Morgunblaðið - 11.08.1995, Page 32

Morgunblaðið - 11.08.1995, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ólöf Sigurðar- dóttir fæddist 25. nóvember 1927 í Reykjavík. Hún lést á Selfossi 4. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru sr. Sigurður Z. Gíslason, prest- ur á Þingeyri, d. 1. janúar 1943, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir, d. sept- ember 1963. Ólöf var elst 6 barna þeirra hjóna, en þau eru Dóra Lauf- ey, talsímakona í Hafnarfirði, Jón, hljómlistarmaður í Reykjavík, Asgeir, tónlistar- skólastjóri á Selfossi, Jónas, símvirki í Reykjavík, og Gunn- ar, endurskoðandi í Reykjavík. Ólöf giftist 18. apríl 1957 eftir- lifandi eiginmanni sínum, Hirti Þórarinssyni þá kennara á Selfossi, síðar skólastjóra á Kleppjárnsreykjum og síðustu 15 árin framkvæmdastjóra Samtaka sunnlenskra sveitar- félaga. Kjördóttir þeirra og ELSKULEG vinkona mín Ólöf Sig- urðardóttir er látin eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Við kynntumst fyrir hartnær 40 árum þegar við fluttumst að Selfossi þar sem eiginmenn okkar voru sam- starfsmenn og vinir. Ég kom á stað- inn nýútskrifuð úr kennaraskóla og alls óreynd í húsmóðurstörfum, hún hafði verið skólastjóri húsmæðra- < skóla um margra ára skeið og á okkur var 10 ára aldursmunur. Aldrei fann ég annað hjá henni en við værum jafningjar og með okkur tókst sú trygga vinátta sem aldrei hefur borið skugga á öll þessi ár. Elsta dóttir okkar og dóttir Ólaf- ar og Hjartar eru jafn gamlar og oft var hist til að bera saman bæk- umar um barnauppeldið og lofa dætrunum að leika sér saman. Þeg- ar þau fluttu að Kleppjárnsreykjum fækkaði heimsóknum, en þeim mun skemmtilegra var að hittast, annað hvort á Selfossi, Kleppjárnsreykjum eða í Húsafelli þar sem þau áttu lítinn bústað. Dætur okkar minnast oft ferðanna upp í Borgarfjörð, til- ^ hlökkunin var svo mikil að þegar komið var í Bæjarsveitina spurðu þær við hverja smáhæð hvort Klepp- jámsreykir væru ekki hinum megin við hæðina. Þar og í Húsafelli áttum við margar ánægjustundir saman og alltaf tók Ólöf á móti okkur af miklum rausnarskap. Við Jón áttum svo ótal margar góðar stundir með þeim hjónum. Sérstaklega er mér minnisstæð ferð sem við fórum með Gullfossi til Kaupmannahafnar og þaðan til Rinarlanda. Við Ólöf gát- um oft setið og rifjað upp þessa ferð og hlegið að ýmsu spaugilegu. Þegar þau fluttu að Selfossi að nýju gerðumst við Ólöf samkennarar og umræðuefni um skólamál og fréttir . .af börnum og bamabömum voru endalaus. MÖRKINNI 3 • SÍHI S88 0640 bróðurdóttir Ólaf- ar er Sigrún læknir í Svíþjóð gift Birni Geir Leifssyni lækni. Þeirra synir eru Hjörtur Geir og Ólafur Hrafn. Ólöf lauk námi í Húsmæðraskólan- um í Hveragerði 1948 og Hús- mæðrakennara- skóla íslands 1950. Hún sótti mörg námskeið í handa- vinnu, dansi og al- mennri kennslu. Hún var skólastjóri Hús- mæðraskólans á Staðarfelli 1950-1955, og kennari við Hús- mæðraskólann á Varmalandi 1955- 1956 og skólastjóri þar 1956- 1957. Handavinnukenn- ari á Selfossi frá janúar 1958 til vors 1959. Almennur kenn- ari við Kleppjárnsreykjaskóla 1961-1978 og við Grunnskóla Selfoss til vors 1994. Útförin fer fram frá Selfoss- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Fyrir nokkrum árum reistu þau hjón sér sumarbústað í Grímsnesinu ásamt Sigrúnu dóttur sinni og Bimí Geir sem bæði starfa sem læknar í Svíþjóð. í bústaðnum undi Ólöf sér vel við hannyrðir og bóklestur og er sárt að hún gat ekki notið þess lengur að dvelja þar. Ólöf var alltaf tilbúin að hjálpa og gefa öðram. Ef við þurftum að bregða okkur í burtu var sonur okkar nánast tekinn í fæði þó hann gæti bjargað sér sjálf- ur. Stofublóm og gróðurhús sá hún oftast um í fjarvera okkar, um þetta þurfti aldrei að biðja, hún bað um að fá að gera þetta. Hún var bæði raungóð og traust kona sem aliir báru virðingu fyrir, hafði sínar ákveðnu og skynsömu skoðanir á hlutunum og átti ákaflega erfitt með að vita af einhveijum sem átti bágt. Veikindum sinum tók hún með mikilli stillingu. Hún kvartaði"áldrei og reyndi að fylgjast með skóla- starfinu eins lengi og mögulegt var, spurði oft þegar ég kom hvort ég vildi nú ekki segja henni fréttir úr skólanum. Ég á eftir að sakna henn- ar, en geymi minningar um góða vinkonu. Við Jón og börnin okkar kveðjum hana í dag með þökk fyrir allt. Elsku Hjörtur, Sigrún, Björn Geir og syn- ir, við vottum ykkur innilega samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorginni. Edda B. Jónsdóttir. Líf íjölskyldu er eins og marg- þættur vefnaður með fjölmörgum uppistöðuþráðum, litbrigðum og myndröðum, þar sem stöðugt eru ofnar áfram nýjar myndir úr nýjum þráðum í nýjum litum. Þegar tóm og tilefni gefst til að horfa á vefnaðinn úr ijarlægð koma sterk heildareinkenni í ljós sem oft era hulin sjónum í nándinni við verk- ið og hið daglega amstur. Við andlát ástkærrar föðursystur okkar, Ólafar Sigurðardóttur, gefst okkur systkinunum tilefni til að lúta höfði og þakka fyrir þann ríka þátt sem hún átti í lífi okkar og foreldra okkar. Minningin um Ólöfu verður ekki slitin frá okkar eigin fjölskyldu- sögu, svo sterkt og þétt fléttuðust lífsþræðir okkar saman. Ólöf var stóra systir pabba, elst sex systkina sem á bamsaldri misstu föður sinn. Ef einhver öðrum fremur í systkina- hópnum tók að sér að reyna að veita hinum stuðning og þá umhyggju sem þau misstu við fráfall föður síns þá var það Ólöf. Þessarar um- hyggju nutu síðan öll systkinabörn hennar í ríkum mæli. Hún var veitt skilyrðislaust, svo lítið bar á, án nokkurra væntinga um endurgjald, í hógværð þess sem gefur af ein- skærri löngun til að láta gott af sér leiða. Þessir eiginleikar Ólafar fundu sér síðan fullkomna samsvör- un í Hirti Þórarinssyni eiginmanni hennar og mátti ekki á milli sjá hvort þeirra tók hinu fram í þeirri alúð og hlýju sem þau sýndu ætt- ingjum sínum og vinum. Við systkinin ólumst upp við sér- kennilegt fjölskyldumynstur. Strax og þau elstu okkar komust á legg kom í ljós að þau hændust að Ólöfu og Hirti og þau að okkur. Til dæm- is eru margar fyrstu bernskuminn- ingar Didda, sem er elstur, einmitt tengdar Ólöfu og Staðarfelli þar sem hún var skólastýra Húsmæðraskól- ans og Diddi farinn að dvelja hjá henni í fríum eins og við öll áttum eftir að gera. Kærleiksböndin á milli foreldra okkar og Ólafar og Hjartar treystust síðan enn frekar þegar þau tóku alveg að sér eina systur okk- ar, Sigrúnu. Sú ákvörðun var tekin á meðan Sigrún var enn í móður- kviði, þannig að þegar hún fæddist þá fæddist hún tveim mæðram og tveim feðram, einkadóttir foreldra sinna en jafnframt eitt barnið enn í stóram og stækkandi systkina- hópi. Öllum var ljóst frá fyrstu tíð hvemig málum var háttað. Tengslin voru alltaf djúp og mikil, við systkin- in eins og gráir kettir á heimili Ólaf- ar og Hjartar og foreldrakærleikur þeirra til Sigrúnar náði svo sannar- lega einnig til okkar alsystkina hennar. Með þessari ákvörðun eign- uðumst við systkinin hin einnig aðra foreldra sem vora örlát á ást sína til okkar. Þegar við vorum yngri þótti okk- ur þessi ráðstöfun sjálfsagt mál, enda þekktum við ekki annað. Eftir því sem árin liðu höfum við systkin- in æ oftar rætt okkar á milli hversu stórbrotin þessi ákvörðun vat' hjá bæði foreldrum okkar og Ólöfu og Hirti. Þau öll eiga aðdáun okkar og þökk skilda. Alla tíð síðan einkennd- ust samskipti fjölskyldnanna af djúpu gagnkvæmu þakklæti. Móðir okkar og Ólöf deildu bömum sínum og tengdust því eins sterkum bönd- um og nokkrar tvær konur geta gert. Ólöf var ekki heilsuhraust kona þótt sjaldan yrðu samferðamenn hennar varir við hennar veikinda- glímur. Síðustu árin var þó eins og hún yrði aftur sama gamla Ólöf, kankvís og glettin og kraftmikil. Það varð því mikið áfall þegar það kom í ljós að hún gekk með erfitt krabbamein og líklega yrði aðeins einn endir á þeirri sögu. Við þessar aðstæður dáðumst við systkinin óumræðilega mikið að henni, því ekki tapaði hún andlegum krafti og Ijúfri lund. Við bættist æðruleysi og framkvæmdasemi - hana munaði til dæmis ekki um að fara fárveik til Svíþjóðar til að vera sem næst Sigrúnu og Bjössa og sonum þeirra, enda var því viðbrugðið hversu inni- legt samband mæðgnanna var. Þá var sárt að kveðja hana, því við bjuggumst varla við að sjá hana aftur. Heim kom hún samt - heima vildi hún deyja. Hjörtur, maðurinn hennar, ann- aðist hana af kostgæfni síðustu mánuðina, búinn að minnka við sig vinnu. Það var aðdáunarvert að sjá hvernig þau hjón sem höfðu búið við hefðbundna verkaskiptingu, enda Ólöf með myndarlegustu hús- mæðrum sem um getur, gátu breytt hlutverkum sínum og aðlagast þess- ari nýju stöðu. Hjörtur lét Ölöfu kenna sér eldamennsku og fatavið- gerðir úr rúminu og þegar nýir sigr- ar unnust á þessu sviði var oft hringt til Svíþjóðar í Sigrúnu til að stæra sig af framförunum. Hjörtur hafði oft á orði að núna væri hann að bæta konu sinni upp að hafa ekki átt með henni eiginlega hveiti- brauðsdaga. Þessi orð lýsa vel and- rúmsloftinu sem var á heimili þeirra í veikindum Ólafar. Sigrún og Björn Geir, maðurinn hennar, komu um miðjan júlí frá Svíþjóð til að vera hjá Ólöfu síðustu vikurnar. Þó venjulega telji maður það ekki æskilegt að veikindi drag- ist á langinn má samt þakka fyrir þennan tíma, ekki síst vegna ömmu- strákanna hennar tveggja sem á eðlilegan og fallegan hátt fengu að búa sig undir að amma væri að fara. Og þeir vora duglegir að kveðja, byijuðu hvern dag á að koma að rúminu hennar til að kyssa og knúsa. Þá sást á Ólöfu að hún var hamingjusöm. Andlátsstund Ólafar var þrungin fegurð og friði. Þar voru Hjörtur, Sigrún og Bjössi, móðir okkar og við systkinin öll sem komust. Hin höfðu kvatt kvöldinu áður og náðu þá að skiptast á orðum við hana meðan hún var enn með meðvitund. Þá reis Ólöf allt í einu upp við dogg og spurði hvort hún væri að deyja. Þegar Hjörtur játti því spurði hún af sinni alkunnu ákveðni hvort það ætti nú ekki að undirbúa þana eitt- hvað. Hirti varð orðfall. í rauninni vissi hann sem var - að öllum undir- búningi var lokið og að vanda hafði vel verið að verki staðið. Guð blessi Ólöfu og ástvini hennar. Jóns- og Jóhönnubörn. Ég var 6 ára þegar systir mín fæddist, og man ég eftir að þú komst heim til mín til að athuga, hvort þú gætir hjálpað eitthvað til. Síðan þá man ég alltaf eftir þér vera að hjálpa einhveijum. Þú varst handavinnukennari minn alla mína skólagöngu í barna- skóla, og bý ég að þeirri kennslu enn þann dag í dag. Ólöf flutti úr Borgarfirðinum árið 1978, á Sel- foss. Við sáumst sjaldan í mörg ár, en sumarið 1993 kom ég að vinna hér á Selfossi, og fékk ég þá leigt í kjallaranum hjá þér og Hirti. Mér fannst mjög gott að vera hjá ykk- ur. Alltaf varstu boðin og búin að hjálpa mér, ef mér leið eitthvað iila, og þá var líka gott að leita til þín, Ólöf mín. Síðastliðið ár hefur þú háð hetju- lega baráttu við banvænan sjúkdóm, sem lagði þig að velli. Elsku Ólöf mín, ég kveð þig með söknuði og vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Elsku Hjörtur, Sigrún, Björn Geir, Hjörtur Geir og Olafur Hrafn, ég votta ykkur mína innilegustu samúð og ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guðbjörg. Kær skólasystir Ólöf Sigurðar- dóttir er kvödd hinstu kveðju. Hún er önnur þeirra 14 nemenda sem hófu nám í Húsmæðrakennaraskóla íslands haustið 1948 sem látin er. Síðastliðið vor hittumst við flestar skólasysturnar til að minnast 45 ára útskriftarafmælis okkar sem hús- mæðrakennara. Ólöf gat ekki verið með okkur vegna veikinda en hún sendi okkur kærar kveðjur sem okk- ur þótti vænt um að fá. En okkur grunaði ekki að það yrði síðasta kveðjan frá henni. Strax við fyrstu kynni í skólanum ávann Ólöf sér traust okkar allra og vináttu, enda var hún góður skólafélagi, söngvin og glaðlynd ung stúlka og að auki traust og skarpgreind. Þó að leiðir okkar tvístraðust eins og gengur að skóla loknum og spor okkar lægju út í hin ýmsu störf þjóð- félagsins fylgdumst við alltaf hver með annarri og þegar við hittumst urðu ævinlega vinafundir. Nú þegar Ólöf skólasystir okkar og vinkona er öll kveðjum við hana með þakklæti og virðingu. Eiginmanni hennar Hirti Þórar- inssyni, Sigrúnu dóttur þeirra og fjölskyldu, ásamt ástvinum hennar öllum sendum við einlægar samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Ólafar Sigurðardóttur. Skólasystur, Gerður H. Jóhannsdóttir, Jensína Halldórsdóttir. Ég var unglingur þegar Hjörtur bróðir minn kom fyrst heim með kærustuna sína og þótti mér það mjög merkilegt, að hún skyldi vera skólastjóri við húsmæðraskóla, þar sem hún var bara fímm árum eldri ÓLÖF SIG URÐARDÓTTIR en ég og þar að auki ósköp stelpu- leg. Það féll strax vel á með okkur og þótti alla tíð mjög vænt hvorri um aðra. Ólöf og Hjörtur hófu búskap og störf á Selfossi árið 1957. En árið 1961 breyta þau til og flytja að Kleppjámsreykjum í Borgarfirði, hann sem skólastjóri, hún sem kenn- ari. Þar bjuggu þau og störfuðu til ársins 1978, að þau flytja aftur á Selfoss og þar hafa þau dvalið síð- an, bæði við kennslu til að byija með, en árið 1980 tók Hjörtur við starfi framkvæmdastjóra Sambands sunnlenskra sveitarfélaga. Þessu starfi fylgdu mikil ferðalög, vítt og breitt um landið, og á þessum ferða- lögum nýtti Hjörtur sér þá óspart farsímann til að tilkynna konu sinni staðarákvarðanir og heimkomur. Þeim hjónum varð ekki sjálfum bams auðið, en 12. ágúst 1960 fæddist á heimili þeirra lítil stúlka, sem þau eignuðust. Hún hlaut nafn- ið Sigrún og kom eins og sólar- geisli inn í líf þeirra og hefur æ síð- an verið þeim góð og elskuleg dótt- ir og veitt gleði og yl inn í líf þeirra. Sigrún og Björn Geir, maður henn- ar, eru bæði læknar ojg eiga þau tvo syni, Hjört Geir og Olaf Hrafn, og fram á síðustu stundu var amma að hugsa um litlu vinina sína og gleðjast yfir framförum þeirra. Ólöf var vel gefin kona. Hún þurfti snemma að takast á við al- vöru lífsins og aðstoða móður sína með systkinin, er faðir þeirra féll skyndilega frá af slysförum. Og alla tíð lét hún sér mjög annt um fjöl- skyldu sína, sem galt henni í sömu mynt og kom það ekki sist fram nú seinni árin, er heilsan fór að bila. Síðasta árið var erfitt, sífelld bar- átta við skæðan sjúkdóm og sigraði Ólöf mikið lengur en nokkurn gat grunað i þeirri baráttu. Þó fór svo eins og ætíð, að enginn sigrar dauð- ann, og síðla kvölds 4. ágúst síðast- liðinn kvaddi Ólöf mín þennan heim á sínu eigin heimili í umsjá þeirra, er henni vora kærastir. Bróðir minn góður, elsku Sigrún, Bjöm Geir, Hjörtur Geir og Ólafur Hrafn, innilegar samúðarkveðjur frá okkur systkinum þínum. og fjöl- skyldum. Megi minningin um góða eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu lifa með ykkur um ókomin ár. Einnig sendum við systkinum Ólafar og fjölskyldum þeirra sam- úðarkveðjur. Við skulum minnast Ólafar og hugga okkur við brot úr kveðju eftir Jóhannes úr Kötlum. Vor sál er svo rík af trausti og trú, að trauðla mun bregðast huggun sú. Þó ævin sem elding þjóti, guðs eilífð blasir oss móti. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur - síðar. Kristín Ingibjörg. Elsku frænka mín! Nú ertu farin og þú fórst í friði. Mikið langaði mig að sjá þig, fyrst ég var nú loksins komin heim. En ég á góðu minningarnar um þig og hef fengið að fylgjast með þér und- anfarna daga. Ég mun lengi geyma minninguna um það hversu gott var að koma með Sigrúnu heim á Kleppjárns- reyki til ykkar Hjartar, veturinn sem ég dvaldi í Reykholti. Helgarnar voru fljótar að líða á Kleppi, og fór- um við jafnan vel nestaðar til baka. Við þóttumst miklir höfðingjar á heimavistinni með skúffuköku frá þér undir rúmi með kaffikremi of- aná. Hafðu þökk fyrir allt elsku Lóló og vegni þér vel á æðri tilverustig- um. Fjölskylda þín er þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista með þér lengur en á horfðist og stolt yfir rólyndi þínu og æðruleysi þar til yfir lauk. Hugurinn leitar til þeirra sem næst þér standa, Hjartar, Sigrún- ar, Björns Geirs, líka drengjanna ykkar, systkina þinna og systkina- barna, og þeirra sem sárast sakna þín. Hvíl þú i friði kæra frænka. Ragnheiður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.