Morgunblaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR UNDIRRITAÐUR hefur undanfarin átta ár verið búsettur í Noregi og fylgst með Smugumálinu frá upphafi, sérstaklega triið Norðmanna. Hef- ur mál þetta varpað skugga á annars mjög góð samskipti milli þessara bræðraþjóða. Norðmenn eru sem þjóð afskaplega vin- veitir íslendingum og má segja að stundum hafi manni fundist að betra sé að vera ís- lendingur í Noregi, en infæddur, svo vel er manni tekið. íslendingar njóta þessara viðhorfa enn í Smugumál- inu. Norðmenn eru sem þjóð sein- ^•eyttir til reiði og reiðast gjarnan meira fyrir hönd annarra en sjálfs síns. í þessu tilfelli reiðast þeir fyrir hönd físksins og fískivernd- unarsjónarmiða. Þeir telja sig gjaman vera einhveija mestu umhverfisvemdunarþjóð í heimi. Almenningur á Oslóarsvæðinu, þar sem stærsti hluti þjóðarinnar býr, er yfirleitt ekki upptekinn af þessu máli að ráði. Sjaldan varð maður var við að Norðmenn hæfu máls á framferði íslendinga að Sjf rra bragði, þó oft væri því laum- að að, mest í stríðni og mest þeir er maður þekkti best. Hins vegar varð maður oft var við óánægju og jafnvel reiði, ef maður spurði nánar út í viðhorf mannsins á götunni til málsins. Viðhorfín voru qftast á þessa leið: „Hvemig geta íslendingar, sem hafa verið fyrir- mynd annarra þjóða í fískverndun- armálum, breyst í slíka rányrkju- þjóð?“ Aróðursstríðið tapað Athyglisvert hefur verið að fylgjast með einhliða áróðri fjöl- miðla beggja landa. Einhverjar ausur úr norskum blöðum til stuðnings íslending- um er slegið upp, nán- ast sem viðhorfi Norð- manna allra í íslensk- um blöðurn. Að mínu mati hafa íslendingar tapað áróðursstríðinu í Noregi fyrir löngu. Málið er matreitt fyrir Norðmenn af sijórn- málamönnum q.fl. á einfaldan hátt: íslend- ingar eru búnir að of- veiða fiskinn heima hjá sér og þá koma þeir til okkar og byija á okkar stofni. Islend- ingar hafa ekki kvóta. Veiðar án kvóta eru rányrkja, því eru íslendingar rán- yrkjuþjóð og slíkir eiga ekkert gott skilið. Nú ef við Norðmenn eigum ekki svæðið lagalega séð, þá verður að breyta því strax, því rányrkjuna verður að stöðva, físki- stofnanna vegna auðvitað. Sið- ferðilega, landfræðilega og hefðarlega séð er þetta okkar svæði og það erum við, sem höfum með miklum fórnum, ræktað upp stofninn að nýju. Þetta er því okk- ar fiskur. Punktur og basta. Þeir Norðmenn sem hafa stutt íslendinga í þessu máli hafa að mínu mati flestir gert það meira af frændsemi, en að þeir hefðu nokkur haldgóð rök. Út frá því sem ég hef heyrt, er hægið að þeim hafí tekist að vinna íslendingum fylgi að ráði. Samt sem áður skammast flestir Norðmenn sín fyrir að eiga í deilum við litla smáþjóð, sem að auki er nánast Norðmenn í útlandinu, svipað og við lítum á Vestur-íslendinga. Því miður, hegðun íslendinga er ófyrirgefanleg, það er ekki hægt að semja. Söguskoðun lengra en tíu ár aftur í tímann virðist ekki vekja áhuga almennings. Hjá mörgum Islendingum er málið álíka einfalt: Norðmenn eiga ekk- ert í þessum físki og eru bara frekjur. Það er varla jákvætt fyrír íslendinga, segir Einar Guðmundsson, ef suðrænar þjóðir feta í fótspor þeirra á norðurslóðum. Vandi norskra stj órnmálamanna Norskir stjórnmálamenn eru í klípu í þessu máli. Þeir byijuðu með harðorðum yfirlýsingum sem erfitt verður að éta ofan í sig, þeir þurfa auðvitað að passa sitt fylgi. Síðan hafa þeir áttað sig á að málið er ekki svo einfalt sem þeir héldu. Þeim er talsverð vor- kunn, því enginn vafí er að Norð- menn líta, allavega á seinni árum, á Svalbarða sem hluta af Noregi, svipað og Grímsey er íslensk. Þeir hafa einnig fyrir nokkrum árum lagt mjög þungar byrðar á norska útgerð með loforð um betri tíma síðar. Á því svæði sem lifir af físki í Noregi á svipaðan hátt og við íslendingar gerum býr um hálf milljón íbúa. Hér á við um Norður- Noreg, sérstaklega Finnmörk. Út- gerðin varð að halda að sér hönd- um í um það bil þijú ár. Þetta leiddi af sér atvinnuleysi, fólks- flutninga, gjaldþrot, sölu á bátum og hvaðeina. í raun mikið þjáning- artímabil. Þegar þeir mega loks fara að veiða aftur, mæta þarna Islendingar, sjaldgæfír gestir á þessum slóðum, og fara að not- færa sér árangur verndarstefn- unnar án nokkurra fórna. Það er því ekki létt fyrir norska stjórn- málamenn að segja norskum sjó- mönnum að nú eigi að hleypa fleiri útlendingum að. Og þarna eru auðvitað mörg atkvæði í húfi. (Enginn nefnir peninga í þessu máli, en auðvitað er það kjarn- inn.) Skilaboðin eru skýr: ef ykkar fískur er ofveiddur, þá skuluð þið bara færa sömu fórnir og við og hætta að veiða um skeið. Það gleymist auðvitað að við höfum engan iðnað eða olíu að halla okk- ur að eins og þeir höfðu sjálfir. Erfðamál Þegar ættingjar snúast hveijir gegn öðrum er oft um erfðamál að ræða. Það má kannski segja það sama í þessu máli, þ.e. upp- gjör eftir fall danska stórveldisins, sem átti meira og minna öll þau lönd sem liggja að Norður-Atlants- hafi, fyrir utan Rússland og Finn- land. Stóri bróðir, Noregur, sem fyrst varð fullvaxta/sjálfstæður gat nýtt sér forskotið á hina, td. með töku Jan Maýen. Ekki er laust við að beri á stórveldisdraumum hjá Norðmönnum í upphafí sjálf- stæðis, sbr. tilburði þeirra að eigna sér land á Suðurheimskautinu o.fl. Hvernig hefur svo skiptingin á hafinu orðið? Þegar íslendingar ákváðu sér 200 mílur færðu þeir Norðmönnum stóran hluta Norð- ur-Atlantshafsins,^ svo mikil er þeirra landhelgi. Ég sé ekki betur af venjulegu korti en að Svalbarði hafi stærri landhelgi en Island og Jan Mayen stærri en Færeyjar. (Vonandi er þetta rangt.) Er þetta réttlát skipting? Hvað á að ráða? Stærð strandlengju, eða t.d. fólks- fjöldi. Grænlendingar hafa óskap- lega strandlengju, en eru fáir. Söguleg hefð? Rússar tóku strand- lengju Finnlands við Barentshafið með valdi fyrir aðeins u.þ.b. 50 árum. Enginn minnist á það. Svalbarðasamningurinn Af hveiju skrifuðu íslendingar ekki undir Svalbarðasamninginn 1920? Eftir því sem ég best veit fóru Danir með íslensk utanríkis- mál á þessum tíma. Skrifuðu Dan- ir þá ekki undir fyrir hönd íslend- inga? Tóku þeir kannski sérstak- lega fram að þeirra undirskrift gilti ekki fyrir íslendinga? Eða sagði ísland sig úr þessum samn- ingi strax og við urðum fullvalda? Ég spyr því í fáfræði minni: Hve- nær hættu íslendingar að vera aðilar að Svalbarðasamningnum? íslendingar eiga sterkan leik Hvað vilja íslendingar eiginlega í Smugunni? Það er erfitt að átta sig á stefnunni. Helst heyrir mað- ur „það er ekki hægt að banna okkur þessar veiðar“ eða „við eig- um rétt á kvóta“ o.fl. í þessum dúr. Er þetta stefna? Hvert er lokamarkmið íslenskra stjórnvalda í þessu máli? íslendingar eiga hér sterkan leik. Stjórnvöld eiga að setjast saman með fiskifræðingum og öðrum sérfræðingum og ákveða strax kvóta fyrir íslendinga, sem er sanngjarn miðað við veiði ann- arra og miðað við þol fískistofna. Kvótinn má gjarnan vera það stór að hægt sé að gefa tilslakanir við samningaborðið. Norðmenn virða kannski kvótann að vettugi í byij- un, en því lengur sem þeir draga að semja því meiri hefð kemst á kvótann og einnig reynsla af því hvað stofninn þolir. Kvótalaus veiði gerir Norðmenn hrædda og reiða. Hafi íslendingar kvóta eru þeir ekki lengur „rán- yrkjuþjóð", sem mundi vera mikill sigur gagnvart almenningsálitinu í Noregi (og á íslandi). Það væri t.d. mjög sterkur leikur ef birtist frétt um að íslenskir togarar væru farnir úr Smugunni vegna þess að kvótinn væri uppurinn. Norskir stjórnmálamenn væru í allt ann- arri stöðu. Það að semja um kvóta- stærðir, sem varla er fréttnæmt, er allt annað en að þurfa að segja kjósendum sínum að þeir hefðu verið knúnir að samningaborðinu með yfirgangi rányrkjuþjóðar. Verndunarstefnu þarf fyrir allt hafið Sameiginleg stjóm á öllu Norð- ur-Atlantshafínu er það sem hlýtur að koma fyrr en síðar. Þetta svæði þarf að vémda í mörg hundmð ár. Nú hyllir undir slíka samvinnu og eru það gleðitíðindi. Mér fínnst sjálfsagt að bjóða Finnum þáttöku í slíku samstarfi, enda hefur Bar- entshafið verið þeirra haf þar til Stalín svipti þá landsvæðum með ofbeldi fyrir aðeins örfáum áratug- um. íslendingum væri sómi í að standa fyrir slíkri tillögu og styðja þannig táknrænt við bakið á smá- þjóð, sem hefur orðið fyrir barðinu á stórþjóð. íslendingum er engin sæmd af Smugumálinu og Norð- menn eru logandi hræddir um að fordæmi Islendinga eigi eftir að hvetja aðrar þjóðir til að hegða sér í auknum mæli á sama hátt. Það getur varla verið jákvætt fyrir ís- lendinga ef fleiri suðlægar þjóðir fylgja í fótspor þeirra og hvetja þannig til stórfelldrar ofveiði á norðurslóðum. Það er því allra hag- ur að semja hið fyrsta. Höfundur er starfnndi geðlæknir í Noregi. Norðmenn, íslend- ingar og Smugan Einar Guðmundsson Sveit +Film bikar- meistari 1995 BRIPS B r i d s h ö 11 i n Þönglabakka BIKARKEPPNI V BRIDSSAMBANDS ÍSLANDS 1995 SVEIT +Film sigraði sveit VÍB í hörkuleik um bikarmeistaratit- ilinn en úrslitaleikurinn fór fram sl. sunnudag. I sveit +Film spil- uðu feðgarnir Vilhjámur Sigurðs- son og Sigurður Vilhjálmsson, Valur Sigurðsson, Guðmundur Sveinsson, Jakob Kristinsson og Rúnar Magnússon. Kempan síunga, Vilhjálmur Sigurðsson, vann bikarinn í annað sinn en hann var í sigursveit Ármanns J. Lárussonar, sem vann fyrstu bikarkeppni Bridssambandsins 1977. Spilaður var 64 spila leikur í fjórum lotum og vann sigursveit- in fyrstu lotu, 40-35. Sveitin vann einnig aðra lotuna, 40-22, en í þriðju lotu kom sveifla til VÍB, 55-34, og leikurinn var í jafnvægi, 114 gegn 112 fyrir +Film. Siðasta lotan var sigur- vegaranna sem unnu 33-20 og þar með leikinn, 147-132. Nokk- uð óvænt en sanngjörn úrslit. Sveit VÍB spilaði gegn Sam- vinnuferðum/Landsýn í undan- úrslitum á laugardaginn. VIB byijaði illa, tapaði fyrstu lotunni 23-52 en vann leikinn nokkuð sannfærandi, 155-100. Hinn undanúrslitaleikurinn var +Film gegn Hjólbarðahöll- inni. Sá leikur þróaðist svipað. Hjólbarðahöllin vann fyrstu lotu 44-7, +Film vann tvær næstu, 19-12 og 23-12, en gerði út um leikinn í síðustu lotu, 45-13. Lokatölur 94-81. Fjölmennt var á úrslitaleikn- um. Keppnisstjóri var Sveinn R. Eiríksson. Forseti Bridssam- bandsins, Helgi Jóhannsson, af- henti verðlaun í mótslok, en þá voru einnig afhent verðlaun fyrir Kjördæmakeppnina, sem haldin var á Egilsstöðum í vor. Sveit Morgunblaðið/Arnór G. Ragnarsson BIKARMEISTARAR 1995, sveit +Film. Talið frá vinstri: Rúnar Magnússon, Guðmundur Sveinsson, Sveinn Sveinsson framkvæmdastjóri +Film, Jakob Kristinsson, Sigurður Vilhjálms- son, Vilhjálmur Sigurðsson og Valur Sigurðsson. Suðurlands vann þá keppni og Reykjaness vann aðra deildina í Afhentir voru verðlaunapen- tók við farandbikar sem Akra- kjördæmamótinu og spilar í ingar fyrir báðar deildir sem nesbær gaf til keppninnar. Sveit fyrstu deild að ári. Egilsstaðabær gaf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.