Morgunblaðið - 11.08.1995, Page 12
1
gj TOTjOÁ r r H'JDAGOTBd'S
12 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
rr
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skriðan í Sölvadal
Fjöldi kemur
að skoða
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
SKRIÐAN mikla sem féll á Þormóðs-
stöðum í Söivadal fyrr í sumar hefur
dregið að sér athygli fjölda fólks.
Egill Þormóðsson bóndi á Þor-
móðsstöðum sagði að síðan skriðan
féll hefðu að meðaltali komið um
40 bílar á dag heim að bænum, en
flestir hefðu þeir orðið 108 á einum
degi. Aðspurður um hvort þetta
væri ekki mikill átroðningur sagði
Egill að hann væri nokkur en gerði
þó ekki mikið úr því. Hann væri að
mestu hættur að skipta sér af fólk-
inu nema það leitaði eftir upplýsing-
um að fyrrabragði.
Þau hjón Egill og Petrea Hall-
mannsdóttir hafa ákveðið að hætta
búskap að Þormóðsstöðum og sagði
Egill í því sambandi að sálræna hlið-
in vægi þyngsts en þar á eftir kæmi
sú fjárhagslega, en stór hluti túnsins
hvarf undir skriðuna og erfitt væri
að rækta nýtt tún á jörðinni þar sem
ræktunarmöguleikar eru af skornum
skammti.
Sýningin Handverk ’95 á Hrafnagili í þriðja sinn
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
SÝNENDUR eru vel á annað hundrað á sýningunni Handverk ’95 sem hófst á Hrafnagili í Eyjafirði í gær.
L JÓSMYNDASAMKEPPNI
"‘Áskilinn er réttur
til aö nota
verðlaunamyndirnar
í auglýsingum.
Handverkið
styrkir
byggðirnar
SÝNINGIN Handverk ’95 var
sett á Hrafnagili í Eyjafjarðar-
sveit í gær. Þetta er í þriðja sinn
sem efnt er til sýningar á hand-
verki á Hrafnagili og eru þátt-
takendur nú vel á annað hundrað
talsins, en sýningarbásar eru um
70. Sýnendur koma víða af land-
mu.
Vakning og þróun
Elín Antonsdóttir, atvinnufull-
trúi Iðnþróunarfélags Eyjafjarð-
ar, sagði að frá því fyrsta sýning-
in var haldin árið 1993 hefði átt
sér stað heilmikil vakning og
þróun á þessu sviði, í framleiðslu
minjagripa, gjafavöru og nytja-
hluta. Þá hefði hugmyndaauðgi
þeirra sem við handverk fást
aukist og eins mætti merkja vax-
andi áhuga meðal fólks að nota
náttúrulegt hráefni við fram-
leiðsluna. „Það er að skapast
hefð hér á landi fyrir öflugu
handverki og smáiðnaði," sagði
Elín. Guðmundur Bjarnason
landbúnaðarráðherra setti sýn-
inguna formlega en í ávarpi hans
kom m.a. fram að breytingar og
þróun á sviði handverks hefðu
verið miklar undanfarin ár.
Hann sagði kvenfólk og sveita-
fólk mjög setja svip sinn á sýn-
inguna, en ljóst væri að þróun
handverks væri afar mikilvæg
búsetu fólks í sveitum landsins,
það styrkti byggðirnar og eins
Iíka ferðaþjónustuna sem væri
vaxandi atvinnugrein til sveita.
IQflSIEJgl Q&
BGB BJqb* •EflOlJBffll
SÝNING á verkum Braga Ás-
geirssonar verður opnuð í
Deiglunni á morgun, laugar-
dag kl. 14.00 en hann er um
þessar mundir gestur í nýlega
opnaðri gestavinnustofu á
Akureyri.
Bragi er löngu landsþekktur
myndlistarmaður og hefur
haldið fjölda einkasýninga
bæði hér heima og í útiöndum
auk þess að taka þátt í sam-
sýningum. Hann hefur verið
myndlistargagnrýnandi Morg-
unblaðsins um árabil.
Á sýningunni á Akureyri
sýnir Bragi málverk, teikning-
ar og ný steinþrykk. Stein-
þrykkin vann hann í Kaup-
mannahöfn á þessu og síðasta
ári og hafa þau ekki verið sýnd
áður.
Sýningin í Deiglunni stend-
ur til 24. ágúst og er opin virka
daga frá kl. 11.00 til 18.00
og frá 14.00 til 18.00 um helg-
ar.
Glugginn
Hlýr hnjúkaþeyr um norð-
anvert landið er heiti á sýningu
Aðalsteins Þórssonar í Glugg-
anum, sýningarrými Lista-
sumars í verslunarglugga
Vöruhúss KEA í Hafnarstræti
sem hefst í dag, föstudag.
Aðalsteinn nam myndlist við
Myndlistarskólann á Akureyri
1989-1993 og var við fram-
haldsnám í Finnlandi 1993-
1994. Hann hefur sýnt einn
og með öðrum nokkrum sinn-
um.
Annað starfsár
Menntasmiðj-
unnar
MENNTASMIÐJA kvenna á
Akureyri er að hefja sitt annað
starfsár og nú með örugga
framtíð.
Akureyrarbær, félagsmála-
og menntamálaráðuneytið
hafa tryggt fjárveitingu næsta
árið og menntamálaráðuneytið
gefið vilyrði fyrir stuðningi í
tvö ár geri hinir aðilarnir það
sama.
Búið er að auglýsa nám á
haustönn sem byrjar 11. sept-
ember næstkomandi og lýkur
í desember, umsóknarfrestur
er til 14. ágúst.
Menntasmiðjan er dagskóli
fyrir konur án atvinnu og er
daglegur skólatími frá kl. 9 -
15 virka daga. Menntasmiðjan
er til húsa í Hafnarstræti 95,
4. hæð.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Húsgögnin hífð upp
STARFSEMI Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna á Akureyri er um það
bil að hefjast, en í gær voru Söl-
umiðstöðvarmenn í óða önn að
koma fyrir húsgögnum á skrifstof-
um sínum í Linduhúsinu svonefnda.
Skrifstofurnar verða á þriðju hæð
hússins og voru húsgögnin hífð upp.
Þú færð upplýsingar og
þátttökuseðil í næstu búð.
Skilafrestur er til 31. ágúst 1995.
I
(
I
!
b
[
j
I
D
$■
i
fi
fi
fi
fi
I
4-