Morgunblaðið - 11.08.1995, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutabréf í
Netscape vinsæl
New York. Reuter.
HLUTABRÉF í nýju hugbúnaðar-
fyrirtæki, Netscape Communicati-
ons, lækkuðu verulega í verði í gær
— degi eftir einhverja mestu hækk-
un sem um getur á hlutabréfum sem
boðin eru til sölu í fyrsta sinn.
Netscape framleiðir hugbúnað
sem veitir leiðsögn um þann hluta
Internetsins — öðru nafni Alnetsins
— sem kallast Veraldarvefurinn og
auðveldar einnig fyrirtækjum að
bjóða vaming til sölu. Hlutdeild
Nerscape á þessum markaði er 70%.
Verð hlutabréfanna í Netscape-
lækkaði um 5,25 dollara í 53 doll-
ara þegar viðskipti hófust á Nasdaq
markaðinum í gær. Verðið tæplega
þrefaldaðist í 75 dollara á rpiðviku-
dag, þótt bréfin seldust við lokun
þá á 58,25 dollara. Umfangsmiklil
viðskipti hlutabréfa í Netscape
stafa ugglaust af miklum áhuga
manna í Wall Street á hlutabréfum
í tæknifyrirtækjum, einkum þegar
þau tengjast Alnetinu.
Hlutabréfin í Netscape voru upp-
haflega boðin á 28 dollara og á
þriðjudagskvöld höfðu tæplega 14
milljónir bréfa skipt um eigendur.
Aðeins tvisvar sinnum áður hafa
hlutabréf selzt eins vel þegar þau
hafa verið í boði í fyrsta sinn.
Hækkunin á verði hlutabréfanna
jók markaðsvirði Netscope í tæp-
lega 3 milljarða dollara. Hins vegar
hefur fyrirtækið ekki skilað hagn-
aði síðan það var stofnað í apríl
1994. Á 6 mánuðum til júníloka
nam tap Netscape 4.3 milljónum
dollara.
Starfsemi Eimskips
á Akureyri efld
STARFSEMI Eimskips
á Akureyri tekur
nokkrum breytingum
frá og með 1. septem-
ber nk. Dagleg sam-
skipti Eimskips við inn-
o g útflytjendur á Norð-
urlandi verða í höndum
skrifstofunnar á Akur-
eyri í samstarfi við
umboðsmenn félagsins
á þessu svæði. Þá verð-
ur það hlutverk skrif-
stofunnar að samhæfa
og stýra sölu- og flutn-
ingastarfsemi félagsins
á markaðssvæðinu.
Garðar Jóhannsson,
forstöðumaður útflutn-
ingsdeildar Eimskips, hefur verið
ráðinn forstöðumaður Eimskips á
Akureyri og mun hann hefja þar
störf 1. september nk. Garðar lauk
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík árið 1981. 1984-1985
lagði hann stund á nám i skipamiðl-
un og flutningafræði í London.
Garðar hóf störf hjá Eimskip árið
1981, fyrst á skipum
félagsins og síðan sem
sölufulltrúi í Ameríku-
deild. Frá nóvember
1986 var Garðar full-
trúi við skipamiðlun í
stórflutningadeild Eim-
skips og í maí 1991 ók
hann við starfi for-
stöðumanns deildarinn-
ar. Undanfarin tvö ár
hefur Garðar veitt út-
flutningsdeild Eimskips
forstöðu.
Til viðbótar við þá
þjónustu sem nú er boð-
in hjá Eimskip á Akur-
eyri verður viðskipta-
vinum félagsins á Ak-
ureyri og í nágrenni boðin vöru-
geymslu- og dreifingarþjónusta.
Gunnar Jónsson mun áfram
gegna starfi afgreiðslustjóra í vöru-
miðstöð Eimskips á Akureyri. Hann
mun hafa yfirumsjón með daglegri
vöruafgreiðslu til viðskiptavina
“Eimskips ásamt því að sjá um lönd-
unarþjónustu félagsins á Akureyri.
Gárðár
Jóhannsson
SAS starfar áfram
með Flugleiðum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SAS hefur engar áætlanir um að
breyta samstarfinu við Flugleiðir í
kjölfar samvinnunar við Lufthansa.
Framkvæmdanefnd Evrópusam-
bandsins gerir heldur engar athuga-
semdir við samstarf SAS og Flug-
leiða, eins og hún gerir um samstarf
SAS við Austrian Airlines, Swissair
og Finnair.
Jens Peter Skaarup, upplýsinga-
fulltrúi SAS, sagði í samtali við
Morgunblaðið að SAS hefði ekki í
huga neinar breytingar á samvinn-
unni við Flugleiðir. Því hefði verið
slegið föstu þegar tilkynnt var um
samvinnu SAS og Lufthansa í vor.
Hins vegar ætlaði SAS ekki að
halda áfram samstarfinu við Finn-
air, Swissair og Austrian Airlines,
að sögn Skaarups. Ákvörðunin um
það hefði verið tekin óháð aðfinnsl-
um framkvæmdanefndarinnar.
Flugleiðir
Innanlandsflug skilið
frá öðrum rekstri
Á STJÓRNARFUNDI Flugleiða í
gær var ákveðið að skilja rekstur
innanlandsflugs félagsins frá öðrum
rekstri, án þess þó að stofnað verði
um það sérstakt hlutafélag. Innan-
landsflugið mun í framhaldi af þess-
ari ákvörðun gera formlega við-
skiptasamninga við aðrar deildir
Flugleiða um kaup á þjónustu frá
þeim, og er því fijálst að beina við-
skiptum sínum til annarra aðila ef
hagkvæmt þykir.
Innanlandsflugið verður frá 1.
september nk. undir stjórn sérstakr-
ar stjómamefndar, sem mun gegna
sama hlutverki og stjórn í sjálfstæðu
hlutafélagi. Þá verður innanlands-
flugið skilið frá öðrum deildum inn-
an skipurits Flugleiða.
Með þessu móti ætlar félagið að
renna traustari stoðum undir rekst-
ur innanlandsflugsins, sem hefur
verið erfíður undanfarin ár. í frétt
frá Flugleiðum segir, að eftir vand-
lega athugun hafi af hagkvæmnisá-
stæðum verið ákveðið að stíga ekki
skrefið til fulls með stofnun sérstaks
hlutafélags um innanlandsflugið.
GSM nær
sænska
markaðnum
GSM-símakerfið hefur nú undirtökin
á sænska farsímamarkaðnum. Sam-
kvæmt „Svenska Dagbladet" seldust
í júní næstum sjötíu þúsund GSM-
símar í Svíþjóð, en aðeins fjögur
þúsund NMT-símar. Á fyrri helmingi
ársins seldust um 395 þúsund farsím-
ar, þar af sextíu þúsund NMT-sím-
ar. Heildarsalan í fyrra var 650 þús-
und, en búist er við að salan í ár
nemi um 800 þúsund símum. Ekki
er þó öll salan viðbót við kerfið, held-
ur er búist við að 100-150 þúsund
símar leysi eldri síma af hólmi. Far-
símar hafa breiðst út eins og eldur
í sinu í Svíþjóð og hart barist um
kaupendur.
----♦ ♦ ♦---
Ranginafn
Rangt var farið með nafn annars
mannsins á mynd sem fylgdi frétt á
baksíðu viðskiptablaðs í gær um
nýja norræna ferðaskrifstofu. Mynd-
in var ekki af Júlíusi Pálssyni sem
rætt var við heldur af Hauk Birgis-
syni, framkvæmdastjóra Norrænu
ferðaskrifstofunnar, sem er sam-
starfsaðili íslands- og Skandiínavíu-
ferða, sem Júlíus er í forsvari fyrir.
Er beðist velvirðingar á þessu.
Lög um fjárfestingar erlendra aðila á íslandi
Hafa ekkiáhrifá hluta-
bréfakaupin í Stöð 2
LAGAÁKVÆÐI um takmarkanir á
fjárfestingu erlendra aðila í atvinnu-
rekstri á Islandi munu mjög ólíklega
hafa áhrif á fyrirhuguð kaup Chase
Manhattan bankans á 20% hlut í
íslenska útvarpsfélaginu. Kaupin
hafa vakið upp spumingar um reglur
um erlenda eignaraðild að fjölmiðl-
um. Kaupverðið hefur ekki verið
gefið upp en nafnvirði hlutabréfanna
er 109 milljónir króna.
Með útvarpslögum frá 1985 var
kveðið á um rétt einkaaðila til út-
varps- og sjónvarpsrekstrar. Þær
takmarkanir var þó að fínna í lögun-
um að hvorki mætti veita erlendum
aðilum leyfi til slíks rekstrar, né fé-
lagi eða stofnun, þar sem eignaraðild
erlendra aðila væri meiri en 10%.
Samkvæmt útvarpslögunum frá
1985 hefðu kaup Chase Manhattan
bankans á 20% hlut í íslenska út-
varpsfélaginu því verið óheimil.
Umrætt ákvæði var fellt úr út-
varpslögum árið 1991. Með lögum
um íjárfestingar erlendra aðila í at-
vinnurekstri frá sama ári eru ekki
lagðar sérstakar hömlur á fjárfest-
ingu í fjölmiðlum. Hins vegar er
kveðið á um að leyfi viðskiptaráð-
herra þurfí fyrir fjárfestingu eins
erlends aðila eða fjárhagslega
tengdra erlendra aðila éf hún fer
yfir 250 milljónir á almanaksárinu
en samkvæmt lánskjaravísitölu nem-
ur þessi upphæð 295 milljónum nú.
Þá er kveðið á um það í lögunum
að framkvæmdastjóri og meirihluti
stjórnarmanna skuli vera búsettir
hérlendis, óháð eignarhlut, atkvæð-
isrétti eða öðrum yfirráðum erlendra
aðila. EES-búar eru þó undanþegnir
og eins getur viðskiptaráðherra veitt
sams konar undanþágur.
Áformað er að Chase Manhattan
bankinn kaupi 20% hlut í íslenska
útvarpsfélaginu eða tæpar 109 millj-
ónir króna að nafnverði. Ef bankinn
kaupir hlutabréfín á genginu 4,0,
eins og miðað er við í hlutabréfa-
kaupum meirihlutans, nema kaupin
alls 435 milljónum króna og sam-
kvæmt þvi þyrfti samþykki viðskipta-
ráðherra fyrir þeim.
Það er þó ósennilegt að þetta
lagaákvæði hafí nokkur áhrif á
hlutabréfakaup Chase Manhattan
bankans. í fyrsta lagi er ekki víst
að bankinn kaupi hlutabréfín á geng-
inu 4,0. Vel má vera að hann fái
bréfin á lægra verði enda veitir hann
íslenska útvarpsfélaginu og Útheija,
eignarhaldsfélagi meirihluta hlut-
hafa, lánafyrirgreiðslu. Þá hafa tals-
menn Útheija sagt að sala hluta-
bréfa til Chase Manhattan þjóni m.a.
annars þeim tilgangi að fá þekkingu
á fjölmiðlarekstri inn í fyrirtækið en
sérstök deild innan bankans sér um
og fylgist með fjárfestingum hans í
fjölmiðlafyrirtækjum. Þar gæti verið
komin önnur ástæða fyrir því að selja
bankanum bréfín á lægra gengi en
4,0. Nemi fjárfesting Chase Man-
hattan í ÍÚ meira en 295 milljónum
króna er þó ekki víst að viðskiptaráð-
herra þyrfti að veita leyfi fyrir henni.
Kaupin gætu átt sér stað á tveimur
eða þremur árum og auk þess gæti
bankinn hæglega látið útibú sitt í
Bretlandi annast þau enda er flutn-
ingur fjármagns ftjáls innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins. Auðvitað
kemur einnig til greina að bankinn
sæki einfaldlega um undanþágu ef
kaupverðið er hærra en 295 milljónir
króna.
Sigurður G. Guðjónsson, stjórn-
arformaður íslenska útvarpsfélags-
ins, segir að meirihlutanum í fyrir-
tækinu sé fullkunnugt um þau laga-
ákvæði sem séu í gildi um fjárfesting-
ar erlendra aðila og að þeim verði
fylgt í hvívetna. Hann segist alls
ekki eiga von á að þessi ákvæði
standi í vegi fyrir kaupunum en vill
ekki tjá sig um það hvort kaupverðið
sé hærra eða lægra en 295 milljónir
króna.
Ótrúlegur afsláttur af okkar lága