Morgunblaðið - 19.09.1995, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nissan
Almera
sérhann-
aður fyrir
Evópubúa
NISSAN frumkynnti Almera sem
tekur við af Sunny sem selst hefur
vel hérlendis undanfarin ár. Al-
mera er Evrópuútgáfan af Pulsar
sem Nissan setti á markað í Japan
fyrr á þessu ári og er smíðaður í
sömu verksmiðjunni í Kyushu í
Japan. Bíllinn er hins vegar hann-
aður sérstaklega með þarfir Evr-
ópubúa í huga og fimm dyra út-
færslan er aðeins fáanleg í Evrópu.
Bíllinn verður strax fáanlegur
sem þrennra og fimm dyra hlað-
bakur og fernra dyra stallbakur.
Hann verður í þremur undirgerð-
um, þ.e. LX, GX, SLX, S og SR.
LX er grunngerðin og býðst á
lægsta verðinu en GX verður lík-
lega mesti sölubíllinn á meðan
SLX verður best búni bíllinn. SR
verður sportútfærslan, bæði í
fjöðrunarbúnaði og öðrum búnaði.
Líknarbelgur í stýri
staðalbúnaður
Almera verður búinn 1,4 og 1,6
lítra bensínvélum með fjölinn-
sprautun og sextán ventla tækni
og auk þess 2,0 lítra dísilvél. 1,4
lítra vélin er sérstaklega hönnuð
fyrir Evrópumarkað. Líknarbelgur
í stýri er staðalbúnaður og valbún-
aður fyrir farþega í framsæti.
Hjólhaf bílsins er 105 mm meira
en er í Sunny og innanrýmið er
meira. Þrennra dyra bíllinn er auk
þess 145 mm lengri en fimm dyra
bíllinn reyndar 25 mm styttri.
Þeir eru hins vegar báðir ögn
breiðari eða 20 mm.
Dregið úr vélar-
og vindgnauði
með nýjum búnaði
Það sem $.t.v. skiptir mestu
máli er að Nissan hefur dregið úr
vélarhávaða og -titringi með nýrri
gerð útblástursbúnaðar og vélar-
festingum. Úr vegadyn hefur verið
dregið með stífari yfirbyggingu
og nýjum fjöðrunarbúnaði, en bíll-
inn er nú með fjölliðafjöðrun að
aftan. Einnig segir Nissan að
dregið hafi úr vindgnauði með
nýja útlitslaginu en líka vegna
nýrrar gerðar þéttigúmmís í hurð-
um. Einnig hafa verið gerðar end-
urbætur á miðstöðinni sem nú er
hljóðlátari og auk þess með frjó-
kornasíu sem kemur sér vel fyrir
þá sem hafa ofnæmi fyrir frjókorn-
um.
• Alþjóðlega bílasýningin í Frankfurt
NÝR Vectra er ekki byltingarkenndur í útliti en er búinn ýmsum nýjungum eins og t.d. fótstigum sem falla saman i árekstrum.
• •
Onnur kynslóð
Vectra frumkynnt
NÝR Opel Vectra, af annarri kyn-
slóð, var frumkynntur á alþjóðlegu
bílasýningunni í Frankfurt í síð-
ustu viku en fyrst var farið að
framleiða Vectra 1988. Bíllinn
hefur selst í 2,5 milljónum eintaka
og var söluhæsti bíllinn í milli-
stærðarflokki í Evrópu 1990 til
1992 og var annar söluhæsti bíll-
inn í þessum flokki á sjöunda
framleiðsluári 1994. Mest hefur
hann selst í Þýskalandi (830.000
bílar) og í Bretlandi (730.000 bíl-
ar).
Nýi bíllinn kemur á markað í
Evrópu í haust en líklega ekki
fyrr en eftir áramót hérlendis.**
Það tók fjögur ár að hanna nýjan
Vectra og kostnaðurinn var um
2,5 milljarðar þýskra marka, um
112 milljarða ISK. Bíllirin verður
fáanlegur í fernra og fimm dyra
útfærslum. Hann er á nýjum und-
irvagni með nýrri fjölliðafjöðrun
að aftan og alhliða öryggisbúnaði.
Vélar eru einnig endurhannaðar
með tilliti til minni eyðslu og meiri
vinnslu á lægri snúningi.
Lítið breytt útlit
Það verður hins vegar að segj-
ast að ytri breytingar á bílnum
eru ekki jafnmiklar og búast hefði
mátt við þegar haft er í huga að
hann er sjö ára gamall. En þótt
breytingarnar séu litlar er Vectra
með lægsta vindstuðulinn í sínum
stræðarflokki, 0,28 Cd.
Fjöðrunarbúnaður í Vectra þótti
með ágætum en hann hefur verið
betrumbættur enn. Bæði fram- og
afturfjöðrunin, (MacPherson
gormar), er höfð á sérstökum
römmum sem eru festir á undir-
vagninn og lausir frá yfirbygging-
unni. Með þessu hefur tekist að
draga úr vélarhljóði og hvini frá
hjólbörðum í farþegarýminu.
Hemlalæsivöm er stáðalbúnað-
ur í Vectra og hún og ný fjölliða-
afturfjöðrun hefur dregið úr heml-
unarvegalengd um 17% auk þess
sem fjöðrunin er slaglengri. Líkn-
arbelgir eru staðalbúnaður í nýjum
Vectra og hefur Opel sótt um
einkaleyfi fyrir nýrri gerð fótstiga
sem leggjast niður í gólf við
árekstur og draga úr hættu á fót-
meiðslum. -------
Þrátt fyrir að ytri mál
bílsins hafi nánast ekki
breyst, 4,47 á lengd, 170
á breidd og 1,42 á hæð,
hefur innanrýmið aukist.
Hnérými í aftursætum ________
um 29 mm og höfuðrými
í bílnum um 13 mm. Lágmarksfar-
angursrými í stallbaknum er 500
lítrar og 480 lítrar í hlaðbaknum.
Hins vegar er hjólhafið 40 mm
lengra og sporvíddin að framan
67 mm breiðari að framan og 47
mm að aftan sem setur dálítið
sportlegri svip á bílinn. Seint á
næsta ári kemur svo á markað
langbaksútfærsla.
Bíllinn fer
sjálfvirkt í
hlutlausan gír
þegarhann
stöðvast
Á boðstólum verða sex gerðir
véla sem allar uppfylla reglugerðir
ESB um varnir gegn útblæstri og
hávaða sem taka gildi á næsta
ári. Meðaltalseyðsla vélanna er á
bilinu 6,6 til 8,8 lítrar á hveija
100 km og vélaraflið á bilinu 75
(í 1,6 lítra vélinni) til 170 hestöfl
(í 2,5 lítra V6-vélinni). Einnig
verður áfram boðið upp á 1,7 lítra
dísilvél með forþjöppu.
Skiptir sér sjálfur í hlutlausan
Nýjung í 1,8 og 2,0 lítra, fjögurra
strokka vélunum er ný ventla-
tækni sem eykur tog þeirra við
lægri snúning vélar. Fimm gíra
handskipting er staðalbúnaður en
sjálfskiptingin í 1,8 og 2,0 lítra
bílana er með nýjung sem nefnist
--------- „Neutral Control“, en
hún skiptir bílnum sjálf-
virkt í hlutlausan gír
þegar hann stöðvast og
staðið er á hemlastiginu.
Búnaðurinn sér síðan
____um að skipta sjálfvirkt
í gír þegar stigið er af
hemlum og snúningur á vélinni er
kominn upp í 1.500 á mínútu.
Þetta segir Opel að dragi úr elds-
neytisnotkun um 3%, einkum í
borgarumferð, t.d. þegar oft þarf
að stöðva vegna umferðarljósa.
Þá hefur Opel fylgt í fótspor
Renault og býður nú fjarstýringu
á útvarpi í stýri. Fjarstýrð samlæs-
ing í lykli verður staðalbúnaður.
Renault
Mégane -
fímm bílar
í einum
RENAULT Mégane var sá bíll sem
beðið var með hvað mestri eftir-
væntingu á bílasýningunni í
Frankfurt enda um æði athyglis-
verðan bíl að ræða sem leysir af
hólmi mjög velheppnaðan fyrir-
rennara, Renault 19. Með Mégane
má segja að Renault hafi stigið
skrefið til fulls og farið gegu til-
hneigingu til íhaldssemi í útlits-
hönnun í bílaheiminum því
þrennra dyra sportbíllinn og fimm
dyra hlaðbakurinn sem frum-
kynntir voru í Frankfurt skera sig
jafnt frá 19-línunni sem öðrum
bílum í þessum stærðarflokki.
Mégane er útlitslega fjarri þeim
beinu línum sem oft eru ráðandi
í hönnun bíla en byggir mest á
ávölum og sporöskjulaga formum.
Þegar frá líður verður bíllinn boð-
inn í fimm mismunandi útfærslum
sem allar verða mjög ólíkar inn-
byrðis og kveðst Renault vera
fyrsti framleiðandinn til að bjóða
einstaka bílgerð sem verður þegar
upp er staðið í raun fimm. Auk
hlaðbaksins og sportbílsins koma
á markað einrýmisbíll eða lítill
fjölnotabíll, sem byggir á sömu
hugmynd og Twingo og Espace,
fernra dyra stallbakur og opinn
sportbíll. Mégane-línan kemur á
markað í Frakklandi í nóvember
en annars staðar í Evrópu á næsta
ári.
Mégane verður boðinn m.a. með
tveimur nýjum vélum, þ.e. 1,6
lítra, 90 hestafla og 2,0 lítra, 150
hestafla. Hann verður með tveim-
ur líknarbelgjum og nýrri gerð
sæta og höfuðpúðar í aftursætum
verður valbúnaður.
Morgunblaðið/GuGu
ALMERA, tekur við af Sunny.
Morgunblaðið/GuGu
RENAULT Mégane er rennilegur arftaki 19-línunnar og verður smíðaður í fimm útfærslum.