Morgunblaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Tvö erfið sjúkraflug hjá Flugfélaginu Erni á ísafirði Ellefu vindstig og svarta myrkur ísafirði - Flugmenn Flugfélags- ins Emis á ísafirði, þeir Egill Ibs- en, Gunnar Örn Hauksson og Bjartmar Amarsson fóru í tvö sjúkraflug um síðustu helgi. í bæði skiptin vora flugskilyrði með erfiðasta móti, 9-11 vindstig, auk svarta myrkurs í síðara fluginu. Fyrra flugið var farið um miðjan dag á laugardag frá ísafirði og þurfti að nota bifreið til að halda við flugvélina áður en hún hóf sig á loft. „Við ákváðum að láta bakka vélinni út á brautina, enda var mjög hvasst, 40-50 hnútar eða 11 vindstig. Eftir að við voram komn- ir í loftið gekk flugið vel til Reykja- víkur, en við voram lengi á leiðinni eða eina klukkustund og 20 mínút- ur,“ sagði Egill Ibsen flugmaður í samtali við blaðið. Síðara sjúkraflugið var farið um klukkan eitt aðfaranótt sunnudags og þá til Bíldudals til að sækja konu í bamsnauð. Sami vindstyrkur var og í fyrra skiptið auk þess sem svarta myrkur gerði flugið erfiðara. „Þetta var erfitt flug. Flug- vallarstjórinn á Bíldudal kallaði út björgunarsveitina á staðnum sem aftur raðaði bílum meðfram hlíð- inni á milli bæjarins og vallarins. Þannig komumst við inn . Ef það hefði ekki verið gert hefðum við aldrei getað lent, enda era engir aðflugsvitar í Amarfirðinum. Það era mjög dauf rafhlöðuljós á vellin- um. En þetta gekk. Fyrir mig per- sónulega var þetta erfitt, allavega um tíma í Arnarfirðinum,“ sagði Egill. Morgunblaðið/Sig. Jóns. STARFSFÓLK heilsuræktarstöðvarinnar Styrks á Selfossi. Nýtt fólk rekur Styrk Selfossi - Nýir rekstraraðilar, íþróttakennararnir Ágústa Gísla- dóttir og Auður Vala Gunnarsdótt- ir, hafa tekið á leigu heilsuræktar- stöðina Styrk við Gagnheiði á Sel- fossi, en eigandi stöðvarinnar er Pálmi Egilsson. Að sögn þeirra Auðar og Ág- ústu verður í vetur m.a. boðið upp á veggjatennis, dans, morgun- klúbba, herratíma á kvöldin í þol- fini, hefðbundna tíma í þolfími, leikfími fyrir eldra fólk, kjör- þyngdamámskeið, göngu- og skokkhópa, körfubolta, ljósatíma og gufubað. Lífræn ræktun í Vallanesi vottuð Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir EYMUNDUR Magnússon og Kristbjörg Kristmundsdóttir bændur í Vallanesi með soninn Gabríel Svein. Trygging fyrir vax- andi neytendahóp Egilsstöðum - Lífræn ræktun í Vallanesi á Fljótsdalshéraði hefur fengið vöravottun frá vottunar- fyrirtækinu Soil Association Org- anic Marketing í Englandi. Um er að ræða alla framleiðslu á jörð- inni Vallanesi, þ.e. grænmeti, pökkun, skógrækt, komrækt, moldarframleiðslu, nautgripa- rækt og heilsuolíur. Bændur í Vallanesi era þau Kristbjörg Kristmundsdóttir og Eymundur Magnússon og hafa þau unnið við lífræna ræktun s.l. 10 ár. Fyrir 4 áram síðan var öll framleiðsla jarðarinnar orðin líf- ræn. Eymundur segir vottun þessa hafa það í för með sér að nú geti viðskiptavinurinn treyst því að varan sem hann kaupir sé örugglega meðhöndluð á lífrænan hátt. Framleiðslu sína selja þau und- ir nafninu Móðir jörð. Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Stefni af skútu fannst við Eyjar Vestmannaeyjum - Plasthlutur, sem líklega er stefni af tveggja skrokka skútu, fannst á reki vestan við Vestmannaeyjar fyrir skömmu. Komið var með hlutinn til hafnar í Vestmanna- eyjum þar sem hann hefur verið skoðaður en ekki er vitað hvaðan hluturinn er kominn. Það var Fannberg Stefánsson á trillunni Lilju VE 75, sem fann plasthlutinn á reki á svokölluðum Flúðum vestan við Eyjar 2. sept- ember sl. Fannberg tók hann í tog og kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Sigmar Þór Svein- björnsson, umdæmisstjóri Siglingamálastofn- unar í Eyjum, skoðaði hlutinn og telur hann að þetta sé stefni af tveggja skrokka skútu, sem hefur brotnað frá aðalskrokknum. Hluturinn er gerður úr trefjaplasti með hörðu frauði á milli og er mjög léttur. Utan á hlutn- um er áletrunin 971 með stórum stöfum. Sig- mar segir að greinilegt sé að stefnið hafi ver- ið tankur því lok hafi verið á með áletruninni Fuel RC. Einnig hafi það verið merkt að það hafí verið framleitt á Nýja-Sjálandi. Ekki lengi í sjó Sigmar sagði engan gróður hafa verið að finna á hlutnum og bendi það til að hluturinn sé ekki búinn að liggja lengi í sjó. Hann hafi séð sand og fína blágrýtismöl í brotsárunum og mest af því hafi verið í neðri hluta brotsár- anna. Sigmar sagði að ekki væri vitað af hvaða skútu þetta gæti verið komið. Hann sagði að þegar hluturinn fannst hafí verið hæg norðlæg átt og bjart veður en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson HLUTURINN sem fannst á reki vestan við Vestmannaeyjar. sem hann hefði fengið frá Veðurstofunni þá hafí verið mjög slæmt veður og lélegt skyggni suður af landinu 20. ágúst sl. og hafi þá mælst 9 vindstig á skipi í hafínu suður af land- inu. Eins hafí verið slæmt veður á þessum slóð- um 23. og 24. ágúst sl. og sagðist hann velta fyrir sér hvort einhver skúta hefði verið á ferð- inni á þessum slóðum þá og eitthvað komið fyrir hana. Fjörutíu lúður á einum mánuði Grundarfirði - Bræðurnir Guð- jón og Ægir Elíssynir komu með fimm stórlúður að landi fyrir helgina. Hver um sig vó um það bil 100 kg. Bræðurnir hafa lagt haukalóð undanfar- inn hálfan mánuð og verið mjög fengsælir. Eru þeir búnir að fá 40 lúður á einum mánuði og eru margar þeirra mjög stórar. Á myndinni virða bræð- urnir fyrir sér feng dagsins ásamt strákaskaranum sem alltaf safnast fyrir á bryggj- unni ef eitthvað er um að vera. > > > \ i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.