Morgunblaðið - 15.08.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995 35
+ Gyða var fædd
í Reykjavík 11.
sept. 1918. Hún lést
á Borgarspítalan-
um 6. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Sig-
geir Einarsson, f.
11. sept. 1894, d. 20.
maí. 1972, bakari
og síðar póstvarð-
sljóri og Hrefna
Einarsdóttir, f. 14.
ágfúst 1901, d. 9.
nóv. 1955, þau slitu
samvistir. Seinni
maður Hrefnu var
Guðmundur Þórðarson, f. 14.
janúar 1903. Gyða á tvo albræð-
ur, Hafstein, f.24. nóv. 1919 og
MÍN FYRSTU kynni af Gyðu Sig-
geirsdóttur og eiginmanni hennar
Agli Bjarnasyni fornbókasala hófust
fyrir 24 árum er ég tók að eltast
við dóttur þeirra Soffíu. Við, urðum
fljótt vinir og smám saman þróuðust
málin þannig að ég var fluttur inn
á heimili þeirra. Þau tóku mér af
örlæti og gjafmildi og allt í einu var
ég orðinn einn af fjölskyldunni. Var
farinn að mæta reglulega í mat,
borða ótæpilega, hlusta á rokkið inni
hjá okkur, enda stoppaði hávaðinn
við dyrastafinn og skólataskan fór
í Lundarbrekkuna.
Gyða og Egill voru miklir andans
menn, Egill mikill kvæðamaður og
listaþýðandi og Gyða glæsileg hefð-
ardama fram í fingurgóma. Gestrisni
var henni í blóð borin og hafði hún
gaman af að fá fólk til sín og veitti
höfðinglega. Hjá þeim kynntist ég
klassískri tónlist, söngleikjum og
leikhúsum.
Heimili Gyðu var einstaklega fal-
legt og smekklegt og var hún óþreyt-
andi við að bæta og breyta enda
fengum við karlmennirnir yfirleitt
að færa húsgögn á milli og athuga
hvort þau færu betur svona en ekki
hinsegin. Var oft gert góðlátlegt
grín að þessum tilfæringum en við
urðum reyndar að viðurkenna að
útkoman varð oftast betri. Enda var
Gyða fengin til að endurraða eftir
að við Soffía fluttum að heiman.
Sem dæmi um smekkvísi Gyðu,
má taka að þegar þau hjón fluttu á
Einar, f.17. sept.
1921. Hún á fimm
hálfsystkini sam-
feðra. Gyða giftist
1939 Agli Bjarna-
syni fornbókasala,
f. 20. febrúar 1915,
d. 7. mars 1993.
Börn þeirra eru: 1)
Hrafnkell, f. 1940,
maki Anna V. Sig-
uijónsdóttir. 2) Ol-
afía, f. 1943, maki
Gunnar Friðjóns-
son. 3) Soffía, f.
1953, maki Gunnar
Haraldsson. Útför
Gyðu fer fram frá Kópavogs-
kirkju þriðjudaginn 15. ágúst
kl. 15.
Kópavogsbraut la, sem Sunnuhlíð-
arsamtökin byggðu fyrir aldraða
Kópavogsbúa, þá var ævinlega íbúð
þeirra sýnd, þegar gesti bar að garði
hjá samtökunum.
Þegar við Soffía stofnuðum okkar
eigið heimili minnkaði ekki sam-
bandið. Við fórum oft saman á
morgnana í vinnuna og við Egill í
sund í Vesturbæjarlaugina. Meira
að segja kom það oft fyrir að þegar
var stoppað fyrir utan pósthúsið til
að hleypa Gyðu út að morgni að hún
átti síðdegisvakt og var því ekki
með. Svo mikill gat vaninn orðið.
Við fórum með þeim hjónum í
ferðalög, stutt sem löng, innan lands
og utan. Ógleymanlega sumarleyfis-
ferð fórum við saman til Algarve í
Portúgal á árinu 1982 og er hún enn
í umræðunni hjá fjölskyldu minni.
Á ferðum okkar innanlands var
sama hvar við vorum stödd á land-
inu, sú vitneskja sem Egill hafði um
landið og staðhætti og Gyða um
mannfólkið, hún þekkti alla. Þvílíkir
fróðleiksbrunnar og hvílíkur kjána-
skapur að skrá það ekki niður, en
einhverra hluta vegna reiknaði mað-
ur alltaf með að geta gengið að
upplýsingunum vísum. Og áður en
maður áttaði sig á var það um sein-
an. Fórum við í margar ferðir með
þeim í sumarbústaði með strákana
okkar. Ógleymanlegt er hve gjafmild
hún var, alltaf kaupandi einhveija
smáhluti og þurfti ekki stór tilefni
til, alltaf verið að gauka að þeim
einhveiju, og eftir að dóttir okkar
fæddist urðu þær mjög hændar hvor
að annarri.
Á milli níu og ellefu ára dvaldist
Gyða tvívegis á Vífilsstöðum vegna
berkla, sem hún síðan náði sér alveg
af og þótt hún tapaði heilu skólaári
á þessum tíma lauk hún gagnfræða-
prófi með góðri einkunn. Ómögulegt
er að vita hversu langt hún hefði
náð ef hún hefði fengið tækifæri að
læra meira, en hún lagði mikla
áherslu á að börnin hennar mennt-
uðu sig.
Gyða starfaði þann tima sem ég
þekkti hana hjá Póstinum á aðalpóst-
húsinu við afhendingu ábyrgð-
arbréfa, og sinnti hún því verki sem
sönn meyja, nákvæm fram í fingur-
góma.
Þremur árum eftir að hún hætti
hjá póstinum var hún greind með
Alzheimersjúkdóminn, en barátta
hennar við hann stóð í um átta til
tíu ár.
Alla tíð hélt hún reisn sinni og
glæsileik, hvar sem var og við hvaða
tækifæri sem var allt fram á dánar-
dag þrátt fyrir hinn erfiða sjúkdóm
og sá maður best undir lokin hve
reisnin var henni eðlileg.
Mættu þær margar fegurðardís-
irnar öfunda hana af hve slétt húðin
var allt til enda.
Ég vil senda allri fjölskyldu Gyðu
og vinum hennar mínar samúðar-
kveðjur, því við höfum misst eina
af okkar hefðardömum og langar
mig að enda þessa kveðju á ís-
lenskri þýðingu á dönsku Ijóði um
lýsingu á Alzheimersjúkdómnum.
Þú hvarfst
þér sjálfri og okkur
hvarfst
inn í höfuð þitt
dyr eftir dyr luktust
og gátu ei opnast á ný
þú leiðst
hægt á brott
gegnum opnar bakdyr
bústaður sálarinnar
er þar enn
en stendur auður
líkami þinn hlekkjaður
við líf
sem ekki er hægt að lifa
þú horfir framhjá mér
tómum aupm
engin fortíð
engin framtíð
engin nútíð
við fengum aldrei að kveðjast.
Gunnar Haraldsson.
GYÐA
SIGGEIRSDÓTTIR
ÞORA
ÓLAFS-
DÓTTIR
+ Þóra Ólafsdóttir fæddist á
Hvítárvöllum í Borgarfirði
20. desember 1905. Hún lést á
Landspítalanum 29. júlí síðast-
liðinn og fór útförin fram frá
Fossvogskirkju 9. ágúst.
ÉG OG amma Lóla, eins og ég kall-
aði hana, höfum alltaf verið góðar
vinkonur. Þegar ég var lítil kom ég
oft í heimsókn og_ fékk að sofa, þá
var alltaf veisla. Ég fékk að velja í
matinn, það var hlaðið í mig ís og
sælgæti og við spiluðum. Hún kenndi
mér megnið af þeim spilum og köpl-
um sem ég kann. Svo fórum við á
Laugaveginn að spóka okkur, og
stundum fékk ég lítinn pakka eða
góðgæti í nesti heim! Ég hlakkaði
alltaf til að heimsækja ömmu og ég
held að ekkert af barnabarnabörnun-
um hennar hafi verið jafnmikið hjá
henni og ég. Ég er eiginlega nýhætt
að gista hjá henni og nú er ég fjórt-
án ára.
Mér þótti óendanlega vænt um
ömmu mína en hún hafði lifað langa
ævi og þó að það sé sárt að missa
hana þá var hennar tími kominn og
ég er viss um að nú er hún hamingju-
söm hjá afa í himnaríki. Ég á aldrei
eftir að gleyma henni eða okkar
stundum saman, eða eins og skáldið
segir: „það sakar ei minn saung, því
minníng þín í sálu minni eilíft líf sér
bjó“. (Halldór Laxness).
Tinna Þorvaldsdóttir.
t
FINNBOGI STEFÁNSSON,
Þorsteinsstöðum,
Lýtingsstaðahreppi,
lést 12. ágúst í Sjúkrahúsinu Sauðárkróki.
Fríða Eðvarsdóttir.
t
Faðir minn,
BALDVIN BALDVINSSON
vistmaðurá Hrafnistu,
lést laugardaginn 5. ágúst.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þórarinn Baldvinsson.
t
Ástkœr eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BJÖRN HALLDÓRSSON,
Lynghaga14,
Reykjavik,
er lést 4. ágúst, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
1 5. ágúst kl. 13.30.
Elín Guðbjörnsdóttir,
Guðbjörn Björnsson, Júlíana B. Erlendsdóttir,
Júlía Björnsdóttir, Gunnar Fri'mannsson,
Anna Guðný Björnsdóttir, Gunnar Kr. Guðmundsson
og barnabörn.
t
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ELÍN SIGTRYGGSDÓTTIR,
Keilusfðu 10B,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 16. ágúst kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hennar, eru
beðnir að láta Sálarrannsóknarfélagið á
Akureyri njóta þess.
Ágústa Jónasdóttir,
Ólöf Helga Pálmadóttir, Theódór S. Halldórsson,
Margrét H. Pálmadóttir, Páll Jóhannesson
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir og
tengdamóðir,
HJÖRDÍS JÓHANNSDÓTTIR,
Gnoðarvogi 66,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 17. ágúst kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Marinó Davíðsson,
Guðrún Dröfn Marínósdóttir, Stefán Sigurjónsson,
Eggert Már Marinósson, Kristín Barkardóttir.
t
Þökkum hlýjar kveðjur og vináttuþel vegna andláts
SÓLVEIGAR VILHJÁLMSDÓTTUR.
Sigri'ður Ingimarsdóttir,
Vilhjálmur Árnason,
Guðrún Vilhjálmsdóttir,
Árni Vilhjálmsson,
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir,
Arinbjörn Vilhjálmsson,
Þórhallur Vilhjálmsson
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
GYÐU B. ARADÓTTUR,
Naustahvammi,
Neskaupstað.
Guðveig B. Ragnarsdóttir,
Ari V. Ragnarsson,
Inga S. Ragnarsdóttir,
Gestur Janus Ragnarsson,
og aðrir aðstandendur.
t
Þökkum öllum þeim, sem vottuðu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
KRISTJÁNS ODDSSONAR,
Álftamýri 52,
Reykjavík,
sem lést 30. júlí sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sér-
stakar þakkir til starfsfólks deildar 2 Vífilsstaðaspítala fyrir góða
umönnun.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir til hinna fjölmörgu, er
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
VILHELMÍNU ÞÓRDÍSAR
VILHJÁLMSDÓTTUR,
áðurtil heimilis
i' Eskihli'ð 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafn-
istu, sem sýndu henni hlýhug og umönnun í veikindum hennar.
Vilhjálmur Sigtryggsson, Herdís Guðmundsdóttir,
Halla Sigtryggsdóttir, Baidur Bjarnasen,
Þórdís Sigtryggsdóttir, Hörður Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.