
ættismenn hafa stöður
sínar að þakka, er enn-
fremur mjög líklegur til
að leiða af sér frekari
hreinsanir í embættis-
mannakerfinu í
Bagdad. Flótti tengda-
sonanna er talinn vera
greinileg vísbending
um miklar sviptingar í
innsta vaidahring ír-
aks. Uday fór til Amman í gær
ásamt varnarmálaráðherranum fyrr-
verandi og frænda Saddams, Ali
Hassan el-Majeed. Þeir áttu fund
með Hussein Jórdaníukonungi, og
héldu að honum loknum
aftur til Bagdad. Talið
er að Uday hafi reynt
að afstýra frekari
skaða fyrir íraksstjórn
og telja flóttamennina
á að snúa heim. Tals-
menn írösku stjórnar-
andstöðunnar segja
ferð Udays til marks
um örvæntingu og fálm
og benda til þess að
alvarlegir brestir séu í
valdastoðum Saddams.
Að sögn embættis-
manna í Washington
fullvissaði Bill Clinton
Bandaríkjaforseti Hus-
sein Jórdaníukonung í
símtali seint á þriðjudagskvöld um
stuðning Bandaríkjahers ef írakar
gerast herskáir gegn Jórdaníu í kjöl-
far þess að flóttamönnunum frá írak
var veitt hæli í Amman.
HUSSEIN Kamel
Hassan
Reuter
150.000
áflótta
Clinton sker upp herör gegn reykingum
Tóbak skil-
greint sem lyf
Washington. Reuter.
BANDARISK yfirvöld lýstu yfir því
í gær að héðan í frá yrði tóbak
skilgreint sem lyf og yrði háð reglu-
gerðum í samræmi við það. Yfir-
völd hyggjast ekki banna tóbaks-
vörur, en grípa til ýmissa aðgerða
til að hindra útbreiðslu þeirra. Þetta
var ekki fyrr komið fram en fyrir-
tækið R.J. Reynolds og fjórir aðrir
bandarískir tóbaksframleiðendur
greindu frá því að þeir hefðu lagt
fram stefnu til að stöðva stjórnvöld.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hélt í gær blaðamannafund og sagði
að tilgangurinn væri að vernda
æskuna: „Við verðum að grípa til
aðgerða og það nú þegar,“ sagði
Clinton.
Bandariska matvæla- og lyfjaeft-
irlitið (FDA) sagði að stefnt væri
að því að koma í veg fyrir að kom-
andi kynslóðir ánetjuðust tóbaks-
vörum, sem innihéldu nikótín, frem-
ur en að leggja bann við þessum
vörum.
I skýrslu FDA sagði að nikótín-
fíkn gæti hafist á táningsaldri eða
fyrr og væri því „barnasjúkdómur".
Þessi breyting á skilgreiningu tób-
aks veitir yfirvöldum sýnu meira
vald til aðgerða, en þau hafa haft
til þessa.
Framleiðendur mótmæla
Charles Blixt, talsmaður R.J.
Reynolds, sagði í gær að tilgangur
FDA væri greinilega að hefta val-
frelsi fullorðinna, en ekki aðgang
unglinga að tóbaki. Blixt kvað
matvæla- og lyfjaeftirlitið vera að
„seilast út fyrir starfssvið sitt og
hrifsa löggjafarvaldið úr höndum
þingsins".
Stjórnmálaskýrendur sögðu í
gær að þetta mál myndi koma sér
vel fyrir Clinton. Hann kynni að
tapa nokkrum atkvæðum í tóbaks-
ræktarhéruðum suðursins, en sýnu
fleirum væri annt um að hefta reyk-
ingar og styddu forsetann.
Sprengjutilræðið í Oklahoma
Þrír menn ákærðir
Washington. Reuter.
JANET Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að
tveim mönnum, Timothy McVeigh
og Terry Nichols, hefði verið birt
ákæra fyrir að hafa staðið að
sprengjutilræðinu í stjórnsýsluhús-
inu í Oklahomaborg 19. apríl.
Þeir sem rannsakað hafa spreng-
inguna telja að McVeigh hafí ekið
bíl hlöðnum sprengiefni sem rústaði
húsinu og varð að minnsta kosti
167 manns að bana. Nichols er fyrr-
um félagi McVeighs í hernum.
Ennfremur var þriðji maðurinn,
Michael Fortier, ákærður fyrir að
hafa vitað af áætlun um sprengjutil-
ræðið en ekki tilkynnt yfirvöldum
um það.
Reuter
Háloftabrú í Kuala Lumpur
I KUALA LUMPUR, höfuðborg
Malaysíu, rísa nú 88 hæða turnar,
sem verða þeir hæstu í heimi. í
gær, fimmtudag, var brú milli
þeirra komið fyrir í 170 metra
hæð. Turnamir verða 450 metrar.
FEÐGAR úr röðum serbneskra
flóttamanna frá Krajina-héraði í
Króatíu á vegi í gær við borgina
Banja Luka í Bosníu en hún er á
valdi Serba. Um 150.000 Krajina-
Serbar eru á flótta frá héraðinu
til Bosníu og Serbíu, tugþúsundir
eru sagðir enn í Króatíu og kom-
ast hvergi. Króatíski herinn er nú
búinn að ná uppreisnarhéraðinu á
sitt vald. Sagði Yasushi Akashi,
sérstakur sendimaður Sameinuðu
þjóðanna, að friðargæsluliðar SÞ í
Krajina myndu fara að tygja sig á
brott í vikunni.
Skelfdir flóttamenn báðu um
vernd við borgina Sisak þar sem
Króatar á staðnum köstuðu gijóti
í fólkið og hrelldu það á marga
lund. Brotnar bílrúður og blæðandi
höfuðsár voru algeng sjón þegar
flóttafólkið nálgaðist serbnesku
landamærin.
Rússar hvöttu í gær til þess að
forsetar Serbíu, Króatíu og Bosníu
hittust og undirbyggju „fund
helstu ríkja“ er hefði það verkefni
að finna lausn á deilunum sem
hijáð hafa landsvæði gömlu Júgó-
slavíu síðan sambandsríkið leystist
upp 1991. Borís Jeltsín Rússlands-
forseti sagði jafnframt að kominn
væri tími til að afnema viðskipta-
bann SÞ á Serbíu og gaf í skyn
að Rússar myndu gera það einhliða
ef ekki kæmist hreyfíng á málið.
Vísbendingar um
fjöldagrafir
Madeleine Albright, sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði á
fundi öryggisráðsins í gær að
öflugar vísbendingar bentu til að
2.000-2.700 manns hefðu verið
myrt og grafin í fjöldagröf
skömmu eftir að Bosníu-Serbar
tóku múslimaborgina Srebrenica í
júlí. Bandarískur embættismaður
sagði að um væri að ræða vitnis-
burð 63 ára gamals Bosníumanns,
ljósmynd af um 600 manns í haldi
á knattspyrnuvelli og gervihnatta-
myndir sem sýndu umræddan stað,
þar sem gröfin er sögð vera, fyrir
og eftir töku borgarinnar.