Morgunblaðið - 19.09.1995, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bensínið hækkar
Verð frá
18.9.95
4 Verðið Vérðið Hækkun
Shell ígær idag Kt\ %
92 oktan 66,50 67,70 1,20 14
95 68,70 69,90 1,20 1,7
98 72,10 73,60 1,50 2,0
Gasolía 22,90 24,40 1,50 6,1
ESSO
92 oktan 66,20 47,60 1,40 2,1
95 68,60 70,10 1,50 2,1
98 72,10 73,50 1,40 1,9
Gasolía 22,90 24,40 1,50 6,1
ÖLÍS
92 oktan 66,20 67,70 1,50 2,2
95 j: 68,50 70,00 1,50 2,1
98 72,00 73,50 1,50 2,0
Gasolía 22,90 24,40 1,50 6,1
Bensínið
hækkar
um 2%
OLÍUFÉLÖGIN hækkuðu verð á
bénsini og díselolíu í gær. Bensínið
hækkar að jafnaði um 2%, en díseiol-
ían hækkar um ríflega 6%. Að sögn
talsmapna olíufélaganna stafar
hækkunin fyrst og fremst af hækkun
á vérði dollars. Bensín lækkaði í
verði 28. júní sl. og þá kostaði dollar-
inn um 63 krónur, en nú er dollar
kominn upp í 66,60.
Innkaupsverð á díselolíu hefur
hækkað talsvert síðustu vikur, sem
skýrir meiri hækkun á henni en á
bensíni. Eftir hækkunina er verð á
92 oktana bensíni lægst hjá Olíufé-
laginu. Skeljungur er með lægsta
verð á 95 oktana bensíni og Olíufé-
lagið og Olís eru með lægsta verð á
98 oktaha bensíni. Sama verð er á
díselolíu hjá öllum.
Fjármálaráðuneytið um þyrlutryggingar Gæslunnar
Ekki var staðið
rétt að útboði
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
komist að þeirri niðurstöðu að ekki
hafí verið staðið rétt að málum við
framkvæmd á útboði Ríkiskaupa á
þyrlutryggingum fyrir Landhelgis-
gæsluna. Ráðuneytið telur einnig
gagnrýnisvert að vátryggingamiðl-
arinn Nicholson Leslie Aviation
(NLA) hafí ekki sinnt ítrekuðum
óskum Landhelgisgæslunnar að fá
afhent vátryggingarskírteini áður
en vátryggingar TF-SIFjar voru
færðar frá NLA yfír til Sjóvá-
Almennra hf.
NLA sendi fjármálaráðuneytinu
kvörtun 8. júní sl. vegna tilflutnings
vátrygginganna og 20. júní kærði
breski vátryggingamiðlarinn NHK,
alþjóðleg vátryggingamiðlun, fram-
kvæmd útboðs á vátryggingum
vegna þyrlunnar TF-LÍF til ráðu-
neytisins og óskaði einnig eftir
rannsókn á því hvers vegna forráða-
menn Landhelgisgæslunnar hefðu
fært vátryggingar þyrlunnar TF-
SIFjar milli vátryggingamiðlara.
í svari fjármálaráðuneytisins til
NLA segir að eftir skoðun á mála-
vöxtum verði að telja að með til-
færslu vátrygginga TF-SIFjar milli
vátryggingamiðlara hafi Landhelg-
isgæslan rofið samning á grund-
velli útboðs. Ráðuneytið telji að til-
færslan sé ekki nægjanlega rök-
studd. Hins vegar beri á það að líta
að Landhelgisgæslan hafí ítrekað
óskað eftir því við NLA að fá af-
hent vátryggingarskírteini en ekki
fengið og verði það að teljast gagn-
rýnisvert.
í svarbréfí ráðuneytisins til NHK
NLA vátrygginga-
miðlun gagnrýnd
fyrir að afhenda
ekki vátryggingar-
skírteini
segir: „Með hliðsjón af lögum og
reglum stjórnar opinberra innkaupa
um innkaup á Evrópska efnahags-
svæðinu er það mat ráðuneytisins
að ekki hafi staðið rök til hraðút-
boðs við kauþ á vátryggingum þyrl-
unnar TF-LIF. Skortur á upplýsing-
um í útboðslýsingu var ennfremur
til þess faHinn að tefja fyrir tilboðs-
gerð á annars stuttum tilboðstíma.
Fjármálaráðuneytið vill taka
fram að það getur ekki rift þeim
samningum sem gerðir hafa verið
á grundvelli útboðsins. Hins vegar
vill ráðuneytið mælast til þess að
fulltrúar NHK Intemational Ltd.
og Ríkiskaupa gangi til samninga
um hæfílegar bætur til NHK Inter-
national Ltd. Bæturnar miðist við
kostnað sem fyrirtækið hafði af því
að undirbúa tilboð sitt og taka þátt
í útboðinu eins og kveðið er á um
í lögum nr. 52/1987 um opinber
innkaup með síðari breytingum."
Málshöfðun ólíkleg
Gísli Maack, starfsmaður NHK á
íslandi, sagðist vera mjög ánægður
með að ráðuneytið hafí fallist á
sjónarmið NHK í þessu máli. „Það
er úrskurðað að þetta útboð var
ólöglegt á gínum tíma,“ segir hann.
„Við munum núna setjast niður og
skoða okkar stöðu. Það þýðir ekki
að við séum í málshöfðunarhugleið-
ingum. Slíkt er ekki ofarlega á
blaði,“ sagði hann. Gísli sagði að
ekki lægi fyrir hvaða tjón fyrirtæk-
ið hefði beðið. Hann sagðist hins
vegar ekki vera sáttur við að skv.
úrskurðinum stæði samningur, sem
ólöglega hefði verið stofnað til,
áfram í tvö ár.
Athugasemdum mótmælt
María Sólbergsdóttir, fjármála-
stjóri Landhelgisgæslunnar, bendir
á að ráðuneytið taki undir þær skýr-
ingar Landhelgisgæslunnar að
þrátt fyrir ítrekaðar óskir hefði
NLA ekki getað framvísað vátrygg-
ingarskírteini vegna TF-SIFjar. Það
hafí verið meginástæðan fyrir því
að vátryggingar þyrlunnar voru
fluttar frá NLA yfir til Sjóvá-
Almennra hf.
María segir vegna annarra at-
hugasemda ráðuneytisins að staðið
hafí verið að útboðinu á vátrygging-
um þyrlunnar TF-LÍF af hálfu
Landhelgisgæslunnar í fullu sam-
ráði við Ríkiskaup og framkvæmd
þess verið með þeim hætti sem Rík-
iskaup hafi talið réttasta. Þá væri
það alrangt að skort hafi upplýs-
ingar af hálfu Gæslunnar, sem hafi
á engan hátt reynt að teQa fram-
gang málsins. Sagði hún að Land-
helgisgæslan hefði svarað öllum
nánari fyrirspumum tryggingafé-
laganna eftir því sem þær bárust
eftir bestu getu.
■ Athugasemd/10
Ágreiningur vegna upptöku og flutnings á tónlist í nýrri kvikmynd
Niðurstaða náðist á fundi
Jóns og Hjálmars í gær
NIÐURSTAÐAN fékkst í málinu í gær-
morgun. Hjálmar og Jón áttu þá. fundi
með Eiríki Tómassyni, framkvæmda-
stjóra Stefs, Samtaka tónskálda og
eigenda flutningsréttar. Undirrituðu Jón og Hjálm-
ar plagg í þremur liðum. Orðrétt er plaggið svo-
hljóðandi:
Á fundi sem haldinn var mánudaginn 18. sept-
ember 1995, náðist svofelld niðurstaða milli þeirra
Hjálmars H. Ragnarssonar og Jóns Ásgeirssonar
vegna upptöku og flutnings á verkinu „Vísur
Vatnsenda-Rósu“ i kvikmyndinni „Tár úr steini,":
1. Hjálmar gerir ekki athugasemdir við það sem
Jón heldur fram, að hann eigi höfundarrétt að
stefi í miðhluta verksins „Vísur Vatnsenda-Rósu“
sem útsetjari skv. 5. gr. höfundarlaga. Hjálmar
vill jafnframt taka fram að hann hafí staðið í
þeirri trú að umrætt stef væri þjóðlag, sem ekki
væri háð höfundarrétti, og byggt það álit á hand-
riti Jóns sjálfs. Jón viðurkennir að þar sé verkið
skráð sem íslenskt þjóðlag í raddsetningu hans.
2. í ljósi þessa fellur Jón frá fjárkröfum á hendur
Hjálmari og framleiðendum kvikmyndarinnar
vegna upptöku og flutnings á fyrrgreindu verki,
svo framarlega sem upplýsingum um verkið verði
breytt í samræmi við lið 1 hér að framan.
3. Aðilar eru jafnframt sammála um að fara fram
á að upplýsingum á geislaplötu með tónlist úr
kvikmyndinni verði breytt, svo og í afkynningar-
texta á kvikmyndinni sjálfri verði því við komið
án kostnaðar fyrir framleiðanda hennar.
Upphaf málsins var það, að Jón Ásgeirsson rit-
aði Hjálmari H. Ragnarssyni opið bréf í Morgun-
blaðið á sunnudaginn. Hann segist þar hafa unn-
ið tónverk úr laginu „Vísur Vatnsenda-Rósu“ og
nái höfundarréttur hans yfir breytinguna. Lagið
var flutt í kvikmyndinni „Tár úr steini" án þess
að Jóns væri þar að nokkru getið.
Niðurstaða hefur náðst milli
Hjálmars H. Ragnarssonar, tón-
skálds, og Jóns Ásgeirssonar,
tónskálds og gagnrýnanda,
vegna upptöku og flutnings á
verkinu „Vísur Vatnsenda-Rósu“
í kvikmyndinni „Tár úr steini“.
Hjálmar H. Jón
Ragnarsson Ásgeirsson
„Höfundarréttur nær yfir breytinguna“
Jón segir í greininni að verkið sé í þrískiptu
formi og sé A-hlutinn íslenskt þjóðlag en B-hlut-
inn hans tónsmíð. Hann hafi svö breytt tveimur
síðustu töktunum í niðurlagi þjóðlagsins. „Höfund-
arréttur minn nær því yfír breytinguna á þjóðlag-
inu, frumgerð miðhlutans og samskipan þessara
lagá, sem mynda þá heild, er nefnist Vísur Vatn-
senda-Rósu ..." segir Jón í greininni. Hann segir
umhugsunaratriði vegna lagsins sex: Hjálmar
noti breytinguna á þjóðlaginu og miðlagið án leyf-
is, raddsetji án leyfís, hljóðriti án leyfís, noti lagið
í kvikmynd án leyfis, gefí út á geisladisk án leyf-
is og eigni sér allt hugverkið.
Hjálmar skrifar svargrein í Morgunblaðið í dag.
Þar segir hann m.a. að fyrir um aldarfjórðungi
hafí Jón Ásgeirsson lagt fram handrit með yfír-
skriftinni „ísl. þjóðlög radds. Jón Ásgeirsson." í
íslenskri tónverkamiðstöð. Eitt atriði í handritinu
beri yfirskriftina „Vísur Vatnsenda-Rósu (1795-
1855) ísl. þjóðl. radds. Jón Ásgeirsson." Jón hafí
ekki svo hann viti gert athugasemdir við að lögin
væru seld, flutt, gefin út og fjallað um þau með
hans eigin kynningu fyrr en nú.
„Raddsetning nýtur ekki
höfundarlegrar verndar"
„Raddsetning, skv. laganna bókstaf, nýtur ekki
höfundarréttarlegrar verndar, og því síður eignast
raddsetjari stef með því einu að setja það í hljóm-
rænan búning, þ.e.a.s. að raddsetja það. Útsetning
tónverks nýtur hins vegar lagalegrar verndar,
enda er í útsetningum tónlistar oft um frumort
efni að ræða þó ekki sé það í Öllum tilfellum,"
segir- Hjálmar.
Hjá íslenskri tónverkamiðstöð fengust þær upp-
lýsingar að geisladiskum með tónlist úr kvikmynd-
inni hefði verið dreift í verslanir á föstudag. Disk-
amir hefðu hins vegar verið innkallaðir eftir grein
Jóns um helgina. Askell Másson, formaður Stefs,
sagði að diskamir kæmu aftur í búðir með nýjum
bæklingi eftir nokkra daga.
■ Rétt er rétt - málsvörn/25
Vegagerðin
opnar tilboð
Lægsta
tilboð 59%
af áætlun
VEGAGERÐIN opnaði tilboð í tvö
verk á mánudag.
Sextán tilboð bárust í gerð 4,7
km vegarkafla á hringveginum um
Fjallsá og Hrútá á Breiðamerkur-
sandi. Lægsta tilboð áttu Hjarðar-
nesbræður á Höfn, 29.137.700 krón-
ur og er það 59% af kostnaðaráætl-
un. Næstir komu Myllan sf. á Egils-
stöðum með 29.863.400 kr. og Höll-
ur sf. í Reykjavík með 33 milljónir.
Hæsta tilboðið hljóðaði upp á 59,5
milljónir. Kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar fyrir þetta verk hljóðaði
upp á 49.352.000 krónur.
Vegurinn verður fluttur fjær Fjall-
sjökli og styttist hringvegurinn lítil-
lega við það. Vegargerðin hefst í
haust og er reiknað með að henni
ljúki með lagningu bundins slitlags
næsta sumar. Verkinu skal að fullu
lokið 15. júlí 1996. Yfír Fjallsá kem-
ur ný 128 metra brú og önnur 44
metra á Hrútá. Brúasmíðin verður
líklega boðin út síðar á þessu ári.
Sjö tilboð í kafia á
Krýsuvíkurvegi
Sjö tilboð bárust í gerð 1,8 km
vegarkafla um Seltún og Grænavatn
á Krýsuvíkurvegi. Lægsta tilboð átti
Loftorka hf. í Reykjavík, 11.215.000
krónur. Næstir komu Uppfylling sf.
í Garðabæ með 11.462.600 kr. og
Guðjón Þorkelsson og Smári Krist-
jánsson með 12.529.000. Hæsta til-
boð hljóðaði upp á tæpar 14,9 millj-
ónir en kostnaðaráætlun var 16,5
milljónir.
Tilboðsfrestur í snjómokstur á
Austurlandi 1995-97 hefur verið
lengdur um eina viku.
Varði doktors-
ritgerð um
ljósleiðara
•BERA Pálsdóttir varði_doktors-
ritgerð í eðlisfræði við Árósahá-
skóla þann 31. október 1994. Tit-
ill ritgerðarinnar er: „Properties
and gain of rare earth doped silica
fibers“. Ljósleiðarar íbættir erb-
ium eru meginvið-
fangsefni ritgerð-
arinnar. Ljós-
magnarar byggð-
ir á þessari teg-
und ljósleiðara
hafa á allra síð-
ustu árum verið
notaðir í ljósræn
fjarskiptakerfi og leitt til stórauk-
innar flutningsgetu. Verkefnið var
fjármagnað af Akademiet for de
tekniske Videnskaber og fyrirtæk-
inu LYCOM. Rannsóknirnar voru
unnar hjá LYCOM, sem þróar og
framleiðir ljósleiðara til fjarskipta.
Bera starfar nú þar við rannsókn-
ir og þróun á erbium ljósleiðurum.
Bera lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Kópavogi
1982, B.Sc. prófi í eðlisfræði frá
Háskóla íslands 1986 og Cand.
Scient. prófi frá Kaupmannahafn-
arháskóla 1990. Bera starfaði við
rannsóknir í þéttefnisfræði við
Raunvísindastofnum _ Háskólans
samhliða námi við HÍ. Hún stund-
aði framhaldsnám í eðlisfræði við
University of Cincinnati í Banda-
ríkjunum í eitt ár að loknu námi
í HÍ.
Foreldrar Beru eru Svandís
Skúladóttir og Páll Theodórs-
son. Hún er gift Gunnari Gunn-
arssyni eðlisfræðingi og eiga þau
tvo syni, Kára og Ivar.