Morgunblaðið - 11.08.1995, Side 19

Morgunblaðið - 11.08.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995 19 LISTIR Dauðhreinsuð tilviljun MYNPUST Mokka-kaf fi HÖGGMYNDIR Sara Björnsdóttir. Opið alla daga til 13. ágúst. Aðgangur ókeypis. ÚTSKRIFTARSÝNINGAR Myndlistar- og handíðaskóla ís- lands eru meðal umfangsmestu listviðburða hvers árs, enda markmiðið að þar sé hægt að bregða upp nokkru af því besta sem hver og einn meðal nemenda hefur verið að fást við á lokaári sínu í skólanum. Vegna fjöldans - og stutts sýningartíma - vill einstaklingurinn hins vegar týnast í heildinni og gestir ná aðeins að festa verk nokkurra í huga'sér þegar haldið er á braut. Þetta er miður, þar sem framlag hvers og eins er allrar athygli virði, og ætti skilið meiri umfjöllun en er möguleg innan ramma út- skriftarsýningarinnar. Ýmsir úr hópi nemenda hafa brugðist við þessu með því að sýna verk sín nokkru síðar á öðrum vettvangi og er þessi fyrsta einkasýning Söru Björnsdóttur einmitt af þess- um toga, en hún lauk námi við fjöltæknideild MHÍ á síðastliðnu vori. í vor var þessum hvítu verkum dreift óreglulega á gólf og nutu sín þar mun síður en þau gera hér í brúnum húsakynnum Mokka, þar sem þeim hefur verið raðað skipu- lega í ijórfalda röð á alla veggi. Gerð verkanna er einföld; rétthyrnt mót af seigfljótandi gifsi hefur orðið fyrir höggi fallandi hlutar, sem hefur sprengt yfirborðið og myndað holu í miðjan flötinn. Hér verður því samhliða verkinu til nýtt tilbrigði við hugtakið „högg“- mynd, sem þó fellur ágætlega að hinni hefðbundu skilgreiningu þess. Þegar litið er yfir þá tvö hundr- uð og sextíu fleti sem þannig hafa orðið til kemur hins vegar upp spurningin hvort ekki sé réttara að skoða þetta allt sem eitt verk fremur en mörg, því hver flötur vísar til heildarinnar og heildin til hvers og eins. Þessi einfalda sköpun leiðir sam- an margar formlegar andstæður þegar betur er að gáð. Fljótandi efni verður fyrir höggi og afleið- ingin er bundin í föstu formi; slétt, lokað og friðsælt yfirborð umturn- ast fyrir þyngdaraflinu í úfið, opið sár; augnablik ofbeldis leiðir af sér endanlega afmyndun; reglubundin endurtekning höggsins leiðir aldrei til sömu niðurstöðu í tvö skipti, heldur er afraksturinn ótakmörkuð fjölbreytni myndanna; hin dauð- hreinsaða ímynd hvíta gifsflatarins er rofin af endalausum tilviljunum höggbylgjunnar. Þessum formlegu andstæðum fylgja eðlilega ýmsar hugrenningar um möguleg tákngildi þessa fyrir manninn, bæði með tilvísun til samfélagsins og persónunnar. Jafnvægi lífsins er ætíð rofið með ofbeldi, bæði hjá einstaklingum og þjóðum; afleiðingar þess eru varan- legar, jafnvel þó það hafi staðið stutt. Breytingin á einnig sínar jákvæðu hliðar; sköpun lífsins leið- ir til óendanlegar fjölbreytni, þó getnaðurinn verði af líffræðilegum sökum nær alltaf með sama hætti; tilviljunin (sem sumir vilja eigna æðri máttarvöldum) er einn sterk- asti þáttur sköpunarinnar hverju sinni. Með þessum einföldu ímyndum sínum hefur Sara þannig náð að snerta marga og ólíka strengi. í myndsköpun hennar sameinast mikilvægi athafnarinnar og af- rakstursins, þar sem hið ólgandi ofbeldi höggsins er varðveitt í kyrrð hins hreina, hvíta efnis, sem geymir það um ókomna tíð. Hér er á ferðinni góð upphafs- sýning á ferli ungrar listakonu, sem verður væntanlega athyglis- vert að fylgjast með í framtíðinni. Eiríkur Þorláksson | LAGERHREIN5UN SENGíABORNIN: Bankastræti 10 • sími 552-2201 ^ Vönduð barnaföt. Enn meiri verðlækkun. Ævintýralega lágt verð - síðustu daqar. ^ (mia acj útlilió aöstoöa viö val skartgripa langan laugardag kl. 13-17. Einstakt tækifæri. Tilboö í gangi. 5201 Sirm 552 oc/ ■íAa/'fí//vJj/r Jítiujaoetji 6/ Farðu vel me Skiptu út nefpúðui fyrir aðeins 200 kr. Þessir litlu.stömu, mjúku silikonpúðar eru góðir eins lengi og þeir duga. Púðarnir slitna. Efni frá húðinni brýtur þá niður haegt og sígandi og dag einn eru þeir slitnir upp og þá þarf að skipta þeim út. Best væri að fá nýja púða á hálfs árs fresti til að hllfa nefinu.það segjum við hjá Profil Optik Gleraugnamiðstöðinni. Þess vegna lækkum við verðið og bjóðum þér að koma til okkar og fá nefpúða fyrir aðeins 200 kr. I ágúst. Vlð pössum vef upp i sjónlna þlna PROFILMTOPTIK frH GLERAUGNAMIÐST Laugavegi 24, símar 552 0800 og 552 2702. Nú þrífum við og hreinsum skartgripi. Þaö er nauösynlegt aö vera meö hreina og glansandi skartgripi. Tilboösverö á hreinsun skartgripa. o</ ■s'Áa/V///vJj/r atu/aoet/i 6} UTSALA ÓTRÚLEG VERÐtÆKKUN Á GÆÐAFATNAÐI enenon Laugavegi 97, sími 552 2555.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.